Tíminn - 02.02.1950, Page 6
6
TÍMINN, fimmtudaginn 2. febrúar 1960
27. blað
TJARNARBÍÚ
í gogn um Brlm
og boða
- ■» ?
— Saga Courtneysœttarinnar —s
Áhrifamikil og sérstaklega vel<
leikin ensk mynd um Courtneys l
; ættina, sigra hennar og ósigra!
í þrjá mannsaldra. !
Aðalhlutverk: !
Anna Neagle
Michael WilcLing
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
N ÝJA B í □
IKjartan Ó. Bjarnason sýnir: >
Vestmannaeyjar,
fjölbreytt fuglalif, bjargsig, ||
eggjataka o. fl. [
Vestfirðir,
m. a. fráfærur í Önundarfirði >
og æðarvarp i Æðey. i
„Blessuð sértu sveitin mín“ |
Skemmtilegar minningar úr i
íslenzku sveitalífi. ;
Blómmóðir bezta,
myndir af ísl. blómum víðs
vegar af landinu.
Myndirnar eru í eðlilegum litum
og með ísi. skýringum og hljóm-
list, — Sýndar kl. 5, 7 og 9. i
Hafnarfjarðarbíó
í giftingaþönkum ;
Amerísk gamanmynd.
Aðalhlutverk: !;
Shirley Themple
Franchot Tone '<
1 Guy Madison
: Sýnd kl. 7 og 9.
í
Sími 9249.
Erlent yfirlit
(Framhald aJ 5. stouj.
andi .andstöðu við yfirboðarana i
Moskvu. Að lokum skildi hann al-
veg við flokkinn og gaf sig aðal-
lega að skáldsagnagerð, þar sem
hann hélt m. a. uppi markvissri
gagnrýni á fasistastjórn Mussolini.
Silone vinnur nú að því um þess-
ar mundir að skipuleggja nýjan,
róttækan sósíalistaflokk á Ítalíu,
er sé óháður Moskvu. Sársauka-
laust var mér það ekki, segir hann,
að skilja við kommúnistaflokkinn,
sem 'ég hafði helgað beztu ár æv-
innar, en sannfæring mín leyfði
mér ekki annað.
RICHARD WRIGHT gekk í
kommúnistaflokk Bandaríkjanna,
því að hann lézt mjög láta málefni
svertingja til sín taka. Þann áróð-
ur ráku kommúnistar ekki sízt í
svertingjahverfinu í Chicago, þar
sem Wright ólst upp. Wright þoldi
hinsvegar ekki andrúmsloftið í
kommúnistaflokknum og varð þar
fyrir fyllstu vonbrigðum. Hann seg
ist hinsvegar telja sig hafa hlotið
af þessu dýrmæta reynslu, þvi að
OFSÓTTUR
(Pursued)
ROBERT MITCHUM,
ásamt Theresa Wriglit.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Sýnd kl. 7 og 9.
Baráttan við
ræningjana
Afar spennandi og skemmtileg
amerísk kúrekamynd
Sýnd sl. 3.
Sýnd kl. 5.
GAMLA B I □
AnnaKarenina
Sýnd kl. 9.
Síðasta sinn.
San tlucntin-
fangolsið
Aafar spennandi amerísk j
sakamálamynd, með:
Lawrence Tierny
Barton Mac Lane
Marian Carr
Sýnd kl. 5 og 7.
Bönnuð börnum
Safía
Frönsk stórmynd gerð eftir
; skáldsögu Jean Vigaud’s „La
Maison du Maltais“.
Aðalhlutverk leika hin fagra
franska leikkona
VIVAN ROMANCE
Louis Jouvel
Pierre Renoir
; Bönnuð börnum innan 16 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Sími 81936
Ungar stiilkur í
æfintýraleit
Bráðfyndin og skemmtileg
þýzk gamanmynd, gerð eftir
hinu fræga leikriti J. Skruznýs.
— Danskar skýringar.
Karin Hardt
Hella Pitt
Paul Hörbiger
Sýnd kl. 5, 7 og 9. 1
hann hafi lært af því að láta ekki
öfgar og offors leiða sig i gönur.
Hinir rithöfundarnir þrír hafa
aldrei verið flokksbundnir komm-
únistar, en hinsvegar stutt þá
meira og minna um nokkurt skeið,
einkum þó Gide. Hann snerist hins
vegar gegn kommúnistum eftir all
langa dvöl í Sovétríkjunum og reit
þá um það bækur, sem vöktu
mikla athygli.
Allar eru ritgerðirnar vel skrif-
aðar og bera þann blæ, að þær eru
ekki fyrst og fremst skrifaðar í
áróðursskyni, heldur til þess að
kryfja málin til mergjar og gera
öðrum auðveldara að átta sig á
þeim. Þær eru því gagnlegar öll-
um þeim, sem vilja kynna sér mál-
in af raunsæi og yfirsýn.
Heimatilbáin
kreppa
(Framhald af 5. slðu).
Ieiðsla kommúnista og stór-
gróðamanna í Sjálfstæðis-
flokknum. Hvorugir þessara
aðila hafa hugsað um þjóðar-
hag, heldur ýmist stjórnast
BÆJARBID
HAFNARFIROI
Sagan af
AL JOLSON
Sýnd kl. 9.
Hún. iiaim og
Hamlet
Sýnd. kl. 7.
Sími 9184.
TRIPDLI-BÍD
Njósnaförin
Secret Mission)
Afar spennandi ensk njósna-
kvikmynd frá Eagle Lion, gerð
af Marrel Hellman eftir sögu
Shaun Terrence Young.
Aðalhlutverk:
James Mason
Hugh Willams
Michael Wilding
Bönnuð börnum innan 12 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Sími 1182
af einkahagsmunum eða þeim
annarlegu sjónarmiðum, að
atvinnuleysi og kreppa hent-
aði stefnu þeirra bezt. Þess-
um staðreyndum má þjóðin
ekki gleyma, því að þeir, sem
leiddu hana út í öngþveitið,
eru allra manna óliklegastir
til að vísa henni aftur á rétt-
an veg. Af reyslunni á hún
að læra að forðast Ieiðsögn
þessara manna. X+Y.
Fasteignasölu-
miðstöðin
Lækjargötu 10 B, Sími 6530
Annast sölu fasteigna,
skdpa, blfreiða o. fl. Enn-
fremur alls konar trygging-
ar, svo sem brunatryggingar,
innbús-, líftryggingar o. fl. í
umboði Jón FUmbogasonar
hjá Sjóvátryggingarfélagi ís-
lands h. f. Viðtalstími alla
virka daga kl. 10—5, aðra
tíma eftir samkomulagi.
WILLY CORSARY:
27. dagur
Gestur í heimahúsum
viss um, að það væri rétt skýring — ofur-einföld og skiljan-
leg, ekki nándarnærri eins sorgleg og fólk hafði ímynd-
að sér. Hún skildf bara ekki, hvers vegna sér hafði ekki
dottið þetta 1 hug fyrr. Aðrir höfðu þegar í upphafi blásið
henni í brjóst þeirri hugmynd, að stúlkan hefði fyrirfarið
sér. En nú fékk brottför Felixar nýja þýðingu. Sabína var
hætt að elska þenhan vesalings Ríkarð. Hún hafði hlaup-
izt brott, þegar hans var von — flúið til Felixar. Þegar
hann var farinn frá Heiðabæ, elti hún hann til Utrecht. Felix
hafði auðvitað verið til í ævintýrið, eins og vænta mátti
af hinum, þegar hún átti frumkvæðið- Einu sinni hafði
hann til dæmis verið margar vikur í slagtogi með útlendri
dansmeyju, sem var á sýningarferð.
ína hrökk við, þegar Ríkarður kom aftur. Hún tók ósjálf-
rátt við blöðunum, sem hann rétti henni. En hugur hennar
var allur við það, hvað hún ætti að gera til þess að forða því,
að þessi ungj maður eyðilegði framtið sina vegna óforsjállar
konu og manns á borð við Felix.
Hún leit á efsta blaðið. Það var þéttskrifað, stafirnir smáir
og hallir. Henni fannst rithöndin styrkja tilgátu sína. Þetta
gat ekki verið skrifað af taugabilaðri og vanstilltri konu,
sem var í þann veginn að ráða sig af dögum.
Hún dró stólinn að borðinu, lagði blöðin á það og hóf
lesturinn, róleg og ókvíðin.
ÁNNAR KAFLI.
HIN
1.
Ég fer héðan eins og manneskja, sem kemur inn í troð-
íullt leikhús og sér annan setztan í sæti sitt. Sumt fólk
myndi verða ótt og uppvægt út af slíku. En það væri eðli
sínu ósamkvæmt. Ég vil heldur fara héðan — eins kyrrlát-
lega og unnt er. Helzt hefði ég kosið að þurfa ekki að segja
meira. En þú átt heimtingu á því, að ég skrifti fyrir þér.
Það mun valda þér sársauka — en minni sársauka en óviss-
an, sem annars myndi alltaf kvelja þig. Sennilega líka minni
sársauka en slúður fólks, hvatvíslegir dómar þess og sú
skoðun, að ég hafi bundið endi á líf mitt af því, að ég hafi
orðið ástfangin af kvæntum manni.
Já — það er satt. Ég er ástfangin af kvæntum manni. En
það var ekki þess vegna, að ég fer héðan. Vildi ég fallast á
það, myndi hann skilja við konu sína og byrja nýtt líf með
mér. Hann hefir sjálfur boðizt til þess. Ég gei’ði mér fyrst
í hugarlund, að það væri hægt — að byrja nýtt líf. En nú
skil ég glöggt, að það er ógerlegt. Maður getur aldrei byrjað
nýtt líf. Maður heldur alltaf áfram sína gömlu braut, þótt
annað kunni að virðast skjótt á litið. Hver veit, hvort ný-
fætt barn er einu sinni að byrja nýtt líf?
Nei — það er ^kki af því, að hann er kvæntur. Hvaða máli
skiptir það, þegar hann var hjá mér? Ég streittist sjálf á
móti, þegar hann vildi brjóta brýrnar að baki sér. Ég vildi
ekki, að hann gerði það — hann mátti ekki gera það — vegna
barnsins síns, vegna konu sinnar. Ég hefi ávallt gætt þess
vandlega, að enginn skyldi komast á snoðir um ástir okkar.
Það var ekki af því, að ég skammaðist mín, heldur hinu,
að ég vil ógjarna oaka cðrum sorg. Þúsund sinnum heldur
vil ég sjálf vera í skugganum. Kona, sem enginn vissi, að
var þáttur í lífi hans og særði engan með hamingju sinni.
Þegar ég rifja þetta upp, er eins og hugur minn leiti ár
aftur í tímann. Þó hefír þetta allt gerzt á fáeinum mánuðum.
Ég hélt, að ástin væri fræ, sem spíraði hægt og jafnt og
þarfnaðist bæði tíma og umhyggju, unz það yrði að jurt,
jsem bæri blóm og krónu. Ég hefi aldrei trúað á það fyrir-
brigði, sem nefnt er ást við fyrstu sýn. En ég hafði rangt fyr-
ir mér. Ég felldi ástarhug til hans jafnskjótt og ég sá hann
í fyrsta sinn. Og hann var minn kjörni elskhugi og enginn
annar, og á dularfúllan hátt vissi ég, að hann myndj líka
fella hug til míií. Ég spennti greipar eins og barn, sem bíður
fullt trúnaðartrausts eftir þráðri gjöf, og gaf mig örlög-
um mínum á vald.
Þetta e rsannleikurinn. En fólk myndi tala um þetta með
fyrirlitningu: Hún var orðin ástmey hans, áður en hún hafði
nokkur kynni af honum! Það er líka áreiðanlega til fólk,
sem myndi segja: Vesalingur — hún hefir aldrei kynnzt
því að lifa og stríða með góðum ástvin og vaxa af erfiöleikum
og andstreymi ....
iEn að slíku -trrosl ég aðeins. Hamingjustundir mínar
hafa verið eiiis og ár. Samlíf okkar var eins og tær kryst-
all, — meiri fegurð Qg yndi en aðrir kynnast á mörgum ár-
um. Hvaða máli skiptir tímalengdin fyrir sálir mannanna?
Sekúndur eða ár?