Tíminn - 18.01.1951, Qupperneq 2
2
TÍMINN, fimmtudaginn 18. janúar 1951.
14. blað.
ÚtvarpÍð
Útvarpið í dag:
8.30 Morgunútvarp. — 9.10 Veð
urfregnir. 12.10—13.15 Hádegis
útvarp. 15.30—16.30 Miðdegisút-
varp. — (15.55 Fréttir og veður-
fregnir). 18.25 Veðurfregnir.
18.30 Dönskukennsla; I. fl. —
19.00 Enskukennsla; XI. fl. 19.25
Þingfréttir. — Tónleikar. 19.40
Lesin dagskrá næstu viku. 19.45
Auglýsingar. 20.00 Fréttir. 20.30
Einsöngur: John Mac Cormack
syngur (plötur). 20.45 Lestur
fornrita (Einar Ól. Sveinsson
prófessor). 21.10 Tónleikar (plöt
ur). 21.15 Dagskrá Kvenfélaga-
sambands íslands. — Erindi:
Um heimilisiðnað; síðara er-
indi (frú Helga Kristjánsdóttir
frá Þverá. 21.40 Tónleikar (plöt
ur). 21.45 Frá útlöndum (Þór-
arinn Þórarinsson ritstjóri).
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Sinfóniskir tónleikar (plöt
ur). 23.00 Dagskrárlok.
Hvar eru skipin?
Eimskip:
Brúarfoss er í Reykjavík.
Dettifoss fór frá Hamborg 15.1.
til Stettin, Gdynia og Kaup-
mannahafnar. Fjallfoss hefir
væntanlega farið frá Leith 16.1.
til Reykjavíkur. Goðafoss fer frá
Reykjavík kl. 13.00 í dag til New
York. Lagarfoss kemur til
Reykjavíkur um kl. 19.00 í kvöld
17.1. frá Kaupmannahöfn. Sel-
foss fór frá Reykjavík 15.1. vést
ur og norður og til Amsterdam
og Hamborgar. Tröllafoss fór
frá Reykjavík 15.1. til St. Johns
og New York. Auðumbla fer
væntanlega frá Antwerpen 17.1.
til Reykjavíkur.
Ríkisskip:
Hekla fer frá Reykjavík í
kvöld vestur um land til Ak-
ureyrar. Esja er í Reykjavík og
fer þaðan á laugardaginn aust-
ur um land til Siglufjarðar.
Herðubreið er á Austfjörðum á
norðurleið. Skjaldbreið fór frá
Reykjavík í gærkvöldi til Skaga
fjarðar- og Eyjafjarðarhafna.
Þyrill er væntanlegur til Reykja
víkur í dag. Ármann fór frá
Reykjavík í gær til Vestmanna
eyja.
Úr ýmsum áttum
Þjóðieikhúsið.
Islandsklukkan verður sýnd
í 44. sinn í kvöld.
Skaftfellingafélagið
heldur skemmtifund og spila-
kvöld í Breiðfirðingabúð í kvöld.
Skemmtunin hefst klukkan 8.30.
Húnvetningafélagið
heldur skemmtisamkomu í
Tjarnarkaffi föstudaginn 19.
þ. m., og byrjar skemmtunin
kl. 9. Til skemmtunar verður
kvikmynd: „Heyrt og séð úr
Húnaþingi“, spurningaþáttur
(konur), og dans.
Kvenstúdentafélag Islands
heldur f ramhalds-aðalfund
sinn í Aðalstræti 12 mánudag-
inn 22. þ. m. kl. 8.30. Að loknum
aðalfundarstörfum verður flutt
erindi um skattamál.
Stjórnin.
Blindravinaféíagi íslands
hafa borizt þessar gjafir frá
Á kr. 1000 áheit, frá gamalli
konu kr. 25 (sent í bréfi), frá
Heklu Jónsd. kr. 30 og frá konu
kr. 50. Þessum gefendum fær-
um við innilegar þakkir.
F.h. stjórnar félagsinS,
Þorsteinn Bjarnason.
hafi tií
Hæsta tréð.
Hæsta tréð hér á landi
mun nú vera lerkitré í Hall-
ormsstaðarskógi. Það er um
tólf metrar á hæð og tæpra
þrjátíu ára gamalt, þar sem
það nú stendur. Það er vita-
skuld í örum vexti, og á von-
andi eftir að vaxa ár frá ári
lengi enn.
Um langan aldur hafa ein
göngu vaxið tré af hinum
innlendu stofnum hér á
landi. En nú eru útlendu
stofnarnir að taka for^st-
una — trjátegundir, sem
menn hafa flutt hingað I
nýtt umhverfi, vitandi vits.
Þegar fram líða stui|Mr
munu enn nýjar tegundir
keppa við sigurvegarann í
ár um vöxt og prýði.
Vörubílstjórar
í Vestmannaeyjum hafa aflýst
verkfalli, sem þeir boðuðu, því
að samningar tókust milli
þeirra og atvinnurekenda, áð-
ur en til nokkurrar vinnustöðv-
unar kæmi.
Starfsstúlknafélagið Sókn
hefir sent bæjarráði Reykja-
víkur frumvarp að nýjum
samningi um kaup og kjör starf
stúlkna í sjúkrahúsum. ♦
Fnkirkjusöfnuðurinn
hefir skrifað bæjarráði bréfi,
þar sem rætt er um biðstæði
Hafnarfjarðarvagnanna, sem er
skammt sunnan við kirkjuna.
Bifreiðastjórafélagið Hreyfill
hefir sagt upp samningi um
kaup og kjör vagnstjóra hjá
Strætisvögnum Reykjavíkur.
Héruð S.-Þing.
í klakadróma
Frá fréttaritara Tímans
í Húsavík
Segja má, að allt sé nú í
klakadróma hér í öllu hérað-
inu. Alls staðar er haglaust
og allar skeppnur á innigjöf.
í fyrradag gerði smáblota, en
fraus aftur í gær. Eru því
hörð snjóalög á jörð. Óbíl-
fært er um alla vegi í sýsl-
unni. í gær var mjólk flutt
til Húsavíkur á sleðum úr
Reykjahverfi, og var það eina
mjólkin, sem þangað barst.
Lítið er róið, en reytingsafli
þegar gefur á sjó.
W.V.V.V.Y.'.V.V.V.'.V.V.V.V.V.V.W.'AVJViV.V.V.VV
l Frá Tónlistarfélaginu \
■; s
I; Styi'kíafíélagar al!ui»ið ;!
■* "■
Vegna þess að hingaðkomu pianóleikarans Paul
I; Baumgaríner seinkar, flytjast tónleikar hans aftur
I; um 1 dag, þannig: að tónleikarnar verða á föstudags- "«
og laugardagskvöld kl. 7. I;
;!! Aðgöngumiðar að tónleikunum, sem áttu að verða í I;
kvöld, gilda annað kvöld og föstudagsmiðarnir gilda I;
;■ á laugardagskvöldið kl. 7.
;! Opinbcrir tónleikar !;
■; verða á sunnudag kl. 3 í Austurbæjarbíó. Viðfangsefni ;■
;í eftir Schumann, Brahms og Beethoven. í;
í Aðgöngumiðar hjá Eymundsson, Blöndal og Bókum í;
’og rijföngum. í;
■: k :■
•.v.v.-.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.vv.v.v.v
1 DRYKKJARKER I
A fírHum ieqii
AFKÖST OG LAUN
Forustumenn landssamtaka verkalýðsins norska og
sambands atvinnurekenda í Noregi hafa nýlega látið
í ljós það álit sitt, að það myndi auka til muna vinnu-
afköst og framleiðslumagn og þar með skapa einstak-
lingum og þjóðarheildinni bætt kjör, ef takast mætti
að finna heppilegt form fyrir launagreiðslu, er miðuð
yrði við afköst og vinnugæði. Hefir vinstri flokkurinn
í Noregi tekið þetta mál á stefnuskrá sína, og umræð-
ur um það hafizt upp úr því. Bæði samtök v^rkalýðs-
ins og atvinnurekenda ætla að senda fulltrúa til þess
að kynna sér, hvernig gefizt hafa þær tilraunir, sem
gerðar hafa verið til þess að koma slíku kerfi á, þar
sem hver bæri úr býtum í samræmi við afköst.
★ ★ ★
Konrad Nordahl, formaður landssamtaka verkalýðs-
ins, hefir látið svo ummælt, að hann telji, að ákvæðis-
vinnu megi koma á miklu í stærri stíl en nú á sér stað.
En í ýmsum starfsgreinum er það ekki hægt, og þar
bíður sá vandi að finna það kerfi, er geri kleift að á-
kvarða réttlátlega, hversu meira afkastamikill maður
eigi að bera úr býtum, en hinn, sem miður vinnur.
★ ★ ★
— Við erum reiðubúnir, sagðir Nordahl í blaðavið-
tali, til þess að ræða og gera tilraunir um hvaða kerfi
eða fyrirkomulagsbreytingu, sem getur stuðlað að
auknum afköstúm og aukinni framleiðslu. Við erum
líka reiðubúnir til liðsinnis við allar athuganir, er geta
leitt til þess, að færri menn geti afkastað tilteknu
starfi en nú er. Slíkt þýðir annað tveggja möguleika
til betra kaups eða lægra vöruverðs eða hvort tveggja.
Hvort tveggja er verkamönnum og þjóðinni til hags-
bóta, einrtig fyrirtækjunum.
★ ★ ★
Erlandsen, formaður atvinnurekendasambandsins,
hefir einnig lýst yfir því opinberlega, að það væri mjög
æskilegt, að unnt væri að greiða fólki kaup eftir af-
köstum. Með venjulegu tíma- eða vikukaupsfyrir-
komulagi séu þeir, sem lítið gera og illa vinna, raun-
verulega styrktir af hinum, sem duglegir eru og leggja
mikið að sér. Á hinn bóginn virðist hann telja öllu
meiri vandkvæðum bundið að finna viðunandi grund-
völl fyrir nýtt skipulag um kaupgreíðslur heldur en
fram kemur hjá forsvarsmönnum verkalýðshreyfing-
arinnar.
★ ★ ★
En hvað um það. Þessi mál eru mjög rædd í Noregi
af fullkominni alvöru og skilningi. Ef til vill mun ein-
hverjum hér heima ekki þykja ófróðlegt að heyra um
slíkar hræringar erlendis. Og alveg vafalaust er það,
að ekki veitti okkur af því að finna úrræði, er stuðluðu
að betri vinnuafköstum og aukinni framleiðslu, ef ekki
á að koma verulegur afturkippur í þau lífskjör, sem
almenningur hefir átt við að búa nú um. hríð.
J. H.
eír aluminium
[yrirl i g'g* j andi
Verð kr. 132.00 >
ORKA h.f. I
w.
■_■■_■_■_■ ■ i
i ••■■■■• i
.*.■•■,
Fyrir janúarEok
Þeir kaupendur blaðsins sem enn skulda blað-
gjald ársins 1950, eru áminntir um að ljúka
greiðslu þess fyrir
janúarlok
Þeir, sem skulda blaðgjald ársins 1950 í byrj-
un febrúar, eiga á hættu að verða sviptir blað-
inu fyrirvaralaust í þeim mánuði.
Innheimta TÍMANS
.V.V.V.V.V.V.’.'.V.V.'.V.V.V.-.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.W
HANGIKJOT
— I*«ð heztu fáanlega —
selur
Samband ísl. samvinnufélaga
símar 4241 og 2678.
Frestið ekki lengur, að gerast
áskrifendur TÍMANS
Auglýsingasími Tímans 81300