Tíminn - 02.11.1950, Blaðsíða 5

Tíminn - 02.11.1950, Blaðsíða 5
244. blað TÍMINN, fimmtHdaginn 2. nóvember 1950. 5, ERLENT YFIRLIT: Konungar Svíþjóðar Svíar sakna Gustafs V. sem farsæls l>jó?S- Iiöfðiiiííja, en g'era sér |h> ekki síður vonir iiin Gustaf VI. Adolf mmm Miðvihud. 1. ttóv. Stefnt í rétta átt í fjárlagaræðu sinni gerði Eysteinn Jónsson fjármála- ráðherra grein’ fyrir nokkr- um breytingum í sparnaðar- átt í rekstri ríkisins. Sumar þeirra ráðstafana eru þegar- ar komnar í framkvæmd sem stjórnarráðstöfun en aðr ar hafa verið ákveðnar og koma, bráðum til fram- kvæmda. Til sumra þarf tagabreytinga og er alþingi nú að fjalla um nokkur frum vörp af því tagi. Fj ármálaráðherrann boðaði að sendiráðið í Moskvu myndi verða lagt niður og mun það spara fulla milljón króna. Hann gerði grein fyr- ir því, að yfirstjórn flugmál- anna myndi verða sameinuð hjá einum manni en nú eru embættin tvö og er annar forstjórinn kenndur við flug mál, en hinn við flugvelli. Enn gat ráðherrann þess, að ákveðið væri að sameina yfirstjórn áfengiseinkasölu og tóbakseinkasölu ríkisins. Embætti skattdómara myndi verða lagt niður og sömuleið is myndi ríkið hætta að iauna sérstakan loðdýrarækt arráðunaut. Um þetta. hvort tveggja liggja nú frumvörp fyrir Alþingi. Er ætlast til að héraðsdómarar vinni störf skattdómara en Búnaðar- félag íslands taki við störf- um loðdýraræktarráðunauts ins, án þess að bæta við sig nýjum starfsmönnum eöa skrifstofum Þá gerir fjárlagafrumvarp- ið enn fremur ráð fyrir því, að ríkið hætti að reka fasta vinnumiðlunarskrifstofu í Reykjavík og er komið fram á þingi frumvarp um að ieggja hana niður. Er þá ætl ast til að bæjarfélögin sjái sjálf um vinnumiðlun hjá sér, Reykjavík eins og önnur. Auk þessa er verið að eða búið að fækka starfsfólki í skrifstofum ríkisins um nokkra tugi. Munar þar að sjálfsögðu mest um þá breyt ingu, sem varð á skömmtun- arskrifstofunni, en auk þess er fækkað um menn hér og þar í stjórnardeildum og ríkisstofnunum. Þetta mun almennt þykja góð tíðindi og spor í rétta átt. Almenningur vill, að rekstur ríkisins sé gerður sem ódýr- astur. En hins er skylt að gæta, að öll hreyfing í sparn aðarátt er erfið og ekki fljót unnin. Þess er getið í fjárlagafrum varpinu, að fjármálaráð- herra hefir neinað ýmsum ríkisstofnunum um sam- þykki sitt til að fjölga starfs- fólki. Þannig er alltaf að verki nokkur tilhneiging til útþenslu í ríkisstofnunum og þarf staðfestu til að standa gegn því svo að fjár- hag alþjóðar sé ekki ofboðið. En þó er jafnan örðugra að leggja embætti niður en að standa gegn myndun nýrra embætta. Um hvert embætti sem rýma skal, standa löng- um átök. Menn vilja yfirleitt halda atvinnu sinni og eiga sér þá oft skjólstæðinga sem hafa tilhneigingu til að halda verndarhendi yfir þeim. Auk þessa verður fækkun starfsmanna yfirleitt ekki Aðfaranótt sunnudagsins lézt hinn aldurhnigni konungur Sví, Gustaf V. Með honum hné í valinn einn merkasti þjóð- höfðingi, er uppi hefur verið l síðari tímum. Hann var 92 ára, er hann lézt, en hafði þó gengt embætisstörfum fram til sein- ustu stundar, því að heilsa hans hafði reynzt óvenjulega traust. Á síðari árum lét hann þó krónprinsinn oft gegna störf- um fyrir sig. Fráfall Gustafs V. hefur vald ið þjóðarsorg í Svíþjóð og hefur þó eftirmaður hans unnið sér miklar vinsældir. Viðsvegar um heim hefir fráfalls Gustafs V. verið mjög veglega minnst. Æviferill Gustafs V. Gustaf V. var fæddur 16. júní 1848, sonur Oscars II. og konu hans, Soffíu af Nassau. Hann varð krónprins 1872, er faðir hans kom til valda. Noregur heyrði þá undir sænsku krún- un og var Gustaf því látinn stuntía nám bæði við háskcl- ann í Uppsölum og Osló. Hann ferðaðist og mikið á uppvaxtar árum sínum og fékk mjög al- hliða menntun. Hann gegndi fyrst störfum fyrir föður sinn 1877 og oft síðan, svo að hann var orðinn konungsstörfum van ur er hann tók endanlega við þeim eftir fráfall föður síns, í desember 1907. Árið 1887 gift ist hann Viktoríu prinsessu af Baden og eignaðist með henni þrjá sonu og eru tveir þeirra á lífi. Annar þeirra, Gustaf Adolf, hefur nú tekið við kon- ungdómi. Viktoría drottning lézt 1930. Vinsæll stjórnandi. Gustaf V. vann sér miklar vin sældir sem stjórnandi. Ilann stjórnaði á þeim árum, þegar lýðfrelsi fór sívaxandi og völdin drógust meir og meir úr hönd- um þjóðhöfðingjans. Hann sam ræmdi stjórn sína vel þesum breytingum, en á vissum stund um beitti hann þó hiklaust þjóð höfðingj arétti sínum, er hann taldi þess við þurfa. Einkum lét hann utanríkismál til sín taka. Hann fylgdi eindregið hlut leysisstefnu Svíþjóðar i báðum styrjöldunum. Hann var einn- ig fylgjandi samvinnu Norður- landa og gekkst því m. a. fyrir norræna þjóðhöfðingjafundin- um í Mahnö 1914. 1 síðari heims styrjöldinni greip hann og í taumana, þegar hann taldi hlut leysi Svíþjóðar í hættu, en jafn framt lét hann koma þeim orð um til Hitlers, að Svíar myndu verjast, ef á þá yrði ráðist. Á síðari árum styrjaldarinnar beitti hann áhrifum sínum við komið við, án þess^, að gera einhverja tilfærslu og taka upp nýja tilhögun í vinnu- brögðum. Allt slíkt kostar að sjálfsögðu talsverða. athugun og krefst síns tíma. Enn bætist það svo við, að menn eru ekki látnir íara fyrirvaraláust úr starfi. Af öllu þessu má það vera ljóst, að það kostar bæði vinnu og elju að fækka starfs mönnum hins opinbera og draga úr opinberum kostnaði og hlýtur auk þess að taka talsverðan tíma. Það fer alltaf bezt á því, að þjóðin geri sér ljóst við hvaða skilyrði starfsmenn hennar vinna. Ef almenning ur ætlast til þess, að eitthvað verði létt af ríkisbákninu, eins og það er stundum orðað verður hann að kunna að Þjóðverja til biálpar ýmsum föngum, meðal annars norsk- um stúdentum. Bændaförin 1914. Afskifti Gustafs V.,af stjórn- máluni Svíþjóðar gerðust sjald an opinberlega, því að hann beitti áhrifum sínum við stjórn ina, er honum þótti nauðsyn til bera. Aðeins einu sinni skarst hann í leikinn svo að um mun- aði. Fyrir fyrri heimstyrjöldina 1914 var almenningur í Svíþjóð mjög uggandi yfir því, að varn ir landsins væru ófullnægjandi. Um 30 þúsund sænskir bændur fóru þá í febrúarmánuði til Stokkhólms og gengu fylktu liði til konungshallarinnar og kröfð ust þess, að konungur beitti sér fyrir auknum vörnum lands ins. Konunugur tók bændum vel og hélt ræðu, þar sem hann lofaði að beita sér fyrir málum þeirra. Þáverandi ríkisstjórn baðst lausnar vegna þessarar af stöðu konungs. Hin nýja rikis- stjórn vann hinsvegar að því að auka stórlega landvarnirnar. Fyrst um sinn hlaut konung ur nokkra gagnrýni Vegna þess arar framkomu sinnar, en rás atburðanna sýndi síðar, að hann hafði rétt fyrir sér. Land varnarmálin voru jafnan eitt af helztu áhugamálum kon- ungs. Mikill íþróttagarpur. Vinsældir Gustafs V. byggð- ust mjög á því, að Svíar fundu, að hann var frjálslyndur og lýð ræðissinnaður þjóðhöfðingi, er gat þó veitt trausta forustu á örlagastundum. Það jók einnig vinsældir hans, að hann var mikill íþróttamaður. Hann var frábær skytta og fór oft á veiðar. Þó var hann enn þekk- ari fyrir tennisiðkanir og tók hann oft þátt í alþýðlegum teunismótum og vann þar fræga sigra. Gekk hann þá undir nafninu „Mr. G.“. Á sumri hverju dvaldi hann viss- an tíma í Suður-Frakklandi og iðkaði þar íþróttir sínar af kappi. Hann fór þangað í sum ar, og varð í þeirri ferð fyrst vart við þann heilsubrest, er dró hann til dauða. Eftir heim- komuna hresstist hann aftur og var allvel hress, unz hann veiktist skyndilega, er hann var á ríkisráðsfundi í seinustu viku. Hann reis ekki á fætur eftir það. Vinsældir nýja konungsins. Hinn nýi konungur Svía, er ber nafnið Gustaf VI. Adolf, hefur ekki síður unnið hylli þjóðar sinnar en faðir hans. Hann er 68 ára gamall. Eftir meta þá viðleitni, sem sýnd er í þeim efnum. Það starf er örðugra en svo, að hægt sé að ætlast til að nokkur maður vinni það, nema hann finni samúð þjóöarinnár í því sambandi. Ef almenningur vakir og al menningsálitið fagnar þeim byrjunarsparnaði, sem nú er að koma í framkvæmd hjá hinu opinbera, er þess að vænta, að þetta sé aðeins góS byrjun að allsherjar siðabót á vettvangi hinnar opinberu þjónustu. En stefnan þarf að verða sú, aö ríkiskostnaður- inn verði sem minnstur og flestir , vinni hin óarðbæru framleiðslustörf. Fámenn þjóð, eins og íslendingar þurfa að láta sem flestar hendur vinna að framleiðsl- unni. Gustav V. að hafa stundað nám í Upp- sölum, var hann um skeið í hernum, en síðar hefur hann einkum fengist við vísindastörf. fræðingur og fyrir áhuga sinn Hann er heimsfrægur sem forn fyrir öllu því, sem að fornleif- um lýtur. Fyrir störf sin á þessu sviði hefur hann verið gerður heiðursdoktor við ýmsa þekktustu háskóla í Bandaríkj unum, Bretlandi og víðar. Hann er einnig mikill listfræðingur og grasafræðingur, er fróður um bókmenntir og ritfær vel. 1- þróttamaður er hann góður og var um skeið forseti Iþrótta- sambands Svíþjóðar. Hann h>f ur að verðleikum haft það orð á sér að vera með fjölhæfustu gáfumönnum sem nú eru uppi. Starfsmaður er hann mikill og manna alþýðlegastur í fram- göngu. Vinsældir hans eru líka óvenjulega miklar. Gustaf VI. Adolf giftist 1905 Margaret prinsessu af Stóra- Bretlandi, en missti hana 15 árum síðar. Meðal barna þeirra er Ingrid Danadrottnig. Elzti sonurinn, Gustaf Adolf, fórst í flugslysi 1947, og er sonur hans, sem enn er kornungur, nú krón prins. Gustaf Adolf giftist aft- ur 1923 Lady Louise Mount- batten, systur Mountbattens flotaforingja og náfrænda Breta konungs. Raddir nábúanna Alþýðublaðið ræðir um inn rás kommúnista i Tibet i gær og segir m. a.: „Það er máski fátt, sem sýn ir betur svík Moskvakommún ismans við allar gamlar hug- sjónir sósíalismans, en sú breyting, sem orðið hefur á afstöðu hans til sjálfstæðis smáþjóðanna og til þjóðfrelsis yfirleitt, síðan byltingin fór fram i Rússlandi fyrir rúmum þrjátíu árum. Þá lét stjórn Leníns það vera eitt sitt fyrsta verk, að ljúka upp dyrum rússneska þjóöafangelsisins og láta lausa þaðan Finna, Eistur Litlendinga, Lithaugalands- menn og Pólverja, sem um langt skeið höfðu verið und- irokaðir af hinu.gamla rúss- neska keisaraveldi. Gerðu þá margir sér von um það, að rússnesku kommúnistarnir myndu reynast sjálfsákvörðun arrétti smáþjóðanna sterk stoð í framtíðinni; en sú von varð skammlíf. Nú, rúmum þrjátíu árum seinna, er stjórn Stalins búin að leggja undir ok Rússa á ný allar þær þjóðir se mLenin viðurkenndi frjáls sem Lenin viðurkenndi frjáls skildum; en þeir og allar aðrar nágrannaþjóðir Rússa lifa nú í stöðugum ótta um það, að röðin sé komin að þeim, að vera innlimaðar í hið nýja rússneska þjóðafang elsi.“ Alþýðublaðið segir ennfrem ur, að það sýni vel hræsni kommúnista, að á sama tíma og þeir skammist yfir „heims valdastefnum“ og , imperial- isma“, séu það kommúnista- ríkin ein, er fylgja slíkum yfirgangsstefnum í verki. Verðgæslan og neytendur Að tilhlutan Framsóknar- fiokksins varð sú breyting gerð á verðlagslöggjöfinni á síðasta þingi að verðlagseftir litið var lagt undir sérstakan verðgæzlustjóra, sem tilnefnd ur væri af fulltrúum nevt- enda. Tilgangurinn með þessu var að gera verðlags- eftirlitið óháðara hinum pólitísku stjórnarvöidum. Ungur maður, Pétur Péturs son, er unnið hefir hjá Lands smiðjunni og getið sér þar gott orð, hefir nú tekið við embætti verðgæzlustjóra. í greinargerð, sem hinn nýji verðgæzlustjóri hefir sent blöðunum hefir hann sérstaklega beint máli sínu til neytenda og óskað eftir samvinnu og aðstoð þeirra. Hann segir m. a.: „Það, sem ég vildi biðja alla neytendur um, er að láta skrifstofuna tafarlaust vita, þegar þeir verða varir við verðlagsbrot og reyna að stað festa umkvörtun sína, annað hvort með reikningi eða á annan hátt. Slíkar upplýsing ar verða tafarlaust teknar til athugunar og brotið kært til verðlagsdóms, ef um sök reynist vera að ræða. Ef fólki finnst einhver vörutegund vera óeðlilega dýr er alveg sjálfsagt að hringja til skrifstofunnar og fá upp Iýsingar um hvað verðið eigi að vera. Við erum einmitt hérna til þess að gefa slíkar upplýsingar, enda erum við fulltrúar neytendanna i þess um málum og tilnefndir af þeirra samtökum, og leyfum okkur því að vænta fyllsta stuðnings til að framkvæma þau verk sem okkur hefir ver ið falið að vinna“. Verðgæzlustjóri víkur síðar í greinargerð sinni að svarta markaðinum. og segir m. a. „Verðlagseftirlitið veit um nokkra menn, sem stunda þessa verzlun, en sannanir vantar enn til að kæra þá. Slíkra sannana er oftast ill- kleift að afla, nema með fullri samvinnu, samúð og skilningi neytenda. Ég vil leyfa mér að nota þetta tækifæri til að skora á alla þjóðholla og heiðarlega borgara að láta verðlagseftir litinu í té upplýsingar um þessa svokölluðu svartamark aðsbraskara, því dýrtíðin er sannarlega nóg, þótt ekki sé alin upp heil stétt manna, sem beinlínis lifir á því að fé fletta almenning og sem vissu lega á sér engan tilverurétt. Að endingu vildi ég segja þetta: Við, sem vinnum við verðlagseftirlitið, erum ekki mörg og eigum við ýmsa örð- ugleika að stríða. Aftur á móti er ég alveg sannfærður; um, að ef neytendur vilja rétta hjálparhönd, líður ekkl á löngu, þar til árangur næst. Þaö er betra að hafa ekkert eftirlit en máttlaust eftirlit. Það væri þó sannarlega ekki máttlaust eftirlit, sem allir neytendur stæðu einhuga að“. Undir þessi ummæli verð- gæzlustjóra er fyllsta ástæða að taka mjög öfluglega. Verð gæzlan getur því aðeins kom ið að tilætluðum notum, að neytendur veiti henni fulla aðstoð sína enda er það mest í þágu þeirra sjálfra, að það sé gert. Því verður að treysta að neytendur bregöist veli við framangreindum tilmælum verögæzlustjóra. X+Y.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.