Tíminn - 02.02.1950, Síða 3

Tíminn - 02.02.1950, Síða 3
27. blað TÍMINN, fimmtudaginn 2. febrúar 1950 3 Dánarminning: Ingiríður Brandsdótfir, Ægissíðu Nokkru fyrir nýliðin jól, andaðist að Ásmundarstöðum í Ásahreppi, Ingiríður Brands dóttir fyrrum bónda í Marz- hól á Bakkabæjum. En hann var bróðir Jóns Brandssonar bónda í Fíflholti, sem var hestamaður svo mikill, að enn býr að í Rangárþingi og myndarmaður að ýmsu leyti, •— en varð gæfulítill að iok- um og endaði líf sitt á ömur- legan hátt. Ingiríður missti móður sína barn að aldri. Fór á ungl- ingsaldri úr föðurhúsum og var vinnukona upp frá því, meðan orka leyfði erfiði. — Lengstum var hún á Ægisíðu, hjá merkismanninum: Jóni bónda Guðmundssyni Brynj- ólfssonar á Keldum, — og talin vera uppáhaldsvinnu- kona hans. — Eftir andlát Jóns var hún kringum áratug hjá Ingi- björgu dóttur hans, sem gift var Bjarna Guðmundssyni frá Háamúla, en nú býr ekkja á Gaddsstööum á Rangár- völlum. Og enn var hún þar viðloðandi, árum saman, eft- ir að aldur meinaði, að vera í föstum vistum. — Ætla ég, aö enginn vandalaus reyndist henni eins vel og Ingibjörg á Gaddstöðum. Síðast var hún allmörg ár hjá Þórði bónda bróður sinum á Ásmundar- j stöðum og virtist líða vel. j Fór þó þaðan fyrir fáum mán 1 uðum, og ollu því eigin geð- brestir. — Inga Brands var nvorki vit' ur kona né víðförul. — Ætla ég þó að á ungum aldri fylgdi henni lífsþróttur og tiilits- töfrar meir en meðallagi. En lengst af átti hún lítilla kosta völ. — Aödáun hennar á „hús bónda“ siínumi jva'r 'e. t. v. glaðasti geislinn, er vermdi langa vinnukonuæfi. Og vissu lega var það hvorki né er, eftirtöluefni. 5. janúar 1950. Helgi Hannesson Dánarminning: Anna Jónsdóttir, Eystra-Hóli Anna gamia í Eystri-Hól er dáin. Hún andaðist hinn 8. desember s. 1. á 95. ári æfi sinnar. — Anna var ættuð úr Þykkva- bænum, dóttir Jóns bónda Einarssonar í Stöðulholti og konu hans Guðrúnar Jóns- dóttur, og ólst þar upp hjá þeim. — Uppkomin fluttist hún að Ægisíðu til Felixar gamla og Helgu konu hans. Hjá þeim var hún vinnukona þar til hún giftist 1882, — 27 ára gömul. — Bóndi henn- ar var Brynjólfur Baldvins- son frá Lindarbæ. Byrjuðu þau búskap þar. Fluttu brátt að Hjálmholti og síðan að Fulu. Þar lézt Brynjólfur eft- ir langvarandi þjáningar, sumarið 1897. Af fimm börnum þeirra hjóna, uxu tvö upp og urðu myndaríólk: Guðrún, kona Jóns bónda Sveinssonar, Vatnskoti í Þykkvabæ og Ár- sæll, sem lengi hefir verið sjómaður og heima á í Reykja vík. Eftir missi manns síns, bjó Anna enn um fjögur ár, við mikla fátækt og örðug- leika. En gafst þá upp og gerðist vinnukona, og fylgdu henni börnin hennar bæði. — Fór hún fyrst til Jóns á Lýt- lngsstöðum. En næst til Þórð- ar í Litlutungu Tómassonar, — með honum fylgdist hún síðar að Eystri-Hól í Vestur- Landeyjum. Hjá þeim hjón- um og Helgu dóttur þeirra, var hún meira en 44 ár. — Anna var greind kona og j fróðleiksfús, trúhneigö og söngelsk, þrekmikil og heilsu- j hraust með afbrigðum, enda j mikil verkkona og sístarfandi meðan sjón og limir leyfðu. En sjö árin sín síðustu var hún blind. Ein af hetjum hversdags- lífsins gekk hér örlúin til grafar. — 15. janúar 1950. Helgj Hannesson Landssamband hestamanna Dagana 18. og 19. des. 1949 komu saman í Reykjavík full- trúar frá eftirtöldum hesta- mannafélögum: Þorlákur Björnsson, bóndi í Eyjarhólum, frá fél. Sindra, Vestur-Skaftafellssýslu. Ólafur Jónsson, frá Aust- vaðsholti, frá fél. Geysir, Rangárvallasýslu. Steinþór Gestsson, bóndi Hæli, frá fél. Smári, Hrepp- um, Árnessýslu. Jón Pálsson, dýralæknir, Selfossi, frá fél. Sleipnir, Flóa Árnessýslu. Björn Bjarnason, málaram. og Kristinn Hákonarson lög- rþj. frá féi. Sörla, Hafnarfirði. Bogi Eggertsson, Lauga- landi, H. J. Hólmjárn forstj., Þorlákur Ottesen verkstj., Ingólfur Guðmundsson af- greiðslum., Björn Gunnlaugs- son innheimtum. og Sólmund ur Einarsson frá fél. Fákur, Reykjavík. Sigurdór Sigurðsson, frá fél. Neista, Akranesi. Ari Guðmundsson verkstj., Borgarnesi, Gunnar Bjarna- son, hestræktarráðunautur Hvanneyri og Sigursteinn Þórðarson frá fél. Faxi, Borg- arfirði. Hermann Þórarinsson, Blönduósi, frá fél. Neisti, Austur-Húnavatnssýslu. Ólafur Sveinsson kaupm. í Reykjavík, frá fél. Stígandi, Skagaf j arðarsýslu. Pálmi Jónsson bókari i Reykjavík, frá fél. Léttfeti, (Framhald á 7. síðu.J Sveitin okkar Eftir Richard Bcck. Fyrir nokkru birtist í Lögbergi ritdómur eftir prófessor Richard Beck um þrjár Norðrabækur frá seinasta ári. Fer hér á eft- ir dómur prófessorsins um eina þessara bóka. Þriðja bókin, sem hér verð- ur stuttlega gerð að umtals- efni, er Sveitin okkar, eftir Þorbjörgu Árnadóttur. Er hún frábrugðin hinum tveim að i því leyti, að hún er frumsam- j in af höfundinum, en þó! skyld hinum ritunum að efni, j því að hún fjallar, eins og! nafnið bendir til, um íslenzkt \ sveitalíf, en þar á íslenzk i þjóðleg og bókleg menning | sínar djúpu rætur og hefir lifað og dafnað öldum saman. Það hefir verið mikil tízka 1 í íslenzkum nútíðarbókmennt j um að bregða upp, í áróðurs skyni, sem ömurlegustum j myndum úr íslenzku þjóðlífi og sveitamenningu. Hér kveð- ur við allt annan tón. í bók sinni lýsir Þorbjörg Árnadótt- ir sveitalífinu á fyrsta tug þessarar aldar eins og það kom henni fyrir sjónir á æsku- og unglingsárum líenn ar í einu af fegurstu og víð- frægustu sveitum landsins. Prestsdóttirin frá Skútustöð- um færir hér í einkar aðlað- andi og skáldlegan búning bernsku- og æskuminningar sínar, hitaðar eldi ræktar- semi og þakkarhuga. Ýmsir munu segja, að hér sé horft á hlutina gegnum rómantískt sjónargler, en þá er því til að svara, að fegurðin er, góðu heilli, eins raunveruleg og ljótleikinn, hið góða eigi að siður en hið illa, öllum þeim, er líta lífið heilskyggnum sjónum. Og það ætla ég, að þeir, sem nú eru miöaldra og ólust upp í íslenzkri sveit á því tímabili, sem þessi lýsing tekur yfir, muni af eigin reynd kannast við sanngildi hennar í meginatriðum, þó að breyttir staðhættir komi þar vitanlega til greina og menningarlífið kunni að ýmsu leyti að hafa verið auð- ugra á prestssetrinu, æsku- h^imili höfundar, en almennt gerðist annarsstaðar. Hér er lýst, með hrifningu og aðdáun, lífinu í sveitinni á öllum árstíðum, ‘æskunni að leik og fullorðna fólkinu að starfi innan húss og utan, heimilis- og félagslífi hvers- dagslega og á hátíðastund- um; eigi aðeins ytri hliðinni á lífi fólksins, heldur einnig innra lifi þess, því að með mikilli nærfærni er blæjan dregin frá hugarheimum þess í sorg og gleði. Falleg og sam úðarrík er t. d. lýsingin á því^. þegar fyrstu ástir kvikna í brjóstum unga fólksins. Bókin er rituð á íburðar- iausu og blæfögru máli; nátt- úrulýsingarnar oft bæði skáld legar og markvissar, frásögn- in nll lifandi og lÆldur at- hygli lesandans vakandi. Hollrar lífsspeki gætir einn lg víða í þessari bók, ekki sízt í orðum þeim, sem lögð eru i munn prestinum, föð- ur höfundarins. Og okkur, sem áttum því láni að fagna að þekkja séra Árna Jónsson persónulega, finnst sem hann sé þar lifandi kominn og á- varpi okkur að nýju með hlý- leik sýnum, víðsýni og vizku. Dóttir hans hefir líka tileink- að minningu hans þessa bók Kabarettkvöld Templara í Góðtemplarahúsinu Edda Skagfield Fyrir nokkru er byrjað að í þjóðlífinu, að það getur ver hafa svokölluð Kabarett- ið sncrp og réttmæt ádeila, kvqjd í Góðtemplarahúsinu. Templarar hafa þar gengizt fyrir því að koma á léttum kvöldskemmtunum og það er óhætt að segja, að þeim hefir heppnast vel með þessari fyrstu tilraun að gera fólki til ánægju. Dagskrá þessara skemmt- ana eru ýmsir smáþættir. Þar syngur Edda Skagfield ein- söng. Tveir menn úr hljóm- sveit hússins leika ungverzk sígaunalög, Jan Moravek og Guðni. Auk þessa er dansþátt ur, upplestur, flutningur gam anvísna og stuttir leikþættir. Leikarar þeir, sem þarna koma fram, eru Klemenz Jónsson, Valdimar Lárusson, Emilía Jónasdóttir, Sólveig Jóhannsdóttir og Nína Sveins dóttir. Heita má, að óslitinn hlátur sé meðal áhorfenda, meðan þau flytja atriði sín, enda er margt haglega gert, bæði í efni og meðferð Nokkuð af efni þessara skemmtana er eftir Loft Guð mundsson. Hann á sinn hlut bæði í leikþáttunum og gam- anljóðunum. Ekki er annað hægt en dást að því, hvað heppinn Loftur er, . slikur stcrframleiðandi sem hann er á þessu sviði. Hann kann undra vel að hitta á það, sem fólk hefir unun af og vekur hlátur. Og þáttur hans um happdrættismiðann er mjög haglega sniðinn. Sumt í blankveldisljóðunum er líka óvenjugott spaug og á sér raunar svo mikla samsvörun sína, og átti það ágætlega við, því að hún kom út á ald- arafmæli hans, sem börn hans og aörir ættingjar minntust virðulega að Skútustöðum siðastliðið sumar. Undiralda þessarar bókar er djúpstæð átthagaást og ást á þeim sögulegu og menning- arlegu erfðum íslenzku þjóð- arinnar, sem verið hafa henni orkulind til dáða í liðinni tíð. því að snúningur þessara kunnu öndvegisljóða er ekki annað en úthverfa þjóðlífs- ins og öfuguggaháttur. Með þessum Kabarett- kvöldum er aukið nýjum þætti í skemmtanalíf Reyk- víkinga. Samtök bindindis- manna hafa hér sótt fram og náð nýjum áfanga á sviöi skemmtanalífsins. Það^ er spor í rétta átt, þó að það sé ekki nema lítill þáttur í löngu starfi, sem eftir er að vinna. Templarar ættu að halda áfram á þessari tíraut og hafa fleiri og fjölbreyftari skemmtanir, þar sem ál- menningur gæti átt ánægju- lega stund áfengislaust. Frá þessu sjónarmiði er hér um að ræða talsvert méfki- legan atburð á sviði skern’mt- analífs og áfengismála. 'Og það vænti ég, að almennhig- ur taki þessari fyrstu' tilraun svo vel, að það verði tívsitn- ing til að halda áfráni og gera betur næsta vetur. II.'Kr. Jajji/aiiS et vinsaBlasta blað unga fólksins. Flytur fjölbreyttai greinar um er- lendo sem innlenda iazzleikgra. Sérstakai frétta- spurninga- texto- og barmonikusíður. lUndirritaður óskar áð gerast á skrijundi aO Jaszblaöinu. Naín ............................ Heimili ................*____".... Staður

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.