Tíminn - 28.09.1950, Page 1
Ritstjóri:
Þórarinn Þórarinsson
Fréttaritstjóri:
Jón Helgason
Útgefandi:
Framsóknarflokkurinn
Skrifstofur f Edduhúsinu
Fréttasímar:
81302 og 81303
Afgreiðslusími 2323
Auglýsingasími 81300
Prentsmiðjan Edda
34. árg.
Reykjavík, fimmtudaginn 28. september 1950.
213. blaff.
Höf uðknpubrotinn maður nær
dægur í varðhaldsklefa
Meðal þátttakenda, sem þreyttu sundið yfir Ermasund í
sumar til að vinna til verðlauna brezka stórblaðsins Daily
Mail var hin kunna danska sundkona, Jenny Kammers-
gaard. Hún komst alla leið og hlaut því verðlaun. Hér sést
fulltrúi blaðsins afhenda henni verðlaunin
Umf. taka vinnubragða
keppni á dagskrá sína
Sambandráðsfundur Ungmennafélags íslands, sem er
fundur stjórnar U.M.F.Í. og formanna héraðssambandanna,
var haldinn í Reykjavík, dagana 23. og 24. sept. Sambands-
stjóri og ritari U.M.F.Í. gáfu skýrslu um störfin síðastliðið
ár og ennfremur fluttu þeir erindi um Umf. og íþrótta-
málin og Stefán Runólfsson frá Hólmi um norræna æsku-
lýðsmótið í Arvika síðastliðið vor. Þá var sýnd kvikmynd
frá landsmóti U.M.F.Í í Hveragerði. Það helsta sem gerðist
á fundinum var þetta:
Fannst moövilundarlans í Pústliússíra'ti.
kom aldrci til sjálfs sín os» andaðist eftir
tveggja daga veru í sjúkrahúsi
Nokkru eftir miðnætti aðfaranótt föstudagsins 15. sept-
cmber fannst Karl Guðmundsson, myndskeri, Sigtúni 37 í
Reykjavík, iiggjandi meðvitundariaus á götu i miðbænum.
Af slysalegri vangá fór lögreglan með hann I varðhalds-
klcfa í þeirri trú, að hann væri ofurölvi, og kom það fyrst
á daginn laust fyrir hádegi daginn eftir, að hann var nær
dauða en lífi. Var þá sóttur læknir og farið með hann í
sjúkrahús, og þar andaðist hann rösklega tveimur sólar-
hringum síðar án þess að koma nokkru sinni til meðvitundar.
íþróttamál
Ungmenna- og íþróttasam-
band Austurlands var falinn
undirbúningur að landsmóti
U. M. F. í. að Eiðum vorið
1952 og stjórn þess í sam-
ráði við U. M. F. í.
Gerðar voru tiil.ögur um i-
þróttagreinar þær, sem keppa
skuli í á landsmótinu. Birt-
ast þær í næsta hefti Skin-
faxa og ber þeim Umf. sem
Snæfell fer með
bátafisk til
Þýzkalands
Frá fréttaritara Tímans
á Akureyri.
í ráði er að Snæfell fari
með bátafisk til Þýzkalands
í þessari viku, og tekur það
fiskinn á höfnum við Eyja-
fjörð og á Húsavík.
Snæfell leggur sennilega
af stað til Þýzkalands á föstu
daginn, og verður þetta fyrsti' hætti og Ungmennasamband
fiskfvmurinn héða(n, er á Austur-Húnvetninga hefir
viljað gera breytingartillögur
að hafa sent þær stjórn U.
M. F. í. fyrir næsta sambands
ráðsfund, sem tekur endan-
lega ákvörðun um íþrótta-
gceinarnar.
Skorað var á héraðssam-
böndin að gangast fyrir hóp-
sýningum á héraðsmótum
sínum jafnt kvenna sem
karla. Ennfremur námsskeið
um fyrir dómara og starfs-
menn móta, til þess að þau
geti farið sem bezt og skjót-
ast fram.
Skorað var á öll Umf. sem
íþróttamannvirki eiga að
sjá á fullnægjandi hátt
um hirðingu þeirra og við-
hald.
Stjórn U. M. F. í. var falið
að halda námskeið fyrir leið-
beinendur í þjóðdönsum,
vikivökum og almennum
dansi.
Félags- og menningarmál
Héraðssamböndunum var
falið að athuga möguleika á
því að halda fræðslu- og
skemmtivikur fyrir viðkom-
andi héruð með svipuðum
markað kemur í Þýzkalandi.
Hefir fiskmarkaður verið góð
ur í Þýzkalandi að undan-
förnu, og verður fiskflutn-
ingunum haldið áfram. ef vel
tekst til með þennan farm.
Afli er heidur tregur í ver-
stöðvum í Eyjafirði, og eru
það mest trillubátar, sem
fiskveiðarnar stunda. Stærri
bátarnir eru margir farnir á
reknetaveiðar syðra.
gert undanfarin ár á Blöndu
ósi.
Stjórn U. M. F. í. var falið
að skipa þriggja manna
nefnd til þess að athuga,
hvort unnt sé að fá finnskan
þjóðdansaflokk til sýningar
hér á landi.
Samþykkt að U. M. F. í.
veiti Bandalagi íslenzkra leik
félaga styrk til þess að halda
(Framhald á 2. síðu.)
Höfuðkúpan brotin.
Að kröfu sakadómarans í
Reykjavík fór fram réttar-1
krufning á likinu, og við það (
kom í ljós, að höfuðkúpan var
brotin og mikið mar neðan-
vert á heilanum hægra meg-
in. Allmikið mar fannst einn
ig í höfuðsverðinum yfir
hvirflinum, einkum vinstra
megin. Er sýnt að Karl hefir
hlotið þungt högg á höfuðið,
en um rán hefir hins vegar
ekki verið að ræða, því að
veski hans með peningum í
var á honum, er hann fannst.
Þrír menn í anddyri
Eimskipafélagshússins.
Rannsókn hefir farið fram
í máli þessu, og lét rannsókn
arlögreglan í Reykjavík Tím-
anum í té niðurstöður henn-
ar í gærkvcldi. í henni segir
svo:
Klukkan að ganga þrjú um
rædda nótt var bifreiðarstjóri
á ferð 1 bifreið sinni í mið-
bænum, og var hann að svip
ast eftir manni, sem hann
taldi sig hafa séð undir stýri
bifreiðar, sem stolið hafði ver
ið um nóttina. Ók hann norð
ur Pósthússtræti og ætlaði
að ná i lögregluþjón í lög-
reglustöðinni sér til aðstoð-
ar. En hann gat eigi numið
staðar þar í strætinu vegna
annarra bifreiða, er þar voru.
Hann ók þvi norður á
Tryggvagötu, austur hana og
hringinn um Lækjartorg,
Austurstræti og Pósthúss-
stræti og nam staðar á Hafn
arstræti við hornið á lögreglu
stöðinni.
Þegar hann ók norður
Pósthússtrætið í fyrra
skiptið og framhjá Eim-
skipafélagshúsinu, beind-
ist athygli hans að þrem-
ur mönnum í anddyri þess
húss. Gekk einn þeirra
fram á þrepin og veifaði
til . bifreiöarstjórans, er
ekki skeytti því. En er bif-
reiðarstjórinn hafði .ekið
hringinn og numið staðar
á Hafnarstræti, .hraðaði
hann sér inn í lögreglu-
stöðina og varð þá ekki
var við þessa menn.
Karl finnst liggjandi
á götunni.
Bifreiðarstjórinn fékk þeg
ar lögregluþjón sér til fylgd- I
ar, og hröðuðu þeir sér út í
þeim erindum að hafa hend- |
ur i hári þess, er stolið hafði (
bifreiðinni.
Þegar þeir komu að bif-
reiðinni, sem bifreiðarstjór
inn var með, sáu þeir
mann liggja á gangstétt-
inni, framan við Eimskipa
félagshúsið, og telur bif-
reiðastjórinn, að hann
hafi verið einn þeirra
þriggja, sem hann . sá . í
anddyrinu rétt áður.
Mennirnir fundust ekki.
Þeir athuguðu manninn og
virtist þeim hann meðvitund
arlaus. Lögregluþjónninn, er
farið hafði út annarra erinda
hljóp yfir í lögreglustöðina,
sem er skáhallt .hinum meg-
in við götuna, og fékk þar
tvo lögregluþjóna til þess að
sinna hinum meðvitundar-
lausa manni, en hélt sjálfur
brott með bifreiðarstjóran-
um, bæði til þess að leita að
bílþjófnum og mcnnunum,
sem bifreiðarstjórinn hafði
talið sig sjá i anddyri Eim-
skipafélagshússins örstuttu
áður. Taldi bifreiðarstjórinn
sig örugglega þekkja annan
mannanna tveggja, er horfn
ir voru, enda hefði hann oft
séð hann clvaðan í miðbæn-
um. Þessi leit bar þó engan
árangur.
Karl settur í varð-
haldsklefa.
Lögregluþjóna|rnir tveir,
sem nú komu á vettvang,
báru hinn meðvitundarlausa
mann inn í lögreglustöðina.
Var þá klukkan tuttugu og
fimm mínútur gengin í þrjú.
Segir i rannsóknarskýrsl-
unni, að hann hafi virzt sofa
djúpum svefni og verið talinn
ofurölvi, þar eð engir áverkar
sáust á honum við athugun.
Segir svo orðrétt: ,,Síðan var
hann borinn ofan í varðhalds
klefa í kjallara lögreglustöðv
arinnar, lagður þar á svefn-
bekkinn, fötum hans hagrætt
og teppi breidd ofan á hann.
Um nóttina og morguninn
litu lögregluþjónar við og við
inn til mannsins. Svaf hann
stcðugt, og virtist ekkert ó-
eðlilegt við það, eins og á
stóð. Um klukkan níu um
morguninn var árangurs-
laust reynt að vekja mann-
inn, en þar sem hann hafði
verið færður í varðhaldið
svo áliðið nætur sem áður
segir, var talið rétt að lofa
honum að sofa lengur“.
Læknis vitjað um
hádegi.
Enn segir orðrétt í rann
(Framhald á 7. síðu.)
0
Leiðangur Arna
Stefánssonar við
jökulröndina
N.
Árni Stefnsson vélvirki og
förunautar hans er ætla að
freista þess að bjarga farmi
úr „Geysi", gistu í nótt í tjöld
um við jökulröndina, sunn-
anvert í Vonarskarði.
Var veður dágott þar efra,
en dimmt yfir. Nokkrar líkur
voru til batnandi veðurs og
munu þeir félagar þá hefja
för sína á jökulinn.
í skeyti frá leiðangrinum,
er Eggert Kristjánssyni stór
kaupmanni, varaformanni
Loftleiða, barst í gærkvöldi
og var sagt, að öllum leiðang
ursmönnum liði vel.
Veður hamlar
síldveiðum
Engir reknetabátar voru á
sjó í gær og í gærkvökli reru
heldur engir bátar, sökum ó-
hagstæðs veðurútlits. All at-
haínasamt er þó í verstöðvun
um þó engir bátar séu á sjó.
Er timinn notaður til að lag-
færa net og báta og undirbúa
söltunarstöðvarnar undir
nýja aflahrotu.
Bifreiðarslys
á Laugavegi
Á níunda timanum í gær-
kvöldi varð Stanley Jónsson,
sjómaður í Reykjavík, fyrir
sendiferðabil, R-463, innar-
lega á Laugavegi. Hlaut hann
meiðsli og var fluttur í Land
spítalann, og var verið að
rannsaka áverka hans í gær
kvöldi, er gengið var frá um-
broti Tímans.