Tíminn - 23.09.1950, Blaðsíða 8
Nýlega var haldið þing kjarnorkufræðinga í Oxford. Eini
kveníulltrúinn á því var Lise Meitner, prófessor frá Stokk-
hólmi. Hér sést hún á tali við F. Perrin, prófessor í París.
Samningar gerðir um
greiösiubandalagið
S. I. þriðjudag, hinn 19. þ. m., undirrituðu allar meðlinia-
þjóðir efnahagssamvinnustofnunarinnar í París samkomulag
um stofnun greiðslubandalags Evrópulandanna. ísland og
óll önnur Evrópulönd, sem þátt taka í efnahagssamvinnunni,
Ekkert aðkoraufé
komið fram á
Snæfellsnesi
Leitum er nú lokiö í fjór-
um hreppum ’vestan varnar-
girðingarinnar úr Skógarnesi
í Álftafjörð. í þessum hrepp-
um, Miklholtshreppi, Helga-
fellssveit, Staðarsveit og Eyr-
arsveit, kom ekki fram nein
kind austan yfir girðinguna,
og þykjast menn þess nú
nokkurn veginn fullvissir, að
ekki hafi fleira fé komizt vest
ur yfir en mæðiveika ærin,
sem fannst í sumar.
Trúlegt þykir, að hún hafi
aðeins verið skamman tíma
vestan girðingar, og gera
menn sér vonir um, að sýk-
ing hafi ekki átt sér stað,
þar eð ekki er talin mikil
hætta á sýkingu í haga.
í gær og í dag fara fram
leitir vestur í hraunum
umhverfis Snæfellsjökul, en
þar er helzt hætta á, að fé
kunni að hafa leynzt, er
fjárskiptin fóru fram í fyrra
og gengið af í vetur. í Beru-
víkurhrauni fannst í vetur
ein kind, sem orðið hafði
eftir við leitir í fyrrahaust.
Nýja féð þykir vænt og fal-
legt, og eru menn yfirleitt
hinir ánægðustu með það.
Haustmót
Reykjavíkur
Næstkomandi sunnudag
hefst í íþróttavellinum síð-
-asta knattspyrnumót ársins
í meistaraflokki. Mót þetta
heitir „haustmót Reykjavík-
ur í meistaraflokki". Fyrir-
komulag mótsins er þannig
að leiktími er aðeins 1 klukku
stund, og leiknir 2 leikir
hvern sunnudag, meðan mót-
ið stendur yfir.
í mótinu er keppt um bik-
ar, sem knattspyrnufélagið
Fram gaf til minningar um
Ólaf Kalstað, og hefir verið
keppt um þennan grip 1 eitt
skipti, en það var síðast-
liðið haust. —
Á morgun leika svo fyrst,
íslandsmeistarar K.R. gegn
Reykjavíkurmeisturum Fram,
og strax á eftir leika Valur
og' Víkingur.
Það má búast við að keppni
verði mjög tvísýn og hörð,
þar sem öll félögin hafa haft
stöðugar æfingar. Einnig er
alltaf meiri hraði í klukku-
tímaleikjum, og síðast en
ekki sízt má geta þess að Val-
ur og Vikingur munu hafa á-
huga á að Fram og K.R. séu
ekki einráð í sigrum sumars-
ins. — Mótið hefst kl. 2 e. h.
á sunnudag. —
Samningar rafvirk ja
framlengdir
Rafvirkjameistarar höfðu
sagt upp samningum við raf-
virkja og kröfðust kauplækk-
unar. Að því vildu rafvirkjar
ekki ganga, og var búj^t við
vinnustöðvun.
Til þess kemur þó ekki.
Samningar rafvirkja hafa nú
verið framlengdir óbreyttir.
Flugdagur
víkurvelli á
Það voru fulltrúar Félags
atvinnuflugmanna, Félags
einkaflugmanna og Félags
svifflugmanna, sem kvöddu
fréttamenn á sinn fund í
gær og skýrðu þeim frá þessu.
Ætlunin var áður að halda
flugdag þennan fyrr, en
vegna þess að Geysir týndist
varð ekki af því.
Hátíðin mun hefjast kl. 2,30
á Reykjavíkurflugvelli og verð
ur inngangur um aðalhlið
vallarins . Ef veður hamlar
mun flugdeginum verða af-
lýst í hádegisútvarpi. Á göt-
um bæjarins verða seld merki
flugdagsins, sem jafnframt
eru aðgöngumiðar að vellin-
um.
Margs konar flugsýningar.
Margs konar flugsýningar
munu fara fram þennan dag,
svo sem hópflug einkaflug-
véla, lístflug, svifflug og aðr-
ar flugsýningar. Sýnt verður
hvernig flugvél „hrapar“ til
jarðar, þ. e. a. s. hreyflar
hennar verða stöðvaðir hátt
í lofti og henni síðan lent.
Einnig er i ráði að reyna að
fá þrýstiloftsflugvélar til að
koma hér við og sýna þær.
Að lokum verður hægt að fara
í hringflug.
Dagskráin hefst með þvi, að
formaður flugráðs, Agnar
Koefod-Hansen flytur ræðu
en lúðrasveitin Svanur leikur
á undan og milli skemmtiat-
riða undir stjórn Karls O.
Runólfssonar.
Klukkan 16,30 fer fram
stuttur knattspyrnukappleik-
ur milli flugmanna frá Loft-
leiðum og Flugfélags íslands
á Valsvellinum, sem er þarna
rétt hjá. Um kvöldið verður
dans’eikur að Hótel Borg.
í sambanai við flugdaginn
er efnt til happdrættis og eru
vinningarnir flugfar til Kaup
mannahafnar og London og
25 hringflugsvinningar.
á Reykja-
sunnudag
Blaðið var sérstaklega beðið
að minna á það, að börn
fengju aðeins að sækja flug-
daginn i fylgd vandamanna
eða annarra fullorðinna. Fólk
er líka áminnt um að fara
ekki út fyrir þau svæði, sem
áhorfendum eru ætluð.
í flugdeginum munu taka
þátt allar flugvélar og svif-
flugur sem ,,rólfærar“ eru,
eins og flugmennirnir kom-
ast að orði og er það allmik-
ill floti. Flugdagur þessi er
hinn fjórði, sem haldinn er.
Árin 1938 og 1939 voru flug-
dagar haldnir á Sandskeiði,
en árið 1946 í Reykjavík.
eigast hermennirnir við í ná-
vígi á götunum.
Samgönguleið rofin.
Alllangt sunnan við Seoul
hafa landgöngusveitir hertek
ið bæinn Suwon, en um hann
lá ein mikilvægasta samgöngu
leiðin frá syðri hluta Kóreu
til Seoul. Getur missir þessa
bæjar orðið hernum, sem er
sunnar í landinu, mjög hættu
legur.
eru meðlimir þessa bandalags.
„Stærsta sporið.“
Paul Hoffmann, fram-
kvæmdastjóri efnahagssam-
vinnustofnunarinnar í Wash-
ington, hefir tekið vel stofn-
un greiðslubandalagsins og
sagt það „stærsta sporið“ í
áttina að efnahagslegri sam-
einingu Evrópuþjóðanna síð-
an efnahagssamvinnustofnun
in var sett á laggirnar.“ Hann
sagði einnig, að „samkomu-
lag um greiðslubandalagið,
sem gildi aftur fyrir sig til
1. júlí s. 1., færi nú hið lang-
þráða takmark um auðveld-
ari gjaldeyrisyfirfærslur og
aukna verzlun á milli Evrópu
landanna nær veruleikanum".
Markaður,
sem verður að eflast.
„Hinn stóri sölumarkaður
meðal 270 miljón íbúa Evrópu,
sem verður að eflast, ef fram
leiðendur eiga að selja vörur
sínar á lægra verði og gera
almenningi kleift að kaupa
þær, mun aukast mun fyrr
með stofnun þessa bandalags
en hann mundi ella gera. Ég
lít svo á, að starfsemi greiðslu
bandalagsins muni beinlinis
stuðla að bættum lífsskilyrð-
um meðal íbúa Evrópuland-
anna“.
„Efling frjálsari verzlunar“.
„Með því að gera sölu á
gjaldeyri í raun og veru mögu
lega ýmsum Evrópu-
landa mun greiðslubandalagið
efla frjálsari verzlun á milli
þessara landa. Einnig mun
aukinn samdráttur verzlunar-
hafta, svo sem takmcrkun á
magni ýmissa vörutegunda,
sem flytja má inn til sumra
hjá Seoul. Er jafnvel búizt
við, að ringulreið komist á
varnir norðanmanna mjög
bráðlega.
Sigiirvogarl í Ilöfn
Skúli Guðmundsson bar
sigur úr býtum í hástökki á
íþróttamóti i Kaupmanna-
höfn í fyrrakvöld. Hann
stökk 1,90 metra.
landa, auka framleiðsluhæfni
og verzlun á meðal meðlima-
landanna og verða til bóta
fyrir neytendurna. Evrópa
stefnir nú að bættu og á-
nægjulegra efnahagslífi“.
Stikker segir:
Dirk Stikker, stjórnmála-
ráðunautur efnaihagssam-
vinnustofnunar Evrópu og að
alembættismaður stofnunar-
innar, sem jafnframt er utan
ríkisráherra Hollands, lét svo
ummælt: „Hugmyndin um
greiðslubandalag Evrópu gaf
hvað mestar vonir um meiri
árangur á leið að auknu frelsi
í Evrópu“. Stikker hélt áfram
og sagði: „Þessi árangur hefir
náðst með þolinmæði og þraut
seigju og hjálp frá öllum með
limaþjóðum efnahagssam-
vinnustofnunar Evrópu. Enda
þótt augu heimsins beinist nú
að öðrum vandamálum á
stofnun þessa bandalags skil-
ið, að henni sé nánar gaumur
gefínn“.
„Stofnun greiðslubanda-
lagsins hefir verið gerð mögu
leg fyrir mikla og rausn-
arlega aðstoð, sem þing og
forseti Bandáríkjanna hafa
heimilað. Nú þegar grundvcll
urinn hefir verið lagður fyrir
(Framhald á 7. síðu.)
Formósa á dagskrá
Samþykkt hefir verið að
taka á dagskrá allsherjar-
þingsins kæru Rússa á hend-
ur Bandaríkjamönnum fyrir
hlutleysisbrot í Kína.
Kæra Rússa er byggð á, að
það sé íhlutun i kínversk
málefni og hlutleysisbrot, er
Bandaríkj amenn tóku að sér
að verja eyna Formósa gegn
hugsanlegri innrás.Sömuleiðis
er vitnað til loftárásar þeirr-
ar, sem kínverska stjórnin í
Peking hermir, að gerð hafi
verið á kínverska borg í Man-
sjúríu við landamæri Kóreu.
Kæran var tekin á dag-
skrána með atkvæði allra full
trúa nema Formósustjórnar-
innar kinversku, þar á meðal
Bandaríkj amanna.
Lyfjafræðingar í
Finnlandi hóta
verkfalli
Tvö þúsund lyfjafræðingar
í Finnlandi hóta verkfalli um
þessar mundir, þar eð þeir
hafa ekki fengið framgengt
kaupkröfum.
Firinska stjórnin íhugar,
hvort hún eigi ekki að banna
þetta verkfall, þar sem það
geti kostað líf og heilsu fjölda
sjúklinga, ef fyrirætlanir
lyfjafræðinganna um verkfall
veröa ekki stöðvaðar.
I»ar verílur sýnt llstflug, svifflug og liægt
að brogða sér í hringflug
Næstkomandi sunnudag efna þau þrjú félög flugmanna,
sem starfandi eru hér í bænum til flugdags, sem um leið
verður fagnaðarhátíð vegna þess, að Geysisáhöfnin er nú
fundin og heim komin heil á húfi. Þennan dag fara fram
margvíslegar flugsýningar og önnur liátíðahöld á Reykja-
víkurflugvelli.
Barizt á götunum í Seoul
Varnir norðanmanna virðast linast
Vörn norðanmanna í Kóreu virðist vera að linast, og margt
i bendir til þess, að senn fái þeir ekki lengur staðizt heri S. Þ.
' Ber talsvert á því, að gripið liafi verið til skyndilegra liðs-
flutninga vegna framsóknar landgönguliðsins hjá Seoul.
Barizt i návígi í Seoul. | Bilbugur á suðurvíg-
- , .. , . . *' stöðvunum.
Iiandgonguliðið sækir nu að
miðbiki Seoulborgar, en lið-1 Mótspyrna norðanherj-
sveitir norðanmanna veita anna á suðurvígstöðvunum
enn hart viðnám. Hafa þær er farin mjög að veikjast. og
gert sér götuvígi og hvert Þykir þess gæta, að gripið
steinsteypt hús í borginni er hefir verið til þess ráðs að
virki. Má segja, að bariz't sé flytja þaðan stórar sveitir til
um hvert hús í borginni, og Þess að taka þátt í vörninni