Tíminn - 27.07.1950, Side 2
2
TÍAIINN, fimmtudaginn 27. júlí 1950
161. blað
Frá hafi
til heiða
I nótt.
Næturlæknir er í læknavarð-
stofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Lyfjabúð-
inni Iðunn, sími 7911.
Utvarpið
Útvarpið í kvöld.
Fastir liðir eins og venjulega.
Kl. 20,30 Einsöngur: Heddie
Nash syngur (plötur). 20,45 Dag
skrá Kvenréttindafélags Islands
— Erindi: Vandamál kvenfrels
iskonunnar (frú Lilja Björns-
dóttir). 21,10 Tónleikar (plötur).
21,15 Þý.tt og endursagt (Ólaf-
ur Friðriksson). 21,30 Sinfón-
ískir tónleikar (plötur). 22,40
Dagskrárlok.
Hvar eru skipin ?
Skipadeild S. I. S.
Arnarfell er væ’ntanlegt til
Reykjavíkur á laugardag.
Hvassafell er í Reykjavík.
Eimskip.
Brúarfoss er í Kiel. Dettifoss
fór frá Reykjavík í gærkvöld til
ísafjarðar og þaðan til Hafnar-
fjarðar. Fjallfoss fór frá Djúpa
vík í gærmorgun til Reykjavík-
ur. Goðafoss er á Akureyri.
Gullfoss er væntanlegur til
Reykjavíkur um hádegi í dag.
Lagarfoss er væntanlegur til
Reykjavíkur í dag. Selfoss fór
frá Aberdeen í gær til Leith og
Svíþjóðar. Tröllafoss er á leið
til New York.
Árnað heilla
Iljónaband.
Gefin voru saman í hjóna-
band 23. júlí Brigette Susanne
Thieme frá Hamborg i. Þýzka-
landi og Ragnar Halldór Ágústs
son, bóndi á Viðarsstöðum í
Hjaltastaðarþinghá.
Nýlega voru gefin saman í
hjónaband ungfrú Eva Þórar-
insdóttir Bakka, Svarfaðardal
og Daníel G. Einarsson, tré-
smiður, Ránargötu 22, Reykja-
vik.
Úr ýmsum áttum
Eyíirðingafélagi ð.
'efnir til skemmtiferðar um
næstu helgi á Hveravelli. Lagt
verður á stað frá Hafnarhúsinu.
Frímanni Frímannssyni, kl. 2
á laugardag og komið til bæj-
arins á mánudagskvöld. Á Hvera
völlum verður dvalið yfir sunnu
daginn og geta menn eftir vild
annað hvort farið til grasa eða
gengið á fjöll.
Menn þurfa að hafa með sér
svefnpoka og mat en gist verð
ur í sæluhúsi Ferðafélagsins.
Allar nánari upplýsingar um
ferðina eru hjá Sigríði Hannes-
dóttur, Ingólfsstræti 23, sími
81481, og Zóphóníasi Jónssyni,
sími 1327.
Gjafir og áheit til S.I.B.S
í júní 1950.
Frá nokkrum Grindvíkingum
300, Sigurði 30, Önnu 50, Jóni
Sumarliðasyni í minningu um
D.S. 100, N.N. 50, sjómanni 50,
C. Ewing 25, N.N. (sent í pósti
frá Hafnarfirði) 500, G.S. 10,
B.G. 100, N.N. 100, Hellu 50,
Sambandi sunnlenzkra kvenna
1000, og frá félagskonum á fundi
Sambands sunnlenzkra kvenna
1000 krónur. Samtals kr. 3365,03.
Með kæru þakklæti,
f.h. S. 1. B.S. — M. H.
Frétt frá Ferðaskrifstofunni.
Orlofsferðir Ferðaskrifstofu
ríkisins um næstu helgi verða
sem hér segir:
DFjögurra daga ferð til Snæ-
fellsness. Lagt af stað á laugar-
dag 29. júlí, ekið um Kaldadal
og Borgarfjörð til Stykkishólms
og gist þar. Á sunnudagsmorg-
un verður farið út í Breiðafjarð
areyjar, síðan ekið um Kolgraf- j
arfjörð og Grundarfjörð til
Ólafsvikur og Búða og gist þar. i
Daginn eftir, mánudag, farið
að Stapa, Hellnum, Lóndröng-
um og til baka að Búðum.
Fjórða daginn, þriðjudaginn 1.
ágúst, ekið um Borgarfjörð,
Uxahryggi og Þingvelli til
Reykjavíkur.
2) Ráðgerð fjögurra daga ferð
um Kjöl norður í Húnavatns-
i sýslu. Fyrsta daginn farið að
í Hvítárvatni og til Hveravalla.
Dagurinn eftir verður notaður
til þess að skoða sig um þar og
fara , Þjófadali. Á mánudag
verður svo ekið norður yfir Auð
kúluheiði um Svínadal til
Blönduóss og þaðan til Reykja-
skóla. Fjórða og síðasta daginn
verður ferðast um Borgarfjörð-
inn, komið að Hreðavatni, Reyk
holti og Húsafelli og heim'um
Kaldadal og Þingvelli.
3) Loks verður farið inn á
Þórsmörk og er hér eins og áður
um þriggja daga ferð að ræða.
Fyrsta daginn ekið í Fljótshlíð
i ina, þá um Markarfljótsaurana
| yfir Markarfljótsbrú, síðan inn
í Húsadal. Annan daginn dval-
ist á Mörkinni, farið í göngu-
ferðir og loks ekið í Stakkholts
gjá og hún skoðuð. Þriðja dag-
inn farið til baka til Reykja-
víkur.
Eins dags ferðir næsta sunnu
dag verða þessar:
1) Gullfoss- og Geysisferð.
Lagt af stað kl. 8.30. Sápa lát-
in í hverinn um kl. 11.00. Að
gosi afstöðnu verður ekið til
Gullfoss og að Brúarhlöðum og
á heimleiðinni til Þingvalla.
2) Þjórsárdalsferð, sem hefst
kl. 9,00. Farið verður inn að
Stöng og skoðaðir aðrir fagrir
staðir svo sem Gjáin og Hjálp-
arfossar.
3) Hringferð um Þingvelli,
Kaldadal og Borgarfjörð. Farið
1 ‘‘ -
TILKYNNING
Samkvæmt vísitölu júlí-mánaðar verður leigugjald fyrir vörubifreiðar I
tímavinnu, frá og með deginum i dag og þar til öðruvísi verður ákveðið,
sem hér segir:
Dagv.
Fyrir 2% tonns bifreiðar. Kr. 34,02
Eftirv. N. & h.d.v.
Fyrir 2 y2 til 3 tonna hlassþunga .. — 37,94
Fyrir 3 til 3 y2 tonns hlassþunga .. — 41,84
Fj’rir 3*/2 til 4 tonna hlassþunga .. — 45,75
Fyrir 4 tii 4*4 tonns hlassþunga .. — 49,65
39,65
43,57
47,47
51,38
55,28
27. júli 1950,
45,28 pr. kl. st.
49,20 -----------
53,10------------
57,00 -----------
00,90 -----------
Yörubílastuð Hafiiarf jarðar Vöruhílastöðin Þróttur
HAFNARFIRÐI REYKJAVÍK
Vörubílstjwrafélas'ið Mjölnir
ÁRNESSÝSLU
af stað kl. 8,30.
4) Loks verður farin hring-
ferð um Krísuvík, Selvog, Þor-
lákshöfn, Hveragerði og Hellis-
heiði til Reykjavíkur. Þessi ferð
hefst kl. 1,30 á sunnudaginn.
Bretar heiðra ....
(Framliald af 1. síðu.)
aði fyrir hönd íslendinganna
og flutti stutta ræðu, þar sem
hann lagði áherzlu á .það, að
íslenzkar björgunarsveitir
ynnu ekki störf sín í því skyni
að fá viðurkenningar, heldur
af einskærri hjartagæzku og
ást til náungans. Þetta væri
hugsjónastarf og þess vegna
væru slysavarnasamtökin í
landinu svo sterk, sem raun
beri vitni. Hann lauk máli
sínu með því að vitna til orða
Gunnars á Hlíðarenda, er
hann lofaði gjafirnar, en
sagði að vináttan væri þó
meira virði.
tJtbreiðið Tímann
onmni veai —
Bæjarprýði — Bæjarsmán
Eg hef áður vikið að því,
hvernig hátta er „fegrun“ á
sumum lóðum opinberra bygg-
inga og stofnana, og hefi ég
sérstaklega vikið að' því, hvern-
ig ástatt er á lóðum tveggja
helztu menntastofnana í höfuð
borginni, menntaskólans og
Landsbókasafnsins. Umgengni
þar er til skammar, og verður
ekki við slíkt unað.
Margir einstaklingar leggja
sitt að mörkum til þess að
fegra og prýða þennan bæ með
nuklu starfi á lóðum sínum,
natni og árvekni. Þá er hart,
að opinberar stofnanir skuli
vera til smánar. En hér þarf
ekki að velkjast í vafa. Sjón
er sögu ríkari. Gangurinn er
sá, að eltt árið er rokið til og
settar niður trjáplöntur, rist of-
ah og þakið, og hlaðnir upp stall
ar, þegar bezt lætur.
En það er ekki séð fyrir því,
að þetta fái að vera óáreitt.
Það er látið vera óvarið, teknar
niður girðingar, eins og gert
var við Landsbókasafnið, svo að
öruggt væri, að allt yrði sparkað
sundur. Árangurinn er sá, að
um blettina myndast götur,
víða er allt troðið í svað, trjá-
plöntur deyja margar, en aðrar
verða að krypplingum sökum
átroðnings. Umhirðu og að-
hlynningu skortir að mestu
leyti.
Þannig er allt látið slarka
árum saman. Eftir áratug eða
svo er aftur rokið til. Þá hefj-
ast nýjar „lagfæringar" og síð-
an ný forsómun.
Borgararnir ættu að frábiðja
sér þessa forsmán. Þeir æt\u að
frábiðja sér hirðuleysi og sóða-
skap. Blöðin eiga að leggja
þeim lið. Dugi ekki annað, verð
ur að rekja rækilega sögu hverr
ar stofnunar að þessu leyti og
þagna ekki fyrr en varanleg
þáttaskil verða um ræktun,
friðun og umhirðu á opinber-
um lóðum. Þær eiga að vera
bæjarprýði, en ekki bæjar
smán.
J. H.
TILKYNNING
Innflutnings- og gjaldeyrisdeild Fjárhagsráðs hefir
ákveðið eftirfarandi hámarksverö á benzíni og olíum:
Benzín kr. 1,46
Ljósaolía ... ... — tonn — 1050,00
Hráolía — 670,00
Hráolía .:... ... — liter — 0,58
Að öðru leyti eru ákvæði tilkynningar verðlagsstjóra
nr. 7 frá 31. marz 1950 áfram i gildi.
Reykjavik, 26. júlí 1950,
Verðlagsstjórinn
Bændur
Höfum til nokkrar tékkneskar KULI-rakstrarvélar
og HEROS sláttuvélar með mjög hagkvæmu verði. —
Snúið yður t*l næsta kaupfélags. —
Samband ísl. samvinnufélaga
Frá Kristilegn
stúdentafélagi
Almenn samkoma verður í
dómkirkjunni í kvöld kl. 8,15.
— Dr. med. Langvad frá Dan-
mörku talar um efnið: „Eitt
er nauðsynlegt."
Allir velkomnir.
LÖGUÐ
fínpúsning
send gegn póstkröfu um allt
land.
Fínpúsningsgerðin
Reykjavík — Simi 6909
Austurferðir frá
Reykjavík
Daglegar ferðir austur og
suður:
Til Laugarvatns,
í Grimsnes,
í Biskupstungur
Til Geysis í Haukadal.
Bæði til Gullfoss og Geysis
á fimmtudögum og sunnu-
dögum.
Flyt tjaldútbúnað fyrir
ferðafólk. Gengisfellingin
hefir ekki haft áhrif á öll
lífsþægindi enn. Fargjöld
hafa ekki hækkað með sér-
leyfisbifreiðum á annað ár.
Afgreiðsla i Ferðaskrifstof-
unni. — Sími 1540.
Ólafur Ketilsson.