Tíminn - 07.01.1951, Síða 2
TÍMIXN, sunnudaginn 7. janúar 1951.
5. blað.
JtvarpH
Útvarpið í dag:
8.30 Morgunútvarp. — 9 10
Veðurfregnir. 11.00 Morguntón-
ieikar (plötur). 12.10 Hádegis-
útvarp. 13.00 Erindi eftir Fred
Hoyle prófessor í Cambridge:
Sköpun og eðli alheimsins; T:
Jörðin og næsta umhverfi henn
ar (Hjörtur Halldórsson mennta
skólakennari þýðir og flytur).
14.00 Messa í Fríkirkjunni (séra
Þorsteinn Björnsson). 15.15 Út-
varp til íslendinga erlendis:
Fréttir. 15.30 Miðdegistónleikar
(plötur). J6.25 Veðurfregnir.
18.25 Veðurfregnir. 18.30 Barna
tími: 1 jólalokin (Baldur Pálma
soni. 19.30 Tónleikar: Píanó-
lög eftir Schubert (plötur).
19.45 Auglýsingar. 20.00 Fréttir
20.20 Tónleikar: Fiðlusónata í
F-dúr eftir Mozart (Ingvar Jón
asson og Ragnar Björnsson
ieika). 20.35 Erindi: Lista- og
menningarsetrið Chautauqua;
síðara erindi (frú Kristín Thor-
oddsen). 21.00 Samfelldir út-
varpsþætcir frá íslendingum í
Kaupmannahöfn (frú Inger
Larsen tók saman). 22.00 Fréttir
og veðuríregnir. 22.05 Danslög
(plötur). 23.30 Dagskrárlok.
ÍUvarpið á morgun:
8.30 Morgunútvarp. — 9.10
Veðurfregnir. 12.10—13.15 Há-
degisútúvarp. 15.30—16.30 Mið-
degisútvarp. — (15.55 Fréttir og
veðurfregnir). 18.15 Framburð-
arkennsla í esperanto. — 18.25
Veðurfregnir. 18.30 Islenzku-
kennsla; II. fl. — 19.00 Þýzku-
kennsla; I. fl. 19.25 Þingfrétt-
ir. — Tónleikar. 19.45 Auglýs-
ingar. 20.00 Fréttir. 20.20 Út-
varpshljómsveitin; Þórarlnn
Guðmundsson stjórnar. 20.45
Um daginn og veginn (Gylfi Þ.
Gíslason prófessor). 21.05 Ein-
söngur: Magnús Jónsson syng-
ur; við hljóðfærið Fritz Weiss-
happel. 21.20 Búnaðarþáttur:
Frá Grímsey og Vestmanna-
eyjum; — samtöl og frásagnir
(Gísli Kristjánsson ritstjóri
annast þáttinn). 21.40 Tónleik-
ar (plötur): Ballade í h-moll
fyrir píanó eftir Liszt (Louis
Kentner leikur). 22.00 Fréttir og
veðurfregnir. 22.10 Létt lög
(piötur). 22.30 Dagskrárlok.
Messur í daq
Messur í dag:
Ðómkirkjan: Messað á morg
un kl. 11. (séra Jón Auðuns) og
kl. 5 (séra Magnús Runólfsson).!
Fríkirkjan: Messað kl. 2. í
Barnaguðsþjónusta kl. 11. Séra
Þorsteinn Björnsson. I
Hailgrímskirkja: Messa kl.
11, séra Sigurjón Árnason.
Barnaguðsþjónusta kl. 1.30, sr.
Sigurjón Árnason. Messað kl.
5, séra Jakob Jónsson.
Laugarneskirkja: Messa kl.
2 e. h., séra Sigurbjörn Einars-
son predikar. Barnaguðsþjón-
x'sta kl. 10.15. Séra Garðar Svav
arsson.
Nesprestakall: Messa í kapellu
Háskólans kl. 2, séra Jón Thor-
arensen.
Hvar eru skipin?
Sambandsskip:
M.s. Arnarfell lestar saltfisk
fyrir norðurlandi. M.s. Hvassa-
fell er á Akureyri.
Ríkisskip:
Hekla fer frá Reykjavík um
hádegi í dag austur um land
til Siglufjarðar. Esja er á Au.l-
fjörðum á suðurleið. Herðubreið
fer frá Reykjavík á morgun til
Vestfjarða. Skjaldbreið var
æntanleg til Reykjavíkur í gær
kvöld frá Breiðafirði. Þyr:\l er
í Reykjavík. Ármann var i
Vestmannaeyjum í gær.
Félag Framsóknarkvenna í
Riykjavík hafði jólatrés-
fagnaó barna í Breiðfirð-
ingabúö í íyrradag. Sóttu
hann um 130 börn, sem
skemmtu sér mjög vel við
sö:ig og dans umhverfis jóla-
tré, komu og sögusagnir jóla-
sveins, myndarlegar veiting-
ar o. s. frv.
Að kvöldinu var skemmt-
un fullorðna fólksins, er fór
fram með miklu fjöri og á-
nægju.
Breiðfirðingabúð reka nú
systkinin Ingibjörg og Stein-
grímur, sem m. a. eru kunn
íyrir sinn vinsæla veitinga-
rekstur i Skiðaskálanum í
Hveradölum. Húsráðendur og
þeirra lipra og góða starfs-;
fólk átti sinn þátt í hve þessi
fagnaður tókst vel.
j En samkoman var til sóma
fyrir konurnar, sem að hennii
stóðu, og ánægju fyrir alla
þátttakendur.
i Eimskip:
• Brúarfoss kom til Kaup-
mannahafnar 3.1., fer þaðan
6.1. til Hull og Reykjavíkur.
Dettifoss er á Húnaflóahöfn-
um. Fjallfoss kom til Hamborg-
ar 6.1., fer þaðan til Rotterdam
Antwerpen og Leith. Goða-
foss fer frá Stykkishólmi í dag ‘
6.1. til Húnaflóahafna. Lagar- j
foss fór frá Rotterdam 4.1. til!
Gdynia og Reykjavíkur. Selfoss
fór frá Immingham 2.1. til
Reykjavíkur. Tröllafoss fór frá.
New York 28.12. til Reykjavík-
ur.
Ur ýmsum áttum
Góð sala.
Togarinn Maí frá Hafnar-
firði seldi afla sinn í Fleet-
wood á fimmtudaginn. S.eldi
togarinn 1326 kits fyrir 4689
sterlingspund.
Fuglalýs.
Þýzki vísindamaðurinn dr. G.
Timermann hefir ritað bækur
um íslenzka fugla. Eitt rann-
sóknarefna hans eru lýs og
snikjudýr á fuglum, meðal ann
ars til hliðsjónar við ákvörðun
á skyldleika fuglategunda. 1
grein, er hann ritar um þetta
efni i „Náttúrufræðinginn",
beinir hann þeim tilmælum til
bænda, veiðimanna og dýra-
lækna, að þeir veiti honum lið
við þessar rannsóknir, með því
að senda honum lýs, sem kunna
að finnast á spendýrum og
fuglum. Á fuglum er lýsnar
helzt að finna á höfðinu. Seg- |
ir hann að bezt sé að láta lýsn- |
ar í 70% alkohól, en annars
má láta þær lifandi í vel lok- '
að glas. Fundarstaðar og fund-
ardags óskast getið og nafn
þess dýrs eða fugls, sem þær
fundust á. Utanáskrift hans er
dr. G. Timermann, Borgartún
7 (fiskideild), Reykjavík.
Aaglýsingasíml
Timans
or 81300
Fintm hátar munu
I
róa frá Stokkseyri
i
Frá fréttaritara Tímans
á Stokkseyri.
Bátar hér eru nú að búa
sig undir róðra á vetrarver-1
tíðinni, en ekki er enn séð
hvenær róðrar hefjast. Héð-
an mun róa fimm bátar i vet
ur og er það einum fleira en
i fyrra. Fiskurinn verður
mestmegnis saltaður.
11
fi förnum tkfi:
Rauði hanínn galar
Það hafa oft orðið miklir brunar um jól og áramót
og bundið snöggan endi á hátíöagleði og skemmtanir
fólks, og stundum svo hastarlega, að þau sár hafa lengi
verið að gróa. Að þessu sinní þótti það vel sloppið. að
hvergi urðu miklir brunar á híbýlum manna um há-
tíðarnar.
Svo líða örfáir dagar. Þá verða á eins sólahrings
millibili tveir stórbrunar — að Ketiisstöðum á Völl-
um og á Selfossi — áður en vika er liðin af hinu nýja
ári. Tvö gistihús eru brunnin með miklu eignatjóni
öðru, og á öðrum staðnum nauðlegri björgun margra
manna, þar á meðal fjögurra barna.
★ ★ ★
Menn hljóta að staldra við slíkar fréttir. Það stendur
mörgum þungur beygur af eldi, allmargir eru þeir,
sem séð hafa mikið farast, þegar rauði haninn galar.
Mörgum verður sennilega lika nokkurt umhugsunar-
efni gifta Ingólfs Filipussonar, sem vaknaði einn
manna i glstihúsinu á Selfossi, öskammri stundu áð-
ur en eldurinn komst í algleyming, svo að hann gat
vakið hitt fólkið, sem var 1 fastasvefni og vissi enga
hættu vofa yfir. Ekki var það þó eldurinn eða reykur-
inn sem vakti hann. Hann vaknaði af tilviljun á réttrí
stundu, segjum við. Og svo getur hver haft sína skoðun
um það, hvað vakti hann.
★ ★ ★
En apnað hefir almennt gildi í þessu sambandi. Þaö
veit enginn, hvar brennur næst. Og það veit enginn,
hversu miklu tjóni eidur hann að valda, þar sem hann
kemur upp. Það er með öðrum orðum mikil áhætta að
vátryggja ekki eigur sínar, svo tíðir sem brunar eru.
Það ættu menn að hugsa um — áður en eldur veldur
tjóni hjá þeim.
J. H.
TILKYNNING
til útvegsmanna
varðandi aSsíoð oj»' skuidaskil skv.
lögum nr. 120, 28. des 1950, um aðstoð
til íitvegsinanna
Þeir útvegsmenn, sem rétt geta átt til aðstoðar eða
skuldaskila, skv. löguln nr. 120, 28. des. 1950, um að-
stoð til útvegsmanna, en sem ekki hafa sent umsókn
þar um til Skilanefndar, þurfa að hafa sent stjórn
Skuldaskilasjóðs útvegsmanna umsókn sína fyrir 15.
janúar 1951, ef þeir ætla sér að verða-aðstoðar aðnjót-
andi.
Gögn þau, sem umsókn þurfa að fylgja, skv. 2. og
16. gr. laga nr. 120, 28. des. 1950, um aðstoð til útvegs-
manna, þarf að póstleggja í síðasta lagi 25. janúar n.
k. Ber sérstaka nauðsyn til að sundurliða nákvæm-
lega skuldir og tilgreina eignir. Skortur tilskilda gagna
lilýtur að seinka afgreiðslu umsóknar og getur jafnvel
leitt til þess, að ekki verði hægt að sinna henni.
Geti umsækjandi sjálfur ekki gætt hagsmuna sinna
við skuldaskil og úrskurðun aðstoðarbeiðni, er nauð-
synlegt að hann tilkynni skrifstofu Skuldaskilasjóðs
sem allra fyrst, hver sé umboðsmaður hans.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar í skrifstofu
Skuldaskilasjóðs i Eimskiþafélagshúsinu simi 1553.
Reykjavík, 6. janúar 1951
Stjórn Skuldaskilasjóðs útvegsmanna
Auglýsing
Þeir, sem eru með hús i byggingu og vantar eldhús-
innréttingar og aðra skápa ættu að tala við okkum sem
fyrst. Verðtilboð gerð ef teikningar fylgja.
BYGGIR H.F.
Sími 6069 — Miklubraut/Háaleitisveg.
V erðlagsskrif stofan
\ f
\
• TILKYNNING • .
Fjárhagsráð hefir ákveðið að tilkynning ráðsins frá
30. des. 1950, um óbreyttan álagningargrundvöll skuii
halda gildi sínu fyrst um sinn, eða þar til öðruvísi
verður ákveðið.
Reykjavik, 6. janúar 1951,
Innflytjendur
M.s. Vatnajökull hleður vörur hingað heim frá Genúa
i fyrstu viku febrúar. Hefir einnig viðkomu á Spáni ef
um flutning er að ræða. Umboðsmaður í Genúa er
Hugötrumpy.
JÖKLAR H.F.
SÍMI 3589.