Tíminn - 27.07.1950, Qupperneq 3

Tíminn - 27.07.1950, Qupperneq 3
161. blað TIMINN, fimmtudaginn 27. júlf 1950 3 í / slendingalDættir t9SSS$SSS$S$$$$$$$$$S9 RSSSS5SS5SSS55SSSSS5SÍ* Dánarminning: Ágústínus Daníelsson, Steinskoti, Eyrarbakka Ágústínus Daníelsson var fæddur í Kaldárholti í Rang- árvallasýslu 25. nóv. 1867, son ur Daníels Þorsteinssonar bónda þar og konu hans Vil- taorgar Jónsdóttur frá Skálm holti í Árnessýslu. Var hann því kominn af merkum bændaættum, og í beinann karllegg 11. maður frá hinum nafnkenda Torfa sýslumanni í Klofa. Bræður Ágústínusar voru þeir Jóhann V. kaupm. á Eyrabakka, Sigurður gullsmið ur á sama stað, og þeir Dan- iel og Þorsteinn í Guttorms- haga, og hinn góðkunni gest gjafi Sigurður á Kolviðar- hóli. Eru þeir nú allir gengn- ir, en Guðrún kona Hafliða í Búð, mun vera ein á lífi af þeim systkynum. Ungur að árum fór Agúst- inus í vinnumennsku til Runólfs á Rauðalæk, og stund aði jafnframt sjóðróðra á vetrarvertíðum, lengt af frá Eoftstaðasandi. Hánn kvæntist 1907, eftir- lifandi konu sinni, Ingileifu Eyjólfsdóttur frá Torfastöð- um í Grafningi, og hóf bú- skap í Steinskoti á Eyrar- bakka þar sem hann bjó síð- an til dauðadags. Ágústínus Daníelsson var maður af „gamla skólanum“. Hann vann af miklu kappi og dugnað langa ævi, og lét lítið eftir sjálfum sér, en var framúrskarandi umhyggju- samur heimilsfaðir. Dugnað- ur hans við búskapinn og í allri vinnu, sem hann gekk að var með fádæmum, hugur inn og hraðinn í verki ein- kenndi hann fram á elliár. í Steinskoti bjuggu þau hjónin sveitabúi. Þótt býlið væri ekki stór jörð komust þau vel af, og voru alla tíð bjargálna fólk. Stundaði Ágústínus margskonar at- vinnu samfara búskapnum, og féll aldrei verk úr hendi. Hann lét sig litlu skipta skoðanir annara manna um hlutina, en fór sínu fram. Hann var hispurslaus og hreinskilin, og sagði það sem honum bjó í brjósti, og lét sér í léttu rúmi liggja, hvort það líkaði betur eða ver eða hver það var, sem í hlut átti. Ágústínus var maður gest- risinn, og hafði gaman af, er gest bar að garði að tala um „landsins gagn og nauðsynj- ar“, hann var maður mjög á- kveðinn í skoðunum og þurfti enginn að ætla sér þá dul að breyta þeim. Heimili þeirra hjóna var hreinlegt og snyrtilegt, og átti húsfreyjan jafnan marg- ar tegundir fagurra blóma. Þeim hjónum varð tveggja sóna auðið. Daniel Ágústínus son kennari, er kunnur mað- ur fyrir störf sin í þágu ung- mennafélaganna og Fram- sóknarflokksins. Hinn bróðir inn Eyjólfur, hefir löngum dvalið heima að búi foreldra sinna. Fósturdóttur áttu þau hjón, Bjarndisi Guðjónsdótt- ur, sem þau gengu í foreldra stað, og er nú gift kona i Reykjavík. Ágústínus var óvenjulega heilsuhraustur maður, og mun ekki hafa kennt sér nokkurs meins um dagana, utan þess að hann lá í spönsku veikinni 1918, kvef og umferðarkvilla þekkti hann ekki. Hann vann óslitið og ósérhlífinn alla erfiðis- vinnu, þar til hann lagðist banaleguna um miðjan des. s. 1. Um 5 mánaða skeið barð- ist hann við kvalafullann sjúkdóm, og var harður á þvl, að sér mundi batna aftur, þó kominn væri á níræðisaldur. En 2 dögum fyrir andlát sitt fann hann, að umskipt- in voru framundan, og að hann mundi ekki annast vor störfin í Steinskoti framar. Nú tók hann dauðanum með sama dugnaði og hann hafði tekið lífinu. Þessi mað- ur sem fátt hafði látið eftir sér um dagana, sagði nú fyr- ir á stórmannlegann hátt, hvernig búið skyldi um sig í þá hinstu för, sem hann fann að var nú framundan. Hann lét hlaða gröf sína úr holsteini, en strá hvítum skeljasandi á botn hennar, með steyptu þaki yfir. Hann kærði sig ekki um meiri mold á blómum skrýdda kistu sína, en þær þrjár rek- ur er presturinn kastaði að aldagömlum sið. Ágústínus andaðist að heimili sínu 6. maí s. 1. og var járðsettur á Eyrarbakka á sólfögrum vordegi þ. 13. sama mánaðar, á þann hátt, sem hann hafði sjálfur fyrir lagt. T. Ey. Mótmæli Ríkisstjórnir Svíþjóðar og Danmerkur hafa nú sameig- inlega sent Sovétstj órninni mótmæli gegn hinni 12 mílna landhelgi Rússa, svo og gegn afskiptum Rússa af fiskiskip- um beggja þjóða á Eystra- salti. Þá er harðlega mótmælt hinum ítrekuðu afskiptum Rússa af fiskiskipum Dana og Svía í Eystrasalti, en á þessu ári einu hafa Rússar 15 sinn- um tekið dönsk skip og flutt þau til rússneskra eða pólskra hafna, þar sem þeim hefir verið haldið i lengri eða skemmri tíma. Súlan og síldin Er það súlan, sem veldur því, að Suðurlandssíldin veður ekki? Það er skoðun flestra, sem til þekkja, að síldarstofninn er heldur sig í Faxaflóa og fyrir sunnan landið, sé sú auðlind, sem mestu máli skipti fyrir íslenzka útgerð, að hægt verði að hagnýta í stórum stíl. Er margt rætt og ritað um það, hvernig veiðarfæri muni bezt henta til þessa veiðiskap ar, og hvort hægt muni vera að útbúa veiðarfæri, sem reyndist jafn stórvirk og herpinótin, sem þó einungis hefir verið mögulegt að nota þegar síldin veður ofansjávar eða nokkra faðma undir yfir borðinu. Ástæðan fyrir því, að ég fer að skrifa um þetta er sú, að hinn alkunni aflamaður Benóný Friðriksson í Vest- mannaeyjum, hefir komið fram með mjög athyglisvera skoöun í sambandi við Suður landssíldina, Telur Benóný að Suður- lands- og Faxaflóasíldin hafi svipuð skilyrði til þess að vaða, eins og Norðurlands- síldin, en ástæðan fyrir því, ! að hún væði ekki sé sú, að Súlan beinlínis varni síld- i inni að koma upp. Af súlunni er feikileg mergð í Faxaflóa og langt austurfyrir Dyrhólaey, sem er aðalsvæði Suður- og Vest- urlandssíldarinnar. Og er það skoðun Benónýs, að súlan verji svo sjóinn á þessu svæði, að hvar sem síldar- torfa grynnir á sér og nálg- ist yfirborðið, þá sé súlan eins og hrapandi steinar nið- ur á síldina og fæli hana nið ur. Þegar það er nú athugað, að veiðibrestur undanfarinna ár á síldveiðunum fyrir Norð urlandi, er meðal annars tal- inn stafa af ofmiklum fjölda veiðiskipa, sem jafnvel varni síldinni að koma upp, þegar hún stendur á litlu svæði, sem mestallur flotinn heldur sig á, þá er ekki fráleitt að allur sá aragrúi af súlunni, sem er hundrað eða þúsund- faldur að fjölda, á við síld- veiðiskipin, geti valdið miklu um það, hvort síldin komi upp og vaði. Fuglinn er fljót ur að bera sig yfir hafflötinn, og súlan gædd eðlisávísun náttúrunnar á það, hvar fisk inn er að finna, er fljót að sjá síldina þegar hún grynn- ir á sér, og steypir sú úr háalofti og kafar djúpið eft ir ætinu. Hún þætti áreiðan- lega engin auðfúsagestur þar sem ætti að fara að snurpa síldartorfu. Súlan er engin nytjafugl, og mætti þessvegna fækka henni mikið eða útrýma að mestu, án þess að tjón hlyt- ist af. Ætti það að vera frem ur auðvelt, bví að heimkynni hennar hér við land eru að- eins tveir staðir, Eldey og Súlnasker við Vestmannaeyj ar. Ég hefi hér í stuttu máli sett fram þess skoðun Ben- ónýs Friðrikssonar því að mér þykir hún þess verð að henni sé gaumur gefinn, og væri gaman að heyra um þetta álit reyndra fiskimanna og fiskifræðinga'. Björn Pétursson Áííræð í dag: Guöbjörg Þorleifsdóttir IVEúIakoti í Fljótshnð Guðbjörg Þorleifsdóttir i Múlakoti í Fljótshlíð er átt- ræð í dag. Hún er fædd og upp alin í Múlakoti, — hefir dval- ið þar alla tíð og gert „garð- inn“ frægann. Saga Guðbjargar í Múla- koti er í raun og veru ljóst dæmi um það, fyrst og fremst, hve mikils virði tómstundir manna geta verið. Séu þær réttilega notaðar. — Hún er fyrst og fremst orðin þjóð- kunn kona fyrir tómstunda- störf sin. Og þó hefir hún sennilega átt færri og styttri tómstundir en flestir aðrir. Annir húsfreyjunnar á stóru og barnmörgu heimili í sveit, þar sem dagleg gestanauð bætist ofan á allt annað, skilja sannarlega ekki eftir mikinn tima afgangs, eins og kunnugt er. Máske er enginn þjóðfélagsþegn svo önnum kafinn, og hefir jafnmörgum skyldum að gegna frá morgni til kvölds, jafnt helga daga sem rúmhelga. Þær eru sann- arlega ekki margar tómstund irnar þar, — tæpast aðrar en nóttin, þegar aðrir telja sig þurfa hvíldar við frá lýj- andi störfum dagsins. Og hver mundi vera þeirrar hvíldar meira þurfi en húsfreyjan, sem slíkum heimilum veitir forstöðu? Og þegar þar við bætist, að heilsa hennar er jafnan á bláþræði, og beita þarf því kröftunum með var- færni, þá virðist það undrum næst, að hægt sé að sinna öll um þessum skyldustörfum með sóma og prýði, — og auk þess vinna timafrekv tóm- stundaverk, svo að hljóta fyr ir viðurkenningu og aðdáun En þetta er þó saga Guð- bjargar í Múlakoti. Við þröngan kost og lítil efni, reistu þau hjónin, hún og maður hennar, Túbal Magnússon, sem látinn er fyr ir nokkrum árum, bú í Múla- koti árið 1893. Þau eignuðust 4 mannvænleg börn, — og tók sonur þeirra Ólafur Tú- bals listmálari og kona hans Lára Eyjólfsdóttir, við bús- forráðum af þeim fyrir all- mcrgum árum síðan. Á heim- ilinu var jafnan mikil gesta- nauð og síðar opinber veit- ingastaður, eins og það er enn í dag. En brátt tók einnig annar gróður að láta á sér bera um- hverfis heimilið í Múlakoti. Voru það tré og blóm, sem húsfreyjan gróðursetti, og annaðist af svo mikilli natni og umhyggju að brátt var þar kominn mikill og fagur trjá- og blómagarður, með undra- verðum þroska. Á þeim tíma var hvorki mikil kunnátta fyrir hendi né tilsögn veitt um slíka ræktun. En húsíreyj an lagði ótrauð og trúuð tii starfsins, — annaðist blóm sín og trjáplöntur með móður höndum og móðurumhyggju, —og árangurinn hefir orðið sá, að enn i dag er óvíða að sjá þroskameiri og fegri gróð urlund hér á landi. jafnvel hjá þeim, sem lærdóminn og tæknina hafa til þess haft, og tíma nógan. — Sannarlega er það þó eitt hinna ánægju- legri tákna síðari ára hér á landi, að sjá hve margir hafa hafizt handa um að fegra þannig híbýli sín, — og víö’a er árangurinn alveg furðuleg þjóðar sinnar, — já og vera,! tir og fljótur. Og það braut- jafnvel áttræð, ern og ung j ryðjendastarf, sem hin önn- í huga og hönd, það er sann- ! um kafna húsfreyja í Múla- arlega ekkert hversdagslegt, koti hefir unnið á þessu sviði fyrirbrigði, jafnvel í hópi j er meira virði og meira airek hinna starfsömu og fórnfúsu | en margur máske heldur. Það stéttar íslenzku húsfreyjanna i veröur að vísu ekk metiö til í sveitum landsins. — I (Framhald. á 6. síðu.)

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.