Tíminn - 04.04.1950, Blaðsíða 5

Tíminn - 04.04.1950, Blaðsíða 5
76. blaS TÍMINN, þriðjudaginn 4. apríl 1950 n* - 5 f*riðjud. 4. apríl Svona hlaut það að fara Það hefir um lengra skeið verið sérhverjum heilskyggn- um manni ljóst, að fjármála- stefna undanfarinna ára gat ekki haft önnur endalok en þau, sem nú eru komin fram, stórfellda gengislækkun og framlengingu dýrtiðarskatt- anna. Þeir menn, sem réðu þessari stefnu og framfylgdu henni, vissu líka vel, hvert þeir vorn að stefna. Framsóknarmenn létu ekkert ógert til að vara við því, að slíkri stefnu væri fylgt, því að það myndi valda þjóðinni þungum búsifjum og miklum erfiðleikum síðar. Þessum aðvörunum þeirra var ekkert sinnt. Kommúnist- ar vildu vitanlega fyrir alla muni framkalla þær afleið- ingar, sem þeir vissu að hljót- ast myndu af þessari stefnu, því að erfiðleikarnir og öng- þveitið eru bezti jarðvegurinn fyrir þá. Forkólfar stórgróða- mannanna hugsuðu um það eitt að veita skjólstæðingum sínum aöstððu til að ná sem mestu af fljótfengnum gróða og koma honum undan. For- kólfar jafnaðarmanna þorðu hér vitanlega ekki fremur en endranær að rísa gegn yfir- boðum kommúnista. Þannig sameinaðist sú þrenning, sem markaði og framfylgdi dýrtíðarstefnu undanfarinna ára. Það mátti öllum vera ljóst, að hið háa verðlag á útflutn- ingsvörum fyrstu árin eftir styrjöldina, var stundarfyrir- brigði. það byggðist á hinum mikla matvælaskorti í heim- inum. Allar þjóðir létu það vera fyrsta verkið i viðreisn- arstarfi sínu að auka mat- vælaframleiðsluna. Árangur- inn af því er nú sem óðast að koma í Ijós. Verðlag mat- væla fer víðast lækkandi og mun þó vafalaust eiga eftir að lækka mun meira næstu misserin. Af þessum ástæðum mátti okkur vera það ljóst, að það Var ekki heppilegt að láta framleiðslukostnaðinn á þess- um árum fylgj a eftir hinu háa bráðabirgðaverði á útflutn- ingsvörunum. Þvert á móti þurftum við að halda fram- leiðslukostnaðinum svo í skefjum, að útflutningsfram leiðslan gæti greitt niður skuldir og safnað nokkrum varasjóðum til erfiðu áranna. Það var á þetta atriði, sem Framsóknarmenn lögðu mikla áherzlu. Til þessa heilræðis var hinsvegar ekkert tillit tekið, heldur var framleiðslu- kostnaðurinn látinn fara svo langt fram úr útflutnings- verðinu, að nauðsynlegt reyndist að greiða stórfelldar uppbætur úr ríkissjóði, ef útflutningsatvinnuvegirnir áttu ekki að stöðvast. Og þó var alltaf haldið áfram að auka framleiðslukostnaðinn, eins og meirihluti stjórnar Stefáns Jóhanns gerði vitandi vits með kauphækkunum á síðastl. sumri. Afleiðing þessarar óheilla- stefnu blasti ljóst við á síð- astliðnu hausti, er stjórn Stef- áns Jóhanns fór frá völdum. í stjórnartíð hennar hafði greiðsluhalli ríkisins verið til ERLENT YFIRLIT: Bækur og höfundar Dante Bandaríkjanna látinn. — Heildarútgáfa á verkum Sigurd Hoels. — Bók um morðið á Trotski. Fyrir skömmu síðan andaðist heppnað. Fáir hafa öðlast þá í Bandaríkjunum skáldið og rit- náð, að lif þeirra væri það, sem höfundurinn Edgar Lee Masters,; kalla mætti hamingjusamt. Þó 81 árs gamall. Hann var þekktur [ eru þeir nokkrir. í eftirmælum um víða veröld undir nafninu þeirra njóta hinir þýðu, Ijóð - Dante Ameríku. Bók sú, sem rænu strengir Masters sín bezt, ávann honum þetta heiti, er tal- j en þó er það nöpur kaldhæðni in eitt merkasta skáldritið, sem J og gagnrýni á bæjarbragnum í samið hefir verið í Bandaríkj- Spoon River, sem setja megin- unum. svipinn á bókina. Edgar Lee Masters ætlaði sér upphaflega hvorki að verða Umdeild bók, sem hafði skáld eða rithöfundur. Hann j mikil áhrif. lauk laganámi rúmlega tvítugur j „Spoon River Anthology“ vakti að aldri og var málaflutnings- ' strax mikla athygli. Formið og maður í Chicago um þrjátíu ára , efniö var nýjung í amerískum skeið (1891—1920). Nokkru fyrir : bókmenntum. Gagnrýnendurnir þrítugsaldurinn byrjaði hann.aö , neituðu því, að hér væri um fást við ljóða- og sögugerð í! raunveruleg ljóð að ræða, þar tómstundum sínum, en var þó ó- sem Master hefði oftast sleppt I þekktur á því sviði til 1915, er j rími, þótt hann hefði notað ljóðabók hans „Spoon River ljóðaformið. Slíkt mátti þá Anthology" kom út. Hún gerði hann frægan um öll Bandarikin og miklu víðar. Það var hún, sem vann honum nafnið Dante Ameríku. Framliðnir segja frá. Masters hafði lesið mikið af kvæðum Forn-Grikkja og samdi heita óþekkt í Bandaríkjunum. Efnið var þó enn óvenjulegra. Hér var verið að særa fram dá- ið fólk og það látið segja frá göll- um sínum og mistökum. Einna verst var þó, að bókin mátti heita samfelld ádeila á bæjar- lífið og bæjarmenninguna, eins og þetta var yfirleitt í smærri „Spoon River Anthology“ undir! borgum og bæjum miðvestur- áhrifum frá þeim. 1 inngangs- J ríkjanna á þessum tíma. Á yfir- kvæði er maður, sem heim til smábæjarins Spoon River, látinn spyrja um forn- kunningja sína þar, en fær það svar, að þeir séu allir í kirkju- garðinum. Hann heimsækir þá síðan hvern af öðrum og fær í einskonar erfiljóðum yfirlit um ævi þeirra, unz fengin er glögg heildarmynd af lífi og störfum fólks í amerískum smábæ. Dante-nafnið hlaut Masters af því, að hann valdi sér það form að leiða þá framliðnu fram á sjónarsviðið. Það sýnir bezt, að Masters hefir hér ekki tekið sér neitt smávaxið viðfangsefni fyrir hendur, að það eru ekki færri en um 240 framliðnir, sem hann leiðir fram á sjónarsviðið. Þeir eru látnir segja hispurslaust frá ávirðingum sínum og kemur þá margt í ljós, sem samferðamönn- um þeirra í fyrra lífinu hafði verið hulið. Líf þeirra flestra hafði verið meira og minna mis- lJ kemur, borðinu ríkti mikill strangleiki og guðhræðsla, en þegar lengra var krufið, var það slúður, hleypidómar og smáborgara- háttur, sem einkenndi bæjar- braginn. Enginn höfundur hafði afhjúpað þetta betur fram að þessu en Masters í umræddri bók sinni. Dómarnir um „Spoon River Anthology" voru því yfirleitt harðir í fyrstu. Margir fyrri vinir Masters sneru við honum baki og hann varð að hrökklast frá málflutningsstarfinu. Lífið varð honum þungbært upp frá þessu. En hann hafði þó hér ótvírætt gerzt brautryðjandi í amerískum skáldskap og skapað verk, sem hlaut vaxandi viður- kenningu sem mikið bók- menntalegt afrek. Bók hans ruddi nýju ljóðaformi braut í amerískum bókmenntum. Hún hafði jafnframt bent amerískum rithöfundum á nýtt viðfangsr efni, líf og störf hinna óbreyttu Edgar Lee Masters borgara í amerísku smábæjun- um. f slóð „River Spoon Antho- logy“ komu skáldverk eins og „Winesburgh, Ohio“ eftir Sher- wood Anderson og „Main Street“ eftir Sinclair Levis. Hin mikla gagnrýni, se n „Spoon River Anthology“ hlaut, varð til að vekja á henni at- hygli margra, sem annars hefðu látið hana framhjá sér fara. U n langt skeið var hún því met- sölubók í Bandaríkjunum og vann sér þá viðurkenningu -.5 vera eitt mesta skáldverk. sem þar hefir verið samið. Utan Bandaríkjanna hlaut „Spoon River Anthology“ mikl- ar vinsældir og var þýdd á fjól- mörg tungumál. Danska þýð- ingin hefir komið út tvisvar sinnum og hefir auk þess verið flutt i danska útvarpinu. Þo kom danska þýðingin ekki út fyrr en tuttugu árum siðar en frumútgáfan og átti það óvenju- legar orsakir. Fyrri kona Mast- ers hafði verið af skandinavisk- um ættum og leiddi slúlnaður þeirra hjónanna til slíkrar ard- úðar Masters á Skandinövum, að hann bannaði lengi vel að tæk- ur sínar væru þýddar á mál þeirra. Raunaleg endalok. Árið 1924 gaf Masters út „The (Framhald á 6. síöu.) Raddir nábúanna jafnaðar 60—70 millj. kr. á ári var hún búin að leika at- vegna útflutningsuppbótanna og niðurgeiðslna innanlands. Vegna kauphækkanna á síð- astl. sumri og verðlækkunar erlendis var ljóst, að útflutn- ingsuppbæturnar þyrftu nú enn að stórhækka og hefðu sennilega þurft að vera hátt á annaö hundrað millj. kr. á þessu ári, þar sem togararnir þurftu þeirra nú ekki síður við en bátaútvegurinn. Ef komast átti hjá greiðsluhallalausum ríkisrekstri hefði ríkið alltaf þurft að afla um 200 millj. kr. nýrra tekna, ef halda átti út- flutningsuppbótunum áfram. Slíkt var vitanlega með öllu ógerningur. Þótt gengislækk- unin sé neyðarúrræði, var hún þó skárri en slikar álögur í formi nýrra tolla og skatta.Þar sem hún gerði hins vegar ekki meira en að mæta útflutn- ingsuppbótunum, var óhjá- kvæmilegt að framlengja hina fyrri tekjustofna ríkisins, ef komast átti hjá greiðsluhalla. Það er vitanlega enginn skemmtileikur að þurfa að grípa til slíkra örþrifaráða. Stjórnarstefna undanfarinna vinnuvegina, að það er enn engan veginn víst, að þessar ráðstafanir reynist fullnægj- andi. Ef verðlag útflutnings- varanna lækkar enn að ráði erlendis eða kaupgjald og framleiðslukostnaður hækkar eitthvað, erum við strax komn ir í gamla fenið aftur. Það er því ekki að undra, þótt komm únistar hafi dregið kaup- hækkunarfánann að hún, því að þeir vita, að kauphækkun nú, getur ekki þýtt annað en stöðvun eöa nýja gengislækk- un. Fyrir þjóðina er nú mest um vert að læra af óhöppum og mistökum hins liðna að láta ekki glepja sig lengra út á óheillabrautina. Enn er möguleiki til viðnáms og við- reisnar og þjóðin getur þá fljótt unnið upp þá kjara- skerðingu, sem hún verður nú fyrir í bili. Sé hins vegar hald- ið lengra út i ófæruna, eins og gert hefir verið undanfarin 8 ár, bíður hennar meira böl en flesta órar fyrir nú. Þess vegna má þjóðin nú ekki fylgja röddum þeirra, sem enn ára hefur hins vegar gert það i vilja lokka hana lengra út i óhjákvæmilegt. Svo grálega 1 ófæruna og öngþveitið. „Réttarverndar“-nefndin, sem kosin var á Iðnófundi kommúnista á dögunum, er enn eitt helzta umtalsefni blaðanna. í forustugrein Vís- is á laugardaginn segir: „Ofangreind nefndarkosning kommúnista er ekki einvörðungu brosleg, heldur miklu fremur á- töluverð. Kommúnistar ætlast vafalaust til að þeir séu teknir alvarlega, en ef það er gert dylst engum, að hér er um beina uppreisn gegn ríkisvaídinu að ræða. Vilji einstakir menn taka sér vald til þess að ögra ríkis- valdinu og brjóta það á bak aft- ur, myndu þeir tafarlaust stimpl aðir sem réttlausir uppreisnar- seggir. Engu breytir í þessu efni þótt mannhópar gerist sekir um sömu yfirsjón, að öðru en því, að tiltæki þeirra getur verið þeim mun háskasamlegra, sem mennirnir eru fleiri. Uppreisnar- tilraun verður að bæla niður þeg ar í upphafi. Ella getur hún leitt til dómsáfellis fyrir marga, sem láta hrífast með vegna stundar- geðbrigða eða varanlegs skyn- semisskorts, en sem eru ekki í eðli sínu glæpahneigðir. Vegna slíkra manna og þjóðarheildar- innar ber ríkisvaldinu skylda til að fylgjast vel með störfum „geðverndarnefndarinnar" og gera viðeigandi gagnráðstafanir, ef þess þykir við þurfa. And- varaleysi á engan rétt á sér í þessum efnum, einkum þegar þess er gætt, hvert tilefnið er til nefndarkjörsins og hvert verk- efni nefndinni er ætlað“. Það er bersýnilegt, að kommúnistar hafa hér fyrir- ætlanir á prjónunum, sem geta dregið alvarlegan dilk á eftir sér, ef þeir gera alvöru úr því að reyna að fram- fylgja þeim. f gær voru liðin tvö ár síð- an Bandaríkjaþing sam- þykkti lögin um Marshallað- stoðina. Nafn sitt hlaut hún af því, að Marshall hershöfð ingi, þáverandi utanríkisráð- herra Bandaríkjanna hafði fyrstur borið fram hugmynd ina um fjárhagslega aðstoð Bandaríkjanna við endur- reisn Evrópu. Marshali gerði það í ræðu, sem hann flutti við Harvardháskóla 5. júní 1947. Upphaflega var til þess ætlast að Marshallaðstoðin næði til allrar Evrópu. Sovét ríkin skárust hinsvegar strax úr Ieik og neyddu leppríkin síðan til að gera slíkt Hið sama. Bæði Tékkóslóvakía og Pólland höfðu ætlað að vera meö í þessari efnahags- samvinnu. Rússar munu ekki hafa talið nána efnahags- samvinnu Austur- og Vestur Evrópu heppilega fyrir gengi kommúnista í leppríkjunum. Viðreisn Vestur-Evrópu mun heldur ekki hafa verið neitt eftirsóknarverð frá heims- veldissjónarmiði þeirra, þar sem batnandi afkoma al- mennings þar var líkleg til að draga úr fylgi kommún- ista. Sú hefir líka orðið reynd in, enda hafa kommúnistar reynt að spilla árangri Mar- shallviðreisnarinnar eftir megni. Þótt Marshallaðstoðin leggi veruleg fjárútlát á Bandaríkin, er það síður en svo, að hún geti talist góð- gerðarstarfsemi af þeirra hálfu. Það er bæði beinn og óbeinn hagur Bandaríkjanna að Evrópa komist efnahags- lega á legg og þurfi ekki á sffeldri aðstoð þeirra að halda. Slíkt getur til lang- frama haft slæm áhrif á sambúð þessara aðila og orð ið kommúnismanum til styrktar. Fyrir Bandaríkin er tvímælalaust bezt, að Evrópa geti orðið efnahagslega sjálf bjarga og sjálfstæð og sam- vinnan komist á jafnvægis- grundvöll, þar sem hver að- ili þarf á samstarfi við hinn að halda, en er hins vegar ekki neitt liáður honum. Þess vegna er það líka fyrst og fremst tilgangur Marshall- hjálparinnar að gera Evrópu efnahagslega sjálfstæða og í því tilliti óháða bæði Banda- ríkjunum eða öðrum stórveld- um. Það er tvímælalaust, að Marshallhjálpin hefir þegar borið mikinn og góðan árang- ur. Hún hefir mjög flýtt fyrir viðreisn Vestur-Evrópu og bætt afkomuna þar. Það má m. a. marka á fylgishruni kommúnista í þessum lönd- um. Þar sem lífskjörin fara batnandi, hrakar fylgi komm únismans. Eymdin og komm- únisminn eru förunautar. Upphaflega var gert ráð fyrir, að Marshallhjálpin stæði í fjögur ár, en Ijóst er nú, að hún þarf að haldast nokkuð lengur. Ýmsir áhrifa- jmenn Bandarikjanna, cins og Wandenberg öldungadeildar- þingmaður, hafa því lagt til, að henni yrði haldið áfram í einu eða öðru formi. Helzt hefir komið til orða, að það yrði gert á grundvelli Atlanz- hafsbandalagsins, en þvi er í framtíðinni ætlað að vinna að auknu efnahagssamstarfi þátttökur ík j anna. Marshallhjálpin markar nýjan þátt í hinni alþjóðlegu (Framhald á 6. síðu.)

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.