Tíminn - 03.02.1950, Blaðsíða 7

Tíminn - 03.02.1950, Blaðsíða 7
28. blað TÍMINN, föstudaginn 3. febrúar 1950 7 Veiðar við Grænland Efáir Jóit Ðtiasoit Fimm sumur í röð hafa tugir og hundruð skynbær- ustu manna vottað það, að of mörg íslenzk skip hafi ver- ið gerð út á síld við Norður- land. Þeir votta, að skipin hafi spillt veiðinni hver fyrir öðrum, og meira að segja að ekki aðeins aflinn á hvert skip heldur og heildárafli alls síldarflotans hefði orðið meiri, er skipin hefðu verið færri. Þetta gæti verið skiljan- legt, ef útgerðin væri eins skipulagslaus nú og hún var um síðustu aldamót. En nú er sjávarútvegurinn orðinn rígbundinn í skipulag: sjó- mannafélög, Farmanna- og fiskimannasamband, Fiskifé- lag íslands og Landssamband ísl. útvegsmanna, og ekki er aðeins hver skekkja skrásett, heldur og hver fengin branda talin. Fyrir þessi samtök ætti það að vera mjög auðgert að beina þeim hluta bátaflotans, sem beinlín is ertil ógagns við síldveiðarnar, til hinna arð- bæru fiskveiða við Grænland, og það því frekar sem þorsk- vertíðin við Grænland byrjar strax og þorskvertíðin hér er að fjara út, og veiðin getur þannig haldið óslitið áfram með sömu veiðarfæfum. í þessu sambandi beinist hugur manna sérstaklega að stóru bátunum nýju. Að hverju gagni koma þeir nú? Þegar verið vár að bollaleggja um kaup á þessurn bátum, sögðu þaulreyndir útgerðar- menn, að þeir mundu eiga erfitt með að bera sig á vetrar vertíð. Þeir myndu ekki gefa meiri afla en 30—40 topna bátar, en verða miklu dýr- ari í rekstri. Er þá von, að þessir bátar beri sig nú á vetrarvertíð? Þessir stóru bátar voru sér- staklega keyptir með tilliti tii síldveiða við Norðuland. En þar hafa þeir hlaðið á sig tapi sumar eftir sumar. En það eru einmitt þessir stóru bátar, sem ekki njóta sín hér við land, sem bezt mundu henta til saltfiskveiða við GrænJand. Á breiddarstig- um íslands við Vestur-Græn- land, er veðrátta hentug til útilegu fyrir báta, en þó verða stillur enn meiri, er lengra dregur norður. Með útgerðinni við Græn- land er verið að reyna að koma fótum undir nýjan at- vinnuveg, sem sjávarútvegur- inn og þjóðin öll hefir mjög brýna þörf fyrir. Til þess, að þetta megi verða, þurfum við að afla okkur mikillar þekk- ingar og reynslu, er ekki get- ur fengist nema með áfram- haldandi útgerð við Græn- land. Á síðastliðnu sumri feng um við nokkra, og mjög dýr- mæta reynslu í þessum efn- um. Við erum komnir yfir erfiðasta hjallan. Og það skal fram, sem f ramhorfir, meðan rétt horfir, en þau voru jafnan orð Páls lög- manns Vídalíns. Menn hafa látið þá fá- vizku um munn fara, að ekki mundi meiri fiskur vera við Grænland að sumrinu en hér. En halda menn, að Norðmenn mundu sigla flotunum sínum frá miðum Hvítahafsins og framhjá miðum íslands, þar sem allar hafnir eru opnar, og alla leið vestur fyrir hið lokaða Grænland, ef aldar- Byggingakostnaður í Reykjavík fjórðungs reynsla væri ekki búin að kenna þeim, að stór- um meiíT" áflauppgrip væru við Grænland, en á báðum þesum nefndu fiskistöðumí Mundu Færeyingar eftir jafn langa reynslu taka öll sín haffær skip af miðunum við ísland og senda þau til Græn- lands, ef aldarfjórðungs- reynsla væri ekki einnig bú- in að kenna þeim, að afla- vonin sé miklu meiri við Grænlánd en hér. íslenzkur skipstjóri, er var við Græn- land í júlí óg ágúst, aflarýr- ustu mánuðunum þar, var ekki viss-um, nema hann hefði gatað reitt upp álíka mikinn aflá hér við land á sama tíma og hann fékk í Grænlandstúrnum. En.hverju skeikar hér? Hverju munar það, að skipstjóri komi öllu ókunnugur og. vitlaus til ein- hvers lands og renni í blindni í sjóinn allan tímann, eða stundi starfið á grundvelli þekkingar og reynslu kynslóð anna og sinnar eigin? Hafi þessi skipstjóri ekki getað fengið miklu meiri afla við ísland með allri sinni reynslu og þekkingu þar, þá var miklu meira um þann gula við Grænland. Og þekkingarleysi mannsins á veiðunum við Grænland sannast m. a. af því, að hann valdi sér lökustu mánuðina til veiða þar. íslenzka þjóðin eða forráða menn hennar verða nú aö taka af skarið og beina þeim hluta bátaflotans, sem aðeins er til óþúrftár á síldveiðinni, til ábatávænlegra veiða við Grænland næsta sumar, og hraða svo undirbúningi þess- arar útgerðar, að veiðiskipin geti verið komin á Grænlands mið í byrjún maí eða fyrr. Það væri og fyllilega sann- gjarnt, að þau veiðiskip, sem tekin eru frá óþurftarstarfi við Norðuriandssíldina og fara til Grænlahds til að ryðja braut fyrír nýjan ísl. atvinnu veg þar, fettgju sjálf að flytja inn gagnlegan varning fyrir þann gjal$eyri, er fyrir afla þeirra vií Grænland fæst. Þetta Væri sanngjarnt frá því sjónartöiði, að ísl. skipin hafa þar alls ekki jafna að- stöðu ettlf við skip þeirra þjóða, sem orðnar eru þaul- kunnugar við Grænland og búnar að koma sér þar vel fyrir. Jún Dúason. Kosningaviðbiinað- I ! iiriim. (Framhald"nf 3. slBu). 1 lyndir 10, Kommúnistar 2 og aðrir 33. ■'* Hvernigi,Verður þingið skip að 23. feSfúar? Eins og sak- ir standa virðast þeir Attlee og Churchilj standa líkt að vígi. En kosningabaráttan kann þar áð breyta einhverju um. ELDURINN jgerir ekki boð á undan sér! Þelr, sdm eru hyggnir tryggja strax hjá Samvi nnutryggingum I nýkomnum Hagtíðind- um er birt yfirlit um bygg- ingarkostnað í Reykjavík á síðastliðnu ári. Aðalatriði þessara upplýsinga fara hér á eftir: í lögum nr. 87, frá 16. des- ember 1943, um breyting á lögum um brunatryggingar í Reykjavík, er svo ákveöið, að bæjarstjórn sé heimilaö að breyta árlega brunabótaverði húsa*samkvæmt vísitölu bygg ingarkostnaðar í Reykjavík, og skuli Hagstofa íslands reikna slíka vísitölu árlega samkvæmt verðlagi næstlið- ins árs miðað við byggingar- kostnað árið 1939. Frá skirfstofu húsameistara ríkisins hefir Hagstofan feng- ið áætlun um byggingar- kostnað húss í Reykjavík af ákveðinni stærð og gerð, og eru teikningar af því birtar í Hagtíðindum, aprílblaði 1944. Hús þetta er einbýlishús, en áfast við annað (þ. e. tvö byggð saman með eldvarnar- múr á milli>. Er það tvílyft með kjallara. Á 1. hæð eru 2 herbergi, eldhús, búr, and- dyri, fataklefi og stigahús, og úr því gengt upp á efri hæð og niður í kjallara. Á efri hæð | eru 3 svefnherbergi, baöher- ! bergi og skápar. í kjallara j þvottahús og geymslur auk j útgangs. Húsið er gert úr steypu og járnbentri steypu, útveggir og j þak einangrað, sem venja er j til, fyrir hitaútstreymi að ut- , an,-skelhúðað, með bárujárns þaki, að innan allt húðað, mál að, veggfóðrað og dúklagt, pípulagnir allar huldar. Fram lag allt og frágangur vandað, án íburðar. Flatarmál húss- ins er 64 m-, en teningsmál 500 m3. Hér fer á eftir yfirlit um sundurliðaðan byggingar- kostnað selds húss 1949 og eru árin 1939 og 1948 tekin með til samanburðar: Byggingarkostnaður Trésmíði 1939 3 375 1948 26 950 1949 28 918 Múrsmlði 4 684 24 150 24 374 Erfiðisvinna og akstur ... 4 004 24 676 26 455 Málu .*.. 1 309 8 040 8 078 Raflögn 2 415 9 782 10 109 Miðstöð, eldfæri, pípur pípulagnir 0. fl og 4 964 15 186 15 947 Veggfóðrun og gólfdúkun . 2 002 5 553 6 453 Járn, vír og blikkvörur . 2 328 5 250 6 076 Hurða- og gluggajárn, saum- ur, gler 0. fl 689 2 599 2 636 Timbur 1 975 5 925 6 439 Hurðir og gluggar 1 275 6 232 6 232 Sement 2 623 8 520 8 164 Sandur og möl 563 4 491 5 176 Ýmislegt 1 077 4 059 4 064 Samtals 33 283 151 413 159 121 pr. m:’> 66., 7 302.83 318..,4 I yfirliti þessu er ekki mið- að við almanaksár, heldur er árið látið byrja 1. október og reiknað til septemberloka. Fyrsta árið gildir fyrir tíma- bilið V>» 1938 til 30/fl 1939 og árin á eftir fyrir tilsvarandi tima. Vísitala þessi á að sýna hinar almennu verðbreyting- ar á byggingarefni og bygg- ingarvinnu á þessum tíma, en hinsvegar má ekki búast við, að unnt sé að heimfæra hana upp á hvert einstakt hús, sem byggt hefir verið á þessum árum. Húsin eru svo margvís- leg að efnj og gerð, og auk þess geta verið ýmsar sérstak ^ ar ástæður, er gera það að j verkum, að samskonar hús jverður dýrara eða ódýrara í einu tilfelli heldur en öðru. í áætlun þeirri, sem hér er miðað við, er gert ráð fyr- r sama vinnumagni við hús- bygginguna á hverju ári, þ. e. sama vinnustundafjölda, og því ekki tekið tillit til þeirra kostnaðarbreytinga, sem jkynnu að stafa af breyttum afköstum vinnunnar. Hins- vegar hefir verið tekið tillit [ til yfirvinnu og helgidaga- vinnu þannig, að miðað hef- ir verið við það yfirvinnu- og helgidagavinnumagn, sem al- gengast hefir verið á hverju ári, eftir þeim upplýsingum, sem skrifstofa 'húsameistara hefir getað aflað sér. Gerizt áskrifendur að 7 ^Jimanum íslenzk fríraerki Notuð íslenzk frímerki kaupi ég ávalt hæzta verði. JÓN AGNARS Frímerkjaverzlun P. O. Box 356 — Reykjavik AuglýsSngasimi TIMANS er 81300. Fasteignasölu- miöstöðin Lækjargötu 10 B. Sími 6530 Annast sölu fasteigna, skipa, bifreiða o. fl. Enn- fremur alls konar trygging- ar, svo sem brunatryggingar, innbús-, liftryggingar o. fl. i umboði Jón Finnbogasonar hjá Sjóvátryggingarfélagi ís- lands h. f. Viðtalstími alla virka daga kl. 10—5, aðra tíma eftir samkomulagi. 'UtAcluAtatiftiir í (ZcijkjaCtk Vesturbær: Vesturgata 53 Fjóla Vesturgata Veitingast. Vesturg. 16 Miðbær: BókastöiJ Eimreiðarinn- ar. Tóbaksbúðin Kolasundi Hressngaskálinn Söluturninn við Kalk- ofnsveg. Austurbær: Bókabúð Kron. ísbúðin Bankastræti 14 Gosi Skólavörðustíg Óðinsgata 5 Laugaveg 45 Veitingastofan Vöggur Laugaveg 64 Veitingastofnan Stjarn an Laugaveg 86 Söluturnin við Vatns- þró Verzlun Jónasar Berg- manns Háaleitisv. 52 Verzl. Krónan Máva- hlíð 25 Verzlunin Ás Laugaveg 160 Matstofan Bjarg Lauga veg 166 Vogar: Verzlunin Langholtsveg 174 Verzlunin Nökkvavog 13. E.s.,BrOarfoss’ fer frá Reykjavík laugardag inn 4. febrúar til Hull og Ábo í Finnlandi. H.f. Eimskipafélag islands Allt til að auka ánægjuna Hingað rakleitt haldið þið hluti þarf að velja, eldhúskolla eigum við ennþá til að selja. VERZLUN INGÞÓRS Selfissi — Sími 27 Köld borð og heit- nr luatur sendum út um allan bæ. SlLD & FISKITR. tmmtmttnmnnnmtmumntnmtumRnmnmnmmnnnimmtnnHnmr § Jöröin Hafþórsstaöir n , n I NORÐURARDAL fæst til ábúðar í næstu fardögum. t{ Semja ber við Sverri Gíslason, Hvammi. Áskriftasímar 81300 og 2323 1 imtmtmmnmHHnnnnnmmttnnnnniHinmtttmtmnmnnnnnnttmm

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.