Tíminn - 31.03.1950, Side 1

Tíminn - 31.03.1950, Side 1
Ritstjóri: \ Þórarinn Þórarinsson Fréttaritstjóri: , Jón Helgason Útgefandi: Framsóknarflokkurinn <-----——— ---------------- Skrifstofur í Edduhúsinu Fréttasímar: 81302 og 81303 Afgreiðslusimi 2323 Auglýsingasími 81300 Prentsmiðjan Edda ---------1---------- 34. árg. Reykjavík, föstudaginn 31. marz 1950 73. blað Arnarfell komiö ör fyrstu Ameríkuferðinni Hvassafell lagði af sta!$ til líaiín sae® salt- fiskfarm í gærkveMi Það hittist svo á, að bæði skip Sambandsins, Arnarfell o? Hvassafell létu úr Reykjavíkurhöfn í gær. Arnarfell var ný- komið úr fyrstu Ameríkuferðinni og fór vestur og norður um land til að skila vörum á höfnum, cn Hvassafell lagði af stað til Italíu með saltfisk. Ágætt skip til Ameríkusiglinga. Þetta var fyrsta ferð Arn- arfells til Ameríku, og kom það þaðan fullfermt vörum fyrir nokkrum dögum. Hélt það síðan til ísafjarðar í gærkveldi, en það er fyrsta höfnin, sem það affermir vörur vestan og norðanlands. Síðan mun skipið fara til Skagaatrandar, Siglufjarðar, Akureyrar og Húsavíkur. Arnarfell er talið mjög hent ugt skip til vöruflutninga frá Ameríku vegna stærðar sinn ar, lestarúms gerðar allrar. Flytur vörurnar beint á hafnirnar. Eins og kunnugt er hefir mjög kveðið að þvi undanfar in ár, að skip, sem flytja vör ur frá útlöndum, affermi þær allar í Reykjavík, og síðan verði að umskipa þeim þar og flytja með öðrum skip um til hafna umhverfis landið. Af þessu hefir skap- azt aukakostnaður fyrir byggðarlögin utan Reykja- víkur, og hefir hann komið illa við og mælzt illa fyrir. Sambandið hefir viljað ráða bót á þessu með skipum sin- um eftir því sem kostur er á, og því siglir nú Arnarfell t. d. með vörurnar til ákvörð unarhafna víðs vegar um land en skipar þeim ekki á land í Reykjavík eftir að það kemur úr Ameríkuför- inni. Tekur saltfisk á austurhöfnum. Þegar Arnarfell hefir los- að farminn mun það halda áfram austur um land og taka þar saltfisk á mörgum höfnum fyrir Austurlandi o? víðar og sigla síðan með hann til Grikklands. Hvassafell íil Ítalíu. Hvassafell var líka statt hér í Reykjavík í gær og hélt af stað til Ítalíu í gærkveldi með saltfiskfarm eins og fyrr segir. Tók það farminn á ýmsum hcfnum norðan lands og vestan. Dóraur í máli vest- urveldanna og Balkanríkja Alþjóðadómstóllinn í Haag kvað í gær upp úrskurð í deilu máli vesturveldanna annars vegar og Búlgaríu, Rúmeníu og Ungverjalands hins vegar um brot á ákvæðum friðar- sampinganna. Úrskurðaði dómurinn, að þjóðum þessum bæri að fullu að haga sér samkvæmt ákvæðum friðar- I samninganna í skiptum við vesturveldin. Ellefu fuitrúar greiddu þessari niðurstcðu at kvæði, en fulltrúar Rússa, Pólverja og Júgóslavíu í dómn um greiddu atkvæði gegn henni. Tvö met sett á sundmótinu Tvö met voru sett á Sund- meistaramóti íslands í sund- höllinni í gærkvöldi. í 100 m. frjálsri aðferð karla setti Pét ur Kristjánsson A. met. Tími hans var 1:03,3 m. sem er und ir íslandsmet tíma. Met hans er þó óstaðfest. Sveit Ármanns í 4X50 m. setti glæsilegt met á 1:53,5 en sveit í. R. var önnur á 1:54,4 m. Sundhöllin var troðfull af áhorfendum. Mótinu verður haldið áfram annað kvöld. Rætt um framlengingu söluskattsins á Alþingi: Aðalatriðið er að tryggja greiðslu- lalausan ríkisrekstur ÓIijákiænsile|*l er að fraralcngja núver- snslá ttekjuöflun ríkisins, en gengislækkun- sn Iseffr komið í veg fyrir, að ríkið giurfi að anka hana um 100 istillj. krúna í gær var til fyrstu umræðu í neðri deild frumvarp um framlengingu söluskattsins, auk 75% leyfisgjalds á ferða- gjaldeyri og 35% gjalds á leyfum fyrir fólksbifreiðum. Þing- ið var áður búið að framlengja umrædd gjöld til 1. apríl, en frumvarpið leggur til að þau verði látin gilda fyrir allt árið. Þó er sú breyting gerð, að ferðaleyfisgjaldið er lækkað úr 75% í 25%. Leon Blura látinn Jón Einarsson í Reykjahlíð, látinn í dag er til moldar borinn að heimili sínu Reykjahlíð við Mývatn Jón Einarsson, bóndi. Hann lézt fyrir viku siðan tæplega áttræður að aldri. Jón var einn af fremstu bændum sveitar sinn ar og átti frumkvæði að ýms um framfaramálum bænda, svo sem áveitustíflu við Laxá og stofnun og starfrækslu sjóðs er veitti hagkvæm lán til bústofnauka syo að eitt- hvað sé nefnt. Jón var einn- jig meðal forystumanna Kaup ! félags Þingeyinga, deildar- stjóri og löngum fulltrúi á jaðalfundum. Jón var giftur Hólmfríði Jóhannesdóttur og áttu þau mannvænleg börn. Með Jóni Einarssyni er fall- inn í valinn merkur og fram taksamur bóndi er á stór- merkt starf aö baki. Hinn kunni jafnaðarmanna leiðtogi, Leon Blum lézt í gær að heimili sínu við Versailles. Blum var 78 ára að aldri. Hann var kosinn á þmg fyrir jafnaðarmanna- flokkinn 1919 og kosinn for- maður hans 1934. Árið 1936 varð hann forsætisráðherra og beitti sér þá mjög fyrir ýmsum framfaramálum í verkalýðsmálum svo sem lög bindingu 40 stunda vinnuviku Hann átti einnig sæti í ýms| um stjórnum á árunum 1938 \ —1940. Þjóðverjar tóku hann höndum eftir hernám Frakk lands og dvaldi hann í fanga búðum á árunum 1943—45. Eftir stríðslok varð hann aft ur forsætisráðherra nokkra mánuði en lét að fullu af ráðherrastörfum í janúar 1947. Hann var um 20 ára skeið aðalritstjóri eins stærsta blaðs jafnaðarmanna í París. MIIIIIIIHIIIIIIIIIIIIilllllMIUHIIIIIIHIIIIMIIIIIItlllllllMIIH = t I Fundur Framsókn-1 | arraanna í Borg-1 arnesi 1 : jjj r • e A skírdag, fimmtudag- I | inn 6. apríl, efnir Fram- I | sóknarfélag Mýrarsýslu til I f almenns fundar Framsókn 1 I armanna í héraðinu. Fund | f urinn hefst sem aðalfund I | ur Framsóknarfélags Mýr \ f arsýslu en síðan hef jast I f umræður. Þingmaður kjör f I dæmisins, Bjarni Ásgeirs- \ f son mun mæta á fundin- f \ um og ræða stjórnmála- f I viðhorfið. I = í Fundurinn verður hald- | ! inn í samkomuhúsi Borg- I ! arness og hefst kl. 2 eftir 1 ! hádegi. Nauðsyn greiðslujafnaðar. Eysteinn Jónsson, fjármála ráðherra fylgdi frumvarpinu úr hlaði og sagði m. a.: Frumskilyrði þess, að hægt verði að nú jafnvægi í efnahagsmálunum er greiðsluhallalaus ríkisrekst ur. Allt kapp verður því að leggja á greiðsluhallalausa afgreiðslu fjárlaga. Eins og fjárlagafrumvarp- ið er nú, gerir það ráð fyrir greiðslujöfnuð. Það er gert ráð fyrir að söluskatturinn haldist áfram. Hinsvegar ger ir frv. ekki ráð fyrir neinum útflutningsuppbótum. Gengis lækkunin lækkar því ekki neitt útgjaldabálk frv. Hefði hún hins vegar ekki komið til og uppbótunum verið haldið áfram, myndi hafa þurft að hækka útgjöldin um marga tugi millj. kr. og afla nýrra tekna tilsvarandi. Óhjákvæmilegar útgjaldahækkanir. Sé útgjaldabálkur fjárlaga frumvarpsins athugaður, kem ur fljótt í ljós, að þar vantar enn ýmsa stóra útgjaldaliði Þar er t. d. ekki gcrt ráð fyr ir launauppbót þeirri til opin berra starfsmanna, sem greidd hefir verið undanfarna mánuði. Þá vantar á þau ýmsa lögboðna útgjaldaliði, eins og 1,3 millj. til afla- tryggingasjóðs, styrk til báta útvegs tvo fyrstu mánuði árs ins, sem nemur 1,7 millj. kr., og ýmislegt fleira. Þá verður nauðsynlegt að hækka styrk til námsfólks' vegna gengis- lækkunarinnar og eins þarf að auka styrk til kaupa á stcrum ræktunarvélum af sömu ástæðum. Fullvíst er og að vegaviðhaldið er of lágt áætlað. Loks hækka ýmsir út gjaldaliðir beint vegna geng islækkunarinnar. Af þessum ástæðum öll- um er augljóst, að hækka verður ýmsa Jiði í útgjalda bálk fjárlaganna svo að mjög verulegu nemur, og vafalaust mun meira en hægt verður að lækka aðra liði hans að þessu sinni. Tekjuáætlunin. Um tekjubálk frv. er það hinsvegar að segja, að inn- flutningurinn í ár verður að öllum líkindum mun minni en í fyrra, a. m. k. er varlegt áð reikna með því. Það má því heita góð útkoma, ef tekjurnar geta orðið þær, sem frv. gerir ráð fyrir, þrátt fyr- ir hækkun þá, sem verður af völdum gengiálækkunarinn- ar. Af þessu öllu athuguðu er það sýnt, að ekki verð- ur hægt að fella niður meira af núv. tekjustofn- unum ríkisins, ef komast á hjá hallalausum rekstri ríkisins Ríkisstj órnin mun þó reyna að lækka eitthvað skatta á lágtekjumönnum, en aðra (Framhald á 7. síðu.) Teikningar heiraa- vistarskóla til sýnis í vetur efndi fræðslumála stjóri til samkeppni um sem haganlegasta teikningu að heimavistarbal’naskóia í sveit. Lögð var áherzla á að byggja mætti húsið í áföng- um eítir þvi, sem nemenda- fjöldi gæfi ástæðu til, frá 12 börnum í heimavist upp í 32. Fjórtán teikningar bárust. Fyrstu verölaun hlaut Sig- valdi Thordarson, arkitekt, Skarphéðinn Jóhannsson, arkitekt hlaut önnur verð- laun og Bárður ísleifsson, arkitekt þriðju verðlaun. Þá lagði dómnefndin til að keyptar yðru teikningar eft ir eftirtalda þrjá menn: Ágúst Steingrimsson bygg- ingarfræðing, Gunnlaug Hall dórsson, arkitekt og þá Þóri Baldvinsson og Árna Hoff- Möller arkitekta. Nokkrar hinna teikninganna voru at hyðlisverðar. Teikningarnar verða til sýnis í Melaskólanum, kjall- aranum, til rnánaðarloka kl. 17—19 daglega.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.