Tíminn - 15.12.1950, Page 8

Tíminn - 15.12.1950, Page 8
34. árgangur. Suðurherinn hrindir áhlaupi viðHungnam í gær urðu nokkur átök í nágrenni Hungnam, þar sem 10 kínversk herfylki sækja að hafnarborginni, þar sem brottflutningur liðsins frá Choshin-stíflunni fer nú fram Hrundu varnarsveitirnar á- hlaupum kínverska hersins í gær, en varnarhringurinn þrengist nokkuð og liggur nú 10—15 km. frá borginni um borgirnar Hamhung og Chi- gyong. Á miðvígstöðvunum urðu engin átök á landi í gær og er það 15. dagurinn í röð, sem svo er. Lofther beggja hafði sig. hins vegar mikið í frammi og gerðu flugvélar S.Þ. harðar árásir á herstöðvar norður- hersins. Kínverskar flugvél- ar höfðu sig töluvert í frammi og gerðu árásir á ýmsa staði skammt norðan 38 breiddar- baugs. Flugvélar þessar komu flestar frá flugvöllum í nánd við mynni Yalu-fljótsins. Hef ir norðurherinn ekki fyrr beitt svo mörgum flugvélum í einu. — desember 1950. 281. blað Attlee telur fótfestu S.Þ. í Kóreu örugga Chai'chill vottar atanríkisstofnu stjjónnr- ÍHiiar fylgi en vill lokaðan fiind eftir jól Attlee forsætisráðherra Breta hóf umræður um utanrík- ismál í neðri málstofu brezka þingsins í gær og ræddi fund sinn og Trumans forseta um daginn. Ræða hans var löng og töldu stjórnarandsfæðlngar, að fundur þeirra Trumans mundi hafa orðið íil mikíls gagns. Bretar hafa nýlega skipað nýjan sendiherra 1 Osló. Hann ncfnist Michael Wright og sést hér vlð skrifborð sitt í sendi- ráðinu í Osló skömmu efíir komuna þangað. Akureyringar taka við nýja togar- anum í dag Ætla að reyna að komast heim með liann fyrir jól Akureyringarnir, sem fóru með Svalbak til Bretlands til að taka við hinum nýja tog- ara Akureyr'nga, Harðbak, taka væntanlega við skipinu í dag. Þeir, sem veita því viðtöku eru Guðmundur Guðmunds- son framkvæmdastjóri togara útgerðarinnar og skipstjórinn Sæmundur Auðunsson, en þeir fóru báðir utan með Sval bak, ásamt sk'pshöfninni. Svalbakur seldi afla sinn fyrir rúmlega 7 þúsund ster- lingspund, en hann var með 2300 kitts. Er þetta því sæmi leg sala. Umferðatafir vegna snjóa í Eyjafirði Lótlaus stórhrífi þar í alian gærdag og allir vegir að verða ófærir I allan gærdag var stórhríð á Akurcyri, cins og víðast hvar I annars staðar á Norðurlandi. Umferð bíla mátli heita stöðv- I uð um bæinn í gærkvöldi, og illt útlit um mjólkurflutninga j með bílum úr héraðinu til Akureyrar. Mesti snjór það sem af er vetrarins. í Eyjafirði er nú mestur snjór, það sem af er vetrar- ins. Allir fjallvegir eru ófærir með öllu og undanfarna daga hefir færðin verið mjög erf- ið um héraðið á láglendi. í gær var norðan stormur og mikil snjókoma. Bættist því enn við mik'll snjór, svo gera má ráð fyrir mikilli ó- færð nyrðra í dag, ef ekki al- gjörri umferðarstöðvun bif- reiða um allan Eyjafjörð. Ófært um götur Akurevrar. Þegar tíðindamaður blaðs- ins átti viðtal við fréttaritara þess á Akureyri í gærkveldi var ennþá stórhríð og ófærð. Bifreiðaumferð var að kalla stöðvuð á götum bæjarins, en hafði áður verið mjög þung- fær undanfarna daga. Erfiðleikar á mjólkurflutningum. Mjólkurbílarnir, sem fóru út um héraðið í gær, komust sumir við illan leik til Akur- eyrar aftur, enda hafði færð in versnað stórlega meðan þeir voru í ferðum sinum. Ekki var þó orðið með öllu ó- fært í gærkveldi um héraðið, en héldi áfram að snjóa I nótt, var taliö að með öllu yrði ófært bílum um byggðir Eyjafjarðar. í dag. Teppist vegir munu bænd- ur reyna ýms ráð til að koma mjólkinni til Akureyrar og eru víða t’l hestasleðar, sem oft hafa komið í góðar þarfir við mjólkurflutningana að vetrarlagi. Víða að verða haglaust. Víða til sveita er nú orðið haglaust. Einkum gætir þess í uppsveitum austan Eyja- fjarðar. í lagssve'tum Þing- eyjarsýslu eru einhverjir hag ar enn, og sama er að segja um lágbyggðilr Eyjafjaíðar. Bjartsýnni á hcrfur í Kóreu. Attlee ræddi fyrst Kóreu- málin og samkomulag þeirra Trumans um þau. Sagði hann. að hin skyndilega ofureflis- sókn Kínverja í Kórcu, þegar herir S.Þ. voru í þann veg- inn að sigra til fulls árásarlið Norður-Kóreu, og koma á friði í landinu, heföi verið mikill hnekkir fyrir S.Þ. en þó sýndu atburðir síðustu tveggja vilcna, að staða herja S.Þ. væri sterkari en ætla mætti af leiftursókn Kín- verja suður á bóginn. Aug- ljóst væri nú orðið að sóknin hefði orðið norðurhernum of dýr, mannfall hefði verið meira en hann hefði þolað, og hann hefði ekki getað fylgt skyndisigri sínum eftir og misst af mikilvægum tæki- færum til framhaldandi sigra. Að sjálfsögðu hefði tap suð urhersins, bæði í mannafla og hergögnum verið mikið, en samkvæmt skýrslum Mac Arthurs síðustu daga, stæðu Hámarksverð sett Eldur í verzlunarhúsi 'á jólatré og greinar á Kársnesi í Kópavogi Miklar Nkeinm<lir á húsi og vöram Laust fyrir klukkan átta í gærmorgun urðu menn, sem áttu leið um Borgarholtsbraut á Kársnesi í Kópavogshreppi, l>ess varir, að eldur var í búðinni í öðrum enda hússins Borg- arholtsbraut 20. Var slökkviliðið kvatt á vettvang, en miklar skemmdir urðu á húsinu og vörum í búðinni, áður en eldur- inn varð kæfður. timbri og texi. Skemmdir á þeim endanum, sem búðin var í, urðu miklar, auk þess sem rífa varð af nokkurn hluta þaksins. Eigandi búðarinnar heitir Þorkell Sigurðsson. Eldsupp- tök eru ókunn, en svo virð- ist, sem eldurinn hafi verið kominn upp fyrir nokkru, er hans varð vart. Aðstáða slökkviliðsins var hin erfiðasta, því að þarna var ekkert vatn að fá til slökkvistarfsins, og varð það að notast við vatn, sem það hafði á slökkvibílunum. Þó tókst að ráða niðurlögum eldsins. Húsið var einlyft stein- hös, en þiljað im>p með Verðlagsyfirvöldin hafa á- kveðið hámarksverð á jóla- trjám þeim og grenigreinum, sem nú er verið að selja í bænum. Er verðið í smásölu á helztu stærðum jólatrjánna, sem hér segir: 0,60 — 1 metri kr. 27,00, 1—1,5 metrar kr. 30,00, 1,5—2 metra kr. 37,00 2—2,5m. kr. 50,00. Grenigrein ar má aðeins selja eftir vigt og er verðið kr. 6,75 í smásölu. Vcrðliækkun á kaffi Verðlagsyfirvöldin hafa auglýst nýtt hámarksverð á brenndu og möluðu kaffi og er það sem hér segir með sölu skatti: í heildsölu kr. 33,40 en í smásölu kr. 36,60. Ef kaffið er ekki í pökkum er verðið 40 aurum lægya. ,Kátir voru kariar’ eftir Steinbeck Bókin „Kátir voru karlar" eða sagan um Daníel og hirð- menn hans, sem nú er á ferð í þýðingu Karls ísfelds er ein af beztu bókum ameríska höfundarins John Steinbeck, sem löngu er kunnur hér á landi fyrir skáldsögur sínar. „Kátir voru karlar“ eða „Tor tilla Flat,“ eins og hún heítir á enskunni, var raunar sú bók, sem gerði Steinbeck fræg an rithöfund. Hún gerist í Mexikó og lýsir fyrirhyggju- lausum auðnuleysingjum,sem allt í einu verða auðugir og sýnir aðdáanlega vel,. hvern- ig auðurinn og allsnægtirnar verða þeim til óhamingju, sem ekki kunna með að fara og þeir finna ekki lífsgleði sína á ný fyrr en öllu er eytt. En auk þess að sýna þennan sannleika á svo eðlilegan og glöggan hátt, er sagan bráð- fyndin, frásögnin barnslega einlæg og töfrum slungin í senn. Ritsafn Gunnars Gunnarssonar Bókaútgáfan Landnáma, sem gefur út rit Gunnars Gunnarssonar í heild, mun á næsta ári gefa út nýtt skáld- verk eftir hann. — Fyrir ára- mót er ætlast til, að út komi af ritsafninu sögurnar Jörð og Hvíti-Kristur. Hingað til eru átta bækur komnar út. miklar vonir til, að her S.Þ. gæti haldið velli 1 Kóreu, og engin.hætta væri á, að hann yrði rekinn úr landinu þar sem honum hefði nú tekizt að taka sér trausta varnar- stöðu. Lausn verður að finnast. Ann'ars sagði Attlee, að nú virtist lokuð sú leið, að S.Þ. gæti komið á fríði og lýðræði í Kóreu með því að yfirbuga árásaraðilann, þar sem Kín- verjar hefðu nú komið hon- um til hjálpar, og því yrði að ganga að samningsborði við þá, en til þess að slíkir samn- ingar gengju að óskum væri sterk hernaðarstaða S.Þ. í Kóreu nauðsynleg. Formósa mesta vandamálið. Attlee sagði, að deilan \im Formósu væri eitthvert mesta vandamálið í dag, og þar sem Kínverjar hefðu nú rofið Kairó-samþykkt:na, þar sem þeir hefðu skuldbundið sig til að tryggja Kóreu sjálfstæði og gr:ð, væru samningar við þá um Formósu miklu erfið- ari, enda hefði Formósu-deil an myndazt vegna Kóreu- stríðsins og leystist af sjálfu sér, ef Kóreudeilan leystist. Þessi deilumál yrði að leysa að hefðbundnum hætti um lausn alþjóðlegra deilumála og til þess að svo mætti verða yrðu Kínverj ar að virða gerða samninga. Varnir Evröpu. Þá sagði Attlee, að annað aðaiefni Washington-fundar- ins hefði verið varnir Evrópu og hefði orðið fullt samkomu (Framhald á 7. síðu.) Gaflinn fauk úr birgðaskeramunni Frá fréttaritara Tímans í Reykhólasveit. Hið mesta íárviöri var hér um slóðir aðfaranótt síðast- liðins sunnudags, og mun veðurhæðin hafa orðið þrett- án vindstig á Reykhólum. Sprengdi veðrið járnklædd- an timburgafl úr birgða- skemmu tilraunastöðvarinn- ar þar. Mun þó lélegum frá- gangi byggingameistarans hafa verið um að kenna, að gaflinn stóðst ekki veðrið. Skemman fylltist af fönn, en verulegar skemmdir munu ekki hafa orðið á því, sem þar var geymt. IVýtt verð á benzíni Verðlagsyfirvöldin hafa á- kveðið, að verð á benzíni skuli vera kr. 1,51 hver lítri frá deginum í dag að telja.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.