Tíminn - 07.07.1950, Síða 8
„ERLE\T YFIRLIT66 I DAG
Keppnin itm Antarktis
STYRJÖLDIN I KOREU:
Aðaiátökin eru nú 50 km.
sunnan Suwon :
llprsvoitir ltandnríkjaima og Suðar-KóroH
liafa cnn orðið að láta umlan sí«'a
Norðurherinn í Kóreu hélt enn áfram sókn s'nni í gær
og sóttu þrjár fylkingar með nokkru millibili suðuaustur
frá Suwon 1 áttina til Osan og Kumyangjan og beittu fyrir
sig skr-ðdrekasveitum.
■ alvegunum frá norðri. Þar
ínchon fallin. ihefr herst.jórn og stjórn Suð
Það var og opinberlega til- . ur.Kóreu haft aðsetur síð-
kynnt í aðalstöðvum McArt- US(;U (jaga j gær iagði margt
hurs í gær, að borgin Inchon fióttafólk af stað frá borg-
á vesturströndinni sé fallinn fnnf sugur a bóginn og er tal-
í hendur norðurhersins, og | ið að síðdegis t gær haf t um
voru þar nyrstu stöðvar, sem
suðurherinn hafði á valdi
sínu. '
Aðalvíglínan og syðstu
fleygar norðurhersins eru nú
um 55 km. sauðaustur af
Suwon en austar beygist víg-
iínan norður til strandarinn-
ar milli Kangnung og Sam-
chok.
Staðan ekki hættuleg.
í hernaðart'lkynningu Mc
Arthurs segir, að sveitir suður
hersins og bandarísku her-
sveitirnar hafi orðið að hörfa
í gær, og hafi undanhald'ð
verið mjög erfitt vegna
bleytu á vegum. Það fari þó
skipulega fram og án alls
ótta. Þrátt fyrir undanhaldið
segir McArthur, að staða þess
ara hersveita hafi batnað síð
ustu dægur vegna þess að
meiri skipun hafi komizt á
herinn og varnarstaða hans
sé nú betri. Staðan sé því
ekki hættuleg, og bandarísku
hersveitirnar hafi ekkert
tjón beðið að kalla enn.
Ætluðu að innikróa
herinn við Osan.
Sókn norðurhersins i tveim
fylkingum, annarri frá Chun
chon og h'nni frú Suwon, mið
aði að því að innikróa allmik
inn her Suður-Kóreu og
Bandaríkjanna í þríhyrningi,
sem lokaðist við Osan. Þessi
tilraun hefir nú mistekizt og
hafa allar hersveitirnar kom
izt undan. Á le!ð sinni milli
Suwon og Osan sprengdu
flóttahersve'tirnar tvær stór-
ar.brýr að baki sér á þessari
15 km. leið.
Harðar loftárásir á Osan
og veginn þangað.
Rússneskar Yak-flugvélar
héldu í fyrradag og gær uppi
hörðum loftárásum á flótta-
l'ðið á veginum til Osan og
borgina sjálfa. Flugu þær
mjög lágt og vörpuðu fjölda
smásprengja og skutu af vél
byssum. Á veginum voru tug
ir brennandi bíla og særðra
manna. Miklir eldar komu
upp i Osan í fyrrlnótt um það
ieyti, sem suðurherinn yf r-
gaf bæinn eftir harðar ioft-
árásir Yak-flugvéla.
Fólk flýr frá Tajon.
Borgin Tajon er á miðju-
um skaganum allmiklu sunn
ar og þar eru krossgötur á að
150 þús. flóttamanna
þar á ferð.
verið
Erfiðir flutningar.
Bandaríkjamenn flýta
mjög flutnlngum herliðs og
vopna sunnan skagans frá
hafnarborgunum þar, en
flutningarnir ganga mjög
seint vegna rigninganna og
lélegra flutningatækja á
land'. Eru mest notaðar uxa-
kerrur og handvagnar.
EJdri flugvélarnar
betri.
Bandarískar og brezkar
flugvélar gerðu alls um 80
árásir á herstöðvar norður-
fFramhald. á 7. slOu.)
Hvetur til mannúð-
legrar meðferðar
á föngum
McArthur ávarpaði Norður
Kóreumenn í útvarpsræðu
frá Japan í fyrradag og hvatti
þá til að sýna sem mesta
mannúð í hernaðaraðgerðum
sínum einkum í meðferð
stríðsfanga. M:nnti hann ^á
það, að Norður-Kóreumenn
mundu síðar verða látnir
svara til saka um níðings-
verk ef framin yrðu á striðs-
föngum. Á móti kvaðst hann
he;ta því að hver stríðsfangi
frá Norður-Kóreu, sem her
hans tæki til fanga skyldi lát
inn sæta mannúðarmeðferð
þeirri, sem tilskilin væri í
reglum og venjum vestrænna
þjóða um meöferð fanga.
Hann * sagði, að þeir, ,sem
virtu að vettugi alþjóða-
reglur s ðaðra þjóða um með
ferð stríðsfanga yrðu látnir
sæta hegninfu sem stríðs-
glæpamenn.
Undanfarna daga hafa miklir hitar verið í M.ð-Evrópu og Vestur-Evrópu jafnvel svo, að
uppskera bíði tjón af. Unga fólkið notar þessx heiitu daga vel og streymir til baðstrand-
anna. Þannig lítur út á fjölsóttri baðströnd heitustu sunnudaga sumarsins. Myndln er
frá Danmörku. Hvað hafa marglr farið í sjólnn í Skerjafirði í sumar?
Héraðsmóf Ungmenna
samb.
að Núpi
Héraðsmót Ungmennasambands Vestfjarða var háð að
Núpi, föstudaginn 23. júní og laugardaginn 24. júni. Undan
rásir fóru fram á föstudag. Á laugardag hófst mótið með
guðþjónustd er séra Jóhannes Pálmason, Stað í Súganda-
firði flutti. Að henni lokinni hófst íþróttakeppni.
100 m. hlaup.
1. Svavar Helgason (Gísli
Súrss.) 11.5 sek. 2. Einar Ein-
arsson (Gisli Súrss.) 12.0 sek.
3. Jens Kristjánsson (Bifröst)
12.1 sek.
Kúluvarp.
1. Svavar Helgason (Gisli
Súrss.) 13.16 m. 2. Eyjólfur
Bjarnason (íþr.fél. Stefnir)
12.95 m. 3. Bjarni Helgason
(Gísli Súrss.) 12.92 m.
(Framha'á á 7. síOu.)
Túnasláttur vel á veg
koininn á Alftanesi
í Álftaneshreppi er túna-
sláttur nú vel á veg komirin.
Eru túnin mjög vel sprott'n
og hef;r heyskapartíð verið
góð. Hafa bændur náð töðum
inn án tafa, enda hafa þeir
margir ágætan vélakost til
heyskaparins.
Horfur í Kóreumál-
um batnandi
Truman Bandaríkjaforseti
átti hið vikulega viðtal sitt
við fréttamenn í Washington
í gær og ræddi Kóreumálin.
Hann sagði, að aðstaða
bandarísku hersveitanna i
Kóreu væri trygg þótt þær
hefðu orðið að leita undan.
Hann sagði einnig, að útlitið
i þessum málum væri nú mun
betra en fyrr og mestu stjórn
málahætturnar í sambandi
við það mál virtust vera um
garð gengnar. Hann kvaðst
ekki mundi kveðja varalið
Bandaríkjanna til vopna að
sinni, þött honum stæði sú
Ieið opin hvenær sem væri
sem æðsta manni alls hers
Bandaríkjanna. Meðal stjórn
málamanna i Washington
styrkist sú skoðun óðum, að
Rússar og kommúnistar í
Kína muni forðast beina
þátttöku i Kóreustyrjöldinni.
Sendiherra Breta
ræðir við Gromyko
Sendiherra Breta í Moskva
gekk á fund Gromkos í gær
með orðsendingu frá brezku
stjórninni. Ekki hefir verið
tilkynnt hvers eðlis hún hafi
verið, en talið er víst, að þar
hafi verið um ítrekun og
beiðni um svar að ræða við
fyrri tilmæli Breta við ráð-
stjórnina um að hún beitti á-
hrifum sínum í Norður-Kóreu
,til að binda endi á vopnavið-
skiptin og fá stjórn Norður-
Kóreu til að flytja her sinn
aftur norður fyrir 38. breidd-
argráðu.
Skip strandar
í
I gærmorgun tókst svo illa
til að skipiö Milly, sem var að
flytja salt frá Sigiufirði til
Ólafs: jarðar strandaði inn í
firðinum á móts við kaup-
staðinn.
Skipað var að flytja salt til
Ólafsfjarðar fyrir Síldarút-
vegsnefnd og hafði lagt af
stað í þoku út fjörðinn og orð
ið að snúa við vef?na þess hve
þokan var svört. Var það svo
á innleiðinni, að skipið tók
niðri og stóð í firðinum á
móts við kaupstaðinn. Skipið
náðist út á flóðinu í gærdag
og hafði hvorki skip né farm
sakað svo vitað sé.
Átökin harðna í
belgísku kon-
ungsdeilunni
í gær kom til svo alvarlegs
uppþots í belgíska þinginu, að
slíta varð fundi. Átti að taka
til umræðu frumvarp stjdrn-
arinnar um afnám laga
þeirra, sem bannað hafa heim
komu Leopolds konungs til
þessa. En þegar umræðan var
tilkynnt hófu þingmenn jaíli
aðarmanna óhljóð í þingsaln
um, börðu í borðin og stöpp-
uðu i gólfið, svo að ekki heyrð
ist mannsins mál. Greip for-
seti þá til þess ráðs að slíta
þingfundi um sinn, og við það
sat í gærkveldi.
Katólski flokkurinn mun þó
halda fast við ákvörðun sína
um að láta þingið leysa kon-
ungsdeiluna, enda hefur hann
15 atkvæða meirihluta í neðri
deildinni.
Kolanámumenn í nokkrum
námum gerðu klukkustundar
verkfall í sumum námum í
gær til að mótmæla heimkom
unni og járniðnaöarmenn
hafa undirbúið slíkt verkfall
í dag. Talið er líklegt að alda
slíkra stundarverkfalla muni
nú skella yfir landið.
Hlýtur sænskan
námsstyrk
Sænska ríkisstjórnin hef-
ir boð ð fram styrk að fjár-
hæð 3000 sænskar krónur.
auk 300 króna ferðastyrks,
handa íslenzkum stúdent til
1 náms við sænskan háskóla á
vetri komanda.
Að fengnum meðmælum
háskólaráðs, hefir mennta-
málaráðuneytið lagt 11, að
Ólafur Hreiðar Jónsson, stud.
polyt., hljóti stykr þennan til
náms í skipaverkfræði í
Stokkhólmi.
(Frá menntamálaráðuneyt-
inu).