Tíminn - 12.01.1951, Side 7
9. blað.
TÍMINN, föstudaginn 12. janúar 1951.
7.
a
smurningsoliu
Að gefnu tilefni viljum vér
upplýsa, að raunveruleg á-
lagning á smurningsolíur til
skipa er nú ca. 23% en á aðr-
ar olíur ca. 35%, og er þetta
jafnframt heildarálagning,
þ. e. a. s., nær yfir bæði heild-
sölu- og smásöluálagningu.
Ennfremur viljum vér geta
þess, að yfirleitt er sama verð
á smurningsolíum um allt
land, og er því dreif ngar-
kostnaður, bæði í heldsölu og
smásölu, inn'falinn i álagn-
ingunni.
H. Benediktsson & Co.
Clíuverziun íslands h. f.
Olíusalan h. f.
II. f. „Shell“ á íslandi
Eisenhower keranr
til Osló í dag
Eisenhower flaug frá Haag
til Kaupmanhahafnar um
miðjan dag i gær, en ræddi
áður við hollenzka stjórn-
málaleiðtoga- í gærmorgun.
Ole Björn Kraft utanrík'sráð-
herra Dana tók á móti hon-
um á flugvellinum. Árdegis í
dag mun Eisenhower ræða
við dönsku stjórnina og yfir-
menn hers og flota, en síðdeg-
is í dag mun hann fara til
Osló.
Hann fer annað hvort með
öðrum bandaríska tundur-
spillinum, sem kom td Kaup-
mannahafnar í gær, eða flug
leiðis. Fari haÁm flugleiðis
er hann væntanlegur til
Gardemoen kl. 16,30 eftir
norskum tíma. Á morgun flýg
ur hann síðan til London og
leggur af stað frá Osló kl. 17.
Svarið til Rússa
senn fullgert
Ríkisstjórnir Breta og
Bandaríkjanna og Frakka eru
nú að leggja siðustu hönd á
svarið t'l Rússa. í því er fallizt
á þá tdlögu Rússa, að efna til
undirbúningsviðræðna til und
irbúnings fjórveldaráðstefnu
um Þýzkalandsmálin og sé
heppilegast að slíkar viðræð-
ur fari fram í París eða
London. Einnig er óskað eftir
nánari skýringum af hendi
Rússa um það, hvernig þeir
vilji að málin verði lcgð fyrir
á aðalráðstefnunni.
Sýslis- ®g séknar*
lýsingar
<Framnald af 4. siBtl.)
sér og birt á XVIII. bls. for-
málans, þar segir svo:
„Útgáfan er orðrétt, en
ekki stafrétt, það er að segja:
Orðalagi höfundanna er í
engu breytt, en réttritun vik-
ið til samræmis við núgild-
andi stafsetningu, eftir því
sem fært þótti.“....“ Staða-
nöfnum og örnefnum er
haldið óbreyttum, nema um
hreina rangstöfun eða staf-
setningaratriöi sé að ræða. T.
er Lángidalur og Túngna,
sem sumir hafa ritað, prent-
að með venjulegri stafsetn-
ingu.“
Og á XXII. bls. segir útgef-
andinn um fyrsta bindið:
„Tilhögun þessa fyrsta bindis
er að öllu leyti í samræmi við
grundvallarreglur þær fyrir
útgáfunni, sem greint hefir
verið hér að framan.“
Ef þessum reglum hefði ver
ið fylgt, væri fullnægt þeim
kröfum, sem gera ber til út-
gáfu sóknalýsinganna. Því
miður er ekki svo. Framh.
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦•♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦*<
Frá Húsmœðraskóla
Suðurlands, Laugarvatni
6 vikna námskeið í matreiðslu og handavinnu hefst í
skólanum 3. febr. n. k. — Umsóknir sendist forstöðu-
konunni, sem gefur nánari upplýsingar.
Forstöðukonan
Roiöi komsniinlsta
(Framhald. af 5. slða.)
og er vafalaust ódýrasta skrif
stofubyggingin, sem hér hef- j
ir verið reist á síðari árum,!
og sparar nú S. í. S. stórfé,
því að ella þyrfti það orðið
á miklu leiguhúsnæði að
halda. En óþarft er að hafa
þéssa upptalningu lengri en
þegar er orðið. Hún sýnir það
ómótmælanlega, að Vilhjálm
ur Þór hefir vel haldið áfram
því starfi, sem hann tók við
fyrir fimm árum, og þar hef-
ir síður en svo verið vikið
frá þeirri stefnu, er fyrirrenn
ararnir höfðu markað. Sjald-
an eða aldrei hefir samvinnu
hreyfingin eflst eins mikið á
fáum árum eða fært út starfs
svið sitt með glæsilegra hætti.
Það, hefir ekki verið samið
um neina kyrstöðu éða ein-
okun við keppinautana, held
ur sótt inn á starfssvið þeirra
og unnir þar nýjir sigrar.
Þetta hefir hinsvegar ekki
verið gert með neinum yfir-
gangi eða bolabrögðum, eins
' og í löndunum austan járn-
jtjaldsins, heldur hafa sigrarn
, ir verið unnir i drengilegri
1 samkeppni, þar sem yfirburð
ir samvinnunnar hafa fengið
að njóta sín.
Vitanlega eru þeir margir
fleiri en Vilhjálmur, sem
eiga þátt í þessum sigrum, og
sumir hafa verið undirbúnir
af fyrirrennurum hans. Hitt
er þó vist, að hlutur hans
hefir verið stærstur í þeim.
Vegna þess er fjandskapur
kommúnista við hann líka
sprottinn, því að kommúnist-
ar óttast og hata þá mest, er
vinna að raunhæfum umbót
um í þjóðfélaginu.
Ótti kommúnista
við kaupfélög'n.
Margt hefir farið á annan
veg en skyldi í þjóðfélaginu
á undanförnum árum. Af því,
sem farið hefir á betri veg,
má vafalaust ekkert frekar
j nefna en eflingu samvinnu-
! hreyfingarinnar. Með eflingu
| hennar og viðgangi hefir ver
j ið lagður varanlegur grund-
. völlur að bættum kjörum og
auknum áhrifum almennings
j í framtíðinni. í erfiðleikum
; þeim, sem nú fara í hönd,
■ beina menn ekki síst trausti
sínu til kaupfélaganna, sem
nú eins og áður eru vænleg-
ust til styrktar þeim, sem bág
asta aðstöðu hafa. Þetta er
líka ljóst þeim mönnum,
er vilja ríkjandi þjóðskipulagt
feigt og vilja nota erfiðleik-
ana til að koma á kommún-
istiskri 'kúgunarstjórn. Þess
vegna beina þeir nú árásum
sínum sérstaklega gegn sam-
vinnunreyiingunni og þeim
manni, sem nú er oddviti
hennar, Vilhjálmi Þór. Þeir
viija veikja samvinnuhreyf-
inguna og blása að sundrungu
og óánægju innan hennar. En
samvinnumenn þekkja þess-
ar vinnuaðferðir, og því munu
árásir kommúnista engin á-
hrif hafa. Þær verða sam-
v'nnumönnum aðeins aukin
hvatning til að herða sókn-
ina og íylkja sér íastar um
forustumanninn, er svo
glæsilega hefir sýnt, að hon-
ur er óhætt að treysta til fram
sækinnar og öruggrar forustu.
Afgreiðum
fyrirvara
með stuttum
Nouga-ístertur
rVouga-ístnrna
(skreytt)
RJÓMAÍSGERÐIN
Sími 5885
Skíðaferð
næstkomandi sunnudag kl. 9,
30 tij 10. — Fólk verður sótt
í úthverfi bæjarins á eftir-
talda staði :
Gatnamót Hringbrautar og
Hofsvallagötu kl. 9,25. Gatna-
mót Melavegar og Fálkagötu
kl. 9,30. Gatnamót Miklubraut
ar og Lönguhlíðar kl. 9,45. við
Sundhöllina kl. 9,50.
Gatnamótum Suðurlands-
brautar og Langholtsvegar kl.
9,25. Við jsunnutorg kl. 9,30.
Gatnamótum Laugarnesvegar
og Sundlaugavegar kl. 9,40.
Við Stilli, Laugaveg 168 kl.
9,45. —
Skíðafólk! — Klippið aug-
lýsinguna út og geymið, því
ferðum verður hagað svona,
það sem eftir er vetrar.
Ferðaskrifstofa ríkisins.
Velhýst jörð
á Vestur- eða Suðurlandi,
sem fengist með góðum
greiðsluskilyrðum óskast. —
Tilboð sendist blaðinu fyrir
n. k. mánaðamót, merkt ,.Góð
jörð.“
Innilegustu þakkir til allra, er auðsýndu samúð og
vinarhug við andlát og jarðarför mannsins míns og
föður okkar
BJARNA ÍVARSSONAR
Magndys Benediktsdóttir og börn.
,v.v%v
I
v \erzlunarmannafélafi Ileykjjavtkur
ji 1891 1951
27 .janúar 27. janúar
l 60 ára afmælishátíð
Verzlunarmannafélags Reykjavíkur verður haldin að
ji Hótel Borg, laugardaginn 27. þ. m. kl. 6 siðd. stundvis-
lega. — Pöntunum á aðgöngumiðum er veitt móttaka
í í skriístofu félagsins, Vonarstræti 4, sími 5293. — 5
Í 5
,■ Stjórnin. «,
5 >
vvvvvvvvvvvvvvvvv.v.v.v.v.vv.v.v.v.v.v.vv.vv.v.v
F.U.F. F.U.F.
Fundur í kvöld í Edduhúsinu kl. 9
Málshefjandi: Bergur Sigurbjörnsson, viðskiptafræðingur
Umræðuefni: Fjármál og verðlagsmál
Ungír framsóknarmenn fjölmennið á fundin. Allt framsóknarfólk velkomið
Stjórnin
íttt TL X TCtUTUXjTL tll TVl ni M tll tíL 7
Happdræt
ii nitAi fL rn rbiriúíVLThinúnúíbi rki fkinLtAi t
ríkissjóðs
Síðustu söiudagar
í dag og á morgun
Dragið á mánudag