Tíminn - 23.06.1950, Síða 4

Tíminn - 23.06.1950, Síða 4
4 TÍMINN, föstudaginn 23. júní 1950 134. blaff Þegar hattarnir fjúka i. Eftirfarandi saga var sögð í Reykjavík á stríðsárunum: Prúðbúinn maður var á gangi um eina af aðalgötum höf- uðstaðarins, og hafði nýjan og dýran hatt á höfði. Um leið og göngumaður fór fyrir húshorn, mætti honum vind- hviða og tók af honum hatt- inn. En maðurinn hélt áfram göngu sinni berhöfðaður og leit ekki einu sinni við til að sjá hvað orðið hefði af kjör- gripnum. í næstu fatabúð keypti hann sér annan hatt jafndýran, og lýkur þar sög- unni. Þessi saga var til þess sögð, að minna á hið mikla virðing arleysi fyrir verðmætum sem ýmsum þótti verða eitt af þjóðareinkennum íslendinga á tímum stríðsgróðans. Sem betur fór, var þó fjöldi fólks lítt eða ekki snortinn af far- aldri þessum. En i rauninni var þarna ekki um nýtt fyr- irbrigði að ræða. Virðingar- leysi fyrir fjármunum er kunnur þjóðfélagssjúkdómur frá ómunatið, og hefir reynst stærri þröskuldur á vegi fram fara og almennrar velmegun- ar en flest annað, sem mann- kynið tefur á þroskabraut sinni. Sumir segja, að við íslend- ingar höfum verið of stór- huga á undanförnum árum, að við höfum verið of ákafir að ráðast í margskonar at- vinnufra'mkvæmdir á skömm um tíma, og því hafi okkur farið eins og bónda þeim. er „yfirbyggir“ jörð sína og skortir af þeim ástæðum fé til að sjá fyrir sér og sínum með afurðum jarðarinnar. Vera má, að svo sé. En þetta eru þó smámunir einir hjá því, sem hugarfar mannsins með hattinn hefir verið þjóð- inni til tjóns á sama tíma. Og þegar svo tekst til, að menn með því hugarfari, veljast að meira og minna leyti til að hafa forustu um framkvæmdir þjóðarinnar, er ekki von, að vel fari. II. Jafnhliða atorku, hjálp- semi og þegnskap, er spar- seml meðal hinna mestu þjóðardyggða. Ekki sparsemi nirfilsins, sem sveltir heim- ili sitt og felur fé sitt í veggj- arholu, heldur sú sparsemi, sem kann að greina skil á þörfu og óþörfu, og forðast þau útgjöld, er sízt mega að gagni verða. Það er hinn mesti misskilningur, að þeir. sem gæddir eru þessari dyggð kunni miður að njóta lífs- ins og hinna miklu gleði- gjafa þess en hinir, sem ör- ari eru á fé til hvers sem vera skal, og hafa verðmætin og gildi þeirra i flimtingum. Það er líka rangt.að sparsemi sé í þvl fólgin, að verða eng- um að liði nema sjálfum sér. Sparsamir menn verða að jafnaði fleirum að liði en eyðsluseggirnir, enda er það vitanlega enginn skortur á sparsemi, að verja fjármun- um sínum til styrktar öðrum, sem þess þurfa með til sinna nauðsynja. Sumir halda, að það sé eitt af einkennum sannrar glæsi- mennsku, að spyrja aldrei hvað það kosti, sem verði er keypt. Þessi hugsunarháttur er m. a. nokkuð algengur hjá ungum bæjarbúum, en eldist að jafnaði af fólki eins og fleiri andlegir barnasjúkdóm ar,vþegar alvara lífsins kem- ur til sögunnar. Að kaupa eitt hvað án þess að vita um verð þess, er í raun og veru menn- ingarskortur en ekki kurteisi. Hitt er svo annað mál, þótt eigi þyki háttvíslégt að gera öðrum kunnugt, hvað sá greiði kostar, sem honum er gerður. III. Eyðsla um efni fram er háskaleg þeim. er þannig fer með fjármuni, og leiðir að jafnaði til ósjálfstæðis og margskonar mannrauna af þeim sökum. Eyðsla á opin- berum fjármunum er svik- semi, ef langt gengur. En eyðsla þess, sem efnin hefir nóg, getur líka verið hættu- leg, og verður það að öllum jafnaði. Mikið vantar á, að þetta sé almennt viðurkennt, en sannleikurinn er sá, að eyðsla þeirra, sem sjálfir hafa nóg peningaráð til eyðslu sinnar, er eitt hið hættulegasta mein þjóðfélags ins nú á tímum. Napoleon sagði einhvern- tíma, að Frakkar teldu meir um vert, að allir væru jafnir en að allir væru frjálsir. Þau orð voru að vísu mælt í ákveðnum tilgangi, en jafn- víst er það, að sú hugsun, að allir eigi að standa jafnt að vígi til að njóta lífsins, býr með flestum mönnum nú á tímum, a. m. k. í hinum þroskaðri þjóðfélögum, enda þótt flestir viðurkenni, að slikum jöfnuði verði ekki með auðveldum hætti við komið. Hóflltil eyðsla, þótt á eig- in fé sé, er ginnandi for- dæmi þeim, sem síður hafa ráð á, einkum þeirra, sem ekki hafa fyrir neinum að sjá nema sjálfum sér og þvi möguleika til eyðslu, þótt það kunni að kosta þá það, að verða síðan snauðir menn alla ævi. Sá sem eyðir eigin fé í hófleysu, er því oftast jafnframt með fordæmi sinu að eyða fé fjölda efnaminni manna, og eyðileggja fram- tíð þeirra að einhverju leyti. Og sama gerir í raun og veru hver sá, er í hófleysu eyðir. Á aðra, sem ekki fylgja for dæmi eyðslunnar, af því að þeir geta það ekki, eða hafa of ríka ábyrgðartilfinningu til að telja sér slíkt heimilt, hefir atferli hinna eyðslu- sömu gagnstæð áhrif, og þó oft þjóðhættuleg. Meðal þeirra eru fyrst og fremst þeir, sem hafa fyrir öðrum að sjá en eigi meiri efni en svo, að fullrar aðgæzlu þarf við til að hafa til hnífs og skeiðar. í þessum hópi er mik ill hluti þjóðarinnar, þeir sem mestan þunga bera af erfiði dagsins. kjarni lands- lýðsins og hinar raunveru- legu „m5.ttarstoðir“. Hjá flest um, sem þannig eru settir, vekur eyðslan gremju til þeirra, sem eyðsluna stunda og kasta fjártnunum á glæ, ásamt meðvitund um, að þeir lifi í óréttlátu þjóðfélagi, er launi þeim bezt, er minnst hafa til þess unnið, en hafi hina út undan, sem fyrst og fremst gæti skyldu sinnar. í augum þeirra verður eyðslan tákn þjóðfélags ranglætis, jafnvel umfram það sem eðli- legt er, því að oft eru menn aðeins að eyða því, sem þeir hafa með réttu aflað, og taka sjálfir gjöld óforsjálni sinn- ar. — IV. Það er því rík skylda öll- um þeim, er þegnskap vilja glæða með þjóðinni, að stemma stigu fyrir eyðslu sjálfra sin og annarra eftir því sem frekast er unnt. Á erfiðum tímum, þegar þjóð- in þarf á öllu sínu að halda, eiga hinir iðjusömu og spar- sömu í landinu, skýlausa kröfu á því, að eyðslan sé stöðvuð. Það er út af fyrir sig hættulegt, að fjármunum sé sóað á slíkum tímum, hver svo sem teljast kann eigandi þeirra eða umráðamaður. En leitt er að særa þá að óþörfu, er sízt eiga skilíð, að láta þá vera vitni þess, að dýr- keypt verðmæti sáu látin af hendi fyrir hégóma, sem að litlu haldi kemur. Því aðeins mun þjóðinni vel farnast, að sá siður verði nið- ur lagður að láta hattana fjúka. V. Áhrif eyðslunnar ná dýpra en oft virðist i skjótu bragði. Það er út af fyrir sig nokkuð kostnaðarsamt fyrir eyðslu- menn þjóðarinnar, að sitja dýrar veizlur, I tilheyrandi skartklæðum, aka „drossium* í þúsundatali, lítilla erinda, og veita sér annað álíka. sem hugurinn girnist, innan lands og utan. Þeim eyðslueyri kynni að vera betur varið til annars. Það kann að vera kostnaðarsamt fyrir þjóðfé- lagið að veita sér 17 milljóna leikhús og álíka margra millj. „luxusskip" eins og nú stend- ur á, og má þó ef til vill segja, að þá rausn beri að skrifa á reikning fyrri tíma. En það er líka önnur hlið á slíkum fyrirbrigðum.sem eigi er síður athyglisverð.Það þarf margar hendur til að fram- leiða fyrir markað eyðslunn- ar hér innanlands, og þær hendur væru annars staðar betur komnar. En eyðslan heimtar sína þjóna, hundr- uðum og þúsundum saman, I hótelum og „sjoppum“, veizlusölum, bifreiðum, verzl- unarbúðum, og „menningar- musterum." Allt þetta fólk er tekið frá störfum, sem fleiri þyrftu að vinna að en nú gera. Eyðsl- an á sinn þátt og ekki óveru- legan i aðstreyminu til höf- uðstaðarins, I flóttanum frá framleiðslunni, og þeim at- vinnubresti, sem af því kann að hljótast um stundarsakir, ef eyðslunni slotar. VI. En óhófseyðsla sú, er átt hefir sér stað í landinu mörg undanfarin ár, hefir á fleiri sviðum haft sinar afleiðing- ar, sem ekki láta að sér hæða. Húsnæðisskorturinn í höf- uðborg landsins er bein af- leiðing eyðslunnar. Nógu mikið hefir verið byggð í Rvík til þess að allir íbúar bæj- arins gætu haft viðunandi húsnæði, ef byggingarefni og vinnu hefði verið ráðstafað (Framhald d 7. siOu.) Sól og blíðviðri um allt land, eins og raunar á að vera um þetta leyti árs, þó að stundum beri út af með það. í góðu veðri eru menn alltaf léttari í hug og liður jafnan betur en ella. Auk þess er það mikilvægt fjárhagslegt atriði fyrir þjóðarbúskapinn hvernig viðrar og ekki sízt á vorin. Menn tala samt oft um erfiðleika og ískyggilegar horf ur. Sumum virðist vera það nýtt og'óvænt að erfiðleika skuli bera að höndum og fjárhagsleg afkoma almenn- ings verða óvissu háð. Þeir hafa víst verið farnir að halda, að slíkt kæmi aldrei fyrir framar. Og nú á það sér stað, að bændur, sem fluttu frá jörð- um sínum fyrir tveimur, þremur eða fjórum árum vildu gjarnan vera komnir þangað aftur. Ef til vill er jörðin enn í eigu þeirra. Vera má að þar standi húsin enn, sæmilega á sig komin. En bú- stofninum hafa þeir fargað. Og þeix búa ekki án þess, að hafa skepnur. En það kostar sitt í landi dýrtíðarinnar að eignast þær. Og það er engin peningastofnun sem nú um sinn stendur opin þeim, sem vilja fá lán til að kaupa sér bústofn, svo að þeir geti byrj- að búskap. En á sama tíma, sem menn hafa verið að hverfa frá land búnaði og sveitum, meðfram vegna þess, að þeir hafa ekki fengið lánsfé til að reka at- vinnu sína, er alltaf verið að byggja íbúðir í Reykjavik. Menn, sem ekki fengu lán til að byggja upp peningshús á jörðum sínum eða gera önn- ur slík mannvirki, hafa ef til vill horfið frá búskap til at- ivinnu og búsetu í Reykjavík. Og svo byggir ef til vill Reykja víkurbær yfir þá fyrir miklu meira fé en um var að ræða að þeir fengju lánað til að halda áfram búskap og nýta þau verðmæti, sem þeir áttu á jörð sinni. Hvort myndi nú vera betra fyrir þjóðarbúið, að leggja fram 50 þúsund krónur að láni til að framlengja búskap á býli, sem talsvert fé hefir verið fest í eða leggja fram 150 þúsund til að byggja yf- ir atvinnulausa fjölskyldu 1 Reykjavík? Þetta er spurn- ing, sem ég vil biðja ykkur að hugleiða. Og ef þið skylduð halda að framleiðsla land- búnaðarafurða skipti ein- hverju máli og ætti að auk- ast, þá takið þið það með í reikninginn. Og finndist ykk ur betra að leggja lægri fjár hæðina í framleiðslu til að bjarga öðrum verðmætum og láta þau gefa arð heldur en verja meiri fjárhæðinni til íbúðabygginga, þar sem at- vinna er ótrygg, þá heiti ég á ykkur að stuðla að stefnu- breytingu á þessu sviði, því að hin leiðin hefir verið far- in. — En ef ykkur finnst þetta gott sem fer, þá er auð- vitað bara að fagna því. Þekkið þið einhverja, sem eru að byggja og fá ekki mið- stöðvarefni? Eruð þið kann- ske sjálf í þeim hópi? Hafið þið gert ykkur grein fyrir því, að á sama tíma er lögð fjórföld hitalögn frá fjórum miðstöðvarkötlum í húsum þeim, sem Reykjavíkurbær er nú að láta byggja við Bú- staðaveg. Þar vantar ekki miðstöðvarefnið. En íbúðir, skólar og sjúkrahús annars- staðar verða að bíða, vegna þess að þetta er ekki til. Þarna er höfð sérstök mið- stöð fyrir hverja ibúð. Og svo er talað um sparnað, hag- sýni, hófsemi, jöfnuð og ná- ungans kærleika. Okkur finnst stundum að þessar dyggðir birtist í dálítið ann- arlegum myndum. Starkaður gamli. ASKORUN Þeir kaupendur blaðsins er ekki hafa enn greitt síðasta árgang blaðsins eru enn einu sinni alvarlega áminntir um að senda greiðslu nú þegar. Nú fyrsta júií n. k. fellur árgangur þessa árs í gjalddaga. Þeir sem ekki hafa greitt síðasta árgang 1. júlí eiga það á hættu að þeim verði ekki sent blaðið án frekari viðvörunar. Innheimta TÍMANS Frestið ekki lengur, að gerast áskrifendur TÍMANS

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.