Tíminn - 31.03.1950, Síða 8

Tíminn - 31.03.1950, Síða 8
„ERLEJVT YF1RLYT“ í DAG: Brezka leyniþjjónustan 34. árg. Reykjavík „A F«R\LW VEGI“ I DAGi At'i r fáni við hún 31. marz 1850 73. blað Brezka stjórnin telur ekki | Efnahagssamvinnustofnunin veitti íslandi ástæðu til aö segja af sér 1,9 milj. dollara síöasta ársfjórðung 1949 Þfngflokkur verkamanna ntun þó verða að gæta betur fundarsóknar |$ingmanna sinna Brezka stjórnin hélt ráðuneytisfund í gærmorgun og að honum loknum gaf Attlee forsætisráðherra þá yfirlýs- ingu í neðri málstofunni, að stjórnin teldi enga ástæðu til að segja af sér þótt tillögur hennar væru felldar í fyrra- kvöld með 26 atkvæða meirihluta. Atkvæðagreiðsla þessi var um kola- og olíufélögin svo nefndu, og stafaði ósigur stjórnarinnar af því, að um 40 þingmenn flokksins voru fjarverandi. Á þingmannafundi verka- mannaflokksins i gær var um það rætt, að flokkurinn neyddist til að beita harðari aga við þingmenn um fund- arsókn, og yrði óhjákvæmi- legt að setja þær reglur, að enginn þingmaður flokksins mætti láta hjá líða að sækja fundi, nema um forföll væri að ræða, sem óhjákvæmileg væri og flokksstjórninni væri gert aðvart um það. Annars gæti stjórnin átt á hættu að falla þá og þegar. Stúlkur úr Fram íslandsmeistarar Handknattleiksmóti ís- lands lauk í fyrrakvöld. Sigr aði meistaraflokkur kvenna úr Fram, en gerði jafntefli við K. R. i mjög hörðum leik sem endaði með fjórum mörk um gegn fjórum. Svo voru áhorfendur æstir á þessum harða leik að stöðva varð leikinn til að draga úr hávaðanum svo heyrst gæti í flautu dómar- ans. Ármann sigraði í 1. og 3. flokki karla en K. R. vann í 2. flokki karla og 2. flokki kvenna. Handknattleikur er nú orð in ein hin vinsælasta íþrótt íslendinga og sækja hana fleiri en aðrar íþróttir. Leik ir handknattleiksmótsins voru yfirleitt allir góðir og mátti sjá skemmtileg tilþrif í knattmeðferð hjá einstak- lingum þó skipulag árása væri ekki vel undirbúið og samstillt. Kosin stjórn félags prjónlesfram- feiðenda Á aðalfundi Félags íslenzkra prjónlesframleiðenda, sem haldinn var 17. þ. m. voru kosin í stjórn félagsins: frú Viktoría Bjarnadóttir formað ur, Haraldur St. Björnsson ritari, og frú Salome Jóns- dóttir gjaldkeri. Félagið vinnur að því að auka og bæta innlenda prjón- lesframleiðslu og eru í því eigendur prjónastofa bæjar- ins. Seretse Khama fagiiað við heimkomuna Afríkuhcfðinginn Seretse Khama, sem hélt heimleiðis frá London fyrir þrem dög- um gegn beiðni brezku stjórn arinnar. Tilkynnti stjórnin, að hann myndi verða kyrr- settur við landamæri Rhó- desíu. Fréttaritarar telja, að hann muni aðeins verða kyrr settur fjóra til fimm daga í horginni Lobatse.á landamær um Transval. Flugvél Seretse lenti i fyrradag um 250 km. frá höfuðborg ríkis hans, Serowe, og þangað voru þá komnir margir fylgismenn hans og þjóðbræður til þess að votta honum traust sitt og taka á móti honum við heimkomuna. Stórbruni s í Bergen I I Stórbruni varð við höfnj ina í Bergen í gær. Brunnuj nokkur samstæð verk-j smiðjuhús úr timbri.j Brunaliðið átti lengi í bar; áttu v.ð eldinn og beittij alls 25 stórvirkum dælumj bæði úr sjó og vatnsveituj borgarinnar. Einnig hjlápj uðu skip til við slökkvi-j starfið með dælum sín-j um. Verksmiðjur þessarj framleiddu meðal annars veiðarfæri. Um 750 manns vann við verksmiðjur þess ar, og tjónið er talði nema allt að 18 millj. króna. 11111111111111111111 IIIIMIIIIMIIIIIIIIIMHIIIIIIIIIIIIIIIiUUIimi Stjórn Jórdaníu krafin sagna Æðstaráð Arababandalags ins samþykkti á fundí sínum í Kairo í fyrradag að skora á stjórn Jórdaníu að gera fulla grein fyrir afstöðu sinni til Palestinu fyrir n. k. laugardag. Ennfremur var samþykkt á fundinum, að víkja hverju því Arabaríki úr bandalaginu, er semdi sér- frið við Ísraelsríki Symfóníusveit og kór flytja Jóhannesarpassíu Bachs Dr. Urbantschitsch samræmir suilli orðs ! og hljóma þcirra Ilallgrlms Pcturssonar og Joh. Scbastian llach. 80 manns flytja vcrk- ift. 13 einsöngvarar, koma á svið Jóhannesar passian eftir Joh. Sebastian Bach við texta úr Passiusálmum Hallgríms Péturssonar verður flutt n. k. sunnudag í Fríkirkjunni í Reykjavík. Er þetta einn hinn mesti (tónlistarviðburður ársins og koma þarna fram um 80 þátt takendur alls og þar af 13 einsöngvarar sem koma fram í hinum ýmsu biblíu- hlutverkum. Einsöngvarar eru: Guðrún Þorsteinsdóttir, Herdís Jóns- dóttir, Þórunn Þorsteinsdótt ir, Þuríður Pálsdóttir, Bjarni Þorgeirsson, Daniel Þor- kelsson, Guðmundur Jóns- son, Gunnar Kristinson, Kristinn Hallsson Ólafur ’Magnússon, Sverrir Kjartans 'son og Þórhallur Bjarnason. Allir einsöngvararnir eru meðlimir í tónlistarfélags- kórnum að tveímur undan- teknum, þeim Guðmundi Jónssyni, en þeir fara með stærstu hlutverkin. Sym- foniu hljómsveitin leikur með söngnum og Páll ís- ólfsson leikur á orgelið. Dr. Urbantisch stjórnandi hljómleikanna hefir séð um samræmingu íslenzka text- ans þ. e. Passiusálmanna, og hins heimsfræga tónverks. Upphaflega var oratorið sam ið við passiusálma Þjóðverj- ans Heinrich Brockes en Dr. Urbantich hefir tekist mjög vel að samræma ljóðlínur Hallgríms Péturssonar og tóna Bachs. Verk þetta var flutt fyrir 7 árum og vakti þá feikna hrifningu enda hefir oft ver ið mælst til þess að það væri endurtekið, en vegna hins mikla undirbúnings sem það krefst hefir ekki verið lagt í það fyr en nú. Var það þá flutt fyrir styrktarmeðlimi tónlistarfélagsins en í þetta sinn eru allir velkomnir. Verk ið er flutt á vegum Tónlist- arfélagsins og Symfoniu- hlj ómsveitarinnar. Framli^ið fyrri hluta þcssa árs fer cink- efiu til kanpa á vclum til virkjunar Sogsins ©íS Laxár Á síðasta fjórðungi ársins 1949 veitti efnahagssamvinnu- stjórn ECA, íslandi innkaupaheimildir að upphæð 1.944.000 dollarar. Viðskiptamálaráðuneytið veitti innflytjendum á sama tíma pöntunarheimildir fyrir 1.180.173 dollara, eða 11.052.315 kr. miðað við dollaragengið 9,36. Þessar pöntunarheimíldir skiptust þannig á vöru- flokka: Hveiti kr. 2.136.002. Hrís- grjón kr. 168.570- Smjörlíkis olíur kr. 49.466. Fóðurvörur kr. 2.2466.392.. Efnavörur kr. 49.218. Timbur 31.466. Pappi og pappír til fiskum- búða kr. 549.407. Smurnings- olía kr. 1.531.221. Járn og stál kr. 250.392. Dósablikk kr. 47.012. Rafmagnsmótorar kr. 562.424. Tæki og varahlutir til Landsímans og Ríkisút- varpsins kr. 334.789. Benzín og diesvélar kr. 242.574. Snjó plógar fyrir Reykjavíkurflug völl kr. 234.125. Varahlutir í skurðgröfur, krana o. fl. kr. 292.254. Herfi og plógar kr. 74.920. Varahlutir í landbún- aðarvélar kr. 169.748. Fisk- pökkunarvél og varahlutir kr. 127.287. Bifreiðavarahlut- ir kr. 1.203.793. Beltisdráttar vélar kr. 383.715. Trollvinda í björgunarskipið „María Júlía“ kr. 1Q3.755. Síldarnæt ur kr. 170.144. Gúmmíreimar fyrír fiskimjölverksmiðjur kr. 93.650. Samkvæmt þessu yfirlíti hafa um 40% af pöntunar- heimildunum verið veittar til kaupa á kornvörum tíl mann eldis og skepnufóðurs. Heim ildir, að upphæð kr. 1.034.888. hafa verið veittar tl kaupa á vélum og tækjum til sex fískimjölsverksmiðja, en nokkrar þeirra hafa þegar tekið til starfa. Á siðasta fjórðungi ársins 1949 nam innflutningur frá Bandaríkjunum og Kanada 9.480 tonnum. Þar af hafa (Framhald á 7. síOu.) Dr. Jessup falin mik- ilvægari störf Dr. Jessup, sem stundum er kallaður „sendiherrann fljúgandi“ vegna hinna miklu sendiferða hans í þágu banda rískrar utanríkisþjónustu, hefir nú verið leystur frá störfum sem prófessor í lög- um við Columbia-háskólann í New York. Truman Banda- ríkjaforseti hefir hins veg- ar tilkynnt, að honum muni verða falin ýmis mikilvæg störf í sambandi við utanrík- isþjónustu Bandaríkjanna, og jafnframt hefir hann þakk að Jessup hin mikilsverðu störf hans að undanfcrnu. Litið er á þessa tilkynningu sem svar af hálfu forsetans við þeim ásökunum um komm únistavináttu, sem Jessup hef ir sætt af hálfu óamerísku nefndarinnar að undanförnu. Fundur ráðherra- nefndarinnar Fundur ráðherranefndar Evrópuráðsins hófst í Strass- borg í gær og eiga sæti þar 12 utanríkisráðherrar. Bjarni Benediktsson situr nú fund nefndarinnar í fyrsta sinn fyrir íslandshönd. Schumann utanríkisráðherfa Frakka var kjörinn forseti fundar- ins, sem standa mun í þrjá daga. Dagskrá fundarins hef ir ekki verið fastákveðin enn, en hún mun aðallega snúast um það, hvernig auka megi áhrif Evrópuráðsins og bezt verði komið fram þeim málum í einstökum löndum Evrópu, sem ráðið vill koma áleiðis. Góð hvalveiði Stærsta brezka móðurskip- ið við hvalveiðar í Suðurhöf- um kom til brezkrar hafnar í gær með nær 2000 tunnur hvalolíu og er það betri afli en í fyrra og betri en nú er hiá flestum öðrum skipum, sem stunduðu hvalveiðar á sömu slóðum. 69 þús. ISrctar flutt- nst til Ástralíu 8.1. ár Á síðastliðnu ári komu 130,000 innflytjendur frá Evrópu til Ástralíu. Þar af voru 09.000 frá Bretlandi. en auk þess margir frá Póllandi, Ítalíu og Júgóslavíu. Meðal þessar innflytjenda voru 40,000 börn og unglingar. Helmingur allra þeirra inn- flyjenda, er hafa komið til Ástralíu frá Evrópu síðast- liðin 3 ár, hefir verið frá Bretlandi. Brooks i Bandaríkj- unum Brooks, forsætísráöherra Norður-írlands er farin í heimsókn til Bandaríkjanna. Hann hefir látið svo um- mælt, að Norður-írland hafi tvisvar sinnum meiri dollara en Bretland og Skotland, að tiltölu við fólksfjölda.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.