Tíminn - 24.10.1950, Qupperneq 6

Tíminn - 24.10.1950, Qupperneq 6
6. TÍMINN, þriðjudaginn 24. október 1950. 236. blað. María í Myllugcrðl (Marle paa Kvarngaarden) | Áhrifamikil og snilldar vell gerð sænsk mynd. 1 Aðalhlutverk: Vivica Lindfors, Edvin Adolpson. Sýnd kl. 5, 7 og 9. TRIPOLI-BÍÓ Sími 1182 INTERMEZZO Aðalhlutverk: Ingrid Bergmann Leslie Howard. Sýnd kl. 7 og 9. Tnmi litli Sýnd kl. 5. MinnniniiiniiiniiiiniiiiiiniuiiiHiiiimimnMmn NÝJA BÍO Konungurí útlcgð (The Exile) Ný amerísk æfintýramynd, skemmtileg og spennandi. Aðalhlutverk: Douglas Fairbanks jr. Paule Groset. Sýnd kl. 5, 7 og 9. BÆJARBIO HAFNARFIRÐI Nótt í IMevada Ákaflega spennandi ný am- erísk kúrekamynd í litum. Roy Rogers og grínleikarinn Andy Devine Sýnd kl. 7 og 9. Sími 9184. ELDURINN gerir ekki boð á undan sér. Þeir, sem eru hyggnir, tryggja strax hjá Samvinnutryggingum Nýja fasteigna- salan Hafnarstræti 19. Sími 1518 Viðtalstími kl. 10—12, 1—3 og 4—6 virka daga nema laugardaga kl. 10—12. Fasteigna-, bif- i reiða-, skipa- og j verðbréfasala M : I Bergur Jónsson [ = 3 | Málaflutningsskrifstofa § f Laugaveg 65. Sími 5833. f Heima: Vitastíg 14. Köld borð og heitur rnatnr sendum út um allan bæ. SÍLD & FISKUR Austurbæjarbíó MANON Ákaflega spennandi og djörf frönsk kvlkmynd. Aðalhlutverk: Cecile Aubry. Bönnuð börnum innan 18 Sýnd kl. 7 og 9. Draugurinn í Leynidal Sýnd kl. 5. TJARNARBÍÓ Kalikútta Afar spennandi ný amerísk sakamálamynd. Aðalhlutverk: Aian Ladd Wiliiam Bendix June Duprez Bönnuð innan 16 ára. Sýnd kl. 5, 7 og 9. GAMLA BIO Dansmeyjar í Hollywood Amerísk söngva- og dans- mynd, kvikmynduð á leik- sviði frægasta „Burlesque" leikhúsi Ameríku: „Follies of Los Angeles“. í aðalhlutverkinu: Aleene Dupree (frá „Follies Bergere", Paris) Sýnd kl. 5, 7 og 9. Bönnuð innan 16 ára. HAFNARBÍO SI ALLA Aðalhlutverk: Viveca Lindfors, Alf Kjelland (lék í .Glitra' daggir, grær fold“) Lauritz Falk. Bönnuð innan 12 ára. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Sala hefst kl. 11 f. h. Lokað nokkra daga breytinga. vegna Raftækjaverzlunln LJÓS & HITI h. f. Laugaveg 79. — Sfmi 5184 Gerizt áskrifendur. Askriftarsími: 2323 TIMINIV i ■♦♦♦♦♦♦♦»♦♦♦♦♦♦ f I Fasteignasölu j ( miðstöðin | i Lækjarg. 10B. Sími 6530 í | Annast sölu fasteigna, | Í skipa, bifreiða o. fl. Enn- | | fremur alls konar trygging f f ar, svo sem brunatrygging i f ar, innbús-, liftryggingar I | o. fl. í umboði Jóns J’inn- f f bogasonar hjá Sjóvátrygg- 1 | ingarfélagi íslands h. f. \ f Viðtalstimi alla virka daga f f kl. 10—5, aðra tíma eftir j | samkomulagi. „Miklir inenn . . . (Framhald af 4. slðu.) Árni. Lííið hefi ég heyrt um félag þetta annað en að það hafi verið stofnað sem ópóli- tlskt málfundafélag og gengu verkamenn í það hvar í flokki sem þeir stóðu. Innan skamms birti Árni fréttapistil um það 1 Morgunblaðinu og taldi það pólitískt sér í hag. Heyrði ég þá sagt, að allt fylgi hefði hrunið af því. Siðan eru liðin nokkur ár og hefi ég aldrei heyrt þess getið fyrr en nú í grein Árna. Árni gortar af vaxandi fylgi Sjálfstæðisflokksins í Hólm- inum og vitnar i því sambandi í síðustu hreppsnefndarkosn- ingar. Tímarnir breytast og mennirnir með, segir Árni í grein sinni. Kosningar hafa farið fram 1 Hólminum síðan Árni skrif- aði grein sína. Það voru kosn ingar til Alþýðusambands- þings. Árni stillti sér þar fyrst ur upp og hefir reyndar gert það áður við sömu kosningar. Þar gekk Árni hnakkakert- ur o gsigurviss inn, en sneypt ur og niðurlútur út. Hann fékk ein 17 atkvæði. Að lík- indum hafa það verið venzla- menn Árna, sem greiddu þessi atkvæði. Enda væni ég eng- an óvandabundinn mann um það athæfi. Kosningu hlutu, með yfir- gnæfandi meiri hluta, and- stæðingar Árna í stjórnmála- skoðunum. Þar af annar Fram sóknarmaður. Mikið afhroð hefir Sjálfstæðisflokkurinn1 goldið á svo skömmum tíma, ef fara mætti eftir þessum kosningum. Svo mun þó ekki vera. Það veldur oft nokkru um, hver maðurinn er. Árni talar um réttstígin spor stjórn arflokkanna. Þar á meðal auð vitað Framsóknarflokksins. Á öðrum stað talar hann um dauða hönd Framsóknar- flokksins. „Ja. Hann er bara að fara i gegnum sjálfan sig, eins og hann er vanur,“ segja menn. Eitt snjallræði hyggst Árni finna. Aldrei fór þó svo, að hann hefði ekki eitthvað fram að bera. Hann ætlar að þurrka Fram sóknarflokkinn út úr íslenzk- am stjórnmálum. Reistu þér ekki hurðarás um öxl kunningi. Gættu að þér. Þú ríst á móti allri félags málaþróun heimsins. Nei, það tekst ekki. Hitt er öllum Framsóknar- mönnum fagnaðarefni, að Árni er endanlega þurrkaður út úr Framsóknarflokknum. Svo mundu og allir flokkar kjósa fyrir sína hönd. Jónas Jóhannsson, Öxney. |g ÞJÓDLEIKHÚSID Þriðjud. ENGIN SÝNING Húsið leigt Guðrúnu Á. Símonar ★ Miðvikud. kl. 20.00 ÍSLANDSKLUKKAN ★ Aðgöngumiðar seldir frá kl. 13,15 til 20.00. Daginn fyr lr sýningardag og sýningar- dag. — Tekið á móti pönt- unum. — Sími 80 000. JOHH KHITTEL: FRÚIN Á GAMMSSTÖÐUM --------------- 136. DAGUR ----------------------- — Lofum þeim þá að taka mig fastan, ef þeir hafa upp- götvað, að ég er morðinginn, sagði hann við sjálfan sig. En þeir hafa auðvitað ekki uppgötvað neitt. Honum varð hugsað til Teresu og þess, sem gerzt hafði kvöldið áður. Þau höfðu verið lengi á fótum og talað saman, og hann hafði drukkið eina flösku af rauðvíni. Ef til vill hafði hann sofið betur þess vegna? Hann fór niður, og þá sá hann, að gamall frakki hafði verið lagður fyrir stólbak. Hann tók frakkann, skoðaði hann vandlega og lét hann síðan aftur á stólinn. Svo fór hann inn í eldhúsið. — Er hún Leónída, sem komin er? spurði hann Minnu gömlu. Mér sýnist frakkinn hennar vera þarna inni. — Leónída? Áttu við ljósmóðurina? — Er hún komin? spurði hann forviða. Lovísa kom inn í þessum svifum. — Ég vil tala við húsmóðurina, áður en ég fer, sagði hann við Lovísu. Hvar er hún? — Hún er í borðstofunni. Teresa og Leónída voru báðar í borðstofunni. Leónida var roskin kona, gráhærð og höfðingleg ásýndum. Hún hafði gegnt ljósmóðurstörfum í meira en þrjátíu ár. Hún breiddi undir eins út faðminn, er Gottfreð kom inn. — Guð minn góður! sagði hún. Þetta er þá Gottfreð. Það veit hamingjan! Nú hefi ég ekki séð hann í sex ár. Og það hefir svei mér tognað úr drengnum. — En þú ert alltaf eins, Leónída, sagði hann. Þú breytist aldrei. Hvaðan kemurðu? — Heiðveig sagði mér, að húsmóðirin hérna ætti sín von, og þá skrapp ég hingað frá Interlaken. Ég var einmitt að segja henni, hve vel ég hefði þekkt móður þina, og nú bað hún mig að hjálpa sér, þegar þar að kæmi. Hún leit bókstaflega ástaraugum til Teresu. — Það var sorglegt, að Anton Möller skyldi ekki lifa þá stund að sjá afkvæmi sitt. Honum þótti alltaf svo vænt um börn. Og sorglegt er það, þegar blessuðum börnunum auðn- ast ekki að sjá föður sinn. Ég vona, að móðirin bæti það upp. Hún vatt sér snöggt að Gottfreð og kinkaði kolli 1 sífellu. — Þú verður að vera faðir blessaðs barnsins. Teresa hló. — Hann verður hvort eð er einhvern tíma að annast sín eigin börn, sagði hún. — Hvenær fæðist barnið? spurði Gottfreð. Teresa roðnaði, og Leónída hló. Gottfreð fékk ákaft óttakast, er hann var farinn út frá þeim Leónídu. I — En það veit enginn, að ég er faðir barnsins, tautaði hann í sífellu. Ekki nokkur sál! Seinna um daginn svaraði hann fjölda bréfa, er honum höfðu borizt. En svo varð hann allt í einu magnþrota. Svart- ir deplar svifu fyrir augum hans. Hann lokaði augunum, stundi þungan og studdi hönd undir kinn. ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦< Aðalf undurii ‘i Sölusambands ísl. fiskframleiðenda Verður haldinn föstudaginn 10. nóvember n. k. í Hafnarhvoli, Reykjavík, og hefst kl. 10 árdegis. Dagskrá samkvæmt félagslögum. i; Sölusamband ísl. fiskframleiðenda Stjórnin Hjartanlega þakka ég öllum, sem glöddu mig með gjöf- f um, skeytum, heimsóknum og hlýjum handtökum á í 70 ára afmæli mínu. — Guð blessi ykkur öll. -Si. Guðbjörn Bjarnason, Hólmavík.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.