Tíminn - 08.01.1950, Blaðsíða 2

Tíminn - 08.01.1950, Blaðsíða 2
TÍMINN, sunuudaginn 8. janúar 1950 6. blað '}tá hafi tii ketóa Hvar eru skipin? lííkisskip. rlekla er í Reykjavík og fer það- tn fimmtudaginn 12. þ. m. aust- nr um land til Siglufjarðar. Esja ;r í Reykjavík og fer þaðan á norgun vestur um land til Ak- ireyrar. Herðubreið er væntanleg ;il Hornafjarðar um hádegi í dag t leið til Fáskrúðsfjarðar Skjald- oreið er væntanleg til Reykjavík- u seint í kvöld eða nótt að vest- m og norðan. Þyrill er væntan- legur til Reykjavíkur á morgun :crá Póllandi. ‘iimskip: Brúarfoss kom til La-Rochelle . Frakklandi 5/1., fór þaðan 6/1. , 1 Boulogne. Dettifoss kom til Rt/kjavíkur 1/1. frá Hull. Fjall- :oss kom til Kaupmannahafnar 5/1 cer þaðan 9/1. til Gautaborgar og -Æith. Goðafoss kom til Rotterdam ?/l. fer þaðan 9/1. til Hull. Lagar- :oss er í Kaupmannahöfn. Selfoss :ór frá Reykjavík kl. 20,00 í gær /estur og norður. Tröllafoss fór crá Siglufirði 31/12. til New ork. v?atnajökull fór frá Vestmanna- :ymm 2/1. til Póllands. Katla fór :rá New York 30/12., væntanleg il Reykjavíkur á morgun. Messur í dag: Dómkirkjan. Messa kl. 11, síra ðjarni Jónsson. Laugarneskirkja: Messað kl. 2 ;. li. Síra Garðar Svavarsson. Earnaguðþjónusta kl. 10 f. h. Síra Garðar Svavarsson. Frík'rkjan: Messa kl. 2 e. h. Síra Ragnar Benediktsson prédik- jr. (Ræðuefni: Máttur frækorns- .ns í mannlegu hjarta). Unglinga- élagsfundur kl. 11 f. h. Hafnarfjarðarkirkja: Sunnudaga ;kóli K.F.U.M. kl. 10. nskálaprestakall: Barnaguðþjón jsta í Njarðvíkum kl. 2 e. h. Síra cTiríkur Brynjólfsson. Nesprestkall. Messað i Mýrar- lusaskóla kl. 2,30. Síra Jón Thor- jrensen. Ur ýmsum áttum iliaðamannafélag íslands heldur fund kl. 2 í dag (sunnu- iag) að Hótel Borg. Prentarar! Jclatréskemmtun H.Í.P. verður i Jag 8. janúar kl. 4 e. h. Aðgöngu- mðar verða seldir í dag í skrif- jtofu fé’agsins frá kl. 4—7. áunnudagaskóli guðfræðideildar háskólans tekur jftur til starfa í dag kl. 10 f. h. Munu öll börn fá Jólakveðjuna, pau, er ekki hafa fengið hana áð- jr. Blöb og tímarit Bankablaðið 3.—4. tbl. 15. árgangs hefir blað- mu borizt. Fyrst eru í blaðinu mnningagreinar um Halldór Hall- dórsson útibússtjóra og Ágúst J. Johnson bankaféhirði. síðan skýrsla um starfsemi Sambands ísl. banka manna o. fl. Hrer fylejist með tímanum ef ehUi LOFTVR? Bókmítgáfa Menn- ingasjóðs (Framhald af 1. siðu) 1. 10 árum hafa þessar greiösl ur úr Menningarsjóöi, vegna félagsbókanna numið til jafn aöar kr. 22.480.46 á ári. Að sjálfsögöu hafa þessar fjár- greiöslur verið útgáfunni milcilsverð hjálp. Þær munu þó hafa dugað skammt, eins og kostnaöur við bókagerö hefir verið og er gífuriega hár, ef félagsmenn útgáfunn ar hefðu eigi verið margir eða um 12 þúsund eins og þeir eru nú og er mikill meiri hluti þeirra hlutfallslega úr sveitum landsins. Útgáfubækurnar. Hér fer á eftir stutt yfirlit um helztu ritin, sem útgáfan hefir látiö prenta. Bókaflokkar. Þrjár þeirra bóka, sem félagsmenn fengu á s. 1. ári, eru í bókaflokkum, sem haldið verður áfram aö gefa út á næstu árum. Þessir bókaílokkar hafa samheitin „íslenzk úrvalsrit“, „Úrvals- sögur Menningarsjóðs" og „Lönd og lýðir“. íslenzk úrvalsrit. — í þeim flokki hafa þegar verið gefn- ar út 8 bækur. Höfundar eru Jónas Hallgrímsson, Hjálmar Jónsson frá Bólu, Hannes Hafstein, Mattliías Jochums- son, Grímur Thomsen, Guð- mundur Friðjónsson, Stefán Ólafsson og Kristján Jónsson. í hverri bók er ritgerð um skáldið og verk þess. Á þessu ári mun félagsmenn fá bók eftir Jón Thoroddsen. Verður hún búin til prentunnar af Steingrími Þorsteinssyni. Óhætt mun aö segja að út gáfa þessara handhægu bóka glæðir áhuga manna fyrir lestri fagurra ljóða, ekki sízt þeirra, sem skortir fjárráð eða tíma til að eignast og lesa heildarútgáfur af ritum þessara skálda. Úrvalssögur Menningar- sjóðs. — Tvö bindi eru þegar komin út í þessum bóka- flokki: Sögur frá Noregi og Sögur frá Bretlandi. Mark- miðið með þessari útgáfu er að reyna aö kynna félags- mönnum nokkuð af hinu bezta í þessari bókmennta- grein erlendis. Ekki er ólík- legt, að síðar verði einnig gefið út safn íslenzkra smá- sagna í þessum bókaflokki. Lönd og lýðir. — Þessi flokkur á að verða alls a. m.' k. 20 bindi og koma út á 10— 12 árum. Fyrsta bindið — Noregur — eftir Ólaf Hansson kom út í nóvember s. 1. Eftir þeim fregnum. sem borizt liafa frá félagsmönnum, virð ist engri nýbreytni varðandi val félagsbókanna hafa verið tekið eins vel og þessari byrj- un á yfirgripsmikilli íslenzkri landafræði. — Á þessu ári kemur út bók urn Svíþjóð, samin af Jóni Magnússyni. Ársrit. — Hin gömlu ársrit, Andvari og almanak Þjóðvina félagsins. eru á meðal hinna árlegu bóka, sem félagsmenn fá. Þorkell Jóhannesson hefir verið ritstjóri þeirra beggja s. 1. 15 ár. Síðustu árin hafa LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR Sýning í kvöld kl. 8 „Bláa kápan“ Aðgöngumiðar seldir í dag eftir kl. 2. — Sími 3191- m. a. birzt á almanakinu rit- gerðir um ýmsa þætti í sögu íslands eftir 1874. Erlend skáldrit. — Vinsæl- asta skáldritið, sem bókaút- gáfan hefir látið prenta til þess, er án efa Anna Karen- ína eftir L. Tolstoi. Á þessu ári mun sennilega koma út „Pickwick Papers“ eftir Ch. Dickens i þýðingu Boga Ólafs sonar. — Nokkrir viðskipta- menn útgáfunnar hafa rninnst á það, að hún ætti að gefa út „spehnandi reyfara“. — Útgáfustjórninni er ljóst, að oft getur orkað tvímælis, hvaða skáldrit eigi að ís- lenzka fyrir hinn stóra félags mannahóp. Reynt hefir þó verið að velja sígild skáldrit, sem geta sómt sér vel í bóka- söfnum heimilanna eftir tugi ára, ekki síður en nú. Útgáfa fornrita. — Þegar hafa verið gefnar út Njáls- saga, Egilssaga og Heims- kringla, I.—III. bindi. Sverris saga, sem er framhald af Heimskringlu, verður gefin út á næstunni, búin til prent unar af Lárusi Blöndal. Ýmis fræðirit. — .Af þeim skal nefna Mannslíkamann og störf hans eftir Jóhann Sæmundsson, Stjórnmála- sögu eftir Skúla Þórðarson, og Sögu heimsstyrjaldarinn- ar 1939—45 eftir Ólaf Hans- son. Heiðinn siður á íslandi, bók um trúarlíf íslendinga til forna, eftir Ólaf Briem, hefir einnig verið gefin út af Menn ingarsjóði. Sú bók var þó ekki félagsbók. Bréf og ritgerðir Stephans G Steplianssonar. Heildarút- gáfu í fjórum bindum á rit- um þessa skálds í óbundnu máli var lokið árið 1948. Sú útgáfa var að öllu kostuð af Þj óð vinaf élaginu. Saga íslendinga. — Þetta ritverk á að verða alls 10 stór bindi. Þrjú þeirra (IV., V. og VI.) eru þegar komin út. Ná þau yfir tímabilið frá 1500 til 1770. — Nýtt bindi — „Tíma- bilið 1770-^1830“, eftir Þorkel Jóhannesson, er nú í prent- j un. Sennilegt er að næsta • bindi komi út árið 1951. Verð , ur það I. bindi, — Landnáms og söguöldin — samin af Barða Guðmundssyni. i Ilíons- og Odysseifskviða. — Hinar frægu Hómersþýð- ingarSveinbjarnar rektors Egilsonar hafa nú verið gefn- j ar út að nýju i tveimur stór- um bindum, enda voru þær orðnar mjög fágætar. Um út gáfuna sáu Kristinn Ármanns son og Jón Gislason. Lýsing íslands. — Undirbún ingi að útgáfu þessa mikla ritverks, sem áður hefir verið greint frá, er haldið áfram,1 þótt hann sækist fremur1 seint. Ekki er því hægt að segja um enn þá, hvenær _ fyrsta bindið muni koma út. En kappkostað verður að láta eitt bindi koma út ár hvert, eftir að útgáfan er hafin. I Handbækur Menningar- sjóðs. — í næsta mánuöi' kemur út bók. sem nefnist1 „Búvélar og ræktun“, samin af Árna G. Eylands. Þetta verður handbók fyrir bændur um ræktun, meðferð og not- kun búvéla. Ráðgert er, að S.K.T Nýju og gömlu dansarnir I G. T.- húsinu sunnudagskvöld kl. 9 — Húsinu lokað kl. 10.30. Aðgöngumiðar seldir frá kl. 6.30. JEPPAEIGENDUR” Athugið að nú getum við sólað hjólbarða yðar með hinu vel þekkta „GRIP-JEPPAMUNSTRI“ Látið okknr gera hjólbarða yðar sem nýja. — Send- um gegn póstkröfu um land allt. ; U o o o GÚMMÍ H.F. Sænsk-ísl. frystihúsinu. — Sími 5977 — Reykjavík Nýtt fyrirtæki i: Bændur! •jönnumst alls konar ný- Ismíði og viðgerðir. — Kaupfélög! Höfum venjulega fyrirliggj andi í ýmsum stærðum, ÞAKGLUGGA, Þ.4KRENN- UR o. fl. Öll vinna fljótt og vel af hendi leyst. REYNIÐ VIÐSKIPTIN ! Blikksmiðjan FAXI Hraunteig 14. — Reykjavík. — Sími 7236 Virðingarfyllst: Björgvin Ingvarsson Benedikt Ólafsson it Blikksmíðameistari Blikksmíðameistari :: gefa út síðar fleiri slíkar bæk ur, sem flytji hagnýtar leið- beiningar um ýmis dagleg störf, — og mynda þannig safn handbóka viö almenn- ingshæfi. Bókaflokkur um listir. — í ráði er að gefa út á næstu árum nokkrar bækur um list ir. Reynt verður að hafa þær hvort tveggja í senn, alþýð- legar og fræðandi. Til skýr- ingar efninu verða í hverri bók margar myndir. Þegar hafa verið ráðnir 2 menn til að semja bækur i þessum flokki. Haraldur Björnsson mun rita bók um leiklist og Páll ísólfsson um hljómlist. (A. m. k. önnur þessara bóka á að koma út fyrir lok þessa árs. Sögustaðalýsing. — Mennta málaráö hefir fyrir nokkru ráðið Jón Jóhannesson til að semja allsherjar lýsingu ís- lenzkra sögustaða. Ekki er á- ætlað, að rit þetta geti kom- ið út fyrr en eftir 7—10 ár. Útgáfa ýmissa fleiri rita hefir verið rædd í útgáfu- stjórninni, þótt ekki verði •það rakið hér. Menntamálaráð. í Menntamálaráði eiga nú sæti Valtýr Stefánsson for- maður, Barði Guðmundsson ritari, Pálmi Hannesson, Magnús Kjartansson og Vil- hjálmur Þ. Gíslason. Stjórn Þjóðvinafélagsins skipa nú: Bogi Ólafsson, forseti, Barði Guðmundsson, Guðni Jóns- son, Halldór Kiljan Laxnes og Þorkell Jóhannesson. Umboðsmenn útgáfunnar utan Reykja'víkur eru nú 140. Þeir hafa yfirleitt reynzt ötul ir og traustir trúnaðarmenn og á útgáfan mörgum þeirra ómetanlega mikið að þakka. Án þeirra hefðu bækur henn ar alls ekki náð þeirri út-' breiðslu. sem raun hefir á orð ið. Forráðamenn útgáfunnar hafa beðið blaðið að þakka umboðsmönnunum og öllum hinum mörgu og góðu félags- mönnum viðskiptin og sam- starfið á undanförnum árum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.