Tíminn - 24.10.1950, Blaðsíða 4

Tíminn - 24.10.1950, Blaðsíða 4
4, TÍMINN, þriðjudaginn 24. október 1950. 236. blað. „Miklir menn „Eins gat lifað sá í sjó, sem á þurru landi. Grund og kletta gegnum smó galdraskæður fjandi.“ Svo var kveðið um einn fornkappann. Hann kunni það herbragð, þegar líklegt var að komið yrði á hann höggi, að stinga sér i jörð- ina og koma svo annars stað- ar upp eða þar, sem menn áttu hans ekki von. í gærkvöldi fór ég að blaða í ísafold. Þar rakst ég á grein eftir Árna Ketilbjarnar í Stykkishólmi. — Jæja! Þarna skýtur honum þá upp núna, varð mér að orði. Ekki skal ég halda því fram, að margt sé sameiginlegt með þessum görpum, en ósjálfrátt datt mér þetta í hug, þegar ég i huganum leit yfir hinar póli- tísku veiðiferðir Árna. Lengi var hann Framsóknarmaður. Svo skaut honum upp í Þjóð- viljanum. Nú hefir hann hrifsað í „ýsuna“. Þjóðsagan segir okkur frá öðrum, sem hrifsaði i ýsuna, og að þess vegna beri hún svört merki. Skildi fara eins eftir átök Árna? Eigi veit ég hvort hann hefir enn verið í Alþýðu- flokknum, en það má þá sjálf sagt bráðlega vonast eftir hon um þar. Grein Árna er tvíþætt. Annar þátturinn og sá fyrir- ferðarmeiri er lof um þann flokk, sem hann nú telur sig til og þó sérstaklega einn mann innan flokksins. í þess- um þætti er nokkur sannleik- ur innan um grobbið. Hinn þátturinn er last um Kaupfé- lag Stykkishólms og Fram- sóknarflokkinn. í þeim er eng inn sannleikur, sem sennilega stafar af því, að Árni er nær- sýnn og sér þar af leiðandi sjálfan sig, þegar hann hygg- ur sig sjá aðra. Ég vil nú leyfa mér að gera athugasemd við þessa mikil- úðlegu grein. Lofið um Sigurð Ágústsson — hann á skilið lof fyrir margt — er sama tuggan og Árni flutti á stjórn málafundi í Stykkishólmi í fyrrahaust. Ég benti Árna þá á, að fylgi hans við Sigurð, væri eins og fylgi Gláms við Gretti, að hann ynni honum allt það ógagn, sem hann gæti. Ekkert getur betur stað fest þessi orð mín en sú grein Árna, sem ég hefi hér fyrir framan mig. Ekki er nú líklegt hljóðið í verkamönnum í Hólminum svona yfirleitt, þegar minnst er á atvinnumál, enda er þar lítið að gera núna og hefir reyndar verið í sumar. f sam- bandi við það má geta þess, að bátur sá, er lagði þar upp síld til frystingar nokkrum sinnum í sumar, flutti sig í aðra verstöð. þegar þar vár meiri aflavon, eins og títt er um þá, sem sjóinn sækja.Hafa því verkamenn í Hólminum enga atvinnu við þann afla. í frystihúsi Sigurðar, sem er stórt hús, hafa nú um skeið unnið tveir verkamenn, undir menn fastráðnir, sem er stjórnað af tveimur yfir- mönnum. Árni er annar undir maðurinn. — Létt mun þeim „séffunum“ að stjórna þeim dátanum". Enda er Árni áð- ur þjálfaður í undirmennsku í tveimur heimsálfum að minnsta kosti. ■Á Einn af hagyrðingum þjóð- arinnar komst svo að orði: Stjórnarvandinn hæfir hendi höndin andanum. erum við, Hrólfur minn“ Eftir Jónas Jóhannsson, Öxnoy Árni talar um hönd og dauðu hönd Framsóknar- flokksins. Að dauðu höndinni skal ég koma seinna. Hönd Árna er vinnusöm og dugleg, ef annars manns höf- uð stjórnar henni. Árni hefir við margt fengizt. Þar á meðal að láta sitt eigið höfuð stjórna hönd sinni. Vera sjálf stæður maður. Það var sorg- arsaga. Hún er ekki prenthæf. Skal nú nokkuð vikið að grobbi Árna. Bátaviðgerðarstöð er sjálf- sögð, þar sem um einhvern útveg er að ræða, enda mun bátaviðgerðarstöð Hólmara tæpast hafa verið byggð án styrkja eða lána annars stað- ar frá. Bátasmíðastöð var til í Hólminum á undan þeirri, sem nú er. Hún var við hæfi þeirra báta, sem þá tiðkuðust. Stöðin var einstaklingseign, en hafði þann góða kost, að þeir, sem smíðar þurftu að kaupa, báru af að greiða vinnulaunin. Þá er það rafveitan, sem Árni talar um „ásamt vélum, húsi og innanbæjarkerfi.“ Ó- já, einu sinni átti Árni mótor- vél, „ásamt sylinder, stimpli, krúmtappa, ventlum o. s. frv.“ Rafveita Stykkishólms mun vera með elztu rafveitum í kauptúnum þessa lands. For- vígismaður að því fyrirtæki var skæðasti andstæðingur Sjálfstæðismanna í kauptún- inu, Guðmundur Jónsson frá Narfeyri, sem er nú því mið- ur fyrir Hólmara, fallinn frá. Máltækið segir, að hægra sé að styðja en reisa. Þó hygg ég, að meira utanaðkomandi fé hafi runnið til endurreisnar þessa fyrirtækis, en hins upp- haflega kostnaðar þess. Barnaskóli, sem hefir nægt þörfunum á hverjum tíma, hefir verið starfræktur í Stykkishólmi siðan fyrir alda mót. Lengi var hann starf- ræktur í sama húsinu. Þegar það hús dugði ekki lengur, var keypt til skólans annað hús. Svo nefnt Sýslumanns- hús, stórt hús. Það brann að nokkrum árum liðnum. Þá var byggt steinhús eftir kröfum síns tíma. Bæði að kaupum Sýslu- mannshússins og byggingu steinhúss þess, sem skólinn er nú starfræktur í, var áður nefndur Guðmundur Jónsson, helzti frömuður. Síðan hefir verið byggt svonefnt leikfim- ishús. Ekki veit ég í hve nánu sambandi það er við lærdóm barna og unglinga. En hitt hefi ég séð, að það er nokk- urskonar „fáthús“ fyrir hina svonefndu betri borgara stað- arins. Vatnsveita Stykkishólms mun hafa farið af stað með meiri lánum og styrkjum en dæmi eru til um hliðstætt fyr irtæki. Þegar verkið var lið- lega hálfnað var gjaldið þrot- ið. Þá var leitað til fólksins um sjálfboðavinnu. Herör var uppskorin meðal kvenna sem karla. Að síðustu skyldi hver leggja heim til sín frá aðal- leiðslunni. Svo ’tók veitan upp á því að þrjóta. k Kaupfélagsþáttur Árna er gjörólíkur. Hann telur að öll fyrirtæki félagsins séu að fjara út. Svona umsögn er á alþýðumál'i kölluð vísvitandi lýgi. Á viðskiptamáli mun það vera kallað atvinnurógur af verstu tegund og er hegning- arvert. Allar starfsgreinar kaupfé- lagsins starfa enn í dag ó- J skertar, að undantekinni hraðfrystingu fiskjar, sem égi kem að síðar. Þetta veit hver' einasti maður hér um slóðir og Árni líka. Félagið hefir fært út verzlunarsvæði sitt,' en ekki dregið það saman. j Kaupfélag Stykkishólms var stofnað snjóaveturinn mikla 1920. Það var því 30 ára á öndverðu þessu ári. Félagið var uppbyggt af bændum. Verkamenn í Stykkishólmi komu þar ekki að. Það er svo annað mál, að á þessu starfs- tímabili félagsins hafa Hólm- arar smátt og smátt talið sér t hagkvæmt að verzla við félag. ið og gerast félagsmenn. Nú er svo komið, að einhver fjöl- j mennasta félagsdeildin er í Hólminum. Frystihús félagsins var byggt til frystingar á kjöti. Þegar fiskfrystingaraldan skall yfir, sóttu Hólmarar það fast, að húsið ræki frystingu fiskjar, til atvinnuaukningar í þorpinu. Bændur voru al- mennt andvígir þessu og töldu það utan við starfssvið félags ins, sem það og var. Vegna nauðsynjar var þetta þó tekið upp, enda voru Hólmarar, eins og áður er sagt, orðnir fjöl- mennir í félaginu. Nú hefir, eins og áður um getur, verið byggt stórt frysti hús af öðrum aðila. Hefir fé- lagið því séð sér fært að draga saman seglin á þessu sviði, sem hafði vakið óánægju með al fjölda félagsmanna. Árna hættir stundum til að vera glámsýnn og ferst þá illa bogamennskan. Óheppilega hefir hann skotið fram hjá markinu þegar hann talar um hnignun félagsins á 4—5 síðustu árum og kennir Fram sóknarmönnum um. Það ligg- ur nærri, að illgirnin veiti vitleysunni yfirgang og er þá langt til jafnað. Verzlunarsvæði Stykkis- hólms nær yfir nokkurn hluta Snæfellsnessýslu og nokkurn hluta Dalasýslu. Eins og al- þjóð er kunnugt, hefir Sjálf- stæðisflokkurinn lengst af verið sterkastur í þessum sýsl um báðum á pólitíska sviðinu. Innan félagsins eru auðvitað allra flokka menn, þó flestir telji sig til tveggja áður- nefndra flokka. í stjórn fé- lagsins hafa alltaf setið menn beggja þessara flokka. En ein mitt þessi 4—5 „hnignunar- ár“, sem Árni talar um, hafa Sjálfstæðismenn verið fjöl- mennari í stjórninni og for- maður stjórnarinnar verið úr þeirra hópi. Mundi Árna ekki holt að enduréta ælu sína áður en hann dregur boga næst? Heldur dofnar yfir Árna eftir því, sem á greinina geng ur. Engan lífsútveg sér hann arínan en þann, að Sigurður Ágústsson haldi honum við. Eins ferst honum í þjóðmál- unum. Það hefði mátt freist- ast til að halda að þessi hnakkakerti maður í upphafi máls síns, mundi koma með á- bendingar til bóta fyrst hann fór inn á þjóðmálasviðið. Það er hvergi að finna. Hann fer eins ríiðurlútur út og hanrí kom kertur inn. Félagið „þar“ í Stykkis- hólmi hræðlr menn, segir (Framhald á 6. síðu.) borgarinnar þessa daga ber víða mikið á bleikum laufum. Trén hafa fellt blöðin. Og þau liggja í hrönnum víða um götur. ; Ég vil minna garðeigendur á að sópa laufinu saman og bera 1 það inn í garða sína. Á götunni' er það aðeins rusl og óþrif en ! í garðinum verður það áburður.' Duftið á að hverfa til jarðar- J innar, þar sem það áður var.1 Hér fer saman hagsmunamál og hreinlætismál. Þetta sumar var gott skógar- gróðri. Víða þroskaðist mikið af reiniberjum í görðum. Rauðir klasarnir hanga enn á trjánum í sumum görðum. Annars stað- ar liggja berin í hrönnum ofan á moldinni. Annað hvort ættu menn að hirða berin og sjóða þau í mauk eða troða þau ofan í moldina, svo að upp af þeim ^ vaxi síðar nýir reyniviðir. Aldrei kann ég við að sjá þau visna ofan á moldinni. Einn hlut undarlegan sá ég í Þjóðviljanum i fyrradag. Blaðið var að miklu leyti hvatning til manna að skrifa undir hjá „Friðarhreyfingunni". Og þar standa feitletruð þessi orð frá „íslenzku friðarnefndinni". „Nöfn þeirra, sem skrifa und- ir, verða ekki birt, nema per- sónulegt samþykki komi til“. Hvað á þetta að þýða? Ég hélt þó, að gildi undirskrifta væri einmitt það, að menn tækju afstöðu, sýndu vilja sinn. Svona leynisöfnun er því líkust, sem grímuklæddir menn bæru spjöld í kröfugöngu. Auk þess er það óhjákvæmileg afleiðing þessarar tilhögunar, að aldrei er hægt að vita, hvort satt verð ur sagt frá fjölda undirskrift- anna. Annars ættu menn að hug- leiða það sem bezt þeir kunna, til hvers þeir eiga að skrifa und ir, ef svo á að fela undirskrift- ina. Það er bezt, að hver svari því svo sem hann kann. En gáið þið í Þjóðviljann í dag hvort „friðarnefndin" tilkynnir þar ekki að menn megi skrifa dul- nefni undir ávarpið. Rússagildi háskólans hafði verið í Sjálfstæðishúsinu um daginn og verður raunar að frí kennast frá nafni háskólans. Sigurður gamli Nordal kvað hafa verið skeinkjari þar til að kenna stúdentum hina fornu drykkjusiði háskólans, sem mörg um körskum hafa á kollinn steypt. En samkvæmt landslög um og stjórnarbréfi hefir það hvorki verið veitingahúsið né neinskonar skólafélag, sem vin ið veitti, hvernig sem þvi hefir verið háttað, en varla þarf að óttast að það hafi ekki allt verið að réttum lögum. „Öld vor spyr ekki um ástir né harma einstaklingsins", seg- ir í bókmenntagrein í Þjóðvilj- anum á sunnudaginn. Út af þessuni orðum mætti langt mál leggja. Þetta er í sjálfu sér skýr ingin á múgmorðum, skoðana- kúgun og afnámi persónufrelsis. Öld vor spyr ekki um ástir né harma einstaklingsins. Hann er aukaatriði. Öldin trúir á stefn- ur og isma. Þjóðir fleygja sér í fang kommúnisma og nazisma af ýmsu tagi. Og gáfaðir menn halda, að það sé einhver þroska leið. En allir erum við einstaklingar þó að við séum félagsmenn um leið. Sú öld, sem spyr ekki um ástir né harma einstaklingsins, fyrirlítur manninn. Sú öld, er eðlilega fjarstæð kristnum dómi, því að kristindómurinn boðar rétt einstaklingsins. Þess vegna þoldi Hitler ekki kirkj- una. Ríki hans þoldi ekki þá öld, sem spurði um ástir og harma einstaklingsins. Það er eflaust hægt að semja snjöll pólitísk rit. Sú list ein mun þó lifa, sem er mannleg. Það er viðhorfið til mannlegra tilfinninga, sem máli skiptir í heimi listanna eins og öðrum mannheimum. Ófreskjan, sem fyrirlítur tilfinningar manns- hjartans, er vágestur, sem aldrei sættist við menninguna. Menn- ingin og öldin, sem ekki spyr um ástir né harma einstaklings ins, hljóta að þreyta átök sín upp á líf og dauða. Viljum við bjarga menningunni verðum við að kenna samtíðinni — „öld vorri‘“ — að meta mannlegar tilfinningar, en þær eru alltaf tilfinningar einstaklinga. Starkaður gamli. «»*»»«««««****«*»*4«»«**»**«»»«»«»»**»»««*»i LÖGTAK Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík og að undan- gengnum úrskurði verða lögtök látirí frarn fara án frek ari fyrirvara, á kostnað gjaldenda en ábyrgð ríkis- sjóðs, að átta dögum liðnum frá birtingu þessarar aug- lýsingar, fyrir eftirtöldum gjöldum: Tekjuskatti, tekju- skattsviðauka, eignarskatti, stríðsgróðaskatti. fasteigna skatti, slysatryggingariðgjaldi, námsbókagjaldi og mjólkureftirlitsgjaldi, sem féllu í gjalddaga á manntals þingi 31. júlí 1950, almennu tryggingasjóðsgjaldi, er féll í gjalddaga að nokkru í janúar 1950 og að öðru leyti á manntalsþingi sama ár, gjöldum til kirkju og háskóla og kirkjugarðsgjaldi fyrir árið 1950, svo og lestargjaldi fyrir árið 1950, áföllnum og ógreiddum veitingaskatti, skemmtanaskatti, gjaldi af innlendum tollvörum, skipu lagsgjaldi, útflutningsgjöldum, skipaskoðunargjaldi, vitagjaldi, sóttvarnargialdi og afgreiðslugjaldi af skip- um, tryggingariðgjöldum af lögskráðum sjómönnum og söluskatti. Borgarfógetinn í Reykjavík, 20. október 1950, KR. KRISTJÁNSSON.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.