Tíminn - 17.06.1950, Síða 7

Tíminn - 17.06.1950, Síða 7
AUKABLAÐ TIMINN, Iangardaginn 17. júní 1950 7 Rachel Knappett: ÞAR RASIÐ GRÆR Kafli úr bókinni: „A Fullet on the Midden” „Hvað gerir fólkið' eiginlega allan daginn á sveitabæ?" segir bæjarbúinn í Englandi, og unga stúlkan, höfund- ur bókar þeirrar, sem eftirfarandi kafli er tekinn úr, vill reyna að svard þeirri spurningu. Racbel Knappett gaf sig fram sem sjálfboðaliða í seinni heimsstyrjöldinni og blaut það hlut- skipti að starfa á sveitabýli í Lanca- shire. Þar dvaldi hún fimm ár, og hún lýsir lífinu og störfunum þar af óvenjulegum næmleik, glettni og samúð, svo að bók þessi hefir uirnið hug og hjarta fjölda Jesenda. Ekki er ólíklegt, að einhverjum þyki gaman að iieyra lýsingu hennar á heyskapn- um á hinu enska sveitabýli, en kafli sá, sem hér birtist úr bók þcssari, er tim hann. Grasið, sem vex á túnunum í Bath Farm og nær öllum öðrum sveitabýlum í Suð- vestur-Lancashire, er ekki þetta ilmandi engjagras, sem maður þekkir frá þeim lands hlutum, þar sem ræktað er sauðfé og nautgripir. Þetta er smárahey, og það vex ekki af sömu rót á sama stað ár eftir ár, heldur verður að sá til þess hvert sinn. Grasið er sá jarðargróði á bænum, sem vex lengst á tún um og ökrum, áður en upp- skera fæst eða hægt er að slá það og hirða. Þaö er ekki hægt fyrr en tveim árum eft- ir sáninguna. í þessu liéraði fær enginn jarðargróði bú- setu á sama akri tvö vaxtar- tímabil í röð, og fyrra vaxt- arár sitt verður smárinn að deila moldinni á akrinum við hveitið. Hveitinu er sáð á haustin, og vorið eftir, þegar hveitið hefir skotið upp góð- um stofni, er smáranum sáð meðal þess, og hann fær að vaxa milli hveitistanganna. Eftir nokkrar vikur er kom- inn grænn þeli milli stang- anna, og þar með .fenginn vísir að því, að hveitiakurinn .í ár verði smáratún að ári. Grasfræinu er sáð með vél, sem er einna líkust léttum hjólbörum. Ofan á börunum er aflangur'kassi með götum i röðum á botninum. í þess- nm kassa er grasfræið. Litlir burstar á sívalningum eru festir við stöng í kassanum. Þegar börunum er ekið, snú- ast burstarnir og sópa fræinu út um götin. Það er mjög vandasamt starf að sá smárafræi. Ég get raunar ekki lýst þyí eins og vera ber af þeirri einföldu á- stæðu, að mér hefir aldrei verið falið slíkt trúnaðar- starf. En sé dæmt eftir svip- móti sáðmannsins og síend- urtekinni athugasemd Bar- neys, „að það sé segin saga, að honum sé falið þetta starf, þegar honum hafi orð- ið það á að stíga ólánsfætin- um fyrr út úr rúminu um morguninn, hlýtur það aö vera mjög vanda^amt. Sáðvélin gengur fyrir hreyfli, og þegar sáðmaöur- inn hefir ekið henni um þveran og endilangan akur- inn allan daginn, er hann orð inn bæði sárfættur og bak- veikur. Listin við sáninguna er sú að skilja ekki eftir ósáðar rendur eða bletti, og það er allt annað en auðveld list. Það er nær því sama, hvaða varúðarráðstöfunum sáð'- maöurinn beitir, þótt hann noti alls lcyns merki, svo sem pappírsmiða og smáspýtur til þess að merkja á milli hins sána og ósána lands, eða taki mið af trjám, girðingastaur- um eða öðrum hlutum, þeg- ar hann stýrir vél sinni, get- ur hann ekki ráðið við snögg- an vindgust, sem blæs hinu létta fræi afleiðis og skilur eftir ósána rönd. Sæðið fell- ur meðal hveitisins, og það er ógerlegt að sjá, hvar sáð hef- ir verið eða ósáð er. En seinna þegar hveitið hefir verið slegið, og. smárabreiðan er vaxin þykk og mjúk úr mold, koma auðir blettir og rákir í ljós, þar sem ekkert fræ hefir fallið. Og þá fer gamanið fyyir sáðmanninn að grána. Þá hefst háðið og spottið meðal heimilisfólks- ins. Auöu blettirnir eru kall- aðir „helgidagar“. „Já, því líkt og annað eins, helgidagar í þúsundatali“, segir húsbóndinn. „Og það alla leið upp að járnbrautar- stöð, þar sem þeir blasa við allra augum“. „Hvernig í ósköpunum stendur á þessu, Barney? Varstu fullur?“ „Nei, það er bara vegna þess, að ég settist niður og fékk mér blund, en ákafinn í sáðvélarskriflinu var svo mikill, að hún hélt áfram einsömul“. Barney og Jói eru bestu sáð mennirnir, og þeir svara fyr- ir sig hvor meö sínurn hætti og stríða hvor öðrum ótæpt. „Já, stendur heima“, segir Barney. „Það kom snarpur vindgustur og feykti fræinu burt, og ég hafði" engin ráð með að tína' það saman aft- ur“. Um geysilangan „helgi- dag“, sem teygir sig yfir þver an akurinn, hefir hann þessa skýringu á reiðum höndum: „Já, hér hafa smáfuglarnir tínt upp allt fræið“. Svör Jóa eru ekki eins lang sótt, og þau eru oftast þess eðlis, aö þau girða fyrir fleiri háðglósur: „O, fjandinn eigi það“, seg- ir hann. „Næst skaltu þara reyna að sá sjálfur og' sjá hvernig það tekst“. Þegar búið er að sá, er fræ- ið herfað niður í moldina, og síðan er akurinn valtaður. eftir það getur fræið farið aö spíra í friði, þvi að nú er það látið afskiptalaust til næsta vors' Þá er aftur komið ti.1 liös við það á vaxtarskeiðinu meö áburði. Þegar kemur fram í miöjan júni, eru smárablómin orðin Ijósraúð og hvít og ilma sætlega. Þá er farið að huga að sláttuvél- unum. Þær eru dregnar iit í dagsljósið og smurðar. Stakk trén eru einnig endurnýjuð eða lagfærð. Og svo hefst heyskapurinn. Heyskapardagurinn hefir yfir sér sinn sérstaka glæsi- brag. Karlmennirnir segja, þegar þeir sjá sólina koma upp í austri, hreina og skæra, en ekki eldrauða og logandi: Nú verður góður heyskapardagur í dag. Snemma á morgnana ligg- ur döggin þung og glitrandi, á hverju strái og blaði. Þegar 1 hún gufar upp, leggst létt móðuský yfir akurinn og fyll ir loftið sætum smárailmi. j Og allt í einu berast kyn- | leg hljóð út yfir akrana. Þar blandast saman kliður sláttu j vélanna, fótatök hestanna í mjúku grasinu, raddir karl-1 mannanna og suð hinna iðju- , sömu býflugna, sem fljúga milli smárablómanna af því- ( líkum ákafa, að engu er lík- ; ara en þeim sé það fullljóst, j að nú sé hver stundin síðust | til að safna þar hunangi. Slík, hljóð gefa til kynna dásam-, legan heyskapardag, Ég minnist eins sumars, þegar tíú slíkir dagar komu í röð hver á eftir öðrum. Sláttuvél er undarlegt og afkáralegt skrapatól. Á henni eru tvö járnhjól með sæti á milli. En út undan öðru hjól- inu rekur hún heljarmikla hárgreiðu með hyössum tönn um, og þessi greiða rennur eftir jörðinni. í slíðrum hinna hvössu tanna eru hvassir Ijá- ir. Hverri sláttuvél fylgja margir ljáir, og meðan einn ljár er notaður, eru hinir hvesstir. Þegar sláttu- vélin er í gangi, hreyfist ljár-! inn með geysihraða fram og| aftur, svo að varla verður auga á komið. Þá er nti viss- ! ára að gæta sín að ana ekki j fram fyrir greiðuna, því að, „það er aldrei að vita hvenær j fjandinn hleypur í klárana“,j eins og karlarnir segja. Ef það skeður nú samt sem áð- j ur, að maður hefir álpast fram fyrir greiðuna, og svo fara hestarnir af stað allt í einu, verður afleiðingin svo hryllileg, að það er ekki einu sinni hægt að hugsa um hana. Ég umgengst því ætið sláttuvél'og ljái hennar með hátíölegri virðingu. Einu sinni höfðum við þrjár sláttuvélar í gangi i einu. Tvær af nýjustu tízku og dregnar af hestum, en hin þriöja gömul hringla, sem hengd var aftan í dráttarvél. En sú gamla var ekki auð- veld í meöförum, og dráttar- vélarstjórinn gat ekki stjörn að henni jafnhliða dráttar- vélinni. Þess vegna var ein okkar stúlknanna sett upp á hana til þess að lyfta greið- unni við horn. Hún hökti yf- ir teiginn meö þrumugný. í fyrsta sinn, sem ég átti að fara með Jóa til þess að slá meö þessari sláttuvél, sagði hann: „Taktu hjólið þitt með þér“. Ég hlýddi, þótt ég slcildi eklti, hvað þaö ætti að þýða. Klukkustund síðar varð ég þó fegin að erípa það og hjóla í ofboði heim til bæjar. Það er sem sé hvergi afdrep að finna á ökrunum eða tún- unum. Þar kom þó að lokum. að gamla sláttuvélin var alger- lega gefin á bátinn eftir ótal axarsköft og bilanir. Hús- bóndinn og Jói höfðu bjástr- að við hana langa stund með hömrum, skrúflyklum og smurningskönnum, en allt varð árangurslaust og þeir á- kváðu að henda henni í skrandyngjuna. Hinar sláttuvélarnar tvær eru dregnar af tveim hestum hvor, og ganga hestarnir sinn hvorum megin við langa stöng. Bill og Billy eru yfir- sláttumenn og hafa hvor um sig stúlku sér til hjálpar. Við byrjum að slá í jaðri hvers teigs, og sláttuvélarnar elta hvor aðra hring eftir hring, þar til ljáin mætist í miðjum teig. Þær skilja grasið eftir fallið í múga. Þegar við Marjorie höfum komið okkur saman um það, hvorum sláttumanninum hvor okkar eigi að fylgja, vopnumst við hrífum og rölt- um á eftir sláttuvélunum. Við rökurn heyið frá greiðunum, þegar það vill falla fast að hinu óslegna grasi. Af og til hvílum við okkur og skiptum verkum við karlmennina, setjumst í hásæti vélanna og stjórnum hestunum. Ég ann þessu starfi. Mér finnst næst um því að ég sé að aka stríðs- vagni, þegar ég sit á sláttu-. vélinni. Hornin eru vandasömustu (Fraviliald á 8. síöu.) Þessir fuglar eru að byrja að virða fyrir sér lífið og tilveruna. ungar, nýskriðnir úr eggjum. Þetta eru hænu- 4l

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.