Tíminn - 09.12.1950, Blaðsíða 6

Tíminn - 09.12.1950, Blaðsíða 6
TÍMINN, laugardaginn 9. desember 1959. 275. bJað Austurbæjarbíó Frn Mike í ræningjaliöndiim Aðalhlutverk: Bönnuð börnum innan 12 ára : Sýnd kl. 9. Jack La Rue Hugh Mac Beanough Andrew Traven t gini ljónanna Sýnd kl. 3, 5 og 7. Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9. Sala hefst kl. 11 í. h. Sala hefst kl. 11 f. h. TRIPOLI - BÍÓ TJARNARBÍÓ Siml un Vegir ástarinnar Á tiinffskveiðnm (To each his own) (Tuna Clipper) Spennandi og skemmtileg ný amerisk mynd. Aðalhiutverk: Roddy McDowall Hrífandi fögur ný amerísk mynd. Aðalhlutverk leikur hin heimskunna leikkona Olivia de Havilland Sýnd kl. 5, 7 og 9. ennfremur John Lund og Mary Anderson. NÝJA BÍÓ Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9. Sala hefst kl. 11 f. h. * Konnhefnd fl (A Woman’s Vengerice) '^SKIzSf GAMLABÍÓ i Ný amerísk stórmynd. Aðalhlutverk: Charles Boyer Ann Blyth Sýnd kl. 5, 7 og 9. Bönnuð innan 16 ára. Evja dauðans -; Aðalhlutverk: Boris Karloff Ellen Drew Sýnd kl. 5, 7 og 9. Litli dýravinnrinn Bönnuð innan 16 ára. Hin hugnæma og fallega mynd með Karl sem segir sex Joe S. Brown. með Leon Errol Sýnd kl. 3. Sýnd kl. 3. BÆJARBÍÓ HAFNARFIRÐI HAFNARBÍÓ í Ævintýralelt (Over the Moon) Rakari konundsins (Monsieur Beauharnais) Falleg og skemmtileg kvik- mynd í eðlilegum litum tek- in af Alexander Korda. Hin sprenghlæilega gaman- mynd. Aðalhlutverk: Aðalhlutverk: Merle Oberon Rex Harrison Bob Hope Sýnd kl. 7 og 9. Sími 9184. Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9. Fasteignasölu Askriftarsíral: miðstöðin 2323 Gerizt éskrifendnr. T IIW IIV IV Lækjarg. 10B. Sími 6536 Annast sölu fastelgna, skipa, bifreiða o. fl. Enn- fremur alls konar trygging ar, svo sem brunatrygglng ar, lnnbús-, líftryggingar o. fl. í umboði Jóns Flnn- bogasonar hjá Sjóvátrygg- ingarfélagi íslands h. f. : Viðtalstiml alla virka daga I kl. 10—5, aðra tíma eftlr Nýja fasteigna- 1 salan | | samkomulagi. Hafnarstræti 19. Simi 15181 Viðtalstími kl. 10—12, 1—3 j 3g 4—6 virka daga nema = laugardaga kl. 10—12. Fasteigna-, bif-1 reiða-, skipa- otf i verðhréfasala 1 Raflagnir — Vlðgerðir Raftækjaverzlunln LJÓS & HITI h. f. Bergur Jónsson | Málaflutningsskrifstofa | Laugaveg 65. Siml 5833. § Helma: Vltastig 14. | Laugaveg 79. — Síml 5184 | Ferðamenn ! { Lítið lnn. — Höfum i rafmagnsefni og leggjum | raflagnir. Seljum lampa = 1 og ljósakrónur með gler- I skálum. — Kðvað óttast for- stjóraflokkurinn? (Framhald af 5. siðti.) rannsóknarefni en margt hjá Ríkisútvarpinu. Vill Alþýðublaðið kannske ekki láta rannsaka launakjör in hjá Tryggingarstofnun ríkisins, en þau eru hjá öll- um yfirmönnum langtum hærri en hjá öðrum ríkis- stofnunum? Slíkt væri þó ekki ástæðulaust og ætti vissulega að lækka þessi laun til samræmis við það, sem annars staðar er, áður en far ið er að skerða tryggingabæt- ur til almennings. Má kann- ske ekki lækka þessi laun vegna þess, að svo einkenni- Iega hefir tiltekist, að yfir- mennirnir við stofnunina eru undantekningarlítið Alþýðu- flokksmenn? Óttast Alþbl. kannske rann sókn hjá Innkaupastofnun ríkisins? Kynni það kann- ske að koma þá í Ijós, að von- ir í sambandi við hana hafa ekki rætzt, heldur hefir hún aðeins orðið nýr aukamilli- liður milli ríkisstofnananna og heildsalanna? Óttast Alþýðublaðið kann- ske rannsókn hjá Útvegsbank anum? Kæmi þá kannske í Ijós, að hann hefir lánað meira til verzlana, bókaút- gáfu og prentsmiðja, en til útgerðarinnar á Vestfjörðum, sem Alþýðuflokkurinn þykist nú mjög bera fyrir brjósti? Það, sem hér hefir verið nefnt, sýnir að víðar getur verið pottur brotinn hjá rík- isstofnúnum en Ríkisútvarp- inu og því ekki meiri ástæða til þingrannsóknar á hendur því en ríkisstofnunum al- mennt. Sá ótti, sem virðist hafa gripið forstjóraflokkinn á AI- þingi, vegna þess að minnst hefir verið á almenna rann- sókn, ætti jafnframt að vera óbreyttum Alþýðuflokksmönn um vísbending um það, að erf ill verður fyrir flokk þeirra að vinna sér álit og tiltrú meðan þinglið hans er skipað mönnum, sem hafa metið það mest að koma sjálfum sér í opinberar forstjórastöð- ur, og hafa ekki rækt störf sín betur en svo, að þeir virð- ast ekki mega heyra minnst á almenna athugun á rekstri ríkisfyrirtækja. X+Y. JOHH KNÍTTEL: FRÚIN Á GAMMSSTÖÐUM 173. DAGUR Konn ofaukið (Framhald af 5. slOu.) og vandamál heUbrigðra manna. Andrés Björrsson hefir þýtt leikritið og virðist hafa gert það vel. Þó má athuga það, að hvorki cr tekiö djúpt eða grunnt í árinu, iieldur er árinni tekið i. dýpra eða grynnra teklð l sjóinn með árinni. II. Kr. TENGILL H.F. Heiði við Kleppsveg Simi 80 694 annast hverskonar raflagn lr og viðgerðir svo sem: Verk smlðjulagnir, húsalagnlr, skipalagnir ásamt viðgerðum og uppsetningu á mótorum, röntgentækjum og helmllts- vélum. Vtíreiíil Yífnahh ur maður — guðs þjónn. Manni dettur í hug heilagur Anto- níus. Hér gerði von Breíténwyl alllanga þögn, svo að allir gætu hugleitt þessa síðustu ályktun hans. Siðan hélt hann áfram: — Við rúm Antons Möllers var borð, og á þessu borði var flaska með lifrarsalti. Það væri fróðlegt að vita, hvenær hann notaði þetta meðal í næstsíðasta sinn — áður en hann lét inn fyrir 'varir sínar skammtinn, sem varð honum að aldurtila. En það vitnast auðvitað aldrei. En gerum okkur grein fyrir þvi, hvernig eitrið hefir komizt í flöskuna. Gottfreð Möller keypti eitrið I Basel. Það hafði verið kom- ið í veg fyrir, að hann neytti þess sjálfur. Síðan var hann árum saman á hrakningi, og loks kom hann heim að Gamms- stöðum. Nú hefir Teresa Möller tjáð okkur, að Gottfreð hafi eitt sinn sagt henni, að hann ætti í fórum sínum meðal, sem gæti létt af honum þjáningum lífsins. Litlu síðar sér hún jakka hans hanga á stólbaki. Hún leitar í vösunum. Hún finnur hvítt duft í bréfi, og hún ályktar réttilega, að þetta muni vera eitur. Hún tekur eitrið í sinar vörzlur og fer að • • lesa um ýmsar eiturtegundír í alfræðiorðabók. Nokkrum dög- um síðar verður Gottfreð þess var, að eitrið er horfið, og þá segir hún honum, að hún hafi tekið það og fleygt því. Hann trúir henni. Hann spyr aldrei framar um þetta. En hvað gerðist nú í sál Teresu Möller? Lífið er orðið henni óbærilegt kvalræði. Á aðra hönd er maður hennar — mið- aldra maður, sem gekk að eiga hana meðan hún var enn barn að aldri og lifsreynslu. Hann er þrjátiu og þremur ár- um eldri en hún — drottnunargj arn, duttlungafullur, þver- » lyndur, ráðríkur, hvorki fágaður maður né auðveldur i um-» gengni, en öðrum þræði traustur og mörgum dyggðum bú- inn. Teresa hefir játað það fyrir Langbein prófessor, ati hún hafði aldrei elskað Anton Möller, heldur reynt af fremsta megni að sætta sig við hjónabandið. Þyngst varð henni þó skauti dýrsleg girnd hans til hennar, og loks fór hún að reyna að gera sér í hugarlund, á slíkum stundum, að hann væri Gottfreð. En hana hryllti við þessari sjálfsblekkingu. Hinn megnasti viðbjóður fyllti sál hennar i hvert skipti sem maður hennar nálgaðist hana, og þegar hún komst að raun um, að hún var vanfær, gat hún ekki lengur afborið, að hann svo mikið sem ksemi inn í herbergi hennar. — Herrar mínir, sagði von Breitenwyl og brýndi röddina. Gerið þið ykkur ljóst, að Teresa Möller hefir orðið leiksopp- ur einlægrar ástar sinnar á Gottfreð Möller? Hún getur af hennar völdum ekki lengur umborið mann sinn. Hún á nú eitrið í fórum sínum, og þegar kvöl og kvíði og viðbjóður fyllir sál hennar á andvökunóttum, hvíslar rödd freistarans við eyra hennar: eitrið, eitrið — með því gat hún bjargað sér frá kringumstæðum, sem urðu henni sífellt þungbærari og hryllilegri. Hugur hennar er tkeinn að snúast um, hvernig hún geti orðið frjáls kona. Lífið á Gammsstöðum gengur sinn gang, meðan.þetta harða sálarstríð er háð. Maðurinn, sem hún getur ekki umborið, ásakar hana æ meir í blindni sinni. Og loks brestur boginn. Hún lætur til skarar skriða — hlýddi þeirri rödd sálar sinnar, sem hún gat ekki þaggað niður — hugleiddi'hálið ekki né lagði það niður fyri rsér. — Ég vissi, að ég var að gera það, sem ekki varð aftur tekið, sagði hún við Langbein prófessor. En ég gat ekki annað en gert það. Hefði hann ekki neitt eitursins þessa nótt, hefði ég gert það sjálf. Það, sem ekki varð aftur tekið, hafði gerzt. Hún ein veit með hvaða atvikum það varð. Flaskan stóð þarna og beið. Litlu siðar va^ Jefesa frjáls kona. Nokkru siðar sagði hún við Gottfreð, fivail hún hafði gert. Hann verður forviða, skelfdur — en hann fyrirgefur henni. Hvers vegna fyrirgef- ur hann henni? spyrjiö þið. Af því að hann ákærir sjálfan sig og tekur sökiria á sig. Hann segir við sjálfan sig, að hún hafi, ósjálfráð géfða sinna, drýgt þennan verknað fyrir á- hrif frá sér. Þetta yerk heföi aldrei verið drýgt, ef áhrif hans á hana hefðu ekki verið svona sterk. Allt þetta gerðist vegna óvenjulegra aðstæðna. Hvorugt þeirra var í því sálarástandi, sem heilbrigt getur kallazt. En smám saman fellur allt í eðlilegri skorður. Afleiðing þess er sú, að Teresa og Gottfreð Möller, sem elska hvort annað, gefa sig fram, reiðubúin til þess að bera að fullu og refjalaust þá þungu byrði, sem ást þeirra hefir lagt þeiin á herðar. Nú gerði von Breitenwyl stutta þögn. En svo hrópaði hann hárri röddu: — Herrar mínift Ég trúi því, að Teresa Möller hafi sagt satt'. Framburöur Gottfreös Möllers er ekki sannleikanum samkvæmur.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.