Tíminn - 27.01.1951, Síða 1
......................
Ritstjóri:
Þirarinn Þórarinsson
Fréttaritstjóri:
Jón Helgason
Útgefandi:
tramsóknarflokkurinn
|-----------------------------—
35. árgangur.
Keykjavík, laugardaginn 27. janúar 1951.
Skrifstofur i Edduhúsinzi
Fréttasimar:
81302 og 81303
Afgreiðslusími 2323
Auglýsingasimi 81300
Prentsmiðjan Edda
22. blai
Sakir Þjóðviljans á
Olíufélagið reyndusf
tilhæfulausar með öliu
Verögæzlustjóri hefir nú lát ð fara fram rannsókn á
sanngildi sakargifta þeirra, sem Þjóðviljinn bar á hend-
ur Olíufélaginu h.f. um verðlagsbrot og ranga álagn-
ingu á olíufarmi, sem fluttur var inn um það leyti sem
gengislækkunin var gerð. í gær barst Tímanum eftir-
farandi tilkynning frá verðgæzlustjóra um þetta mál, I
og er þar skýrt frá því, að sakargiftir Þjóðviljans hafi
reynzt uppspuni frá rótum.
Tilkynning verðgæzlustjóra:
„Síðustu dagana í marz-mánuði síðastl ðinn, lét J
þáverandi verðlagsstjóri fara fram athugun á því,
hvenær rétt væri, að nýtt verð á benzíni og olíu 1
gengi í gildi hjá olíufélögunum, vegna gengisbreyt- ;
ingarinnar og verðhækkunar á heimsmarkaðinum.
..Ragnar Ólafsson, hæstaréttarlögmaður og lög-
giltur endurskoðandi, framkvæmdi þessa athugun
í umboði verðlagsstjóra. Að lokinni þeirra athugun
var olíufélögunum heimilað að setja nýtt verð á
vörur sínar frá og með 1. apríl.
I f
Laugardaginn 20. þ. m., þ. e. daginn eftir heim-
kumu Sigurðar Jónssonar, framkvæmdastjóra Olíu-
félagsins h.f., frá útlöndum, var verðgæzlustjóra
látin í té greinargerð félagsins út af ásökunum
þeim, sem að undanförnu hafa kom;ð fram á opin-
berum vettvangi í sambandi við ákvörðun verðlags-
stjóra á útsöluverði á olíum og benzíni þann 1. apríi
s. 1., og upplýsingar þær frá Olíufélaginu, sem verð- )
lagsstjóri m. a- byggði ákvörðun sína á.
Hefir verðgæzlustjóri að lokinni athugun, komizt
að þeirri niðurstöðu, að í greinargerð Olíufélagsins
h.f. sé rétt skýrt frá staðreyndum, enda kemur grein
argerðin heim við þær upplýsingar, sem félagið gaf
Ragnari Ólafssyni hrl'. á sínum tíma.
Oliufarmur sá, er Olíufélagið h.f. fékk til lands-
ins 10. marz s. 1., hefir einkum verið gerður að um-
talsefni I þessu sambandi. Við rannsóknina hefir
komið í Ijós, að sá hhiti þessa farms, sem seldur
var innlendum notendum, var ógreiddur, þegar geng
isbreytingin fór fram.
Að lokinni þessari rannsókn telur verðgæzlu-
stjóri sannað, að ásakanir á hendur Olíufélaginu h.f.
um verðlagsbrot í sambandi við gengisbreytinguna,
séu ekki á rökum reistar.
(Frá skrifstofu verðgæzlustjóra)“
Bættverði úr f járþörf Bygg-
ingarsjóðs og Ræktunarsjóðs
Skúli Guðmiindsson flytur breytins'artil-
lögu við þingsál.till. Ingólfs Jónssonar
Skúli Guðmundsson flytur í sameinuðu þingi breytingar-
tillögu við þingsályktunartillögu Ingólfs Jónssonar „um at-
hugun á fjárþörf landbúnaðarins.“
Eins og Framsóknarmenn
hafa bent á í umræðum um
tillögu þessa hefir slík at-
hugun þegar farið fram og
niðurstöður hennar liggja fyr-
ir, og nú er það nauðsynleg-
ast að afla Búnaðarbankan-
um þess fjár, sem hann nauð
synlega vantar til þess að geta
stutt með lánum brýnustu á-
framhaldandi framkvæmdir í
sve tunum næstu ár.
Skúli Guðmundsson leggur
því til, að fyrirsögn tillögu
Ingólfs verði: „Tillaga til
(Framhald á 7. síðu.)
Rikisstjórnin legg'ur til :
Bátaútgerðin fái ráð á helm-
ingi gjaldeyris, er hún aflar
Tillagan bundin því skilyrði að unnt sé að auka
mjög verzlunarfrelsið frá því sem verið hefir
Fær góða dóma í
Helsingfors
Rögnvaldur Sigurjónsson
hélt píanóhljómleika í Hels-
ingfors í gærkvöldi, 25. jan.,
og vakti mikla hrifningu,
einkum í síðari hluta efnis-
skrárinnar. Gagnrýnendur
blaðanna viðurkenna og
leggja mikla áherzlu á full-
komna listræna tækni hans.
Próf. Selim Palmgren, hið
kunna tónskáld lýkur í blaða
grein miklu lofsorði á með-
ferð Rögnvalds á sónötu
Beethovens, sem hann telur
bera vott um „göfugan tón-
listarsmekk," og um rapsó-
díu Liszts, segir próf. Palm-
gren, að flutningur hennar
hafi verið „hrífandi snilldar-
verk.“
(Frá utanríkisráðuneytinu).
L.Í.IJ. leggnr til að róðrar hef jist þegar að
fengnnm þessnni samningagrundvelli
Ríkisstjérnin hefir nú lagt fyrir Landssamband ísl. útvegs-
manna tillögur sínar er miða að því að skapa það verðlag á
afla bátaflotans, að útgerðarmenn telj: sig geta hafið veiðar
þegar i stað. Útvegsmenn höfðu ekki samþykkt svar sitt í
gærkveldi, cn hvatt til þess, að bátarnir hæfu þegar veiðai
að fengnum þessum saniningsgrundvelli. Munu því mjög
margir bátar hef ja róðra í dag.
........ , ,, eyri til kaupa á sömu vörum
Fa* .^elm,ng fjaldeynsms. | samanber þó hinn svonefnda
Tillogur rikisstjórnarinnar sjómannagjaldeyri. Frá þessu
eru í hofuðdrattum þær, að ákvæði ásk lur ríkisstjórnin
eigendur vélbátanna fái um-
ráðarétt yfir helmingi þess
gjaldeyris, er fæst fyrir afla
bátanna að undanskildu
þorskalýsi og síldarafurðum.
Til kaupa á ákveðnum vörum.
Gjaldeyri þessum skal ráð-
stafað til kaupa á ákveðnum
vörum eftir nánari ákvörðun
ríkisstjórnarinnar, og er ekki
ætlað að verja öðrum gjald-
Hálf miljón trjáplantna
til sölu hjá Skógræktinni g
Innflutiiiiig'iir erlcndra barrviðarplantna
að verða óþarfur — nægt uppeldi hér
Skógrækt ríkisins mun á vori komanda hafa til sölu um
hálfa milljón trjáplantna, en vantar samt nokkuð af rauð-
greni, sem fá verður frá Norður-Noregi. En það verður líka
í síðasta eða næst síðasta sinn, sem þörf er á innflutningi
trjáplantna, því að nú er senn að því komið, að Skógrækt
ríkisins getur árlega lagt til milljón plantna, er hún hefir
sjálf alið upp.
_ frá Hakaskoja i Rússlandi úr
Eauitre. .. 1200 metra hæð yfir sjó, og
Af heimaöldum plöntum loks jq þús. plöntur af rauð-
mun Skógræktin hafa á boð- j greni, ættuðu frá Norður-
stólum í vor um 150 þús. birki j N0regi.
plöntur, þriggja ára, ættað-
ar úr Bæjarstaöaskógi. Auk
þess verður talsvert af reyni
og víði, bæði þingvíði og gul-
víði, þriggja ára, og loks eitt-
hvað af Alaskaösp.
Barrviðir.
Af barrviðum verða fjórar
tegundir til sölu. Er það 200
þús. skógarfurur, tveggja til í vor.
fjögurra ára, ættaðar úr
Tromsfylki, 90 þúsund plönt-
ur af sitkagreni, fjögurra og
Runnar.
Auk þessa hefir Skógræktin
á boðstólum eitthvað af runn
um, meðal annars ribsberja-
runna og sólberjarunna. Að
öllu samanlögðu mun það
ekki undir hálfri milljón trjá
plantna og runna, sem Skóg-
ræktin hefir alið upp til sölu
AÖrar uppeldisstöðvar.
Við þetta bætist svo trjá-
fimm ára, ættuðu frá Alaska,1 plöntur, sem upp eru aldar
40 þús. plöntur af síberisku á vegum annarra. Er þar um
lerki, fjögurra ára, ættuðu (Framhald á 7. síðu.)
sér þó heimild að vikja. Til
þess er ætlazt að öllum gjald-
eyri bátanna sé skilað til bank
anna, en útvegsmenn fái aft-
ur gjaldeyrisleyfi fyrir sínum
hluta.
Verölagseftirlit af vörum
þessum mun afnumið, þegar
þær koma til landsins, keypt
ar fyrir þennan gjaldeyri.
Skilyrði tiliagnanna.
Þessar framangreindu ráð-
stafanir eru þó háðar því
skilyrði, að ríkisstjórnin sjái
sér fært að stækka gildandi
frílista mjög mikið, en skil-
yrði þess er, að ríkisstjórn-
inni takist að tryggja þann
erlenda gjaldeyri, sem að
hennar dómi er nauðsynleg-
ur i þessu skyni.
Til þess eru þó taldar standa
góðar vonir, en úr því heíir
ekki fengizt til fulls skorið
enn og getur dregizt um sinn.
Til þess að hindra lengri
stöðvun bátaútvegsins hefir
ríkisstjórnin ákveðið að lýsa
yfir, að bregðist forsendur
þeirra úrræða, er að framan
getur, mun ríkisstjórnin hlut
ast til um, að létt verði undir
með útgerðinni eftir þeim leið
um, er að dómi ríkisstjórnar-
innar nokkurn veginn jafn-
gilda fyrrnefndum ráðstöfun
um, enda hefjist veiðar nú
án tafar. Ríkisstjórnin er hins
vegar vongóð um að fyrr-
nefndar forsendur verði fyr
ir hendi.
Þetta er i megindráttum
efni tillagna þeirra, sem rík-
(Framhald á 7. síðu.)
Sendiherra í London
Hinn 25. janúar var Agnar
Kl. Jónsson skrifstofustjóri í
utanrikisráðuneytinu, skip-
aður sendiherra íslands t
Stóra-Bretlandi.
(Frá utanríkisráðuneytinu).