Tíminn - 03.05.1950, Blaðsíða 1
r----------------•>—--------*-
Slcrifttofur i Edduhúsinu >
Fréttasimar:
H302 og <1303
AfgreiBsluslmt 2323
Auglísingasími <1300
PrentsmiSjan Edda
34. árg.
Reyltjavík, miðvikudaginn 3. maí 1950
95. blað
Borgarvirki verður
hlaðið upp í vor |
lígsluliátíð ráðgerð
i
um miðjan júlí-
mánuð.
Húnvetningafélagið í Rvík,
ætlar á þessu sumri að láta
endurreisa Borgarvlrki, hið
fræga vígi Barða Guðmund.s-
sonar, er frá segir í Heiðar-
vígasögu. Konráð Sigurðsson,
bóndi í Böðvarshólum, sem
verður verkstjóri við endur-
hleðslu virkisins, var stadd-
ur hér i bænum, og ætlar
hann að láta hefja vinnu við
vírkið 10. maí. En lokið á
verkinu að vera í lok júní-
mánaðar.
Húnvetningafélagið mun
síðan gangast fyrir vígsluhá-
tíð um eða upp úr miðjum
júlímánuði.
Beið bana við í-
kviknun í vélbát
S. 1. mánudagsnótt var
slökkviliðið í Reykjavík kvatt
niður að höfn, því að kviknað
hafði í vélbátnum Svan frá
Akranesi. Var fljótlega slökkt
í bátnum, þótt eldurinn væri
orðinn allmikiil. Eldurinn
hafði kviknað í afturkáetu,
og þegar slökkviliðið kom
þangað nn fann það örendan
mann þar. Hét hann Vggó
Eyjólfsson frá Akranesi, og
mun hafa kafnað af reyk.
Báturinn hafði komið
snögga ferð hingað til Reykja
víkur á sunnudag og ætlaði
til Akraness aftur á mánu-
dag. Maður sá er lézt, hafði
komið með bátnum frá Akra-
nesi.
Ný framhaldssaga
hefst í dag
í dag hefst i blaðinu ný
framhaldssaga, Frúin á
Gammsstöðum, eftir sviss-
neska rithöfundinn Jolin
Knittel.
John Knittel er mjög kunn
ur rithöfundur á meginlandi
Evrópu, og hefir hann hlotið
hinar mestu vinsældir meðal
alþýðu manna. Hafa sögur
hans, er segja frá stórbrotnu
fólki í hinum miklu fjalldöl-
um ættlands hans, farið sig-
urför land úr landi. Er þess
og að vænta, að þessi bók,
er segir frá harðri baráttu og
hrikalegum örlögum, muni
einnig finna hljómgrunn
meðal íslenzkra lesenda.
Það mætti ætla, að maðurinn héldi á skartgripum í lofa sínum. Svo er þó ekki. Þetta
cr bókasafn. Þarna getur að líta tólf bindi báka, sem Þjóðverjinn Valentin Kaufmann hef
ir búið til. Á hverri síðu í þessum „bókum“ eru 5000—d3000 handskrifaðir stafir.
Brotizt yfir
Fagradal
Víða íílftiiiianlegur
fóðœrhætisskortur.
Þrjár dráttarvélar og þrjár
stórar bifreiðir brutust í fyrri
nótt frá Reyðarfirði yfir
Fagradal. Var verið -átján
klukkustundir á leiðinni.
Harðindin haldast enn
austan lánds, og eru hey-
birgðir sumra bænda þrotn-
ar, en enginn fóðurbætir til-
tækur vegna samgönguerfið-
leika.
Forsætisráðherra Pakistan
gisti ísland í nótt
Kom inoð miklu fwruneyti í cinkaflngvél
Trumans frá London á leið lil VVashiugton.
Klukkan 7.15 í gærkvöldi Ienti „Independence“, einka-
Höfðingleg gjöf
Þorkell bóndi Pétursson i
Litla-Botni við Hvalfjörð,
hefír nýlega fært Hallgríms-
kirkju i Saurbæ 1000 krónur
að gjöf.
Hallgrímskirkju í Saurbæ
hefir að^undanförnu safnazt
allmikið fé víðs vegar að.
Nýtt heimsmet
í kúluvarpi
Síðastl. laugardag setti Jim
Fuchs nýtt heimsmet í kúlu-
varpi, varpaði 17.81 m. Bætti
hann eldra met sitt, er hann
setti í Noregi s.l. sumar, um
2 cm.
flugvél Trumans Bandaríkjaforseta, á Keflavíkurflugvelli,
og hafði forsetinn sent hana til London til þess að sækja
þangað AIi Khan, forsætisráðherra Pakistans, sem er á leið
til Washington í boði Trumans.
Með forsætisráðherranum
var mikið föruneyti, þar á
meðal M. Ikramullah, utan-
nkisráðherra Pakistans, T.
Ahmed stjórnarráðsritari, A.
S. Bohkari prófessor, tveir
starfsmenn úr sendiráði Pa-
kistans í Washington, Raza
og Boku að nafni, og tveir
fulltrúar Trumans Banda-
ríkjaforseta, Landry hers-
hófðingi og Vaugham her-
fulltrúi, auk ritara og þjón-
ustuliðs.
Ali Khan og föruneyti hans
gisti í gistihúsinu á Keflavík-
urflugvelli i nótt, en klukkan
8.15 í morgun átti flugvélin
að halda ferðinni áfram til
Washington.
Forsætisráðherrann gekk
þegar til náða, er hann kom
til Keflavíkur, og náði tíð-
indamaður Timans, sem
staddur var syðra, ekki tali
af honum. En fylgdarlið for-
sætisráðherrans snæddi í veit
ingasal gistihússins. Tjáði
fulltrúi forsætisráðherrans
fréttaritara blaðsins, að hann
gæti eigi látið annað uppi um
ferð þessa og tilgang henn-
ar en það, að Ali Khan væri
á leið til Washington í sér-
stcku boði Bandaríkjaforseta.
— En ég get sagt það, sagði
hann brosandi, að okkur þyk-
ir þægilegt að koma hingað i
svalann, beint úr hitunum í
Pakistan. Annars áttum við
ekki von á öðru en hér væri
is og snjór yfir öllu.
Að loknum snæðingi óku
langferðamennirnir til Kéfla
víkur og víðar um nágrenni
flugvallarins.
5. söngskemmtun
Karlakórs
Reykjavíkur
Karlakór Reykjavíkur hef-
ir nú haldið fjórar söng-
skemmtanir, allar við hús-
fylli og hinar ágætustu undir
tektir. Fimmta söngskemmt-
uriin að þessu sinni verður í
Gamla bió í kvöld.
Karlakór Reykjavíkur á svo
langt starf að baki og hefir
hlotið slíka viðurkenningu,
að ekki þarf mörgum orðum
um það að fara. Eru Reykvík-
ingar og þjóðin öll í mikilli
þakkarskuld við hann fyrir
merkilegan þátt í menningar
lífi höfuðstaðarins.
Akureyrartogarar
veiða karfa til
bræðslu
Akureyrartogararnir Kald-
bakur og Svalbakur veiða nú
karfa til bræðslu, og hafa
þeir nú báðir komið til Ak-
ureyrar með fyrsta farminn
af bræðslufiskinum. Er karf-
inn lagður upp í Krossanesi,
og munu verksmiðjurnar
hefja bræðslu innan skamms.
Abalfundur Kaupféi. Borgfirbinga
Mjólkursamlag K. B. tók á
móti 4 milj. lítra mjólkur
KaniifélagiH lcggur fram 75 þás. kr. hluta-
fé til gistiliúsbyggingar í Borgarnesi.
Frá fréttaritara Tímans í Borgarnesi.
Aðalfundur Kaupfélags Borgfirðinga var haldinn í Borg-
arnesi 28.—29. apríl. Sátu fundinn, auk félagsstjórnar, 57
fulltrúar frá sextán deildum
Þórður Pálmason kaupfé-
lagsstjóri og Jón Hannes-
son í Deildartungu, formað-
ur kaupfélagsins, skýrðú frá
hag og rekstri þess síðast-
liðið ár. Nam sala erlendra
vara 7,1 milljón króna, en
innlendra vara 8,4 milljón-
um. Jókst viðskiptaveltan um
tvær milljónir króna, miðað
við árið áður, og stafaði það
að miklu leyti af auknum fóð
urvörukaupum og vélakaup-
um félagsmanna.
Rekstrarhagnaður varð 166
þúsund krónur, og var ákveð
ið á aðalfundinum að leggja
4% af verði ágóðaskyldri
vöruúttekt félagsmanna í
stofnsjóð.
Mjólkursamlag kaupfélags
ins.tók á síðastliðnu ári á
móti fjórum milljónum lítra
mjólkur, og var fitumagn
mjólkurinnar 3,59%. Mjólk-
urmagnið jókst um 250 þús.
lítra frá árinu áður. Fyrir
mjólkina var greitt kr. 1,52 á
lítra eöa samtals um 6,2 millj.
; króna. Rekstrarhagnaður
og nokkrir gestir.
mjólkursamlagsins var 247
þúsund krónur, og verður
greiddur sem verðuppbót til
framleiðenda.
Að meðtöldu framlagi til
sjóða verður endanlegt verð
mjólkur kr. 1,61,4 á litra, en
þar frá dregst, hálfur tíundi
eyrir í flutningskostnað á
litra að meðaltali.
Helztu framkvæmdir Kaup
félags Borgfirðinga var bygg-
ing húss, sem á brauðgerð-
arhús, brauðbúð, kjötvinnslu
stöð og kjötbúð. 'Á efri hæð
þess verður íbúð. Húsið verð-
ur tekið til notkunar bráð-
lega.
Samþykkt var að leggja
fram 75 þúsund krónur sem
hlutafé til gistihúsbyggingar
I Borgarnesi.
Davíð Þorsteinsson, bóndi
á Arnbjargarlæk, er hefir
lengi átt sæti í stjórn fé-
lagsins, baðst undan endur-
kosningu. Var í hans stað
kosinn í félagsstjórnina
Haukur Jörundsson, kennari
á Hvanneyri.