Tíminn - 29.11.1949, Qupperneq 6
6
255. bl^
TJARNARBÍD
Róbcrt Koch
3
Hin heimsfræga þýzka stórmynd |
Einstæð afburðamynd leikin af |
tveimur frægustu snillingum |
Þjóðverja:
Emil Jannings
Werner Krauss
Þessa mynd þurfa allir að sjá. |
Sýnd kl. 9. — Sænskur texti. I
^ E
Sigur I vestri
(True Glory)
Myndin sýnir innrás Banda |
manna á meginlandið í síðustu |
heimsstyrjöld. Sannsögulegir við |
burðir.
Sýnd kl. 5 og 7.
Bönnuð innan 16 ára.
N Ý J A B í □
■
I
Baráttan gegn i
s
kynsjúkdóiiiunum
Mjög athyglisverð sænsk mynd
um orsakir og afleiöingar kyn-
sjúkdóma, sem ýmsir merkir
læknar á Norðurlöndum hafa
lokið miklu lofsorði á, og talið
þá beztu, er fram hefir komið
um þessi efni, almenningi til
fræðslu og viðvörunar. Danskir
skýringartextar. Bönnuð börn-
um yngri en 12 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Hafnarf jarðarbíó
: i
f sólskini
!
Hrífandi fögur og skemmtileg §
þýzk söngvamynd frá Vínar- |
borg. — Aðalhlutverkið leikur
og syngur hinn heimsfrægi
tenórsöngvari
JAN KIEPURA
Sýnd kl. 7 og 9. — Sími 9249. |
:
i
i
■uiimiMimiiiiiiiiiiniiiiiiMiiiiiiMMHMiiiMiMnmnimu
Erlent yfirlit
(Framhald, af 5. síSu).
menn, séu andvígir því, að her
verði komið þar á fót, þar sem
þeir óttist, að hann yrði fyrst og
fremst verkfæri afturhaldsaflanna.
Þá er og bent á það af hálfu vest-
urveldanna, að það sé tvíeggjað
fyrir Rússa að koma upp visir af
þýzkum her í Austur-Þýzkalandi,
því að slíkt sé illa séð í löndunum
austan járntjaldsins svonefnda.
Bæði Tékkar og Pólverjar líti á að
gerðir Rússa i Austur-Þýzkalandi
með fullri tortryggni og óttist að
Rússar meti oröið meira vináttu
Þjóðverja en þeirra. Það er ekki
talið stafa sist af þessu, að einn
af marskálkum Rússa hefir nú ver
ið settur yfir pólska herinn.
I>á dimmdt snögg-
lega.
(Framhald af 5. síðu).
Sorti sá, sem nú byrgir
augu Sjálfstæðismanna, muni
verða él eitt, sem birtir upp
jafnskjótt og þeir veltast sjálf
Ir út völdum.
TÍMINN, þriðjudaginn 29, nóvember 1949
Teflt á tvær
hættur
(Lev farligt)
| Hin ákaflega spennandi sænska
kvikmynd um frelsisbaráttu
Norðmanna á hernámsárunum.
— Þetta verður síðasta tæki-
færið til að sjá þessa mynd. —
Danskur texti. — Aðalhlutverk:
Lauritz Falk
Stig Járrel
Bönnuð börnum innan 12 ára.
Sýnd kl. 5, 7 óg 9.
o
Dóttír
vitavarðarins
Sýnd kl. 9.
Hetjur í hernaði
sprenghlægileg amerísk gaman-
mynd með
GÖG og GOKKE
i aðalhlutverkinu.
Sýnd kl. 5 og 7.
Leyniskjölin
I Bráðsmeliin, f jörug og spenn |
| andi amerísk Paramount-mynd f
| um mann, sem langaði að verða |
| lögregluspæjari og eftirlætið I
1 hans.
= Bönnuð börnum innan 16 ára. 1
Sýnd kl. 7 og 9.
I
I ————————————— |
I Ævintýri GuIIivers
í Putalandi
í f
Sýnd kl. 5.
| I
Miuuuiiiiii*iiivinMlliMiivinninniHiiiu-iiiiin«Mi>mili
Bergsteinn
Kristjánsson.
(Framhald af 3. slOu).
ingar I, og er hér fátt eitt
upp talið. .
Fyrstu árin eftir að Berg-
steinn fluttist hingað til bæj
arins stundaði hann ýmsa
vinnu, þar til árið 1941, er
hann gerðist gjaldkeri frí-
kirkjusafnaðarins, og hefir
hann það starf á hendi enn.
Jafnframt daglegum skyldu-
störfum hefir Bergsteinn lagt
mikla stund á ritstörf og hafa
komið út eftir hann tvær
bækur með smásögum og
dýrasögum, auk margra
blaðagreina.
Bergsteinn er sannur unn-
andi íslenzkra fræða, og er
það vel, að honum skuli hafa
verið veittur fræðimanna-
styrkur í viðurkenningar-
skyni fyrir ritstörf og fræði-
iðkanir. Hann er mikill bóka-
vinur, víðlesinn og á bóka-
safn gott. Maður rammís-
lenzkur, ungur í anda og enn
í fullu fjöri, þótt sextugur sé-
GAMLA Bí□
Prjár röskar
" d;i‘(ur
(Three Daring Daughters) |
Skemmtileg, ný amerísk |
söngvamynd í eðlilegum litum. f
Aðalhlutverk:
Jeanette MacDonald
píanósnillingurinn
Jose Iturbi og
Jane Powell,
(sem lék í myndinni „Ævintýri
á sjó“)
Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9.
Sala hefst kl. 11 f. h.
■UMUMMIMMlMMiniIlimillllMllllllllimnilllHIHIIIIIIII
BÆJARBÍq
I HAFNARFIROI 1
Gullna horgin
! !1
(Die goldene Stadt)
Heimsfræg þýzk litmynd. I |
Sýnd kl. 7 og 9.
Sími 9184. |
I
8
X
I
!
I
TRIPDLI-BÍÚ
Hræðslumála-
ráðuneytið
(Ministry of Fear)
Afar spennandi og viðgurðar
rík amerísk njósnamynd gerð;
eftir skáldsögu Graliam Green-
es, sem komið hefir út í ísl. þýð.
Aðalhlutverk:
Ray Millard
Marjorie Reynolds
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuð börnum innan 16 ára
Sala hefst kl. 11 f. h.
fiiliiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiunMiniiMmuiM
Farsæll og vinsæll maður,
sem hefir komizt vel af í líf-
inu. Veit ég, að margir munu
hugsa hlýtt til Bergsteins og
fjölskyldu á þessum merka
afmælisdegi og ekki er ósenni
legt, að gestkvæmt hafi
verið á hinu fallega og hlý-
lega heimili þeirra hjóna, en
það er nú víst ekkert nýtt.
Ég óska Bergsteini til ham
ingju með sextugsafmælið.
S. Þ.
Fasteignasölu-
miðstoöin
Lækjargötu 10 B. Sími 653G
Annast sölu fasteigna,
skipa, bifreiða o. fl. Enn-
fremur alls konar trygging-
ar, svo sem brunatryggingar,
innbús-, líftryggingar o. fl. í
umboði Jóns Finnbogasonar
hjá Sjóvátryggingarfélagi ís-
lands h,f. Viðtalstími alla
virka daga kl. 10—5, aðra
tíma eftir samkomulagi.
66. dagur
Gunnar Widegren: *
Greiðist við mánaðarnót
— Og stelpan lætur Helgu aldrei í friði. Undir eins
og hún er komin til Stokkhólms, leitar Elsa hana uppi,
situr um hana og límir sig upp að henni, rétt eins og
í kvöld. Og hún gerir þetta ekki út í bláinn, er ég hrædd-
ur um. En ekki held ég, að hún riði feitum hesti frá
þeim fundum.
— Jæja, svarar Stella, sem ekki vill gefa neinn högg-
stað á sér.
— En Helga hefir ekki enn haft brjóst í sér til þess
að reka hana af höndum sér, heldur Kristinn áfram.
Hún hefir alltaf haft svo miklar taugar til....
— Til Elsu? segir Stella háðslega.
— Nei — til föður hennar og múður, og svo hefir
ruðurinn kannske villt henni sýn. Þ?.ð er einn af hin-
um fáu göllum í fari Helgu Lóström, að hún metur
peninga of mikils. Og þar eiga þær samleið, Elsa og
nún.
— Þær hafa vafalaust báðar margt gott til að bera,
þótt þeim kunni að vera í einhverju áfátt, eins og okk-
ur öllum, svarar Stella, sem furðar sig á því, hvert
Kristinn stefnir með orðum sínum.
— Anngðhvort eruö þér í meira lagi út undir yður
eða þá sérlega kurteis og orðvör kona, segir hann.
— Hið síðarnefnda er kannske eins konar atvinnu-
sjúkdómuf bréfritara í skrifstofu, svarar Stella.
— Ef til vill, segir hann. Þau eru kominn að Ný-
brúartorginu, en í stað þess að halda áfram Nýbrúar-
götuna sveigir hann inn á Strandveginn.
— Við skulum hætta öllum leikraraskap, segir hann
allt í einu. Þess háttar er óþarft okkar á milli.
— Hvaða leikaraskap? spyr Stella, sem ekki gefst
upp mótspyrnulaust.
— Að tala ævinlega um Herbert og hans fólk, eins
og einhverjar fjarlægar manneskjur, sem yður séu
alveg óviðkomandi.
— Hvers vegna ætti ég að láta mig hann nokkru
skipta umfram annað fólk? spyr Stella.
— Þaö er alveg eins og Helga sagði við mig í dag,
svarar hann hlæjandi. Það er ógerlegt að finna fang-
stað á yður. Jæja — það er þá bezt að byrja á upp-
hafinu, og þá fæst unga stúlkan kannske til þess að
i tala nánar um þetta við mig. Ég er kamall pipar-
;■ sveinn — reyndar kannske eitthvað eftir af unga
manninum í mér — svona við hátíðleg tæfifæri.
— Skemmtilegt að heyra það, skýtur Stella inn í.
— Gleðúr mig, svarar hann. — Ég hreppti allmik-
inh arf og hætti námi, fór til útlanda og tókst að
eyða öllu, sem ég hafði eignazt^Síðan kom ég aftur
heim til fósturlandsins, án þess að hafa tileinkað
mér neitt, sem að haldi mátti koma. Og þá tók Albert
mig að sér. -1|g hafði dundað dálítið við málaralist,
og hann lét míg gera við gömul málverk, sem farin
voru að spjásf. ’Svo hjálpaði ég til í bókasafni hans.
Þetta átti ég áð gera eitt sumar. En ég var tuttugu
ár á Hamarshéiði.
' ••■'? \y. /'•''‘v*
Stella gengur þegjandi við hlið hans og hlustar eftir
hverju orði, sém. hann segir. í huga hennar rifjast
upp allt, sem 'ífún hefir lifað, og jafnvel dreymt. síðan
hún kýnntis Berbert.
— Helzta veíkefni mitt varð fljótt að hafa ofan af
fyrir gestum, gem að Hamarsheiði komu. Sjálfur var
Albert mjög ómánnblendinn. Hann var bóndi og heim-
spekingur, hraustur á sál og líkama. Og þetta hefir
elzti bróðifinp/.Jochum, erft frá honum. Hjónabandið •
var óhægt;.Það.igérði hann að enn meiri heimspekingi. ;
— Ég jaefi séð alla drengina þrjá vaxa upp og verða
það, sem þeir eru orðnir nú í dag, heldur hann áfram. '
Ég reyndi að telja í þá kjark og manndóm — án þess
að móðir þeirra vissi um þá handleiðslu. Ég hjálpaði
þeim í fðt'íh, þegar þess þurfti við og forðaði þeim
frá álasi ogí.,áminningum móður sinnar. ef mér þótti
það réttmætt-.w
Stella hlaEni', en hann heldur áfram frásögn sinni:
— Drenglrmr íiutu föður síns ekki lengi. Hann dó,
þegar Herfim't var aöeins ársgamall. Ég varð kyrr á
HamarsheiiSL „Ég gat ekki skilið þá eftir eina hjá
móður sinni. Ég sá, hvernig því uppeldi hefði lyktað.
Þetta var e.i»s og hún væri að siða hvolpa. Hún vildi, ;