Tíminn - 03.10.1950, Blaðsíða 6
«.
TÍMINN, þriðjudaginn 3. október 1950.
218. blað.
Síml 81936
Svarta örin
(The Black Arrow)
Efnismikil og mjög spenn-
andi mynd frá Colombia.
Byggð á hinni ódauðlegu
sögu R. L. Stevenssons frá
Englandi.
J.OUÍS Hagwoth
John Blair
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
TRIPOLI-BÍÓ
Rebckka
Laurence Oliver
Joan Fontaine
Sýnd kl. 9.
Rocky
a
99
Skemmtileg og hugnæm ný j
amerísk mynd.
Aðalhlutverk:
Roddy McDowall
Nita Hunter
Sýnd kl. 5 og 7.
Sími 1182.
IIIUIMÍIMIIIIMIIIIMMIIIOIIItllllllinil
NÝJA BÍÓ
ÓVARIN BORG
Hin ógleymanlega ítalska
stórmynd, gerð af hinum
mikið umtalaða Roberto
Rosselini.
Aðalhlutverk:
Anna Magnani,
Aldo Fabrizzi.
Bönnuð innan 16 ára
Sýnd kl. 7 og 9.
Ungar systnr með
ástarþrá
Hin skemmtilega litmynd
með:
June Haver
George Montgomery
Sýnd kl. 5.
BÆJARBIO
HAFNARFIRÐI
1 hcimi jazzins
(Glamour Girl)
Ný amerísk söngva- og mús-
íkmynd.
Aðalhlutverk:
Virginia Gray,
Susan Reed.
Sýnd kl. 7 og 9.
ELDURINN
gerir ekki boð á undan sér.
Þeir, sem eru hyggnir,
tryggja strax hjá
Samvinnutryggingum
Vinsamlegast
greiðið
blaðgjaldið
til innheimtu-
manna
vorra.
TIMINi
111111111111111111111111111111111111111111110111111111111111111111111
1 Austurbæjarbíó j
„Tígris“-flng-
sveitin
(Flying Tigers)
Ákaflega spennandi amerísk |
stríðsmynd um hina frægu É
flugsveit, sem barðist með
Kínverjum í styrjöldinni við
Japan.
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 7 og 9.
DRAUGAHtTSIÐ
Spennandi og draugaleg
amerísk kvikmynd.
Aðalhlutverk:
Carl Switzer,
Rudy Wissller.
Sýnd kl. 5.
TJARNARBÍÓ
KRISTÓFER
KÓLUMRUS
Heimsfræg brezk stórmynd í
ðlilgum litum er fjallar um
fund Ameríku og líf og starf
Kólumbusar.
Aðalhlutverk leikur
Fredric March
af frábærri snilld.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
GAMLA BÍÓ
San Francisco
Hin fræga sígilda Metro I
Goldwin Mayer stórmynd, |
og einhver vinsælasta mynd, |
sem hér hefir verið sýnd. |
|
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Börn innan 12 ára fá ekki |
aðgang. |
HAFNARBÍÓi
Fósturdóttir
götnnnar
Ný sænsk stórmynd byggð á
sönnum atburðum.
Sýnd kl. 7 og 9.
Bönnuð innan 16 ára.
Ógnarslóðinn
| (Trail of terror)
I Spennandi ný amerísk Cow-
| boy mynd.
Aðalhlutverk:
Bob Steele
{ A-UKAMYND: Chaplin til
sjós.
Sýnd kl. 5.
Vatnsþéttir lampar og raf-
lagnir.
Raftækjaverzlunfn
LJÓS & HITI h. f.
Laugaveg 79. — Sími 5184
Gerizt
áskrifendur.
Askriftarslml:
2323
TIMINN
Erlent vfirlit
(Framháld af 3. síðu.)
samtaka. „Ég er óbetranlegur
bjartsýnismaður“ sagði hann
eitt sinn. Ekkert getur fengið
mig til að efast um framför
mannkynsins og lokasigur feg-
urstu hugsjóna þess. Að sjálf-
sögðu var hann einn af for-
ustumönnunum á San Franc-
isco ráðstefnunni þar sem drög
in voru lögð að stofnun Sam-
einuðu þjóðanna. Söguþekking
hans og hæfileikar hans að
skýra vilja og vonir alþýðunn-
ar endurspeglast í inngangsorð
um frumdraga stefnuskrár S.Þ.
Einu sinni enn mætti Smuts
sama tómleika í heimalandi
sínu og þegar hann kom þang-
að að stríðinu loknu hlaðinn
sæmd og heiðri fyrir störf sín
í alþjóðamálum. 1 kosningun-
um 1948 beið hann mikinn ó-
sigur. Þó að hann væri orðinn
78 ára gamall ferðaðist hann
um landið þvert og endilangt
til að berjast fyrir hugsjónum
sínum. En þjóðin sneri baki
við honum og studdi flokk þjóð
ernissinna undir forustu dr.
Malans, eftirmanns Hertzogs.
Mikið af því, sem Smuts
reyndi að byggja upp á sinni
löngu ævi liggur nú í rústum.
Þjóðabandalgið fór í hundana
og S. Þ. hafa ekki reynzt eins
og búizt var við, en þó er erfitt
að spá um framtíð þeirra enn.
í sínu eigin landi reyndi Smuts
að bræða saman Englendinga
og Búa en Malan gerir allt sem
hann getur Englendingum til
bölvunar og kyndir eld haturs
milli allra kynþátta í landinu.
Smuts reyndi að finna leið til
að minnka kynþáttahatrið og
veita þeim undirokuðu meiri
réttindi, en Malan stuðlar að
algerum skilnaði milli hvítra
manna, og svartra og Asíu-
manna. Stjórn þjóðernissinna
er komin í opinbera andstöðu
við Sameinuðu þjóðirnar út af
málum þýzku Vestur- Afríku.
Og glæsilegasta verki Smuts,
stöðu sambandsríkis Suður-
Afriku í brezka samveldinu er
teflt í tvísýnu, þar sem stjórn
Malans vill slíta sig úr tengsl-
unum eins og írska fríríkið.
Andúðin gegn þessum trúa vini
Englands er svo megn í Suður-
Afríku, að þegar hann varð
áttræður neitaði útvarpið að
flytja afma:liskveðjur þær, sem
honum bárust.
Seinni tíminn mun telja
Smuts mesta stjórnmálamann
brezka samveldisríkisins um
sína daga næst á eftir Churc-
hill. Báðir reyndu þeir það, að
aðdáun heimsins er ekki ein-
hlít til þess að vinna kosninga-
sigur í flokkadeilum heima-
landsins og maður, sem er
sjálfkjörinn forystumaður í
stríði dr stundum settur til
hliðar á friðartímum. Smuts
var langt á undan samtíð sinni,
og það mun koma í Ijós, að Suð
ur-Afríka ratar í raunir, nema
aftur verði snúið á þá braut,
sem Smuts markaði og heiðr-
aðar verði þær hugsjónir, sem
hann vann fyrir.
♦♦♦♦♦♦♦♦♦•♦♦♦♦♦♦
JöHN KNITTEL:
FRUIN A
GAMMSSTÖÐUM
119. DAGUR
«5!
WÓDLEIKHÚSID
Þriðjudag, kl. 20.00
1SLANDSKLUKKAN
★
Miðvikudag
ENGIN SÝNING
★
Aðgöngumiðar seldir frá
kl. 13,15 til 20.00. Daginn fyr
ir sýningardag og sýningar-
dag. Sími 80000.
Gerist áskrifendur að
3
tmanum
Áskriftarsimi 2323
Hann varð a ðgera allt, sem í hans valdi stóð til þess að
ná sem fyrst í Hauser lækni. Hann varð að bjarga lífi föður
síns, ef þess var nokkur kostur. Og enn hvatti hann hestinn.
Hér var niður brekku að fara, og vagninn flaug áfram og
tók loftköst. En svo kom hann að bugðu á veginum, og þá
kastaðist vagninn á stauragirðingu, sem þarna var. Hest-
urinn rykkti í, hjól flaug undan vagninum og hesturinn herti
sprettinn. Gottfreð sat enn í sæti sínu og reyndi að halda
aftur af hestinum, en réð ekki við hann. í næstu andrá
kastaðist hann af vaginum, skall á vegarbrúnina og valt
niður í skurðinn. En hesturinn æddi áfram með brotinn
vagninn í eftirdragi.
Ziiberli frá Lindarbrekku kom nokkru síðar akandi þennan
sama veg, og fór sér hvergi óðslega. Hann fann 'Gottfreð
Sixtus liggjandi í skurðinum.
— Gottfreð Sixtus! kallaði hann. Hvað hefir komið fyrir
þig? Fældist hesturinn! Það var ekki einleikið, á hvilíkri
fleygiferð þú geystist framhjá mér áðan.
— Ég ætlaði að sækja læknirinn, stundi Gottfreð. Faðir
minn er veikur, og ég ætlaði að flýta mér eins og ég gat.
— Einmitt, sagði Ziiberli og hjálpaði Gottfreð á fætur.
Ertu ekki beinbrotinn?
— Handleggsbrotinn. held ég, svaraði Gottfreð.
— Ég skal lyfta þér upp í vagninn minn, sagði Zuberli. Ég
er sjálfur á leið niður í Arnarbúðir og skal koma þér beina
leið til læknisins.
Zúberli lét hest sinn brokka rösklega. Klukkustund síðar
komu þeir í Arnarbúðir.
XXXIX.
Minna sat aðgerðarlaus í eldhúsinu og starði annars hug-
ar á gljáfægðan koparketilinn. í dag þurfti ekki að amstra
við morgunmat. Húsbóndinn var veikur, og allt var í upp-
námi. Enginn hugsaði um mat né kærði sig um mat. Lovísa
hafði verið send þrívegis til ráðsmannsins.
— Húsmóðirin bað mig að spyrja, hvort Gottfreð væri
kominn með lækninn?
— Nei — ekki enn. En hann hlýtur að koma á hverri
stundu.
Það var eins og lamandi farg hvíldi á öllum. Það virtist
vera vilji örlaganna, að húsbóndinn kveddi ættaróðal sitt og
fólk sitt. Dauðinn virtist á næstu grösum. Bóndinn á Gamms-
stöðum hafði drukkið og etið sig í hel.
Klukkan niu fór Röthlisberger aftur niður til Búhlers til
þess að spyrjast fyrir um Gottfreð Sixtus. Hann var mjög
alvarlegur á svip, er hann kom heim aftur. Hann spurði
þegar eftir Teresu. Hún kom skelkuð fram í dyrnar. Röthlis-
berger varð bylt við.
—- Gottfreð og læknirinn koma með lestinni, sagði Röthlis-
berger og sneri hattkúfnum vandræðalega á milli hand-
anna. Því miður verð ég að segja húsmóðurinni slæm tið-
indi. Gottfreð Sixtus varð fyrir slysi. Hesturinn fældist, og
vagninn brotnaði. Sjálfur er Gottfreð handleggsbrotinn, og
Hauser læknir segir, að honum líði illa. En það er búið að
gera að meiðslum hans, og þeir koma hingað áður en langt
um líður. Hann hlýtur að hafa ekið mjög hratt. Ég bauðst
til þess að sækja lækninn í morgun, en hann vildi endilega
gera það sjálfur.
Teresa starði agndofa á Röthlisberger.
— Við verðum að biða komu læknisins, stundi hún. Von-
andi getur hann bjargað lífi mannsins míns.
Röthlisberger varð seint um svar. Samúð hans með Teresu
var rík.
— Mér sýndist þáð strax í gærkvöld, að húsbóndinn væri
ekki heilbrigður, sagði hann lágt. Honum var þungt um and-
ardráttinn á leiðinni heim.
— Viltu senda vagn í járnbrautarstöðina, áður en lækn-
irinn kemur? sagði Teresa.
— Já — ég fer sjálfur, svaraði Röthlisberger, lét á sig
hattinn og gekk brott.
Þrek Teresu var'á þrotum. Húri gat varla stigið skref, án
þess að styðja sig við borð eða stól. Sú fregn, að Gottfreð
hafði handleggsbrotnað, virtist ekki hafa svo ýkjamikil á-
hrif á hana. Allfc var hégómi, samanborið við þann harmleik,
er hún hafði sjálf sett á svið. Hún reikaði inn í herbergi
sjúklingsins og opnaði gluggana. Það var mjög loftþungt
inni i herberginu. Én gluggahlerana opnaði hún ekki, því
að hún þorði ekki að sjá andlit manns síns við dagsbirtuna.
Hann var enn lifandi. Hún hafði leitað í alfræðiorðabók —