Tíminn - 23.06.1950, Side 1
ItttllllllllllltllflflllinillttltlHlltllltMlllllllfllllMMMI
a 2
| Skrifstofur í Edduhúsinu |
Fréttasímar:
81302 og 81303
Afgreiðslusími 2323
Augljjsingasimi 81300 1
Prentsmiðjan Edda
íiiiiiiiiiiiiiiiiiimiimiiimiiiiiiiiiiiiiiiiimitiiiiiini
34. árg.
Reykjavík, föstudaginn 23. júní 1950
134. blað
Ljúka námi í flug-
umferðastjórn
Samkvæmt samningi milli
íslands og Bandaríkjanna,
sem gerður var árið 1946, tóku
Bandaríkin það að sér að sjá
um kennslu og tæknislega
þjálfun 47 íslendinga, sem
fylla áttu ákveðnar stöður við
rekstur Keflavíkurflugvallar. I
Af þessum 47 áttu 27 að fara!
til Bandaríkjanna til náms.
Námið hefir verið þannig
skipulagt, að það tekur þrjú
ár, frá 1949 til 1951. Sex nem-
endur hafa þegar hafið nám
í ýmsu, sem lýtur að flugum-
ferðastjórn. Tveir þessara
nemenda hafa þegar lokið
náminu í Bandaríkjunum og
eru komnir til íslands. Eru
það þeir Bjarni Jensson,
Reykjavík, og Guðjón Bjarna
son, Haínarfirði.
Myndin sýnir þá Guðjón Bjarnason og Bjarna Jensson
heimsækja miðstöð flugumferðarstjórnar á LaGuardia flug-
vellinum í Nevv York.
Ráðstefna norr.
stofnana
Óskar Bjartmarz er nýkom
Heiðmörk opnuð almenningi
á sunnudaginn kemur
inn heim frá Stokkhólmi,
þar sem hann sat fund lög-
gildingastofnana á Norður-
löndum. Var hann þar full-
trúi íslands. Frá Noregi voru
á fundi þessum tveir fulltrú-
ar, tveir frá Danmörku og
einn frá Finnlandi, auk Svia,
er sátu fundinn.
Ráðstefnan stóð í fimm
daga, frá 1.—4. júní, og voru
þar fluttir fyrirlestrar um
ýms viðfangsefni, sem varða
mynt, mál og vog, og sam-
hæfingu þess. Voru síðan um
ræður á eftir.
5.—7. júní ferðuðust fund-'
armenn um nágrenni Stokk- j
hólms í boði Svia og skoðuðu
ýmsar stofnanir og verksmiðj
ur, er varða verkahringj
þeirra.
Óskar Bjartmarz kom heim'
úr för sinni s. 1. sunnudags- j
kvöld, og ber hann hið mesta
lof á móttökur Svía og for-'
sjá alla og vinsemd þeirra í
garð íslendinga. Sænsk rausn
og prýði er einstök, sagði
Óskar.
Breiðadalsheiði
fær bifreiðura
Bifreiðar fóru yfir Breið-
dalsheiði fyrir nokkrum dög-
um í fyrsta sinn á þessu
sumri. Breiðdalsheiði er á
milli ísafjarðar og Önundar-
fjarðar og er með hæstu fjall
vegum, sem bílfærir eru hér
á landi, nokkuð á 7. hundrað
metra á hæð.
Viftliafitarmikil ví$$sluliá(íð cfra
Heiðniörk, griðland Reykvíkinga, verður opnuð almenn-
ingi á sunnudaginn kemur. Verða þá hátíðahöld mikil efra,
og væntanlega mikið fjölmenni. Mun meginþorra bæjarbúa
þessi staður lítt kunnur enn, og verða það sennilega margir,
er þangað koma í fyrsta skipti á sunnudaginn.
Hátíðahöldin
Hátíðahöld’n munu hefjast
klukkan þrjú, og verða ferð-
ir frá Ferðaskrifstofu ríkis-
ins klukkan hálf-tvö. For-
maður Skógræktarfélags
Reykjavíkur, Guðmundur
Marteinsson, mun setja sam-
komuna, en Gunnar Thorodd
sen borgarstjóri flytur ávarp
og Hákon Bjarnason skóg-
ræktarstjóri og Sigurður Nor
dal prófessor flytja stuttar
ræður. Þjóðkórinn mun
syngja undir stjórn Páls ís-
ólfssonar, og Lúðrasveit
Reykjavíkur leikur.
Átta hektara skógarteigur.
Tuttugu og níu félög, auk
Skógræktarfélags Reykjavík-
ur, hafa fengið í Heiðmörk
reiti, sem um fimmtíu þús-
und barrv'ðarplöntur hafa
verið gróðursettar í, mest
tveggja ára furuplöntur og
nokkuð af greniplöntum.
Myndi sá teigur þekja átta
hektara, ef um samfellt land
væri að ræða.
Byrjað var að planta á upp
stigningardag og haldið á-
iram siðan fram undir þetta.
bæði á kvöldum og um helg-
ai. Gróðursetningin virðist
hafa tekizt vel, og þær plönt-
ur, sem gróðursettar voru fyr
ir hvítasunnu eru sýnilega
farnar að vaxa. Er von til
þess, að lítil afföll verði. Veð-
urfar hefir líka verið hag-
stætt, nema kannske helzt
til þurrt upp á síðkastið.
Gang.ð vel um.
Mörg félaganna hafa rek-
ið niður hæla umhverfis það
land, er þau hafa plantað í,
og fest snúrur á hælana, til
auðkennis, svo að fólk veiti
ekki nýgræðingnum átroðn-
ing. Er þess fastlega vænzt,
að fólk gæti þess vandlega,
að spilla engu þar efra, enda
nóg undanfæri á Heiðmörk.
Prestastefnan
stendur yfir
Prestastefna íslands hófst
i Reykjavik i fyrradag með
guðsþjónustu í dómkirkjunni,
og predikaði séra Jón Kr. ís-
feld á Bildudal, en séra Jón
Þorvarðsson í Vik þjónaði fyr
ir altari.
Allmargir forustumenn
kirkjunnar á Norðurlöndum
sitja prestastefnuna að þessu
sinni.
Gert er ráð fyrir, að presta-
stefnunni ljúki á morgun.
Aðalfundi S.Í.S. lokið:
Sigurður Kristinsson hylltur
í tilefni sjötugsafmælis síns
Eysteinn Jónsson «g Björn Kristjánsson
cndurkosnir í stjórn Sainhandsins
Aðalfundi Sambands ísl. samvinnufélaga lauk í gær
skömmu fyrir hádegi og hafði fundurinn þá staðið á þriðja
dag. í gær fcru fram kosningar og voru þeir Eysteinn Jóns-
son, ráðherra, og Björn Kristjánsson, fyrrv. alþm., endur-
kosnir í stjórn sambandsins til þriggja ára. Síðasta verk
fundarins var að hylla Sigurð Kristinsson, fyrrverandi for-
stjóra S. í. S.
Auk stjórnarkjörsins voru
I kosnir átta menn í fulltrúa-
| ráð Samvinnutrygginga og
j Andvöku. Hlutu eftirtaldir:
, menn kosningu:
Björn Jónsson, Kolbeins-;
stöðum, Seltjarnarnesi; Karl
j Hjálmarsson, Hvammstanga;
Óskar Sæmundsson, Garðs-!
i auka, Rangárvallasýslu; I
Kristján Jónsson frá Garðs-
stöðum; Jón S. Baldurs,
Blönduósi, Óskar Jónsson,
Vík í Mýrdal; Halldór Ás-
grímsson, Vopnafirði; Eirík-
ur Þorsteinsson. Þingeyri.
Ólafur Jóhannesson, pró-
fessor, var endurkjörinn end-
urskoðandi S. í. S. og Guð-
! brandur Magnússon varaend
urskoðandi.
Sigurður Kristinsson
Sigurður Kristinsson,
j hylltur.
Sigurður Kristinsson, fyrrv.
forstjóri Sambandsins og nú-
verandi formaður þess, verð-
ur sjötugur 2. júlí n. k. Sam-
þykkti fundurinn eftirfar-
andi ávarp til hans í tilefni
afmæiisins og verður honum
sent það skrautritað á af-
mælinu með undirskrift allra
fundarmanna:
„Aðalfundur Sambands
íslenzkra samvinnufélaga
haldinn í Reykjavík dag-
ana 20.—22. júní 1950 ósk-
ar samhuga að votta þér,
— Sigurðuý Kristinsson,
forstjóri — á sjötugsafmæl
þínu 2. júlí alúðarfyllstu
þakkir fyrir hið mikla og
dygga starf. er þú hefir af-
reka^í þágu samvinnustefn
unnar á íslandi.
Sérstaklega vill fundurinn
m'nnast og þakka forstjórn
þína á Sambandi íslenzkra
samvinnufélaga um 21 árs
skeið og metur til fullra
veröleika árvekni þína,
þrautseigju og sleitulaust
starf við að verja Samband-
ið og sambandsfélögin áföll
um gcgnum margra ára fjár
hagskreppu.
Um le.ð og fundurinn
sendir þér og fjölskyldu
þinni alúðarfyllstu ham-
ingjuóskir á sjötugsafmæli
þínu, er það ósk hans og
bæn, að þú megir vel og
lengi njóta launa hins trúa
þjóns.“
Sigurði Kristinssyni var
skýrt frá samþykktinni og
þakkaði hann fundarmönn-
um fyrir þann hlýhug, þá
vinsenld og það traust, sem
hann hefði jafnan notið í
starfi sinu fyrir S. í .S .,
í kvöld fara fulitrúar að-
alfundar S. í. S. í Þjóðleik-
húsið í boði Sambandsins og
sjá .,Nýársnóttina.“
Húnvetnskar konur
á ferðalagi
Lcggja af stað til
Suðurlands á
þriðjudag
Næsta þriðjudag munu kon
ur úr Þverárhreppi í Húna-
vatnssýslu leggja af stað í
fjögurra daga ferðalag
til Suðurlands. Er það í boði
Kaupfélags Vestur-Húnvetn-
inga á Hvammstanga. Er það
venja, sem xaupfélagið hefir
haldið allmörg undanfarin
ár að leggja konum úr ein-
um hreppi félagssvæðis síns
ár hvert til bifreið í slíka
fjögurra daga ferð. Taka þátt
í henni húsfreyjur og ráðs-
konur. í þessari för verða
rúmlega 30 konur úr Þverár-
hreppi.