Tíminn - 28.09.1950, Side 7

Tíminn - 28.09.1950, Side 7
213. blaff. TÍMINN, fimmtudaginn 28. september 1950. 7. Erlent yfirllt (Framhald af 5. síðu.) Útgjöld til landvarna voru þá áætluð 76,400 milj. rúblur, þ. e. 18,6% af útgjöldum ríkisins. Aft ur á móti voru „óviss útgjöld" 80,600 milj. rúblur eða 18,7% af heildarútgjöldunum. Það er óhætt að álíta með nokkurri vissu, að það, sem flokk að er undir óviss útgjöld rennur til hernaðarþarfa. Þess vegna er það ekki of hátt reiknað að 25—30% af heildarútgjöldum þjóðarinnar fari til hernaðar- þarfa. Til samanburðar má geta þess 1 að brezka þingið veitti 7,4% af þjóðartekjum til landvarna ár- ið 1949. Fjárhagsáætlun Sovétríkj anna sýnir vel fram á að fjórði hluti allrar framleiðslu þjóðar- innar fer beint eða óbeint til hernaðarþarfa. Samanlögð prósentutala fyrir öll útgjöld til hernaðar sýnir, að meirihluti allrar framleiðslu Sovétríkjanna fer til: 1. fram- leiðslu og byggingar verksmiðja fyrir þungaiðnað þ. e. óbeint til framleiðslu vopna, og 2. til beinnar framleiðslu vopna. Hafa Rússar kjarnorkusprengju? Allt, sem við vitum um fram leiðslu Rússa á kjarnorku- sprengju er það sem ég heyrði Molotov segja 1947 í ræðu, sem hann flutti við hátíðahöld í til efni af októberbyltingunni. Þessí frásögn gekk út á það, að kjarnórkusprengjan væri ekki lengur hulin ráðgáta eða leynd armál (þessum orðum var fagn að með húrra hrópum áheyr- enda). Þar að auki höfum við frásögn Trumans forseta að kjarnorkusprenging hafi átt sér stað í Sovétríkjunum. Það er samt ástæða til að halda að Sovétstjórnin hafi gert sitt ýtrasta og geri enn í þess- um málum og það riki sem ræð ur yfir allri framleiðslu og fram leiðslutækjum og vísindastofn unum í landinu, geti innan skamms tíma leyst þetta vanda mál. Leppríkin og Rússland. Sé spurt um, hvort leppríkin séu styrkur eða byrði fyrir Rúss land, er svarið: hvortveggja og þó er erfitt að segja nokkuð ákveðið þar um. Leiðtogar Sovétríkjanna vita vel, að fyrr í sögu Rússlands braut það undir sig meira land flæmi og fleira fólk en það gat ráðið við og hafði oft orðið að fórna miklu blóði til að halda saman hinu víðlenda ríki og hinum sundurleitu þjóðum. í þessu sambandi hefir Lenin komið fram með eítirtektarverð ar athuganir: „Við Stór-Rússar höfum aldr ei megnað annað en að gera þær þjóðir, sem við sigruðum, að þrælum“. í annað sinn er hann talaði um framkvæmd kommúnismans komst hann svo að orði: „Kommúnisminn krefst þess, að tveimur eða þremur kynslóðum sé fórnað, ef hann á að komast á.“ Báðir þessir spádómar Lenins staðfesta ein- mitt það sem er að gerast innan Sotvétríkjanna eftir styrjöldina. Jafnvel þó að fólkið í lepp- ríkjum Rússa hafi aðeins veika hugmynd um það, sem við köll um einstaklingsfrelsi og lýðræði er þar þó enn ein kynslóð, sem við kné mæðra sinna hefur lært að þekkja ást til ættjarð- arinn>r og um rétt persónu- frelsisins. 1 langan tima hafa Rússar sogið allan þrótt úr þessum þjóðum, gert fólkið að þrælum og tæmt auðlindir landanna til uppbyggingar Rússlandi sjálfu. Árangurinn hefur orðið sá, að Rússlandi hefur eflzt og hagur þess batnað, en leppþjóðunum hnignað stórum. Þegar þessi lönd eru tæmd að auðæfum, efnahagur þeirra niðurbrotinn og fólkið lifir í eymd, neyðist það til að taka skipunum valdhafanna mót- þróalaust. Þar sem fólkið í leppríkjun- um að áliti Rússa er ennþá ekki til að reiða sig á „póli- tískt“, er ekki hægt að reikna með þessum þjóðum, sem mik- inn styrk fyrir Rússa. Á hinn bóginn geta Rússar notfært sér mannafla þessara þjóða og framleiðslumátt þeirra, þó að hvorutveggja þurfi nákvæmt eftirlit. Hlutverk Kína. Spyrji maður sjálfan sig hvaða áhrif sigur kommúnista í Kína hefur haft á styrk Sovét ríkjanna, er óhætt að fullyrða að þau áhrif eru mikil, en hver þau áhrif verða í framtíðinni er ekki hægt að spá að svo stöddu. Ef ég hefi rétt fyrir mér í því, að Rússar hafi beint utan- ríkispólitík sinni að því að vinna Asíulöndin, er sigur kommúnista í Kína mikill sig- ur fyrir Sovétríkin, og opnar fyrir þau mikla möguleika til útþenslu og yfirráða í Tíbet, Jndo-Kína og Malaja. Aftur á móti er efnahagur Kina svo illa kominn, að hann þarfnast skjótrar hjálp- ar, en þá hjálp getur Rússland ekki veitt. Mér hefur oft dottið í hug, ef öll ríki, önnur en ríki komm únista hættu útflutningi t^l Kína yrði það að leita hjálpar Rússlands, sem ekki getur neina hjálp veitt að svo stöddu, mundi það tefja þau áform Rússa að ná yfirráðum í Asíu. Höfnðkúpubrotinn maður ... Togaradcilan og miðlunartillaga sáttanefndarinnar (Framhald af 3. síðu.) lögur fram að bera, sem geti staðist reikningslega, og séu sanngj arnari en tillögur sátta nefndarinnar. Þess vegna mun þjóðin krefjast þess, að reiknings- dæmi deiluaðilanna verði birt þegar í stað og undandrátt- arlaust. V. Fyrir útgerðarmennina á það að vera næsta auðvelt og i hefir allt af verið, að gera sér grein fyrir staðreyndum í þessum málum. Um fulltrúa | sjómannanna gegnir í raun 1 og veru sama máli nú orðið. Þeir hafa fulla aðstöðu til að , kynna sér reikninga margra bæjarútgerða. Kjörnir fulltrú ar hinna svonefndu verkalýðs flokka reka sjálfir þessar út- gerðir einir eða með fulltrú- um annarra stjórnmála- flokka. Þeir ættu að geta sagt til um það, hvaða kjör þessar útgerðir geta boðið, t. d. í Neskaupstað, Vestmanna eyjum, Hafnarfirði eða í Reykjavík. Ef til vill trúa meðlimir verkalýðssamtaka þeirra útreikningum betur en útreikningum sáttanefndar- innar. Þeir, sem mestu ráða um afstöðu deiluaðila og áfram- haldandi stöðvun togaraflot- ans, geta ekki vænst þess, að almenningur haldi stöðugt á- fram að sýna þeim umburð- arlyndi í þessu máli. Það glæfralega tiltæki að halda skipunum í höfn mánuðum saman um hábjargræðistím- ann og neita síðan allri mála miðlun, snertir þegar þjóðina alla svo tilfinnanlega, að ekki verður við unað. Þess vegna bíður almenningur þess nú með óþreyju, að þeir sem neitað hafa sáttum, leysi þetta mál tafarlaust, og á þann hátt að hægt sé að reka skipin og þeir, sem á þeim vinna geti við unað. Auglýsingasími Tlmans er 81300. (Framhald af 1. síðu.) sóknarskýrslunni: „Þegar komið var fram undir há- degi, án þess að hann vakn aði, var læknis leitað, og kom hann nokkru síðar. Lagði hann svo fyrir, að maðurinn yrði fluttur í sjúkrahús, og var hann fluttur í Landakotsspítala klukkan 13.30. Var þá sem hann svæfi djúpum svefni, og var andardráttur reglu legur“. Ferðir Karls um kvöldið. Um ferðir Karls Guðmunds sonar myndskera kvöldið áð- ur en þessi atburður gerðist, er allmikið vitað. Hann sást einn síns liðs við myndskurð arstofu sína að Laufásvegi 18, en frá því hefir ekkert um ferðir hans vitnazt, þar til hann fannst meðvitundar- laus í Pósthússtrætinu. Maðurinn, sem bílstjór- inn þekkir, ófundinn. Mikil leit hefir verið gerð að manni þeim, sem bifreiða stjórinn sá í anddyri Eim- skipafélagshússins og taldi sig þekkja. En sú leit hefir ekki borið árangur enn. Þykir líklegt, að sá maður geti veitt mikilvægar upplýsingar. Óskað eftir vitnum. Rannsókn í máli þessu held ur áfram. Rannsóknarlög- reglan væntir þess. að allir, er eitthvað vita um ferðir Karls eftir klukkan hálftólf að kvöldi hins 14. september, gefi sig fram, og alveg sér- staklega er skorað á menn þá, sem voru í anddyri Eim- skipafélagshússins á timan- um frá klukkan tvö til tvö tuttugu og fimm að gefa sig fram í skrifstofu hennar. Maður vel virtur af öllum. Karl heitinn Guðmundsson var 47 ára að aldrí, fæddur að Þinganesi í Hornafirði. Hann lætur eftir sig konu og einn son og aldurhnigna móð ur. Hann var hvers manns hug ljúfi, er honum kynntist, jafn an glaður og reifur og manna óáleitnastur. Hann var einn af fyrstu lærisveinum Ríkarðs Jóns- 1 sonar í myndskurði. Rak hann um langt skeið myndskurðar ' stofu hér í bænum og var manna listfengastur. I Karl var borinn til grafar í ReykjsMk í fyrradag, að við stöddu fjölmenni. I Lögin frá í fyrra, sem ekki erú framkvæmd. Það getur ekki hjá því far- ið, að þessi sorglegi atburður veki hið mesta umtal og þyki furðu sæta. í því sambandi hlýtur og að rifjast upp, að á þingi í fyrra var samþykkt löggjöf um meðferð manna, sem lögreglan tekur og hygg- ur með réttu eða röngu ölv- aða. Er þar gert ráð fyrir, að þeir verði ekki lengur faldir lögreglu til varðveizlu, held- ur komið í umsjá lækna. Var þetta meðal annars lögtekið með tilliti til þess, hve stund um getur verið erfitt að dæma um það, hvort maður er drukk inn, haldinn einhverri ann- arri eitrun eða orðið fyrir á- falli. Er sá slysalegi at- burður, sem hér hefir gerzt, órækt dæmi um það. En þessi löggjöf hefir ekki komið til framkvæmda, sjálf sagt vegna þess, að enn vant ar sltilyrði til þess, að henni verði fullnægt. Læknis sé vitjað, ef talin minnsta þörf. Tiðindamaður frá Tíman- um náði í gærkvöldi tali af lögreglustjóranum í Reykja- vík og spurðist fyrir um það, hvaða reglur giltu um það hjá lcgreglunni, hvenær vitja bæri læknis til manna, er settir væru í varðhald í kjall ara lögreglustöðvarinnar. Það er matsatriði varð- stjóra, svaraði lögreglustjóri. En ég hefi gefið ströng fyrir mæli um það, að læknis skuli alltaf vitjað, ef þess er talin minnsta þörf. Það kemur líka oft fyrir, að það er gert, en í þetta skipti hefir svo slysa- lega tekizt til, að það hefur því miður ekki verið gert. Um hin nýju lög sagði hann, að þau væru ekki kom in til framkvæmda, þar eð engin sjúkrarúm væru til handa þeim mönnum, er falla undir þau. Ilrcint loft I ntvarps- bygginguna Nýlega var mjög alvarlegt mál fyrir dómstólum Lund- únaborgar. Ekki ósnotur kona 28 ára gömul, hafði verið kærð fyrir að kasta múr- steini gegnum glugga útvarps byggingar. Hvers vegna hafði hún gert það? Jú — henni þótti út- varpið leiðinlegt, og hélt að það veitti ekki af því, þótt hreint loft kæmist inn i bygg inguna. Dómarinn velti málinu 1 lengi fyrir sér, en kvað loks upp úr um það, að „ekkert sérstakt væri að þessari ungu stúlku“, en áminnti hana um það að umgangast múrsteina varlega framveg- is. En lögregluþjónninn, sem handtók hana, hafði borið það, að hún hefði verið með tvo steina til víðbótar i tösku sinni. Hverjum skyldi þeir hafa verið ætlaðir? Fyrirm.yndarskóli Framhald af 8. slðu. inni til að hafa kennara tíma úr vetrinum. Drengirnir vildu gjarnan sauma. Þú hefir notað mjög vinnu bókagerð og vinnukennslu í skóla þínum? — Ég hef reynt það en oft- ast var erfitt um vik. Mjög torvelt hefir reynzt að afla vinnubókaefnis og aðstaða til vinnukennslu mjög lítil og frumstæð. Fyrsta veturinn lét ég drengina smíða ofur- lítið, en mest varð að gera j með vasahníf, eða öðrum, svipuðum áhöldum, því að j smíðaáhöld voru engin. Kon- an mín hefir kennt handa- vinnuna og lét hún drengina brátt fara að prjóna og sauma. Þeim féll ekki sem bezt við prjónaskapinn, en urðu brátt sólgnir í saumana og hafa ekki reynzt eftirbát ar telpna við það. Sumarið ótrúlega erfitt. — Er ekki mikill uggur í mönnum þar eystra við kom andi vetur vegna hinna dæmalausu óþurrka í sumar — Ég býst við þvi. Menn hafa þó verið að vona til þessa, að takast mætti að ná inn einhverju af hrakningum og hafa þó ekki væri nema einhverja jórturtuggu handa búfé í vetur. Daginn sem ég fór gerði þurrkflæsu og mun hún hafa haldist tvo eða þrjá daga. Einhverju hafa menn vonandi náð þá. En vatna- vextirnir og flóðin voru al- veg dæmalaus í sumar. Á sum um bæjum lá land svo undir vatni, að ekki varð kom izt að eða frá bæ. Á Þórsnesi í Hjaltastaðahinghá til dæmis flæddi Selfljót einu sinni svo yfir, að ekki varð komizt út af bæjarhólnum og hefði ekki verið fært þaðan nema á bát. Þetta var dagan sem hin ör- lagariku skriðuföll urðu á Seyðisfirði. .1 SKI PAllTCiCH O RIKISINS „ESJA“ vestur um land til Akureyrar hinn 3. n. m. Tekið á móti flutningi til áætlunarhafna á morgun og árdegis á laugardag. Farseðlar seldir á mánu- dag. „Herðubreið" austur um land til Bakka- fjarðar hinn 3. n. m. Tekið á móti flutningi til Hornafjarðar, Djúpavogs, Breiðdalsvíkur, Stöðvarfjarð- ar, Mjóafjarðar, Borgarfjarð- ar, Vopnafjarðar og Bakka- fjarðar á morgun. Farðseðlar seldir á mánu- daginn. Brávallabardagt í nýjum sið Þrír efnilegir drengir, 11, 9, og 8 ára, brutust nýlega inn 1 geymsluklefa við járnbraut arstöðina í Nottingham, þar sem geymd voru egg. Freist- ingin var mikil, og brátt hófu þeir skothríð mikla, og áður en þessum Brávallabardaga lauk, voru ellefu þúsund egg brotin, og heldur óþokkalegt um að litast á vígvellinum. TENGILL H.F. Heiði við Kleppsveg Sími 80 694 annast hverskonar raflagn- ir og viðgerðir svo sem: Verk smiðjulagnir, húsalagnir, skipalagnir ásamt viðgerðum og uppsetningu á mótorum, röntgentækjum og helmilis- vélum. LÖGUÐ fínpúsning send gegn póstkröfu um allt land. Fínpúsningsgerðin Reykjavík — Simi 6909 Köld borð og hcit- nr matnr aendum út um allan bæ, SlLD & FISKUR.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.