Tíminn - 02.03.1950, Síða 3

Tíminn - 02.03.1950, Síða 3
51. blað TÍMINN, fimmtudag'inn 2. marz 1950 3 Framsoknarflokkurinn er staðráðinn í að taka á vand- anum með fullri ábyrgðartilfinningu Herra forseti! Góðir hlustendur! Ég vil gera nokkra grein fyrir því, hvers vegna ég og háttvirtur fyrri þingmaður Sunnmýlinga flytjum van- traust á núverandi ríkis- stjórn. Barátta Framsóknarfiokks- ins í fyrrverandi ríkisstjórn fyrir nýjum leiðum. Framsóknarflokkurinn tók, eins og vitað ef, þátt í fyrr- verandi ríkisstjórn. Hann gerði það í þeirri von, að geta sveigt stefnu ríkisstjórnar- innar þannig í fjármálum. atvinnumálum, viðskiptamál um o. fl. þannig, að komist yrði hjá þeim afleiðingum, sem nú blasa við í þjóðlífinu og eru þó miklu geigvænlegri en menn gera sér almennt grein fyrir. — Framsóknar- flokkurinn fékk vægast sagt litlu ráðið um starf og stefnu fyrrverandi rikisstjórnar. Hann varaði við afleiðingun- um af þeirri stefnu, sem hald . in var, og loks var svo kom- ið s.l. vor, að ráðherrar Fram sóknarflokksins, í fyrrver- andi ríkisstjórn, tilkynntu meðstarfsmönnum sínum, að þá þegar yrði að hefja samn- inga og undirbúningsvinnu til að breyta um stefnu í fjár málum og atvinnumálum og eftir að sumarið hefði verið notað til þessarar vinnu yrði að leggja fram á Alþingi und irbúið frumvarp um málin. Með því að semja um trygg- an meirihluta til að sam- þykkja þær úrlausnir, er um semdist, mætti byggja fjár- lagafrumvarpið fyrir 1950 á þessum nýja grundvelli og framleiöslan gæti þá og starf að ótrufluð á þessum sama grundvelli, án stöðvunar. Ráðherrar flokksins lögðu samhliða þessu fram tillögur um það, hvernig þeir teldu að leysa bæri málin í höfuðatrið um. Var þar bent á, að fjár- málum og framleiðslumálum væri þannig komið, vegna verðbclgunnar, að ekki væri nema um tvær höfuðleiðir að velja, að lækka gengið, eða færa niður verðlag og laun. En áður, eða samtímis, yrði Alþingi að gera ráðstafanir til þess að tryggja heilbrigða verzlun. að iækka okur húsa- leigu, að útrýma svartamark aði cg vöruokrun, að leggja á stíreignaskatt og gera aðr- ar slíkar ráðstafanir, þann- ig að þjóðin almennt fvndi það og troysti því, að bær byrðar, sem hún varð að taka á sig í bráð, meöan breyt- ingar voru gerðar, væri lagð- ar á hennar bak með jafn- rétti og engan umfram það, sem óhjájívæmilegt væri til að reisa við failandi fjárhag þjóðarinnar. Með þessu móti gerðum við Framsóknar- menn okkur von um, að þess- ar ráðstafanir bæru árang- ur, en yrffu ekki ónýttar í íramkvæmd i höndum þeirr- ar stjórnar, sem með þær færi. Samstarfsflokkarnir höfnuðu tillcgunum. . Þpssar tillögur Framsókn- arflokksins fengu exki und- Framsöguræða Hermanns Jónassonar um van- trauststilöguna í gærkvöldi irtektir samstarfsflokkanna í fyrrverandi ríkisstjórn. Þeir voru þeim sumpart andvíg- ir, en töldu þær og sumpart ótímabærar. Ráðherrar Fram sóknarflokksirís tilkynntu þá, að þeir gætu ekki borið á- byrgð á aðgerðaleysi, sem auðsætt væri að myndi leiða til stöðvunar i fjármálum og framleiðslu, þar sem ekkert yrði undirbúið til að breyta um stefnu fyrir haustþingið. Þannig rofnaði samstarfið og kosningar fðru fram. Al- þýðuflokkurinn lýsti sig and j vígan gengisiækkun, Sjálf-1 stæðisflokkurinn sló úr og í og sagði, að gengislækkun j væri algjört neyðarúrræði, Sósíalistaflokkurinn taldi lausnina þá að selja íslenzk- ar afurðir til Austur-Evrópu. í kosningunum sögðum við þjóðinni hvar komið var. Við Framsóknarmenn ein- ir sögðum þjóðinni það í, sjálfri kosningabaráttunni, fyrir hana og eftir, að nú væri | fjármáium og framleiðslu i þjóðarinn^ þannig komið, að ekki væru til önnur úrræði en gengisbreyting eða niður- { færsla — sem réttara er eins og nú er komið að kalla nið- urskurðarleið. En við lofuð- um að samþykkja það ekki, að gera þessar ráðstafanir, nema áðurnefndar hliðar- ráðstafanir væru gerðar sam tímis til að draga úr byrð- unum fyrir almenning eins og framast væri unnt. Það var oft sagt við okkur Framsóknarmenn, að frá- munalega óhyggliegt væri og ólíklegt til fylgisauka að segja þjóðinni í kosningun- um að færa þyrfti niður og þó einkum að lækka þyrfti gengið, því hvorttveggja, og einkum hið síðarnefnda, væri óvinsælt með þjóðinni. En við höfðum ákveðið það og stóðum við það, að segja þjóð inni það eitt, sem við að yf- irveguðu máli álitum að væri satt og rétt. Þjóðin reyndist vrra byrjuð að átta sig eftir "ullvímuna og hún svaraði í kosningunum með því að veita Framsöknarflokknum veriilega aukið brautargengi. Ýtrustu tilraunir gerðar til að koma stefnunni fram. Sú fyrsta skylda, sem við Framsóknarmenn áttum að gegna, er Alþingi kom sam- an. var að framfylgja eftir beztu getu þeirri stefnu, er við álitum þjóðinni bezta, j hcfffum lofað að fylgja fram cg fengið umboð kjósenda til. Þegar herra forseti íslands j sneri sér til Framsóknar-' flokksins og óskaði eftir að ég reyndi að mynda meiri- j hlutastjórn, álitum við Fram , sóknarmenn, að líklegasta leiðin til þess að koma fram stefnu þeirri, er við höfðum túlkað, væri að Framsóknar- flokkurinn og Alþýðuflokkur inn mynduðu einskonar bandalag eða samfylkingu í hinni nýju ríkisstjórn. Eftir að þessir tveir flokkar hefðu komið sér saman um lausn dýrtíðarmálsins, sem kæmi sem léttast niður á vinnandi stéttum landsins, ættu þeir að mynda stjórn um þá stefnu og þótt sú stjórn hefði ekki alveg meirihluta, mætti láta skeika að sköpuðu um það, hvort stefna flokkanna fengi meirihlutafylgi á Al- þingi. Ef meirihluti fengist fyrir stefnunni á Alþingi, var málið leyst, — ef tillögur flokkanna yrðu felldar, áttu þeir að ganga til kosninga i bandalagi og vinna stefnu sinni meirihlutafylgi með þjóðinni. Alþýðuflokkurinn kvaðst ekki taka þátt í slikri stjórn. En flokkurinn kvaðst mundi ræða málið, ef það væri frá byrjun meirihlutastjórn, sem hefði tryggt sér afgreiðslu fjárlaga og annarra aðkall- andi mála. En þar sem bæði Framsóknar- og Alþýðuflokk urinn töldu sér ekki fært að mynda ríkisstjórn með Sósial istaflokknum, var útilokað, að leita eftir þeim stuðningi, sem Framsóknar- og Alþýðu- flokkinn vantaði til þess að hafa meirihluta á Alþingi — annarsstaðar en hjá Sjálf- stæðisflokknum. En er leitað var til Sjálfstæðisflokksins, kvaðst hann þá fyrst svara málaleitaninni, er Alþýðu- flokkurinn hefði lýst yfir, hvort hann vildi taka þátt í ríkisstjórn og með hvaða skilyrðum. — Alþýðuflokkur- inn neitaði að svara því að sinni. Þannig var á þeim tíma lokað fyrir Framsóknar- flokknum þeim leiðum, sem hann taldi færar til þess að framkvæma það, sem hann hefði barist fyrir í kosning- unum, lofað kjósendum sín- um að berjast fyrir og fengið umboð þeirra til að fram- kvæma. Sjálfstæðisflokkurinn myndar minnihlutastjórn. Eftir að Sjálfstæðisflokkn- um hafði og mistekist að mynda meirihlutastjórn, fól herra forseti íslands honum að mynda þá minnihluta- stjórn, er nú situr. Ýmsir — já, margir hafa rætt um það við okkur Framsóknarmenn, hverju það gegni, að við bár- um ekki fram vantraust á núverandi ríkisstjórn þegar í janúarmánuði, eftir að Al- þingi hafði gert bráðabirgða ráðstafanir vegna bátaútvegs ins. Það er ekki óeðlilegt að spurt hafi verið. En því er til að svara, að það er ekki tími til að nota stór orð og stórárásir til þess að ná eyr- um þjóðarinnar, meðan hún er á leiðinni út úr ógöngun- um og unnt kann að vera að afstýra því, að hún fari þang að. En eftir að slysið er orð- ið, er þýðingarlaust að nota stóryrðin. Þá er timi til að reyna að starfa og bjarga. Við óttuðumst að í u.rpræð- um um vantraust mitt í hita bæjarstjórnarkosning- anna kynni að verða ausið þeirri olíu á eldinn, að erfið- ara yrði fyrir flokkana að ræðast skynsamlega yið um vandamálin á eftir og við Framsóknarmenn, sem höf- um verið harðorðir í aðvö.r- unum, erum og höfum verið jafn staðráðnir í því að taka á vandanum, þegar í_hajm er komið, með fyllstu ábyrgð artilfinningu, alveg án til- lits til þess að við teljum okk ur ekki eiga þar mesta sck. Með þessum hug gengum við að þeim samningatilraun um, sem átt hafa sér stað og ég mun nú greina frá. Samningatilraunir. Um afstöðu flokkanna, sem við ræddust, Framsókn- ar- og Sjálfstæðisflokksins, fóru bréf á milli þeirra — og því æðiljóst, hvað gerðist._ Það var 2. febrúar, sem for sætisráðherra sneri sér bréf- lega til Framsóknarflokksins og spurðist fyrir um* hvort Framsóknarflokkurinn vildi tilnefna samninganefnd til | að ræða við ríkisstjórnina um dýrtíðarmálin, er ríkis- 1 stjórnin hefði nú undirbúið tillögu um. Framsóknarflokkurinn svar aði því 4. febrúar, kvaðst , telja eðlilegast að hann fengi | aðstöðu til að kynna sér til- , lögurnar, en mundi síðan taka afstöðu til þess fyrir sitt leyti hvernig hann teldi hag kvæmast að vinna að málinu. Flokkurinn móttók síðan tillögurnar og kaus samstund is þrjá menn, þá. Eystein Jónsson, Steingrím Stein- þórsson og mig, til þess að ræða við Sjálfstæðisflokkinn á þeim grundvelli, að ríkis- stjórnin segði af sér og síð- an yrðu þegar teknir upp samningar um lausn mála og myndun ríkisstjórnar, til þess að hafa forystu þeirra I á Alþingi. En áður höfðum ' við sömu menn, af hálfu Framsóknarflokksins, athug- 1 að í framhaldi viðræðnanna við Alþýðuflokkinn s.l. haust ' og i vetur, hvort nokkur lausn yrði fundin á vandan- um með honum, og komist að | þeirri niðurstcðu, að sá mögu leiki væri ekki til staðar að sinni. En afstaða okkar Fram- sóknarmanna skýrist einna bezt með því að ég lesi bréf, er samninganefndin ritaði formanni Sjálfstæðisflokks- ins, dags. 13. febrúar. Bréf samningsnefndar Framsóknarflokksins. Alþingi, 13. febr. 1950. í framhaldi af bréfi for- manns Framsóknarflokksins, dags. 4. þ. m., viljum við und- irritaðir taka þetta fram: Eftir að flokkurinn móttók tillögur ríkisstjórnarinnar. án greinargerðar, kaus hann okk ur til þess að ræða við Sjálf- stæðisflokkinn um stjórn- málaviðhorfið. Við höfúm átt tal við hr. Ólaf Thors, for- sætisráðherra, og hr. Bjarna Benediktsson, utanrikisráð- herra, af hálfu Sjálfstæðis- flokksins, og viljum hér með staðfesta þá afstöðu, sem við tókum af hálfu okkar flokks í þeim viðræðum, og þau rök, sem við færum fram í þvi sambandi. 1. Framsóknarflokkurinn er reiðubúinn til þess að verða við þeirri ósk Sjálfstæðis- flokksins að taka upp sanfn- inga við hann um frumvarp ríkisstjórnarinnar og urrí lausn vandamála í sambandi jvið það, ef sú aðstaða- til samninga er fyrir hendi, setn rætt er um hér á eftir.’— 2. Framsóknarflokkurirín telur fullvíst, að ríkisstjórn- inni sé það ljóst, að frumvarp hennar verður ekki lagt fram á Alþingi, án þess að eiga á hættu háskalegar afleiðing- ar, nema frumvarpinu sé þar tryggð fyrirfram umsamin og skjót afgreiðsla. j 3. Það má og telja ljóst, að ef málinu er ekki tryggð uirí- jsamin afgreiðsla, er allt í ó- vissu um það hvernig af- greiðslan verður, er Alþingi hefir lagt á það síð’ustu höríd. j 4. Það virðist ljóst; að' minnihlutastj órn, sem yfir- lýst er, að ekki hefir stuðn- íng nema sinna flokksmanría einna, hafi mjög takmarkaða jmöguleika til að tryggja fyr-- irfram þá samninga um ugga afgreiðslu málsins, séffr nauösynlegir eru. | 5. Minnihlutaflokkssljðrrí 'myndi eiga mjög óhægt méð að framkvæma málið, þótt samþykkt væri, enda myndi minnihlutastjórn, þarí’ sem ' svo mikið er undir framkv.-„ inni komið, tæplega verða falin slík framkvæmd. | 6. Við bendum á, aðffþfss- um rökum er ekki beint "gbgn Sjálfstæðisflokknum sérstak- lega, heldur eiga þau við um hvaða minnihlutaflokkssbíórrí sétn með völdin færi. Einum þingflokki, hver sem harín væri, hlyti að reynast mjög lörðugt að koma fram þessu stórmáli, er snertir svo. i margra manna hag, og þp i enn örðugra að annast éirín jframkvæmd þess. i 7. Við bendum ennfremur á, að ástandið í fjármálum ; og atvinnumálum hefir e. t. v. aldrei verið alvarlegra, og því aldrei ólíklegra að minni hlutaflokksstjórn geti valdið málunum almennt, en ein- mitt nú. 8. Þess vegna teljum við augljóst, að ef afgreiðsla mála á að fara þannig úr ,hendi að likur séu til að það komi að gagni fyrir þjóðina, verði fyrsta skref rikisstjórn arinnar að vera það, að hún afhendi Alþingi umboð sitt, þar sem hún telur og að lok- ið sé undirbúningsstigi máls- ins, og síðan séu þegar tekn- ir upp samningar um af- greiðslu þess og ríkisstjórn á breiðari grúndvelli, ttl- þéss (FramhaUi á 5. síðu)

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.