Tíminn - 02.11.1950, Page 2

Tíminn - 02.11.1950, Page 2
TÍMINN, fimmtudaginn 2. nóvember 1950. 244. blað 8. Jtá kafi til keiía útvarpib Útvarpið í kvöld: Fastir liðir eins og venjulega. Kl. 20,30 Tónleikar: Hambro og Zayde leika fjórhent á píanó (plötur). 20,45 Lestur fornrita: Fóstbræðrasaga; — upphaf (Ein ar Ól. Sveinsson prófessor). 21,10 Tónleikar (plötur). 21,15 Dag- skrá Kvenréttindafélags Islands Erindi: Gamalt og nýtt um skóla mál (Ragnheiður Jónsdóttir rit höfundur). 21,40 Tónleikar (plöt ur). 21,45 Frá útlöndum (Jón Magnússon fréttastjóri). 22,00 Fréttir og veðurfregnir. 22,10 Sin fóniskir tónleikar (plötur). 23,05 Dagskrárlok. Úr ýmsum áttum Aðalfundur Húnvetningafélagsins var haldinn í fyrrakvöld. Hannes Jónsson, fyrverandi al- þingismaður lét samkvæmt eig- in ósk af starfi sem formaður féiagsins, og var í hans stað kosinn Páll S. Pálsson lögfræð- ingur. Tveir meðstjórnendur voru kosnir — Friðrik Karlsson og Karl Halldórsson, en fyrir voru í stjórn félagsins Haukur Eggertsson og Finnbogi Ji'ilíus- son. Skemmtinefnd félagsins var kosin, og eiga sæti í henni Ólaf ur Pálsson, Sigríður Erlends- dóttir og Halldór Sigurðsson. Ýms mál, er voru til umræðu, urðu ekki útrædd á þessum fundi, og verður framhaldsaðal fundur síðar. Kristilegt ungmennafélag í llailgrímssókn. Fundur í kvöld kl. 8,30 i Gagn fræðaskóla Austurbæjar. (Ingi- marsskólanum) Sýndur verður fyrri hluti kvikmyndarinnar Björgunarafrekið við Látra- bjarg. Vetrarstarfið undirbúið. Gestir velkomnir, séra Jakob Jónsson. Háskólafvrirlestrar. Þórhallur Þorgilsson bókavörð ur mun flytja nokkra fyrirlestra í háskólanum um klassisk og suðræn áhrif á íslenzkar bók- menntir frá öndverðu til siða- skipta. í þessum erindum er ætlunin að ræða um þann skerf, sem latneskar og rómanskar bók menntir hafa lagt til íslenzkra bókmennta á ýmsum tímum, eða öllu heldur að segja frá því helzta í islenzkum bókmennt- um, sem beint eða óbeint má rekja til suðrænna fyrirmynda. Efnið er umfangsmikið, og það hefir ekki áður verið tekið til meðferðar í heild. Verður sá háttur á hafður að rekja sögu þessara suðrænu áhrifa eftir aldri hinna erlendu verka og jafnframt greint í stuttu máli frá bókmenntum hinna suðrænu þ.ióða í kringum þau verk, til glöggvunar á samhenginu. Get- ið verður hinna afleiddu, ís- lenzku ritsmíða eða þýðinga, prentaðra sem óprentaðra, eftir því sem tiltök eru og tilefni. rætt um tilurð þeirra og aldur og um höfunda eða þýðendur, ef kunnir eru. 1 niðurlagi þessa yfirlits verður svo leitast við að gera grein fyrir helztu einkenn- um þeirra tveggja löngu tíma- bila, sem straumhvörf siðaskipta aldarinnar marka svo glöggt í íslenzkri bókmenntasögu, að þvi er efn.i varðar. — Fyrirlestrarnir verða fluttir annanhvern föstu- dag kl. 6—7 í .1. kennslustofu háskólans, hinn fyrsti föstudag 3. nóvember. Öllum er heimill aðgangur. Cíbreíðid Timann Munið eftir bílstjórunum. Hinn kunni bifreiðastjóri Guðbrandur Jörundsson, sem annast hefir bifreiðarekstur um margra ára skeið og inörg- um er kunnur undir nafninu Dala-Brandur, sagðí eitthvað á þessa leið í hófi Ferðaféiags íslands á sunnudaginn var: „Ég er búinn að liafa mikil skipti við F. í. undanfarin átta ár og hef látið félaginu í té marga bíla og bílstjóra til ferðalaga. Það er eitt, sem ég hef sérstaklega tekið eftir í sambandi við þetta. Það er hve vel Ferðafélagið hugsar alltaf um bílstjórana í ferð- um sínum. Alltaf er hugsað um það, að þeir fái hressingu, máltíð, gistingu og annan beina eins og ferðafólkið sjálft“. Þessi orð mættu vel verða mörgum athngunarefni. F.f til vill eru það ekki allir, sem gæta þess nógu vel að hiúa að bílstjórunum í löngum ferða lögum. Menn muna kannske ekki alltaf eftir þeim. Öruggur, traustur og hress bílstjóri er þó höfuðnauðsyn hvers ferða- lags í bifreið, og til þess að svo sé verður að vera vel að honum búið á áningarstöðum. Þess vegna ætt.u allir þeir, sem taka langferðabíla á leigu til skemmtiferðalaga, að minnast orða Guðbrands og hugsa vel um bílstjórana sína. Úr Suðursveit. Síðustu viku hefir verið leið- indatíð í Suðursveit. En annars síðustu sumarvikurnar góðar og siðari hluti septembermánaðar, oftast stiilur og bjart veður. Bætti það verulega um heyskap en þó er heyfengur misjafn á bæjum, en alls staðar rýr. Og allt heyið er annað hvort hrak ið eða úr sér sprottið. Hvar eru skipin? Sambandsskip: M.s. Arnarfell lestar saltfisk fyrir norðurlandi. M.s. Hvassa- fell lestar salt í Ibiza. Ríkisskip: Hekla var á ísafirði í gær- kvöld á norðurleið. Esja er í Reykjavík. Herðubreið er í Reykjavík. Skjaldbreið er vænt anleg til Skagastrandar í dag. Þyrill er á leið frá Norðurland- inu til Reykjavíkur. Straumey var á Mjóafirði síðdegis í gær á suðurleið. Þorsteinn var í Vest manneyjum í gær. i Fimskip: Brúarfoss fór frá Ceuta 27. 10. til íslands. Dettifoss er í, Reykjavík. Fjallfoss er í Kefla- : vik. Goðafoss fer frá Siglufirði ! annað kvöld 2. 11. til Reykja- víkur. Gullfoss er í Kaupmanna höfn. Lagarfoss er í Reykjavik. Selfoss kom til Ulea í Finnlandi 25. 10. Tröllafoss kom til New York 31. 10., fer þaðan væntan- lega 7.—8. 11. til Reykjavíkur. Laura Dan fermir í Halifax um 20. 11. til Reykjavíkur. Pólstjarn an fermir í Leith 1.—2. 11. til Reykjavíkur. Heika fermir í Hamborg, Rotterdam ög Ant- verpen 3.—8. 11. Telur innrásina í Tíbet innanríkismál Kinverska stjórnin í Pek- ing hefir svarað orðsendingu indversku stjórnarinnar varð andi innrásina í Tíbet. Segir þar, að hún sé innanríkismál og komi engum öðrum við. Hér sé ekki um raunverulega I innrás að ræða, heldur aðeins i björgunarstarf og aðgerðir til að tryggja það, að Tíbet verði ekki notað sem herstöð óvin- veittrar þjóðar til árása á Kína. Indverska stjórnin svaraði orðsendingunni aftur og sagði að svar þetta væri ófullnægj- andi, þar sem engar skýring- ar væru gefnar á því, hvers vegna rofinn hefði verið sá samningur við Indland að leysa Tíbet-deiluna friðsam- lega og senda her inn í land- ið meðan sendinefnd var á leiðinni til samninga. Acheson utanríkisráðherra Barídarikjanna sagði í gær, að innrásin í Tibet væri al- varlegt áhyggjuefni, en hins vegar lægju ekki enn nógu ljósar fregnir um það, hvort hér væri um raunverulega á- rás að ræða. Útvarpið í Peking skýrði frá því í gær, að kínverski her inn hefði unnið mikinn sigur á her Tíbet um 400 mílur frá Lhasa og hafi þar falljð her- menn frá Tíbet svo þúsundum skipti. Fyrirlestur Næstkomandi sunnudag kl. 2 flyt ég fyrirlestur í Listamannaskálanum: Tillögur um atvinnumál í erindinu er leitast við að benda á úrræði í sumum af helstu atvinnu- og viðskiptavandamálum þjóðar- innar. KRISTJÁN FRIÐRIKSSON Söiusamband íslenzkra fiskífamleiðenda I | :: H ii biður alla félagsmenn, að gefa upp nú þegar, og eigi síðar en fyrir helgi, hve mikinn óverkaðan saltfisk þeir eigi. — Taka skal fram, hve mikill hluti fisksins er stórfiskur, 20 tommur og yfir. Þetta er nauðsynlegt vegna næstu afskipana. Sölusamband íslenzkra fiskframleiðenda. :: wtnimmiimiiiiimiiiaiiitamiimnngimnminiiiiiiiiiimiamiammuc' ♦$■ ♦♦ Nátturlækningafélag I íslands Happdrætti Heilsuhælisjóðs VINNINGAR: 1. Bólstruð húsgögn, útskorin 2. Silfurbúið kaffistell fyrir 12 3. Ljóslækningalampi 4. ELNA-saumavél 5. Hrærivél 6. Málverk eftir Eyólf Eyfells 7. Púði 8. Flugfar innanlands 9. Fimm hundruð krónur 10. Fimm hundruð krónur DREGIÐ 24. DES. FIMM KRONUR MIÐINN ornunt uecýi Rangar sakargiftir Það eru bílarnir, sem annars eru í ferðum milli Vífilsstaða og Reykjavíkur, sem flytja fólk frá Trípóiíbíó og niður í bæ á kvöldin. Bílstjóri, sem þarna á hlut að mali, kom á minn fund í gær, og var þungur á brúniija, því að hann hafði verið hafður fyrir rangri sök í bréfinu, sem birtist hér á þriðjudaginn. ! 1 bréfinu var því haldið fram, að á sunnudagsávöidið hefðu þrjár krónur verið teknar fyrir sætið frá bíóinu og niður á torg. Bilstjórinn sagöi: Fargjaldið er i ein króna, og hefir alltaf verið. Hafi svo ólíklega viljað til, að einhver manneskja hafi borgað | þrjár krónur, er um misskilning I að ræða og vangá, er gefið var til baka, og er þá leitt að ekjá skyldi fremur vera kvartað strax við bifreíðastjóra, í stað þess að rjúka'í biöð.: Bílstjórinn sagði ennfremur, að á þessum akstri frá Tripólí- bíói, sem ætti að vera fólki til þæginda, hefði verið byrjað í fyrra, er strætisvagnarnir stöðv uðust. Fargjaldið hefði verið á- kveðið ein króna með leýfi for- stjóra Strætisvagna Reykjavík- ur, og Vífilsstaðabílarnir hefðu síðan annast þessar kvöldferðir frá Trípólíbíói í fyrravetur og í allt haust. Gjaldið alltaf sama — jafnt í góðu veðri og vondu — ein króna. Við þetta er ekki miklu að bæta. Mér þykir leitt, að ég skyldi verða til þess að birta hér bréf, sem svo reyndist á mis skilningi byggt, og reyni að bæta fyrir það á þann eina hátt, sem ég get: með því að birta leið- réttingu í þessum sömu pistlum. J. II. Hjálpið okkur til að koma upp hæli fyrir sjúka Sölubörn komi á skrií'stofu NLÍ, Laugaveg 22 GóÖ sölulaun Konan mín og móðir okkar, ÁSA ÞORKELSDÓTTIR, Miðfelli, sem andaðist 28.' október verður jarðsett frá Þingvalla- kirkju laugardaginn 4. nóvember kl. 2 e. h. Húskveðja að Miðfelli kl. 11 f. h. — Eftir ósk hennar, eru blóm og kransar afbeðnir, en þeir, sem óska að minnast henn- ar, eru beðnir að láta Slysavarnafélag íslands verða þess aðnjótandi. Ferðir verða frá Bifröst kl. 9,30 f. h. og 1 eftir hádegi. Guðmundur Jónsson, Miðfelli, og börn. Auglýsingasími Tímans 81380

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.