Tíminn - 24.05.1950, Blaðsíða 2
2
TÍMINN, miðvikudaginn 24. maí 1950
112. blað
hafi tii heiia j
-Y'TTMltfr' I
I nótt:
Næturlæknir er í læknavarðstof-
unni, sími 5030.
Næturvörður er í Reykjavíkur
apóteki, sími 1760.
Næturakstur annast Hreyfill,
sími 6633.
Útvarpið
í ivarpið i dag:
Fastir liðir eins og venjuiega.
Kl. 20,30 Breiðfirðingakvöld: a)
Ávarp (Sigurður Hólmsteinn Jóns-
son, formaður Breiðfirðingafélags-
ins í Reykjavík). b) Ræða (Guð-
mundur Einarsson fulltr.) c) Upp-
lestur: Kvæði (frú Ragnheiður Ás-
geirsdóttir). d) Breiðfirðingakór-
inn syngur. e) Upplestur: Kvæði
(frú Guðbjörg Vigfúsdóttir). f)
Kvartettinn Leikbræður syngur.
g) Upplestur: Sögukafli (séra Jón
Thorarensen). h) Frásöguþáttur
(Oscar Clausen, rithöfundur). i)
Kveðjuorð (Sigurður Hólmsteinn
Jónsson). 22,10 Danslög (plötur)
22,30 Dagskrárlok.
Hvar eru skipin^
S í.S. — Skipadeild.
Arnarfell er á leið frá Patras til
Cadiz. Hvasafell er á Húsavík.
Rikisskip.
Hekla var væntanleg til ísafjarð-
ar siðdegis í gær. Esja var á Akur-
eyri I gærkvöld. Herðubreið fer
frá Reykjavík í kvöld til Vestfjarða
Skjaidbreið fer frá Reykjavík í
dag til Breiðafjarðar. Þyrill er í
Reykjavík. Ármann fór frá Reykja-
vík i gærkvöld til Vestmannaeyja.
L'imskip
Brúarfoss fór frá Vestmanna-
eyjum 22. maí til Hul og Ham-
borgar. Dettifoss er i Reykjavik.
Fjallfoss fór frá Akureyri í gær til
Húsavíkur. Goðafoss fór frá Reykja
vík kl. 22 í gærkvöldi til Vest-
mannaeyja og austur um land tíl
Reykjavíkur. Gullfoss er í Reykja-
vík. Lagarfoss er i Reykjavík. Sel-
foss fór frá Reykjavík 21. maí
vestur og norður. Tröllafoss er í
New York, fer þaðan væntanlega
i dag til Reykjavíkur. Vatnajökull
fór frá Vestmannaeyjum 20. maí
til New York.
Árnab heilla
Gullbrúðkaup.
í smágrein i blaðinu i gær í til-
efni af gullbrúðkaupi Jóns Guð-
mundssonar og Guðrúnar Jakobs-
dóttur, hafði brenglast nokkuð í
prentuninni. Átti m. a. að standa:
Þau hjónin bjuggu um alllangt
skeið að Narfeyri á Skógarströnd
og hafa oft verið kennd við þann
bæ síðan.
Gullbrúðkaup þeirra hjónanna
var fjölsótt af vinum og vanda-
mönnum og var veitt þar af mik-
illi rausn og myndarskap.
Blöb og tímarit
Menntamál.
apríl-júni hefti flytur: Frjálst
uppeldi, Lotte Bernstein. Gætu
gagnfræðanemar í Reykjavík haft
meiri not af skólayistinni, Guðm.
Þorláksson. Lestrarkennsla, Eyjólf
ur Guðmundsson. í Lundúnaskóla,
Inga Lauridsen. Hervald Björnsson
sextugur. Minningarorð um Þór-
eyju Skaptadóttur. Kristján Sig-
urðsson, minningarorð eftir M.J.M.
Sigfús Sigurðsson minning. Launa
mál, Arngrímur Kristjánsson.
Þjóðleikhús og skóiar, Á. H. Leið-
arvisir um að gera fjölrit. Margt
fleira er í ritinu.
Úr ýmsum áttum
Hvítasunnuferðir
Ferðaskrifstofunnar.
Ferðaskrifstofan ráðgerir að •
efna til þriggja ferða um Hvíta- j
sunnuna:
Ferð vestur í Stykkishólm og
Breiðafjarðareyjar.
Ferð til Gullfoss og Geysis og
Hringferð um Krísuvík og Hellis-
heiði, með viðkomu i Strandar-
kirkju.
í Stykkishólmsferðina verður
lagt af stað kl. 14 á laugardag og
komið til baka á mánudagskvöld.
Faríð verður á bát um Ereiða-
fjörð og eyjarnar skoðaðar.
Gullfoss- og Geysisferðin verður
kl. 9 á sunnudagsmorgun: Reynt
verður að stuðla að gosi.
Ferðin til Strandakirkju og hring
inn, um Hveragerði og Tellisheiði
verður á mánudag, lagt af stað
kl. 12,15. Dvalið við Strandakirkju
meðan athöfnin við afhjúpun högg
myndarinnar „Landsýn" fer fram.
Fiskimjölsveiðar.
Eitt fjöllesnasta blað landsins
hefir undanfarið hvað eftir annað,
verið að skrifa um að alltaf væru
fleiri og fleiri togarar að fara út
á fiskimjölsveðiar. Áður hefir oft
heyrát að skip færu á þorskveiðar,
karfaveiðar o. s. frv. og einnig að
þau færu á fiskveiðar. Ætli sé nú
kominn nýr fiskur í sjóinn, sem
heitir fiskimjöl — eða er þetta ef
tii vill aðeins „fjóla“?
G.
Skemmtiferð.
S. 1. laugardag fóru 52 nemend-
ur úr öðrum bekk Gagnfræðaskól-
ans við Lindargötu í tveggja daga
feiðalag austur að Guilfossi,- Geysi,
Laugarvatni og að Þingvöllum. í
leiðinni var komið við á Ljósafossi
og orkuverið skoðað. Fararstjóri
var Karl Guðmundsson, leikfimis-
kennari.
í. R. - KOLVIÐARHÓLL
Sjálfboðavinna að Kolviðar-
hóli í kvöld. Lagt af stað frá
Varðarhúsinu kl. 7 e. h. Komið
verður aftur í bæinn kl. 11,45
e. h.
Skiðadeild t.R.
Þröngar brýr.
Sparsemi er dyggð en fyrirhyggju
leysi er vítavert. Á iandinu eru
hundruð brúa, sem eru svo þröngar
að bílar þeir. sem nú eru notaðir
komast með naumindum yfir og
kemur að oft fyrir að stórir fólks-
flutningsbílar skemmist við það að
snerta handrið eða rífa barðana á
hvössum röndum, sem steyptar eru
á kant brúarinnar. Hér um þarf
ekki að kenna klaufaskap því ekki
nema færustu bílstjórar geta ekið
löngum og breiðum bifreiðum yfir
þessar brýr.
Sennilega hafa brýrnar verið
gerðar svona þröngar með það fyrir
augum að spara efni og hefir því
breidd brúnna verið miðuð við
farartæki þau, sem tíðkuðust er
brýrnar voru gerðar. Nú eru flestar
þessara brúa gerðar eftir að bílar
fóru að ganga og þó að breidd bíla
sé nokkru meiri nú en fyrir nokkr
um árum, var það og er fyrirhyggju
leysi að gera brýrnar þannig úr
garði, að þær séu ónothæfar ef
smábreyting verður á farartækj-
um.
Kvenréttindafélag íslands.
heldur fund í Aðalstræti 12 kl.
8,30 í kvöld.
Bergur Jónsson
Málaflutningsskrifstofa
Langaveg 65, síml 5833
Heima: Vitastig 14.
Ctbreiðtð Tímann.
■IIII(IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII*lllllilllllllllllllllllllllllIlllllllllllllllllllIlllllllllltlll<IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII>IIIIIIIIIIIIIIIIIBI>lll
| |
| Ný list - Laugarnesleir |
Skoðið hina fjölbreyttu sýningu í Austurstræti 3,
Café Höll
| 5 ungir listamenn sýna þar, keramik, höggmyndir, í
málverk, ásaum og myndvefnað
| Fylgist með íslenzkri list. — Leggið leið ykkar um |
Austurstræti i
jiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiimiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
♦
J
Leikskóli Sumargjafar
í Grænuborg tekur til starfa 1. júní n. k. Tekið á móti
umsóknum í síma 6479 frá kl. 1—5 og á skrifstofu
félagsins Hverf^sgötu 12.
I— förnum veai
Brauð og bakari
Eg hefir undir hönduni bók eft-
ir A. J. Cronin. Ein af söguhetjun-
um í þessari bók er mjög trúhneigð
ur bakari, sem predikar jafnvel,
þegar svo ber undir. En hann er
samt góður bakari, og einu sinni,
þegar gestur hans fór að hrósa
brauðunum, sem hann bakaði,
svaraði hann, að efni til á þessa
leið:
,,Það borða margir fátækir menn
brauðin mín. Brauð er kjarninn í
fæði námamanna og verkamanna
hérna og barna þeirra. Þess vegna
nota ég aðeins gott mjöl og gott
ger og vanda vinnu mína“.
£g gat ekki annað en staldrað
við, er ég las þessa setningu. Og
ég spurði sjálfan míg: Hvað mikil
ítök skyjdi þessi hugsunarháttur
elga á íslandi?
Hugsa íslenzku bakararnir
s\ ona: Það borða fátæk börn brauð
ið frá mér, og það er nauðsynlegt,
aii þau fái sem mest næringarefni
úr því. Eg kaupi þess vegna beztu
efnivöru, sem ég á völ á og vanda
vinnu mína á allan hátt. Það skipt
ii meira máli en gróði minn.
Sem betur fer munu finnast í
ýmsum starfsgreinum menn, sem
svo hugsa. En þeir eru of fáir —
allt of fáir. Það er allt annað. sem
undir slær hjá langflestum. Það
er hugsað um eftirtekjuna — þá,
sem borguð er út f hönd — en ekki
hina, sem njóta eiga eða gjalda
góðrar vöru eða lélegrarj
Skozki bakarinn hafði annað
sjónarmið, sem ekki mátti gleyma,
enda þótt hann þyrfti líka að sjá
I sér og sínum farborða. Og er háns
sjónarmið ekki þess vert, að það
sé haft í huga — og það við fleira
en bakaraiðn?
J. H.
TILKYNNING
frá
j félagsmálaráðuneýtinu
Með vísun til 4. greinar laga um sveitarstjórnarkosn-
ingar skulu almennar hreppsnefndarkosningar í þeim
sveitarfélögum, sem ekki var kosið í í janúarmánuði
síðastliðinum, fara fram sunnudaginn 25. júní næstkom
andi og áminnast hér með oddvitar og sveitarstjórnir
um að kjörskrár til hreppsnefndarkosninga þessara
séu lagðar fram og leiðréttar eins og lög mæla fyrir,
og kosningin að öðru leyti undirbúin í samræmi við fyr-
irmæli laga nr. 81 1939 um sveitarstjórnarkosningar.
Félagsmálaráðuneytið, 23. maí 1950.
• DAGRENNING •
Nýtt hefti er komið út.
Helztu gremar eru:
Hernema Rússar ísland frá Spitzbergen?
eftir Jónas Guðmundsson
Eru stórfeldar náttúruhamfarir í vændum?
eftir G. Lindsey
Konungurinn af Zíonsblóði, eftir R. A. Bradbury
Sál og andi, eftir Penn-Lewis.
Dagrenning fæst hjá bóksölum í lausasölu, en betra
er að vera fastur kaupandi. Nýir kaupendur fá það sem
til er af eldri heftum ókeypis.
Símið eða skrifið
Tímaritið DAGRENNING
Reynimel 28
— sími 1196 —
Nýir kaupendur
Þeir, sem gerast nýir á-
skrifendur að Tímanum fá
blaðið ókeypis til mánaða-
móta. — Áskriftarsími
2323. —
Nýja fasteignasalan
Hafnarstræti 19. Síml 1518
og 81546, kl. 7,30 til 8,30 e. h.
Annast sölu fasteigna, skipa,
bifreiða og verðbréfa. Við-
talstími kl. 10—12 og 1—6
virka daga.