Tíminn - 13.06.1950, Síða 1

Tíminn - 13.06.1950, Síða 1
lllllllllllllllllllllimillllHIHlMIII 11111111111111111111111111111111111 nm 11111111111111111111IIIII Ritstjóri: Þórarinn Þórarinsson 1 Fréttaritstjóri: Jón Helgason Útgefandi: Framsóknarflokkurinn § ll■llllllllllllllllllllllll■■llllllllmllll■lllllllll■■l■Hll■■ iiiiiiiiiitiitiiiiiiiiimiiiiimiiiiimiiiiiiiiiiiiiiitiiiH|t i Skrifstofur í Edduhúsinu \ Fréttasímar: 81302 og 81303 Afgreiðslusími 2323 Auglýsingasímí 81300 = Prentsmiðjan Edda illllllllliiiiiiMiiMiiiiimiiiMimmiliiiiiiuiiliillillii 34. árg. Reykjavík, þriðjudaginn 13. júní 1950 126. blað Hér sézt „stærsti karlakór á íslandi. Þetta eru karlakcrarnir sjö, sem þátt taka í landsmótinu. Mynlin er tekin við Austurbæjarskclann. Fremstir á myndinni sitja söngstjórarnir sjö: Jcn Ilalldórss., Þormóður Eyjólfss., Áskeil Jónss., Ingim. Árnas., Sig. Þórðars., Geirl. Árnason og Ragnar Björnsson. Fjórtán þúsund manns sjá blaðamenn sigra leikara 1:0 í skoplegum knattspyrnulcik á ílirótta- vcllinum s. 1. sunnuclagí kuldagjóstri rigningu. Fjölsóttasti kapplcikur, scm háður hcfir vcrift hcr á landi Hvert stæði var skipað á íþróttavellinum þegar hinn mis- jafni hópur keppenda gekk inn á völlinn m6ð danshljóm- sveit Björns R. Einarssonar í fararbroddi. Hlátur kvað við frá þúsundum manna er gaf að líta hljómsveitina klædda aö miðalda 6ið og keppendurna sjálfa ístrubelgi og renglur [ ganga skjálfandi Inn á völlinn, annað hvort af kapps- skjálfta eða vegna napurs vestan kalda. Þegar skrúðgöngunni var lokið stilltu keppendur sér upp og voru kynntir með til- heyrandi vitnisburði af Har- aldi Á. Sigurðssyni. Gekk hver fram er kynntur var og mátti sjá að mörgum hlýn- aði við kýmni Haraldar. Blaðamenn voru það heppn ir að þeir fengu vindinn með sér í fyrri hálfleik og þeim óx hugur við það því leikarar höfðu ekki við vindinum og lá boltinn alltaf við þeirra mark. Þó má segja að þeir f léku af kappi af kappi þegar j þeir sáu að ekkert gekk, tók Haraldur Björnsson leikari, boltann í fangið og hljóp með miklu offorsi inn á vallar- helming blaðamanna með alla keppendur á hælunum. Annríki lijúkrunarkvenna. Lið hjúkrunarkvenna sem skipað var leikkonum. stóð sig með ágætum og þutu þær um völlinn með miklum flýti og veittu særðum hjúkrun. Gunn þórunn Halldórsdóttir gaf ekki þeim yngri eftir og reynd ist.hún hin skjctasta. Þegar í fyrri hálfleik gerði Sverrir Þórðarson, blaðamað- ur hjá Morgunblaðinu mark t hjá leikurum þrátt fyrir snarpa vörn á móti vindin- um. Voru þá margir orðnir sárir og móðir og einn leik- arinn hafði fengið taugaáfall vegna ofrauna og vár borinn út af vellinum þar sem hann fékk hressingu og hughreyst andi orð af vcrum hjúkrunar kvenna. Blaðið hefir frétt að honum líöi vel eftir ástæðum. Sungið í hálfleik. í hálfleik söng Guðmund- ur Jónsson nokkur lög og var ætlast til þess að áhorfendur tækju undir en úr því varð ekki, því áhorfendum var of kallt til að syngja eða gefa frá sér nokkurt hljóð. Þá fór fram eggjahlaup milli leiií- kvenna og varð frú Edda Kvaran sigurvegari í hlaup- inu en varð samt síðust að borða eggið sitt. Það heyrð- ist meðal áhorfenda að hinar sem þátt tóku í hlaupinu hefðu verið svo svangar að þær hefðu sezt niður áður en, hlaupið var á enda og borð- | að eggið. Edda fékk eggjabik^ ar í verðlaun. Leikarar voru all hróðugir þegar skipt var um mark, en allt kom fyrir ekki, þeim tókst ekki að skora og varð vcrn blaðamanna fræg, þótt þeir væru orðnir þreyttir að elta boltann undan vindinum í fyrri hálfleik. Víiaspyrna Haraldar. Haraldur Á. Sigurðsson tók eina vítaspyrnu en missti marksins, en litlu munaði því skórinn hans kom í stöngina. Ai' hrifningu yfir því að Har aldur missti marksins bar lið blaðamanna hann á gullstól út af vellinum, en gafst upp á miðri leið vegna ofurþunga hetjunnar. Allmörg horn voru tekin og er það eitt hið frægasta þeg- ar Thorolf Smith blaðamað- ur hjá Vísi, sveigði sinn langa líkama eins og boga og sendi (Framhald á 2. siðu.) MAÐUR HVERFUR ViÐ HVÍTÁ Talið líklcgt að Itaiin hafi elrukknað Um kl. 9 á föstudagsmorg- uninn var fór Jón Bjarnason bóndi í Öndverðarnesi í Grímsnesi að Hvítá til að vitja um tvö silunganet, sem hann hafði þar í lögn. Leið svo fram undir hádegi, að hann kom ekki heim og var þá farið að undrast um hann. Var leh, þá hafin en án ár- angurs. , Hestur sá, er Jón hafði rið- ið á austur að ánni, fannst bundinn á árbakkanum, þar sem Jón hafði skilið við hann. Einnig sáust þess merki, að hann hafði hreyft við net- unum og virzt vera búinn að ganga frá öðru netinu en verið að fást við hitt. Leitað var meðfram allri Ölvusá allt til sjávar og slætt í ánni á þeim stöðum, er lík legt þótti, að lík hans hefði nulnið staðar, ef hann heMi fallið í ána og drukknað. Varð öll leitin árangurslaus og einnig leitin í gær. Áin* er mikil, djúp og straumþung á þessum stað. Jón bjó í Öndverðarnesi með aldraðri móður sinni. Hann var á fertugsaldri og ókvæntur. Vínarbúar heiðra S. Thorsleinsson • Á aðalfundi Rauða kross íslands 2. júní s. 1. afhenti | ræð smaður Austurríkis Jul. j Schopka, Scheving Thor-1 steinssyni formanni fram- j kvæmdaráðs Rauða Krossins, I heiðurspening Vínarborgar, j ásamt skrautrituðu ávarpi, jundirrituðu- af borgarstjóra ;og varaborgarstjórum. Skýrði ! Schopka svo frá, að heiðurs- jpeningurinn og ávarpið væri þakklætisvottur Vínarbúa fyrir veitta hjálp. Á sama fundi var tilkynnt, að Líknarsjóður íslands veiti R.K.Í. tíu þúsund krónur úr sjóðnum. Áhugamenn um leiklist stofna til bandalags 20 félög livaðanæfa af landinu scndu full- trúa á stofnfiindinn í Iðnó í gær í gær var haldinn stofnfundur að Bandalagi áhuga- manna um leiklist. 23 félög víðsvegar af landinu tóku þátt í stofnfundinum. Lárus Sigurbjörnsson, rithöfundur, stjórn- aði fundinum en ritari var Guðmundur Þorláksson, kenn- ari frá Eyrarbakka. Eftir fundarsetningu skýrði Lárus frá markmiði félagsins, sem hann kvað vera að auka leikmennt í landinu almennt og hjálpa þeim félögum, sem við erfið- leika eiga að etja í leikstarfsemi. Áhugi fundarmanna var mikill eins og sú má á þátt- tckunni og voru þarna mætt ir þessir fultrúar: Frá Umf. [ Samhyggð í Gaulverjabæ, Hannes Jónsson. Umf. Bald- ur Hraungerðishreppi, Gunn ar Halldórsson. Umf. Kefla- víkur, Helgi S. Jónsson og Eyj ólfur Guðjónsson. Leikfélag Hafnarfjarðar, Sigurður Gísla son. Leikfélag Hveragerðis, Herbert Jónsson. Leikfélag Akraness, Óðinn Geirdal. Laugaskóla í S.-Þingeyjar- sýslu, Páll S. Jónsson, sem mætti að vísu án umboðs. Leik fél. ísafjarðar Sigrún Magnús dóttir. íþróttafél. Grettir, Flateyri við Önundatfjörð, Sigriður Benediktsdóttir. Umf. Reykdæla, Guðrún Jónsdótt- ir. Leikfél. Reykjavíkur, Þor- steinn Ö. Stephensen. Stúkan Framsókn, Siglufirði, Þóra Jónsdóttir. Leikfél. Blöndu- óss, Guðrún Einarsdóttir. Umf. Þórsmörk, Fljótshlíð, Pétur Sumarliðason. Leikfé- lag Eyrarbakka, Magnús Odds son. Leikfél. Húsavíkur, Frið þjófur Pálsson. Frá Vest- mannaeyjum, Nikólína Jóns- dóttir, Sigríður V'ilhjálms- dóttir og Kristján Georgsson. Þorsteinn Einarsson, íþrótta- fulltrúi var fulltrúi fyrir Ung menna- og iþróttasamband Austurlands. Skeyti um þátt- tckubeiðni bárust frá Bíldu- dal og Sauðárkróki. Á fundinum töluðu þeir Þorsteinn Einarsson, íþrótta- fulltrúi, Jón Emil Guðjóns- son, framkvæmdastj. bókaút- gáfu „Menningarsjóðs og Þjóðvinafélagsins", og Ævar Kvaran, leikari. Skýrði Þor- steinn frá nauðsyn samræm- is um byggingu félagsheim- ila -og leiksviða. Jón Emil sagði frá nýjung i útgáfu- starfsemi „Menningarsjóðs og Þjóðvinafélagsins“. Mun útgáfufyrirtækið gefa út leik rit reglulega, um 12 arkir á ári og mun það samsvara 160 bls. í krovn- broti. Á fundinum var kosin 7 manna nefnd til að undirbúa lagasetningu. Einnig var sam þykkt að framhaldsaðalfund ur skyldi ekki haldinn seinna ein 15. ágúst n. k. og munu félög sem þátt taka í fundin- um vera talin meðal stofn- enda BÁL, Bandalags áhuga- manna um leiklist. 11111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111' | Landbúnaður V.-1 | Evrópu undir | I eina yfirstjórn | f Allmargir franskir stjórn f I málamenn hafa borið: f fram tillögu þess efnis, að I stofnað verði til sameig- f nlegrar framleiðslustjórn f ar yfir öllum landbúnaði f Vestur-Evrópu með svip- f uðum hætti og ráðgert er ! um þungaiðnað.nn sam- f kvæmt Schuman-áætlun- f inni. Vilja þeir að upp- f kast að slíkri áætlun verði >j gert og birt um svipað f leyti og ráðstefnan um f þungaiðnaðinn verður f haldin í Paris hinn 20. þ.. f m. — iiiiiilliiiiiiliiiiiiiiiliiiiiiliiiiiiiiiiiiiiiiliiiiiiiiiiiiiiiiilin iiiimiiiiiiiiimimiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiMiii

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.