Tíminn - 17.06.1950, Qupperneq 4

Tíminn - 17.06.1950, Qupperneq 4
4 TÍMINN, Iaugardaginn 17. júní 1950 AUKABLAÐ RÆKTUN SANDANNA (Framhald af 3. síðu.) og Alaska. í Bandaríkjunum er sandgræðslan stórkost- legri en í nokkru öðru landi heims. Hafa þar verið reynd- ar grastegundir, svo hundr- uðum skiptir, bæði þarlend- ar og fluttar að frá öðrum löndum. Af þeim grastegundum, er reyndar hafa verið á sönd- unum hér á landi eru einkum þrjár, sem reynst hafa af- burða vel, bæði til að hefta sandfok en þó einkum til ræktunar, sem nytja- og fóð- urjurtir. Grös þessi eða fræ af þeim er flutt frá Norður- og Norð- vesturhluta Bandaríkjanna. Hefir fræi þessu verið sáð í sandgræðslugirðingar á Vest fjörðum. í Norður-Þingeyjar- sýslu, og Vestur-Skapta- fellssýslu, en m'est hér á sandana í Gunnarsholti á Rangárvöllum. Hefir árang- urinn af ræktun sandanna með þessum grösum orðið miklu meiri og skjótari en við þorðum að búast við í upphafi. Grastegundir þess- ar eru: 1. Bromus inermis, sem við höfum nefnt sandfax. Grastegund þessi hefir verið kynbætt mikið undanfarin ár í Bandaríkjunum, með sand- ræktina fyrir augum. Sand- faxið er mjög harðgerð gras- tegund, vex ört fyrstu mán- uðina og er með marggreind- Um og löngum rótarskotum, sem hefir þýðingu fyrir heft- ingu. sandfoksins. Það er nægjusöm jurt og hefir vax- ið vel og gefið góða upp- skeru hér á örfokasandi með tiltölulega litlum áburði. Sandfaxið er ennfremur mjög góð fóðurjurt, næringarefna- rík og ézt vel. 2. Phalaris arundinacea. Randagras. Það er mjög stór vaxiö, með breiðum og löng- um blöðum og skriðulum og löngum rótum. Á síðastliðnu sumri náði vöxtur þess nokk- uð á annan meter hér í Gunnarsholti, á öðru ári frá sáningu. Það er einnig ágætt fóðurgras, næringarefnaríkt og gefur mjög mikla uppskeru pr. flatareiningu. Auðvelt er að fá fræ bæði af sandfax- inu og randagrasinu frá Bandaríkjunum fyrir viðun- anlegt verð. 3. Poa Macrautha, sem við höfum nefnt sandsveifgras. Gras þetta líkist melgrasinu, að það hleður á sig sandi, en myndar miklu þéttari og samfelldari gróður heldur en melurinn. Gras þetta er frekar láTgvaxið, en biaðríkt og með mjög öflugum, skrið- ulum og greindum rótum, sem breiðast ört um sandinn. Fræ af þessari tegund er iítt fáanlegt og mjög dýrt. V. Hnattstaða íslands, lofts- lag, hitastig og veðráttan öll er þannig, að erfitt og ó- mögulegt er að rækta sumar verðmætar nytjajurtir land- búnaðarins. Sú nytjajurt, sem langmestu máli skiptir um viðgang og alla afkomu landbúnaðarins, er grasið. Enda er það svo, að skilyrði til grasræktar eru yfirleitt hin ákjósanlegustu hér á landi. Gras getur vaxið og það á mjög skömmum tíma, jafnvel þótt hitastig sé lágt, ef það hefir nógan raka, áburð og birtu. Þetta sást mjög greinilega vorið 1949, sem var eitt hið kaldasta, allt fram um miðjan júní. Þá var jörð svo til ógróin um allt land. En á hálfum mánuði, eða um mánaðamót júní— júlí var sumsstaðar komin slægja í tún. Á íslandi er eyjaloftslag, sumur eru oft- ast köld og flestir vetur mild- ir. Úrkoma er yfirleitt rnlkil, einkum sunnanlands. .4 aðal vaxtar- og þroskatíma grass- ins, en það er í júní og júlí- mánuði, eru bjartar nætur og sólargangur langur. VeJdur það miklu um ákjósanleg skilyrði grasræktarinnar. Allmiklu erfiðara er þo með ræktun korntegundanna. Einkum eru erfiðleikar korn- ræktarinnar hér á Jandi bundnir við siðasta vaxtar- tímabil kornsins, þ. e. þegar kjarninn er að ná tulium þroska og þá ekki síður í sam bandi við uppskeru þess. Ekki þarf að reikna með, að korn nái hér fullum þroska fyrr en seinni hluta septem- bermánáðar. Er þá allra veðra von, einkum eru þá oft úrkomur tíðar. Reynist þá stundum alveg ómögulegt að ná korninu geymsluhæfu í hús. Nokkuð hliðstæðir eru erf- iðleikarnir með kartöflurækt hér á landi og kornrækt. Kartöflur hafa yfirleitt ekki náð viðunanlegum þroska fyrr en í september, en á þeim tíma árs eru oft miklir erfiðleikar með alla uppskeru vinnu, sakir óstöðugrar og votrar veðráttu. Undanfarin þrjú ár höfum við haft nokkra kornrækt, allmikla kartöflurækt sam- hliða grasræktinni á söndun- um í Gunnarsholti. Mjög er það áberandi, hvað grasrækt- in hefir haft mikla yfir- burði, bæði hvað uppskeru pr. flatareiningu snertir, svo og nýtingu alla. Reiknað í fóðureiningum er saman- burðurinn þvi sem næst þessi pr. ha.: Gras 2500—3000 fe. Korn 1500—2000 — Kartöflur 1000—1500 — Með tilliti til ræktunar og vinnukostnaðar mun kart- öfluræktin þó gefa lang lak- asta útkomu. Við ræktun sandanna und- anfarin þrjú ár, með áður- nefndum amerískum gras- tegundum og tilbúnum á- burði eingöngu, hefir komið í ljós, að sandræktin virðist vera mjög hagstæð, t. d. í samanburði við mýrarækt- ina, sem ríkjandi hefir verið í ræktunarmálum hér á landi undanfarið. Veldur þar mestu um, að enginn er framræslu- né heldur vinnslukostnaður við ræktun sandanna, og svo hitt, sem ýmsum mun koma á óvart, að áburðarþörf sand- anna virðist ekki vera neitt verulega meiri heldur en mýranna. Ræktunarkostnaður sand- anna var vorið 1949 því sem næst þessi pr. ha.: 6 sekkir á 100 Ibs. amm- oníaksaltp. á 50/- 300.00 5 sekkir á 50 kg. þrí- fosfat á 45/- 225.00 45 kg. grasfræ á 12/- 540.00 Vinna við sáningu og áburð 100.00 1.165.00 Uppskera er strax á fyrsta ári sem svarar 40 hestburö- um af heyi pr. ha. VI. Þess var áður getið, að inn- flutningur kjarnfóðurs væri nú allstór liður í gjaldeyris- notkun okkar. Ennfremur, að margt bendir til, að sá liður aukist, með sömu fóðuröfl- unar- og heyverkunarað- ferðum framvegis. Ég benti á, að dx-aga mætti nokkuð úr notkun innflutnings kjarn- 'fóðurs með aukinni notkun síldar- og fiskimjöls. Enn- fremur vil ég segja þetta: Með því að vernda öll þau næringarefni, sem í grasinu okkar eru, við. verkun þess, tel ég að við gætum framleitt fóður hér innanlands, sem fullnægði fóðurþörf búpen- ings okkar. Þetta mætti gera með framleiðslu heymjöls í stórum stíl og kornrækt, þar sem vélar væru til að þurrka kornið og vinna það um upp- skerutíma þess á haustin, hvei-ju sem viðrar. Ég hygg, að hvergi séu aðstæður betri til slíkrar ræktunar og fram- leiðslu innlends kjarnfóðurs en á Rangárvöllum. Allt bendir til þess, að hægt sé að framleiða 4000 kg.‘heymjöls pr. ha. á ári með því áburð- ar- og fræmagni, sem að framan getur. Á Rangárvallasandi eru innan einnar girðingar 2500 ha. lands, slétt og hallalaust, sem engu þarf til að kosta um framræslu né vinnslu. Á þessu landi mætti rækta gras til heymjölsframleiðslu, t. d. á 1500 ha., sem myndi gefa 6.000 tonn heymjöls og korn á 1000 ha., sem ætti að geta gefið 10—15000 tunnur korns árlega. Til þess að nýta þessa uppskeru þarf að vera til staðar heymjölsverksmiðja, sem afkastað gæti 6000 tonn- um heymjöls frá því 1. júlí til 1. september, og í septem- bermánuði verkað kornupp- skeruna. Ef þetta yrði framkvæmt á þann hátt, sem hér hefir verið bent á, mætti fram- leiða allt kjarnfóður hér á landi, sem við þurfum handa búpening okkar næstu árin. Ég tel, að möguleikarnir séu svo miklir og skilyrðin svo góð til þess, að við ekki höfum efni á að láta slíkar framkvæmdir ógerðar. Utan úr heimi Fljúgandi næturklúbbur. í París tók fljúgandi næturklúpp ur til starfa í gær. Á hverju kvöldi mun stór flugvél með 22 farþega hefja sig upp af flugvelli borgar- innan og svífa yfir höfuðstaðn- um fram á nótt meðan farþeg- arnir óansa og drekka kampavín. Samkvæmisklæðnaður er inn- gönguskilyrði. Kvöldið kostar þús- und franka. Hungurmeistarar. Willy Schmitz heitir maður einn í Frankfurt. Hann ætlaði að fasta í 50 daga. Eftir 44 daga hafði hann léz’t um 28 kg. og var þá orðinn svo af honum dregið, að hann Bergsteinn Krisíjánsson: Eigum við að rækta skóg? Viðnám. Fyrstu áratugir 20. aldar- innar voru að mörgu leyti vakningartímar hér á landi. Æska ungmennafélaganna var bjartsýn og að mörgu leyti stórhuga. Meðal annars hafði hún áhuga fyrir skóg- rækt og fyrir því að bæta og prýða landið á fleiri háttu. Hún skildi það, að í mold þess og gróðri var framtíð hennar fólgin, og að það var skylda hennar að skila land- inu betur á sig komnu en hún tók við því, eða eins og þá var sagt, láta tvö strá spretta þar sem áður spratt eitt. Þetta hugarfar studdi að því að veitt var viðnám við eyð- ingu þeírra skógai’leifa, sem eftir voru í landinu, og dá- lítið var gert aö því að grisja skóginn og jafnvel á stöku stað létt af honum beitinni. En æskan vildi líka rækta nýja skóga og gera birkiskóg ana, sem fyrir voru, fegurri og víðáttumeiri. En þar mætti hún seigri mótspyrnu, því bændur litu svo á, að mesta gagnsemi skógarins væri sauðfjárbeitin. Unga fólkið benti á, að skógarkjarrið væri hentugt til að skýla öðrum gróðri. En bændurnir sögðust hingað til hafa getað ræktað töðu og kartöflur án þess að rækta skóg því til skjóls, og enginn vildi nýta skóginn til neins, ekki einu sinni til eldsneytis. Unga fólkið minntist á þrastascng og skógarilm. En bændurnir sögðu, að þröstur- ínn væri víst meinlaus og góður fugl, en varla væri hann þess verður að kosta miklu til að rækta tré handa honum til að spóka sig í, og þetta með lyktina — kven- fólkið gæti keypt sér vellykt- anda 'í glösum fyrir lítinn ull- arlagð og hingað til hefðu karlmennirnir látið sér nægja að taka í nefið. Nýr siður. • En þegar Hákon Bjarnason tók hér við forustu skógrækt armálanna, þá tók hann að boða nýja trú. Hann hélt því fram, að hér mætti rækta nytjaskóga, og ef rétt væri að farið, mætti gera landið sjálfu sér nóg hvað trjávið snerti. En þs að menn séu oft blendnir í hinni gömlu trú, þá er trúboð alltaf erfitt verk, og þó að margir aðhyllt ust hina nýju kenningu skóg ræktarstjórans, var það lengi vel fámennur hópur, bví að almenningur heimtaði, að hann staðfesti kenningu sína með jarteiknum eins og vanalegt er. , Og kraftaverkið skeði, því skógræktarstjórinn sýndi, að furu- og grenitré af útlend- um uppruna, sem hann hafði látið gróðursetja hér, hafði tekið þeim þroska, að hægt var að sanna með óhrekjan- mátti ekki mæla. Hann var hrædd ur um að keppinautur sinn, fakír einn á Indlandi. sem lokaði sig inni i slöngubúri með 100 slöngum, hafi haft brögð í tafli og étið 20 slöng ur og talsvert af slöngueggjum meðan á föstunni stóð. legum tölum, að með sarna vexti væri landið orðið sjálfu sér nóg hvað trjávið snerti að hundrað árum liönum. Synd skógræktarstjórans. En þó að skógræktarstjór- inn boði nýja trú, þá er hann ekki syndlaus maður fremur en aðrir trúboðar. Hann hef- ir talað illa um íslenzku sauð kindina. En eins og allir vita þá er hún hin mesta nytja- skepna og hefir veitt lands- mönnum fæði, klæði og skæði, allt frá landnámstíð, og hefir jafn lengi haft hér landsyfirráð. Hún er því aö réttu lagi heilagt dýr og veit ir jafnan harða mótstöðu, ef menn vilja ganga á landsyf- irráð hennar. En skógrækt- arstjóranum féll það ekki sem bezt í geð, að hún klippti ofan af þeim piöntum, sem gróðursettar voru, og sagði henni því stríð á hendur. En hér verður að semja frið. Það verður að svipta sauðkindina landsyfirráðum í eitt skipti fyrir öll, svo að hún leggi ekki skógræktina í auðn, og það þarf að vernda hana með sterkum girðing- um, svo að Hákon geri henni ekki mein. Pílagrímsför að Skarfanesi. Það heita pílagrímsferðir, er menn heimsækja helga staði til að rækja trú sína. Og það var í krafti þessarar nýju trúar, sem forvígismenn Rangæingafélagsins í Reykja vík fóru á fund skógræktar- stjórans og spurðu hann, hvað félagið gæti gert fyrir skógrækt í Rangárþingi. Svör skógræktái’stjórans voru skýr og ákveðin á þessa leið: Farið hópferð austur í Rang- árþing og gróðursetjið skóg- arplöntur. Fyrst í skógræktar girðingar ríkisins að Skarfa- nesi í Landsveit og síðan á fleiri staði. Að fengnum þessum svör- um var leitað til nokkurra manna, karla og kvenna, um afstöðu þeirra til hins nýja siðar, og var fljótlega fylltur 30 manna taíll, lofuðu þátt- töku í ferðinni 24 karlar og 6 ungar konur. Ferðin var ákveðin laugar- daginn 3. júní kl. 2 síðd. Og þrátt fyrir storm og rigningu mættu allir á ákveðnum stað og stundu, nema einn,* sem forfallaðist, en hans skarð var fyllt við Ölfusá. Var nú haldið sem leið ligg ur að Skarfanesi á Landi, og brátt skipti um veður, og ekki hafði rignt þar efra. Komið var á staðinn klukk an að ganga 8, tjaldað og snætt, og síðan tekið til starfa. En með plöntur og verkfæri, og til leiðbeiningar var þarna mættur Garðar skógarvörður á Tumastcðum með liðsmenn sína. Urn kvöldið var svo unn- ið að gróðursetningu til kl. 11 og á sunnudaginn frá kl. 9 árd. til 5 síðd. og gróður- settar um 8000 furuplöntur. Þótti ferð þessi hafa tekizt vel. En síðar mun verða nán ar grennslast eftir útbreiðslu hins nýja siðar meðal með- lima Rangæingafélagsins.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.