Tíminn - 25.02.1950, Qupperneq 8
„A Fönmwi VEGI“ I BAG
Kirhjttffarðsfijöldin.
■ .
t &
Sam.vin.n.ufélag bifreiharstjóra
tekur upp merka nýjung í rekstri
teigubíla sinna
Mynd þessi er af bílastæði Hreyfils á l.vini Lonjuhlíðar og
Miklubrautar. Margir þeir, sem lieima eiga í nájrenninu
og ekki hafa síma, geta gengið út á hornið til að leigja
sér bíl, en sé hringt á stöðina, þarna úr nágrenninu, laetur
stöðiu bílana, sem þarna bíða vita, og fara þeir þá þangað,
sem beðið er um bíl. (Ljósm. Guðni Þórðarson).
Góðar fréttir:
Landburður af þorski í Vest-
mannaeyjum og Hornafirði
Afli eiisnig' að g'Iæðasl Iijá Faxaflóa-
bátununi.
Nú virðist svo sem þorskurinn sé fyrir alvöru kominn á
miðin. Landburour var í Vestmannaeyjum í gær og allir
bátar á sjó í ágætu veðri. Fengu margir bátar 10—15 smá-
lestir í róðrinum og svipaður afli var hjá Hornafjarðarbát-
unum, sem höfðu flestir í kringum, 10 smálestir. Afli hjá
mörgum Faxafióabátunum var einnig að glæðast í gær,
einkum hjá þeim, sem reru lengst út í ilóann, og munu
nokkrir hafa afiað um og yfir 10 lestir í róðrinum. — Ágæt-
is sjóveður var í gær og allir bátarnir reru aftur í gærkvöldi.
Biírciðastöðin ,.IIreyfiII“ Iiefir koinið ttpgi
hifrei&aslæðBmi með bifreiðasímuin í saiu-
hamli við aðalstöðina á nokkmm stoðiim
í Reyk javík.
*
Bifreiðastöðin Hreyfill, sem er samvinnufélag bifreiða-
stjóra, sem stunda leigubííaakstur, hefir beitt sér fyrir því
að bæta afgreiðslu bílanna eftir megni og komið upp í því
augnamiði nokkrum bílasímum á bílastæðum, til þess að
auðvelda sendingu bíla. Er stöðin nú búin að koma upp þrem
slíkum símum. Ilringir fólk í síma aðalstöðvarinnar og fær
sendan bíl frá nsesta bílastæði stöðvarinnar. Er þetta fyrir-
komulag notað víða í borgum erlendis og hefir gefizt vel.
Flestir bíJstjórar hjá Hreyfli eiga bíla sína sjálfir og eru
þar nú 222 bílar. Félagið hefir einnig eigin benzínstöð.
£
f*. Beilur um listaverk
Vestmannaeyjar:
Frá Vestmannaevjum er nú
meiíí útgerð en í fyrra, og
sjómenn bjartsýnir um afla-
horfur. Sögðu þeir, sem-á sjó
voru í gær, að horfur væru
á því, að þorskur nn væri
niS kominn á miðin og búizt
við góðum afla næstu daga,
breytist veður ekk .
Mikið af aðkomufólki er
komið til vertíoarinnar 1
Eyjum viðs vegar að af land-
inu. Er aflinn jöfnum hönd-
um saltaður og hraðfrystur,
jafnóðum og hann kemur á
land. Hefir aldrei verið jafn
góð aðstaða í Eyjum til að
taka á móti miklum aíla og
nýta hann vel. Er það ekki
hvað sízt að þakka hinum
myndarlegu samvinnufyrir-
tækjum, sem búio er að koma
á fót i Vestmannaeyjum til
hagsældar fyrir sjómenn og
útgerðarmenn. Hefir sam-
vinnustefnan hvergi sýnt það
betur en í Vestmannaeyjum,
til hvers hún dugar í útvegs-
málunum, þó að möguleikar
hennar séu hvergi nærri nýtt
ir til fulis, þar fremur en
annars staðar.
Hornafjörður:
Mjög góður afli er á Horna
firði og hefir fiskazt vel alla
vertíðina. Róa baðan aðeins
8 bátar og er allur aflinn salt
aður. Búið er að salta um 300
smálestir. Lætur nærri, að 4
fiski fari í eína smálest af
saltfiski.
Mikil atvinna í sambandi
við vertíðina er nú á Horna-
firði. Gæftir hafa verið all-
góöar undanfarið og tíð sæmi
leg.
Faxaflói: - .
Alllr ' vertíðarbátar frá
í’axaflóaverstöðvunum voru
á sjó; i gær og öfluðu mis-
jaínlega en yfirléitt miklu
betur en undanfarna daga.
Margir reru mun lengra en
áður út í flóann. Akranes-
bátar iögðu til dæmis lóðir sín
ar út af Jökli og öfluðu marg
ir þe^rra ágætlega og betur
cn þeir, sem styttra fóru.
Voru þeir, .sem mestan afla
höfðu með um og yfir 10
smálestir.
Bátar, sem veiðar stunda
með botnvörpu í flóanum
fóru flestir út í fyrradag og
í gær. Höfðu þeir þá verið
ir.ni um skeið sökum ógæft-
anna.
GóÖar veiðihorfuv.
Haldist sama veður, stillur
og norðlæg átt, má búast við
góðri þorskveiði. Eru sjómenn
nú bjartsýnni en nokkurn
! tíma fyrr á vertíðinni og
telja að um verulega fiski-
i göngu sé að ræða úti fyrir
| Suðurlandi, hvernig, sem
|fara kann með veiðarnar.
, Líkurnar eru allar með því,
^að von sé á góðri veiði næstu
daga.
Gerizt áskrifendur að
3
imanum
Nýir bílasímar.
í janúar 1949 lét samvinnu
félagið Hreyfill setja upp
einn bílasíma á Sunnutorgi
í Kleppsholti með beinu sam-
bandi við stöð félagsins.
Reynslan af þessum síma
hefir \Wið mjög góð. Vár
því farið að vinna að því á
síðastliðnu sumri að fá fleiri
slíka síma fyrir stöðina. Bæj
arráð veitti félaginu leyfi
fyrir þeim fjórum stæðum,
sem félagið sótti um. Það er
bæjarsíminn, sem sér um upp
setningu þessara tækja og á
þau, en leigir Hreyfli. Um
síðustu mánaðamót voru
þrír nýir símar teknir í notk-
un. Einn er á horni Hofs-
vallagötu og Grenimels, ann-
ar við Lönguhlíð og Miklu-
braut og þriðji við Sund-
laugaveg og Hrísateig. Fé-
lagið hefir því nú þegar fjóra
síma í útjöðrum bæjarins og
mun fá þann fimmta mjög
fljótlega, sem verður í tung-
unni milli Eskihlíðar og
Reykjanesbrautar rétt íyrir
austan Miklatorg.
Þegar síminn á Sunnu-
torgi var settur upp, var hann
hafður í ólæstum kassa. Hug
myndin var að gefa fólki
kost á því, að geta hringt á
stöðina, þegar enginn bíll var
við símann, en reynslan hefir
sýnt, að slíkt var ekki hægt,
þar sem nokkur brögð hafa
verið á því, að síminn hefir
verið skemmdur af manna
völdum. Félagið tók því það
ráð, að hafa símann í læstum
járnkössum, sem bifreiða-
stjórar stöðvarinnar hafa
einir aðgang að. Um notkun
þessara síma er þetta að
segja:
Þegar fólk vantar bíl,
hringir það i símanúmer
stöðvarinnar, 6633 og send
ir þá afgreiðslan bíl frá
næsta bílastæði. Það er
mjög nauðsynlegt fyrir
fólk að segja strax til þeg-
ar það hringir, hvert það
vill fá bílinn sendan, og
þótt cnginn bíll sé til á
aðalstöðinni, geta verið
margir bílar við símana.
Minnkar umferð í mið-
bænum.
Eins og flestum er kunn-
ugt, hefir umferðin í m:ð-
bænum verið mjög mikil og
erfið undanfarin ár. Þetta
símakerfj sem Hreyfill hefir
komið upp, mun hafa veru-
leg áhrif i þá átt, að draga
úr slysahættu og umferðar-
truflunum, ekki sízt, er fé-
laginu tekst að koma upp
fleiri símum.
Fljótari afgreiðsla.
Það er mjög ánægjulegt
fyrir Hreyfil, að geta boðið
viðskiptavinum sinum upp á
þau þægindi, sem af þessu
símakerfi leiðir. í flestum til-
fellum á að vera hægt að af-
greiða hverja beiðni um bíl,
mikið f 1 j ótar en áður var,
þar sem bílastæðin eru orðín
þetta víða í bænum, auk þess
mun stöðin geta fullnægt
(Framhald á 7. síðu.)
í sundhöllinni
í Viborg
Miklar de iur hafa orðið í
Danmörku um mósaikmyndir
eftir listamanninn Vilhelm
I.undström, sem Ný-Kai'ls-
bergsjóðuriixn gaf sundhöll-
inni í Viborg t:l skreytingar.
Myndir þessar eru í raun-
inni mjög fallegar, en þær
sýna þrjár naktar stúlkur á
laugarbarmi Tvær þeirra
sitja og snúa hliðinni fram,
en hin þriðja stendur upp-
rétt, með aðra höndina fyrir
aftan bak, en hina lafandi
r.iður með hliðinni, ásamt
handklæði, er hún heldur á.
Beint fyrir framan hana er
karlmaður niðri í lauginnj og
styður hendi á laugarbarm-
inn, og sést aðelns hnakki
hans og herðar.
Þessar myndir voru frum-
myndir að skreytingu sund-
hallarinixar á Friðriksbergi,
og gaf sjóðuriixn þær til Vi-
borgar 1944. Þegar urðu mikl
ar umræður um myndirnar,
og sum félög tilkynntu, að
þau myndu ekki nota sund-
hölliixa, meðan myndirnar
væru þar. Önnur féíög kröfð-
ust þess, að hengdir væru
yfir þær fánar eða tjöld,
þegar þau neyddust til þess
lað nota' sundhöllina. Stjórn
(Framhald á 7. síðu.)
Knattspyrnufél. Vaiur gerir
grasvöll við Hlíðarenda
Efmir til hapBjelrættis til ágóða fyrir þctta
tnaimvirki og eru vinning'ariiir mörg' sigæt
gólftcppi.
Knattspyinufélagið Valur hefir að undanförnu unnið
að vallargerð á íþróttasvæði sínu við Hlíðarenda við Öskju-
hlíð, þar sem hið myndarlega félagsheimili þeirra er risið.
Nú er félagiö að hefja gerð grasvallar og verður unnið að
því í vor og sunxar. Er kostnaður við það allmikill og efnir
félagið til happdrættis í fjáröflunarskyni mn þessar mundir.
Vixxixa við vallargex'ðina ’
þarna hefir öll verið unnin1
af sjálfboðaliðunx félagsiixs ■
og lítið keypt annað en efni
og akstur. Verður hið sama
um grasvöllinn. Féíagið hefir
fylgt þeirri reglu fast að
íxota ekki ágóða af happ-
drættum sínum til rekstrar
félagsins, heldur aðeins til
framkvæmda, og mun vera
eina íþróttafélagið, sem fylg
ir þeirri reglu algerlega.
Margir góðir drættir.
Happdi'ætti þétta verður
sannkallað gólfteppahapp- j
drætti og býður það upp á.
10 gólfteppi. FYrsti vinning-
urinn verður þó sérstakur
kjörgripur, svorxefnt Abbey-
gólfteppi, og var þessi gi'ip-
ur sýndur á skozku iðnaðar-
sýningunni og vakti mikla
athygli fyrir fegurð sína og
vænleik. Hin teppin verða
Wiltoix og Axminster gólf-
teppi. Sala happdrættismiða
er hafin.
Undirbúixing að grasvell-
inum hafa þeir aixixazt Þor-
steinn Einarsson íþx'óttafull-
trúi og Gisli Halldórsson, að-
stoðarmaour haixs. Hafa þeir
veitt félaginu mikla og ónxet
anlega aðstoð við það.
Eiixs og kunnugt er eigum
við enga grasveili eixn, og er
því mikils vert að knatt-
spyrnufélögin hefjist handa
um gerð þeirra, því að skort-
ur á þeinx hér er talinn hafa
staðið þjálfun knattspyrnu-
maxxna okkar mjcg í vegi.