Tíminn - 25.02.1950, Side 1
RitstjórU
Þórarinn Þórarinsson
F*éttaritstjóri:
Jón Helgason
Útgcfandi:
Framsóknarflokkiirinn
r——■---------------------- i
Skrtfstofur t Edduhúsinu
Fréttasímar: ',
81302 og 81303
Afgreiðslusimi 2323 ',
Auglf/singasimi 81300
Prentsmiöjan Edda
----------------——--------------
34. árg.
Rcykjavík, Iaugardaginn 25. fcbrúar 1950
47. blað
VerkaraannaflokkHíian
brezku þingkosningunu
íhaldsflokkurinn bætti þó viö sig allmiklu atkvæða-
magni og mörgum þingsætum. Frjálsíyndi flokk-
urinn tapaði nokkrum þingmönnum en hélt at-
kvæðamagni. Kommúnistar þurrkaðir út úr þinginu
Attlee telnr, að erfití misni verlSa fvrir
flokk hans að st jiírna laiidiiui með svo
nanmnm melrihlnta.
Talningu atkvæða í brezku kosningunum var að mestu
lokið klukkan 11 í gærkveldi. Eftir var þá aðeins að lelja í
10 kjördæmum og fimm þeirra voru í afskekktum héruðum
Skotlands og úrslita ekki að vænta fyrr en á morgun cða
mánudag. Verkamannaflokkurinn hafði þá hlotið 314 þing-
sæti, íhaldsflokkurinn 292 og frjálslyndi flokkurinn 8, en
aðrir flokkar ekkert. Báðir kommúnistaþingmennirnir féllu,
og verður því enginn kommúnisti á hinu nýkjörna þingi.
Attlee forsætisráðherra lét svo um mælt í gærkveldi, að
meirihluti flokks síns væri svo naumur, að tæpara mætti
ekki standa um stjórnarmyndun, og hefir hann kallað sam-
an fund flokksstjórnar þegar i
Atkvæðamagn flokkanna
var þetta, þegar talið hafði
verið í þessum kjördæmum:
Verkamannaflokkurinn
13.1 millj., íhaldsflokkur-
inn 11.9 millj., frjálslyndi
flokkurinn 2.5 millj., kom-
múnistar rúm 60 þús. og
aðrir flokkar samtals 100
þús.
Þingmannatala flokk-
anna á fráfarandi þingi
var þessi: Verkamanna-
flokkurinn 390, íhaldsflokk
urinn 201, og frjálslyndi
flokkurinn 10. Atkvæða-
magn þeirra við kosning-
arnar 1945 var þetta: Verka
mannaflokkurinn 11.967
þús., íhaldsflokkurinn
9.087 þús., frjálslyndi flokk
urinn 2.227 þús. og komm-
únistar 102 þús.
Hið nýkjörna þing mun
koma saman til funðar
annan mánudag.
Spennandi talning.
Sagt er að talning atkvæð-
anna í Bretlandi hafi aldrei
verið eins spennandi og i
gær, og áratugir eru nú liðn-
ir síðan svo mjótt hefir ver-
ið á munum milli aðalflokk-
anna í kosningum í Bret-
landi. Gallupskoðanakönnun
hafði bent til, að atkvæða-
magn þessara flokka væri
mjög líkt, og veðmálin, hin
séi'kennilega en töluvert ná-
kvæma „loftvog“ Breta í
kosningum, höfðu verið mjög
lik á báða þessa aðalflokka.
Um miðnætti í fyrrinótt
bárust fyrstu úrslit úr kjcr-
dæmum og þá fyrst úr kjör-
dæmum í London og öðrum
dag til að ræða úrslitin.
stórborgum SuSur- og Mið'-
Englands. Virtist Verka-
mannaílokkurinn halda þar
alivel fylgi sínu og hafði mik
inn meirihluta yfir íhalds-
flckkinn framan af talning-
unni. í London og útborgum
hennar eru 43 kjördæmi og
af þeim hlaut verkamanna-
flokkurinn 31 þingsæti, en
íhaldsflokkurinn 12. Þar
hlutu meðal annarra kosn-
ingu frá verkamannaflokkn-
urn Herbert Morrison, Isaacs
og Bevin.
Um hádegi í gær var taln-
ing atkvæða rúmlega hálfn-
uð og var þá meirihluti verka
mannaflokksins allverulegur,
og spáðu margir því þá, að
hann mundi fá um 50 þing- j
manna meirihluta, en ýmsir
stjórnmálamenn spáðu, að
meirihluti hans mundi verða
25—30 þingmenn. Eftir það
fór mjög að draga saman
með flokkunum og þegar bil
ið var minnst, var meirihluti
verkamannaflokksins aðeins
sex þingmenn fram yfir
íhaldsflokkinn. Eftir það dró
aftur sundur og um kl. 7 í
gærkvöldi þótti sýnt, að
verkamannaflokkurinn i
mundi halda meirihluta, en
þó mjög naumum. Um kl.
átta hafði flokkurinn fengið
313 þingmenn eða eins at-
kvæðis meirihluta í deildinni.
Var þá eftir að telja i 19
kjcrdæmum. j
l
i
Atján konur kosnar.
í gærkveldi höfðu átján
konur verið kjcrnar á þing,
en 23 áttu sæti á síðasta
þingi. Af þeim má helzt
Attlec
Cliurchill
nefna Lady Megna Lloyd Ge-
orge, dóttur hins kunna for-
sætisráðherra, en hún er
varaformaður frjálslynda
flokksins og var kjörin í
Anglcsley i Wales, þar sem
hún hefir verið þingmaður
áður. Einnig var frú J. Lee,
kona Bevans heilbrigðismála
ráðherra kosin í Cannack í
Staffcrdshire og vann þar
haröa kosningu. í framboði
voru 125 konur og er það
fleira en nokkru sinni fyrr.
Scnur Cburchills féll.
Randolph sonur Churchills
var í kjöri í Devonport í
Plymouth og var talinn hafa
nokkrar likur til að vinna
kjördæmið, enda lögð á það
mikil áherzla og fór faðir
hans þangað til að styðja
hann í baráttunni. Hann féll
hins vegar fyrir M. Foot fram
1
bjöðanda verkama,nnaflokks
ins. Hins vegar felldi tengda
sonur Churchills, Soames,
þingmann verkamanna-
flokksins í Bedford. Churchill
sjálfur var kosinn með 18
þús. atkvæða meirihluta í
kjcrdæmi sínu, Woodford, og
er það heldur meira en síð-
ast. Eden var og kosinn með
miklum meirihluta í War-
wick.
Tveir ráðherrar féllu.
I t gærkveldi höfðu 26 ráð-
herrar vel’kamannaflokksins
I verið kjörnir, en tveir fallið,
I þeir Jones nýlendumálaráð-
herra og sir Franks. Attlee
náði miklum meirihluta í
kjördæmi sínu, Vestur-V/alt-
hamstow og Stafford Cripps
í Bristol. Bevan bætti við sig
allmiklu fylgi í kjcrdæmi sínu
í Wales.
Þingmönnum frjálslyndra
fækkar, en atkvæða-
magn vex.
Frjálslyndi flokkurinn
hafði fengið sjö menn kosna
i gærkveldi, en nokkrar lík-
ur ’taldar til, að einn bættist
við. Hefir þingmönnum hans
því fækkað um 2—3, en at-
kvæðamagn hans hins vegar
vaxið um nálega 400 þús.
Mun það þó stafa íyrst og
fremst af fleiri frambjóðend
um nú en síöast og aukinni
kjörsókn, en ekki beinum á-
vinningi. Formaður flokks-
ins, Clement Davis, náði auð
veldlega kosningu í Mongo-
mery í Wales.
Kommúnistar hverfa af
þingi.
Á fráfarandi þingi áttu
kommúnistar tvo þingmenn,
annan í London en hinn í
Glasgow. Féllu þeir báðir og
eiga því engan mann á þingi.
; Pollitt aðalritari flokksins
! féll í Rhonda'í Wales, þótt
i hann stæði nærri kosningu
siðast og hlaut nokkru
minna atkvæðamagn en þá.
Alls tapaði flokkurinn um
(Framliald á 2. siðu.)
„Tjöld í skógi” - ný
kvikmynd, gerð af
Ósvaldi Knudsen
Ferðaíélag íslands hélt í
gærkvökli skemmtifund, og
var þar sýnd í fyrsta skipti
kvikmynd, sem Ósvaldur
Knudsen hefir gert eftir sögu
Aðalsteins Sigmundssonar,
„Tjöld í skógi.“
Gerist sagan við Álftavatn
og i Þrastaskógi, þar sem
tveir drengir búa í tjaldi og
hyggja að undrum náttúr-
unnar umhverfis sig. Er
myndin, eins og saga Aðal-
steins heitins, hin lærdóms-
rikasta og skemmtilegasta.
Einar Arnórsson
sæmdur heiðurs-
merki
Einar Arnórsson, fyrrver-
andi ráðherra og hæstarétt-
ardómari, átti sjötugsafmæli
í gær, og af því tilefni sæmdi
forseti íslands hann stór-
riddarakrossi hinnar íslenzku
fálkaorðu.
Siglfirzkir skíða-
menn stökkva yfir
50 metra
Mikill áhugi er fyrir skíða
iþróttinni i Siglufirði nú,
enn sem fyrr. Er þaö nú
norskur skíðakennari, sem.
æfir skíðamenn. Segir hann,
að margir ungir og efnilegir
skíðamenn séu í Siglufirði,
sem vænta megi mikils af,
æfi þeir vel og stundi íþrótt-
ina.
Búið er nú að gera nýja
stökkbraut i Nautskálahól-
jum og stökkva siglfirzkir
skíðamenn yfir 50 metra f.
þessari stökkbraut, sem tal-
in er hin bezta. Eru skíða-
' æfingarnar aðallega á þess-
' um slóðum i nágrenni við
' skiðaskála skiðafélagsinfí
! Skjaldborgar.
' MlltlllltmillllltMIIHIHIIIIIIMIllllMHIII|illllHlllllllllllllllllllllllllltHIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIimillllllllllltltMm«m»«
-
| Alþýðusambandið boðar til
ráðstefnu
Stjórn Alþýðusambands íslands ákvað fyrir fáum |
I dögum að kaila saman ráðstefnu fulltrúa frá verka- |
1 lýðsféiögunum, og verður hún háð í Reykjavík, en tími |
| ekki enn verið ákveðinn, þótt sennilega verði hcnnar ii
1 skammt að bíða.
Fyrirhugað verkefni þessarar ráðstefnu er aðal-
| lega að taka afstöðu til kjara- og dýrtíðarmálanna, og
1 annarra mála, sem að þeim lúta, bæði með tilliti til þess
I ástands, sem nú er, og verða kann.
Á ráðstcfnu þessari skal eiga sæti einn fulltrúi frá
| hverju félagi, sem í Alþýðusambandinu er, án tillits til
| fólksfjölda í hverju félagi.
tmiiitiiHHiiitiiiiiiittmiiiiitfiiiiimitiitiiiiiiiiititiiiiiitHii»ttiitimtiiimiHim»itiiiiiiimmtiitiiititiitiiiitMii«tMim3
;ts;!iiseM]tiMiM!:iiiti:3]iM!Miuit*ttH!:msi!!: