Tíminn - 26.02.1950, Qupperneq 7

Tíminn - 26.02.1950, Qupperneq 7
48. blað TÍMINN, sunnudaginn 26. febrúar 1950 7 Þnrfum vi® Fríkirkju. (Framhald af'4. siðu). brigðri réttarmeðvitund, að fríkirkju væri markað ákveð- ið svið. T. d., að ekki mætti vera nema ein fríkirkja inn- an einnar þjóðkirkjusóknar. Nú hefir Reykjavík verið skipt niður í fjórar þjóðkirkju- sóknir. Nú teygir fríkirkjan sig um allar þessar sóknir og hefir því ærið olnbogarúm. Þetta virðist mér með öllu ó- hæft. Með þessu móti, ef lög- legt er, geta menn hvaðanæva af landinu gerzt safnaðar- meðlimir í fríkirkjunni í Reykjavík. Með svona fyrir-1 komulagi veröur safnaðarlífið , losaralegt um of, og kirkju- sóknin tæplega til fyrirmynd- ' ar. Getur þetta valdið hinum mesta glundroða innan þjóð- 1 kirkjunnar. Ég hefi nú hér að framan, á breiðum grundvelli, ieitazt við að svara spurninguni, sem er yfirskrift þessarar greinar. Svarið verður: Við þurfum ekki fríkirkju. Hún er með öllu þarflaus svo lengi, sem ríki og kirkja eru sameinuð. Meira að segja, þá er stofnun fríkirkju óréttmæt, því að hún er spor i áttina til að veikja einingu þjóðkirkjunnar og grafa undan henni. Þar sem þjóðkirkjunni er skipað nið- ur í fastar og ákveðnar sókn- ir, þá virðist með öllú óhæft. að fríkirkja geti verið ein í fjölda þjóðkirkjusóknum, eins og hér í Reykjavík. Með þessu er fríkirkjunni gefið meira olnbogarúm og valdsVið en sjálfri þjóðkirkjunni. Virðist tími til þess kominn að end- urskoða kirkjulöggjöfina í þessum efnum. Nú er fríkirkjusöfnúðurinn í Reykjavík klofinh. Kominn í tvo andstöðuflokka. Sá mað- ur, sem söfnuðurinn klofnar um, var þriðji i röðinni að at- kvæðamagni við síðasta prestsval. Væri ekki úr vegi að benda ungum guðfræðing- um á, að mörg prestaköll eru nú laus víðsvegar um landíð. í þessum prestaköllum er gott fólk, sívinnandi drottins ver- öld til þarfa. Þaö á inni hjá þjóðfélaginu fyrir þvi, að fá sinn prest, og það er ærinn starfi fyrir unga guðfræði- kandídata í þessum lausu prestaköllum. Mundu þeir betur borga þjóðfélaginu kostnaðinn af að efla þá til mikillar menntunar með því að vera þjónandi prestar í sveitum, en þrengja sér inn á söfnuði í borgunum, sem enga þörf hafa fyrir þá. Viðvíkjandií frkirkjunni í Reykjavík skal hér sérstak- lega minnst, að merki kristn- innar hefir þar verið haldið hátt á loft, enda þótt hún í engu hafi skarað fram úr þjóðkirkjunni. Geta má þess, að fríkirkjusöfnuðurinn hef - ir verið alveg sérstáklega Skinnasýning Skinnaverksmiðjunar Iðunnar verður opin í dag frá kl. 10 til 22, í Kirkjustræti 8. Siðasti dagur. Notið þetta ágæta tækifæri til að sjá og kynnast íslenzkri skinna- framleiðslu. Aðgangur ókeypis. Samltaad ísl. samvinnufélaga Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför FRÍÐJÓNS BJARNASONAR, frá Ásgarði. Fyrir hönd vandamanna, Ásgeir Bjarnason. ?. Minningarathöfn JÓHANNESAR ÓLAFSSONAR frá Svínhóli, sem andaðist að heimili sínu Grettisgötu 16 B, 24, þ. m., fer fram í Dómkirkjunni þriðjudaginn 28. þ. m. kl. 14,30. Athcfninni verður útvarpað. Aðstandendur. heppinn um val sinna presta. Geymast um hina fráförnu' hinar beztu minningar meðal safnaðarmanna og þjóðar- innar í heild. Voru þeir öðl- ingar í riki andans, kynborn- ir menn, starfsamir og fæddir til að vera foringjar lýðsins. Fjöldi safnaðarmanna frí- kirkjunnar í Reykjavík voru og eru mætismenn og margir af þeim meðal beztu borg- ara bæjar vors. í fríkirkj- unni í Reykjavík flutti séra Haraldur Níeisson sínar ó- gleymanlegu stólræður árum saman. Þar flutti hann, þessi mikli meistari orðsins, með skörungsskap, eldi og valdi, sínar máttugu prédikanir. Þær vildu fleiri heyra en að gátu komizt. Má með sanni segja, að ræður hans geymist íog gnæfi í hugans heimi svo vítt sem andinn býst í jarð- neskt orð. Mér finnst enn ljóma slá á fríkirkjuna i Reykjavík fyrir það, að séra Haraldur Níelsson úthellti anda sínum úr prédikunar- stóli hennar. Mér fannst bæn- armál hans svo heitt og hjart- fólgið, að það hlyti að stíga beint til guðanna. Attlec. Framhald af 8. síðu. ins væri naumur, þá væri sér það gleðiefni, að þjóðin hefði veitt honum fulltingi til að halda áfram starfinu til við- reisnar og friðar í heimin- um. Þingmannatala flokkanna er nú þessi: Verkamanna- flokkurinn hefir fengið 314 þingmenn kjörna, íhalds- menn 294, frjálslyndi flokk- urinn 8 og aðrir flokkar 3. Kommúnistaflokkurinn var alveg þurrkaður út í þing- inu. Ef Attlee nær ekki sam- vinnu við aðra flokka um af- greiðslu fjárlaganna, er talið liklegt, að þingið verði rofið og efnt til nýrra kosninga. 'ÚtkreiiiÍ Titnahh Meða! bænda á Suður-ttalín. (Framhald af 3. slðu), Nógur er tíminn. Baróninn tók við, þar sem Guiseppe hætti. — Timinn, sagði hann. Það er það ódýrasta af öllu, sem við höfum. Nóg er af honum. — Hér hafa aldirnar enga þýðingu haft. Já. Timinn er svo ódýr, að hann er einskis verði. Baróninn lék sér að penna skaptinu. Hann velti því fram og aftur um hnotuvið- arborðið. — Ég er fátækur maöur, herra minn, sagði hann stutt lega. Ég veit, að ég á mikið land, en það er ekki mik ð, sem það gefur af sér, — og það fer mestallt í skattana. — Hvers vegna ég læt ekki bændurna hafa meira af landi? Góði maður Vitið þér hvað það kostar að rækta landið, grafa vatns- leiðsluskurði, byggja hús og — nei, það er engin leið, — ég er fátækur maður. — Ef að ríkið vildi styrkja mig horfði þetta allt öðru vísi við. En það liggur ekkert á. Nógur er tíminn. Hvað tekur við? Mario gengur undir byrði inn hafa aldrei mætzt, hvorki persónulega né mál- efnalega. Mario gengur undir byrgði sinni eins og þolinmóður og of þjakaður áburðarklár, þar sem Guiseppe reynir að geysast áfram eins og fjör- hestur. En baróninn gnæfir yfir þá báða. Fjallgarðar Lukaniu og Kalabríu horfa niður á þá alla. Með hrukkótt enni sáu þeir Hannibal og innrásar- her hans færa sig suður land- ið og flytja með sér ógn og skelfingu hvar sem þeir fóru. Öldum síðar sáu þeir Garibaldi og æskumanna- sveitir hans sækja norður eft ir með baráttuglöð hjörtu undir rauðu skyrtunum. iimiiiimiiimMiMimiiniiiinMiiiiMiniiminiiiiiiiiimiiiiiiimmiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiumiiiiimiiiiiiiiMiiiiiiimimiin AÐALFUNDUR J Barnaverndarfélags Reykjavíkur j verður hald nn þriðjudaginn 28. febr. í Iðnó og hefst | kl. 8 e. h. með venjulegum aðalfundarstörfum. Kl. 8,45 hefjast framhaldsumræður um uppeldismál, jj sem öilum er heimill aðgangur að. 1. Símon Jóh. Ágústsson: Stutt ávarp. 2. Magnús Sigurösson: Verklegt nám barna. Fram- jí söguerindi. ■■■ 3. Frjálsar umræður. Stjórnin IIMIMIIIIMIIIMIIIIIIMIIIIIMIIIMMMMMIIIIIMIIIIIIIIIMIIIIttMIIMIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIMIMIIIIIIIIIIIIIMIIIIIinillllllllllllllll) ITILKYNNING Frá og með 1. marz verða útborganir hjá oss aðeins 2 daga í viku, þriðjudaga og föstudaga frá kl. 2—4,30 eftir hádegi. Kassagerð Reykjavíkur UTSVARSSKULDIR Atvinnurekendur og aðrir kaupgreiðendur, sem hald- ið hafa eftir af kaupi starfsmanna, eða hefir borið skylda til að halda eftir af kaupi starfsmanna, til greiðslu útsvara til Reykjavíkurbæjar árið 1949 (eða eldri útsvarsskulda), eru enn á ný mjög alvarlega minntir á, að gera nú þegar full skil4,il bæjargjald- kera, enda bera þeir ábyrgð á slíkum útsvarsgreiðslum sem eigin útsvörum, og verður innheimtu hagað sam- kvæmt þvi. Greiðið útsvarsskuldir yðar og starfsmanna yðar frá 1949 (og eldri) nú þegar, og ekki siðar en 11. marz, vegna reikningsloka bæjarsjóðs 1949. Borgarritari TILKYNN Veitingastofan á Vesturgötu 16 byrjar ^ í dag að selja mjólk og kökur. U |p|| H,BS Verkamenn, verzlunar- og annað vinnandi fólk, komið og drekkið kaffið á Vesturgötu 16. Fljót afgreiðsla - - Opið kl. 8 f.h. til kl. 11.30 e.h.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.