Tíminn - 15.12.1949, Síða 1
Ritstjóri:
Þórarinn Þórarinsson
Fréttaritstjórii
Jón Helgason
Útgefandii
Framsóknarflokkurinn
ÍSkrifstofur l Edduhúsinu
Fréttasimar:
81302 ng 81303
Afgreiðslusími 2323
| Auglýsingasimi 81300
{ Prentsmiðjan Edda
33- árg.
Reykjavík, fimmtudaginn 15 desember 1949
269. blaff
Þessi stytta var nýlega afhjúpuð á torgi einu í Kaupmanna-
höfn. Er þetta gjöf til Dana frá „Det norske Takkefond".
Styttan nefnist „Tvær systur“ og er eftir norska myndhöggv-
arann Ornulf Bast. Hedtoft forsætisráðherra sést hér veita
gjöfinni viðtöku fyrir hönd ríkisins
FRÁ AÐALFUNDI L.Í.Ú.:
Brýn nauðsyn að færa
landhelgina út
Fundurinn liefir aígreití ályktanir uin
friðun Faxaflóa. hlutatry^ginjíarsióð o. fl.
Aðalfundur Landssambands útvegsmanna stendur yfir
hér í bænum um þessar mundir, eins og kunnugt er af fyrri
frásögnum blaðsins. Fundinn sitja 49 fulltrúar með 224 at-
kvæðum. Á fundinum hafa verið rædd ýmis hagsmunamál
sjávarútvegsins, en fæst þeirra hafa hlotið afgreiðslu enn.
Meðal þeirra ályktana, sem
frá, eru eftirfarandi:
Aðalfundur Landssambands
ísl. útvegsmanna haldinn 12.
desember 4199, samþykkir að
skora á ríkisstjórnina og Al-
þingi að láta einskis ófreistað
Jólaglaðningur
til blindra
Eins og undanfarin ár mun
Blindravinafélag íslands taka
á móti jólagjcfum til úthlut-
unar handa fátækum, blind-
um mönnum.
Gjöfunum er veitt mót-
taka á skrifstofu félagsins,
Ingólfsstræti 16 og Körfu-
gerðinni, Bankastræti 10.
. Gleðjið blinda um jólin.
fundurinn hefir þegar gengið
til þess að fullkomna friðun
Faxaflóa fyrir hvers konar
botnvörpu og dragnótaveiðum
samþykkta og viðurkennda á
alþjóða vettvangi.
| Aðalfundur Landssambands
isl. litvegsmanna haldinn 12.
desember 1949, lætur í ljósi
ánægju s'na yfir því, að sagt
hefir verið upþ landhelgis-
| samningnum við Breta frá
járinu 1901. Telur fundurin'n,
1 að stefna beri að þvi að fá
allt landgrunnið viðurkennt,
sem íslenzka eign hið allra
fyrsta.
Skorar fundurinn á Alþingi
jOg rikisstjórn að beita sér af
alefli fyrir sem mestri rýmk-
un landhelginnar og að hún
verði nú þegar færð út til
mikilla muna, að þvi er til
(Framhald á 8. siðuj.
Alþýðusamband Islands telur
kapphlaup milli kaupgjalds og
| verðlags óæskilegt
MIMHIIIIIIIIIIIIIIIiniMIIIMIIIIIIII'IIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIM
| Munið aðalfund |
1 Fr amsókn arf élags [
ins í kvöld
| Eins og fyrr hefir verið i
1 tilkynnt hér í blaðinu, held 1
| ur Framsóknarfélag Reykja I
| víkur aðalfund sinn í fund |
í arsal Edduhússins í kvöld, f
i fimmtudag, kl. 8,30 síðd. I
í Auk venjulegra aðalfundar |
i starfa mun Þórarinn Þórar f
i insson, ritstjóri, segja i
i stjórnmálafréttir og síðan i
Í verða umræður. Félags- i
i menn eru beðnir að f jöl- }
Í menna og mæta stundvís- 1
I lega. |
'iiiaiiim. ..iimiiii.•iMiitMiiiiiiiiiMiiiiiiir
Konungur
konunganna
Mvud af lífi og starfi
Krists svnd í Tjarn-
arbíói.
Snemma á öldum hófu
menn að túlka hinar helgu
frásögur Ritningarinnar með
leiksýningum, og á miðöldun-
um voru þessir trúarlegu leik
ir mjög iðkaðir og fjölsóttir,
fyrst í kirkjunum og síðar í
leikhúsum allt fram til vorra
daga- Þegar kvikmyndirnar
hófu göngu sína, sáu menn,
að þarna var verkefni fyrir
kvikmyndatæknina og marg-
ar slíkar tilraunir hafá verið
gerðar.
Lang merkilegustum ár-
angri hefir í þessu efni náð
hinn frægi kvikmyndaleik-
stjóri Cecil B. Milles, í stór-
myndinni Konungur Konung-
anna. Mynd hans var, eins
og kunnugt er, gerð fyrir all-
mcrgum árum og var þá sýnd
hér í bænum við geysilega að-
sókn.
Nú verður þessi fræga
mynd sýnd hér í Tjarnarbíói,
en með þeirri viðbót, að allir
ensku textarnir hafa verið
talaðir á íslenzku inn á mynd
ina, og hefir það tekizt vel.
Sýningar á myndý^ni hefj-
ast í dag kl. 5 síðd. og verða
framvegis tvær sýningar á
dag. ,
Krefst útrýmins'ar svarta markaðsins,
iækkaðs vöruverðs os» réttlátari húsaleis'u.
en boðar almennar g'runnkaupsbapkkanir,
ef ongar raunbæfar dýrtíðaraðs'erðir fást.
Stjórn Alþýðusambands íslands kom saman til fundar 11.
desember, og var þar rætt um dýrtíðarmál og kaupgjalds-
mál. Á fundi þessum var gerð svolátandi samþykkt, sem
send var Alþingi, ríkisstjórn og öllum sambandsfélögum
A. S. I.
Höfundur esper-
antós 90 ára
Zamenof höfundur alþjóða-
málsins esperantó á níutíu
ára afmæli í dag. Félagsskap-
ur esperantista hér á landi
mun minnast hans í kvöld
með sérstokum fundi.
„Sambandsstjórn er ljóst,
að kjör þau, sem íslenzk al-
þýða býr nú við eru í stöð-
ugri hættu, vegna ört vax-
andi dýrtíðar, duldrar og aug-
ljósrar.
Fyrir því vill hún hvetja
öll sambansfélög til að standa
trúan vörð um þær kjara-
bætur, er unnist hafa og gera
allt, sem í þeirra valdi stend-
ur tíl að koma í veg fyrir,
að nolckrar þær aðgerðir verði
hafnar af Alþingi eða ríkis-
stjórn, sem rýra kunna nú-
verandi kjör alþýðu manna.
í þessu sambandi vill sam-
bandsstjórnin vekja athygli á,
að þar sem sívaxandi dýr-
tíð í landinu hefir i för með
sér ört minnkandi kaupgetu
og kjararýrnun almennings,
jafnhliða því að stofna at-
vinnu landsmanna í hættu,
þá telur stjórn A. S. í., að
leggja þurfi á það höfuðá-
herzlu, að markvisst verði að
því upnið að ráða niðurlög-
um dýrtíðarinnar og koma
atvinnurekstri landsmanna á
sem öruggastn grundvöll. Sam
bandsstjórnin telur, að stöð-
ugt kapphlaup milli verðlags
og kaupgjalds sé óæskilegt,
en megin ráðstafanir gegn
sliku verði fyrst og fremst
að koma fram í lækkuðu
vöruverði, útilokun svarta-
markaðsbrasks, réttlátari
húsaleigu og fleiru, er hníg-
ur i sömu átt.
Vill sambandsstjórn í þess-
um efnum minna á fyrri sam-
þykktir miðstjórnar A. S. í.,
(um lækkun húsaleigu, aukn-
ar íbúðahúsabyggingar, auk-
inn neyzluvöruinnflutning,
endurskoðun reglna um álagn
ingu verzlana og iðnfyrir-
tækja, sérstakan dómstól til
að dæma í verðlagsbrotsmál-
um, verðlagsstjóra tilnefndan
af Alþýðusambandinu, að
tekjur lágt launaðra fjöl-
skyldumanna séu ekki skatt-
lagðar svo og ótal fleiri að-
gerðir, er auka mætti kaup-
mátt launanna og draga úr
kjararýrnun alls almennings.
Þá vill sambandsstjórn í
tilefni þeirra umræðna,. er
orðið hafa í seinni tið um
gengisfellingu islenzku krón-
unnar, minna á og ítreka
samþykkt síðasta sambands-
jþings varðandi almenna geng
jislækkun, en hún hljóðar svo:
„21. þing Alþýðusambands
íslands vill að gefnu tilefni
lýsa yfir fyllstu andstöðu
sinni við þá leið í dýrtiðar-
og fjármálum þjóðarinnar að
gengi íslenzku krónunnar
verði lækkað í nokkurri mynd,
þar eð slík ráðstöfun myndi
hækka allt verðlag í land-
inu og rýra laun almennings.“
Verði mót von sambands-
stjórnar enn ekkert það gert
af Alþingi og ríkisstjórn, er
hefir raunhæf áhrif til niður-
færslu dýrtiðarinnar, án þess
að jafnframt séu skert kjör
alþýðunnar í landinu, mun
sambandsstjórnin beita sér
fyrir almennum grunnkaups-
hækkunum til þess að al-
þýða manna fái uppborna þá
dýrtíðaraukningu, sem orðið
hefir og verða kann, en hún
á enga sök á. Fari svo, að sam
bandsfélögin verði að fara þá
leið, vill sambandsstjórnin nú
ítreka fyrri tilmæli miðstjórn
ar A. S. í. til. sambandsfélag-
anna, að þau hafi lausa samn
inga sina eins fljótt og þeim
er unnt og uppsagnará-
kvæði leyfa.
IIIMMIIIIIIIIII'*MIIUIIMIIIIIIIMIIIIu«lllll
I Framsóknarvistin
S - w.
| Verður á laugar-
dag'skvöldið, en
ekki föstudags-
kvöld.
| Sú breyting verður á meff
I Framsóknarvistina í Lista-
i mannaskálanum, aff hún
| verður ekki á morgun, en
i færist aftur um einn dag.
i og verffur á laugardags-
j kvöldið.
i Er þaff mun þægilegra
I fyrir fólk að sækja sam-
i komur á Iaugardagskvöld-
Í um og þá fær þaff líka
I að dansa lengur. Búast má
i því við mikilli aðsókn, og
| ættu þeir, sem ætla að
Í skemmta sér í Listamanna
j skálanum á laugardags-
Í kvöldið að panta sér að-
j göngumiða (helzt í dag) í
i síma 5564 eða 6066.