Tíminn - 27.01.1951, Page 2

Tíminn - 27.01.1951, Page 2
2 TÍMINN, laugardaginn 27. janúar 1951. 22. blað jfá kajfi til keiía 10 Útvarpib Útvarpið í kvöld: Fastir liðir eins og venjulega. Kl. 20,30 Tónleikar (plötur). 20,35 Leikrit: „Don Quixote" eft ir Miguel de Cervantes (áður út varpað haustið 1948). Leikstjóri: Lárus Pálsson. — Leikendur: Lárus Pálsson, Þorsteinn Ö. Stephensen, Brynjólfur Jóhann esson, Valur Gíslason, Jón Aðils, Gestur Pálsson, Valdimar Helga son, Gunnar Eyjólfsson, Róbert Arnfinnsson, Anna Guðmunds- dóttir, Bryndís Pétursdóttir, Ragnhildur Steingrímsdóttir, Þorgrímur Einarsson og Stein- dór Hjörleifsson. 22,00 Fréttir og veðurfregnir. — 22,10 Passíu- sálmurk nr. 6. 22,20 Danslög (plötur). 24,00 Dagskrárlok. Hvar eru skipin? Sambandsskip: Ms. Arnarfell er á leið til ítalíu frá Reykjavík. Ms. Hvassa fell átti að fara frá Reykjavík í dag áleiðis til Portugal. Eimskip: Brúarfoss fór frá Reykjavík 24. 1. til Grimsby. Dettifoss átti að fara frá Gdynia 25. 1. til Kaupmannahafnar, Leith og Reykjavíkur. Fjallfoss fer frá Reykjavík 27. 1. til Keflavíkur. Goðafoss fór frá Reykjavík 17.1. væntanlegur til New York 26. 1. Lagarfoss er á Austfjörðum. Sel foss er væntanlega á Siglufirði, fer þaðan til Húsavíkur, Raufar- hafnar og útlanda. Tröllafoss kom til St. Johns 23. 1., fer það- an 26. 1. til New York. Auðumla fór frá Immíngham 22. 1. til Reykjavíkur. Ríkisskip: Hekla fer frá Reykjavík í dag austur um land til Siglufjarðar. Esja er á Austfjörðum á suður- leið. Herðubreið er á Austfjörð- um á suðurleið. Skjaldbreið fór frá Reykjavík í gærkveldi til Breiðafjarðar. Þyrill er á Aust- fjörðum. Ármann fer frá Rvík í dag til Vestmannaeyja. Árnað heilla Jón Hallgrímsson fyrrum bóndi á Hnjúki í Vatns dal er 60 ára í dag. Jón og kona hans, Steinunn Jósefsdóttir, bjuggu um langt skeið rausnarbúi á Hnjúki, en fluttust til Reykjavíkur fyrir fimm árum og búa nú í húsinu Eiriksgötu 35 hér í bæ. Jón er maður vinmargur, því margir sóttu Hnjúksbóndann heim, er gestrisni þeirra Hnjúks hjóna með afbrygðum. Messur á morgun Nesprestakall. Messað verður í kapellu há- skólans klukkan tvö. Ásmundur Guðmundsson prófessor prédik- ar, séra Jón Thorarensen þjón- ar fyrir altari. Elliheimilið. Guðsþjónusta með altaris- göngu í Elliheimilinu klukkan tíu árdegis. Séra Sigurbjörn Á. Gíslason. Laugarneskirkja. Messa á morgun, biblíudag- inn, kl. 2 e. h. Séra Garðar Svavarsson. Barnaguðsþjónusta kl. 10,15 f. h. Séra Garðar Svav- arsson. Reynivallaprestakall. Messa í Reynivallakirkju á sunnudaginn kl. 2. Sóknarprest- urinn. Óháði fríkirkjusöfnuðurinn. Messa í Aðventkirkjunni kl. 5 e. h. Sálmarnir: 131, 432, 419, 425, og 24. Séra Emil Björnsson. Börnin, strætisvagnarnir, lögreglan. Nú er aftur kominn snjór í Reykjavík, og aftur taka börn in sér biðstöðu á viðkomustöð um strætisvagnanna í úthverf unum, og hanga síðan aftan í vögnunum, er þeir leggja af stað. Þegar Sundlaugarvagninn fór af viðkomustað sínum við Nóatún Iaust fyrir eitt í gær, héngu tveir litlir drengir aft- an í. Þeir héngu aftan í hon- um aiia leið á viðkomust'jðinn í Sigtúni, hvíldu sig meðan hann staldraði þar, en héldu síðan áfram þessari áhættu- sömu ökuferð eins og leið stræt isvagnsins lá, unz þeir hrutu aftan úr vagninum einhvers staðar í Laugarneshverfinu. j Mega íbúar úthverfanna enn einu sinni biðja um lögreglu- eftirlit — áður en slys verður? Flugferðir Loftleiðir h. f. 1 dag er áætlað áð fljúga til: ísafjarðar, Patreksfjarðar og Hólmavíkur fyrir hádegi og til Vestmannaeyjar kl. 13,30. Á morgun er áætlað að fljúga til: Vestmannaeyjar kl. 13,30. Úr ýmsiun áttum Leiksýningar á Sauðárkróki. Fréttaritari Tímans á Sauð- árkróki skrifar: Kvenfélag Sauðárkróks efndi til skemmtisamkomu á Sauðár- króki á nýársdag og sýndi gam- anleikinn „Saklausi svallarinn" eftir Arnold Bach. — Leikstjóri var Sigurður P. Jónsson og lék hann jafnframt eitt af aðal- hlutverkunum. Aðrir leikendur voru: frú Jórunn Hannesdóttir, Tómas Hallgrímsson, frú Jó- hanna Þorsteinsdóttir, Jóhann Ellertsson, Guðbrandur Frí- manns, Anna Jóna Guðmunds- dóttir. Guðrún Jósafatsdóttir, og Lúðvík Halldórsson. Mikil aðsókn var að skemmtun inni og skemmtu áhorfendur sér hið bezta, enda er þetta bráð skemmtilegur gamanleikur, ,og meðferð leikendanna á hlut- verkum sínum mjög góð. — Mun Kvenfélag Sauðárkróks sýna leikinn tvisvar til þrisvar sinnum á Sæluviku Skagfirð- inga, sem sennilega verður í marz. S.K.T. Eldri dansamir 1 Q. T.-húsinn í kvöld kl. 9. — Húslnu lokaö U. 10.30. j Aðgöngumiðasala kl. 4—6. — Simi 3355. — Skrifstofustúlka 1 jj « Dugleg skrifstofustúlka getur fengið atvinnu í stóru j| fyrirtæki. Málakunnátta er nauðsynleg, sérstaklega enska. — Hraðritunarkunnátta æskileg. Umsóknir, er greini menntun og fyrri störf, ásamt meðmælum, send- ist 1 pósthólf nr. 898, fyrir mánaðamót. ♦♦♦♦♦♦♦♦•♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦^♦♦♦♦j ♦♦♦♦♦♦♦♦«♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦*♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦«♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦•»♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦•♦« " Viðgerðir á úrum og klukkum Tökum klukkur til viðgerðar Franch Micholscn ÚRSMÍÐAVINNUSTOFA Laugaveg 39 — Pósthólf 812 — Sími 34662 4 tfcrhutn ieqi: ORÐ í BELG „Igor“ sendir bréf varðandi orð þau, sem hér voru látin falía um íslenzka embættismannastétt, áður og nú. Hann segir: „Þótt mér sé þetta ekki skylt, þar sem ég er ekki embættismaður og næsta fáir af þeim, er mér eru skyldir, langar mig þó að leggja orð í belg. — Nú á tímum eigum við margs konar sérfræðinga, sem beint og óbeint eru embættismenn þjóðarinnar og hafa þeim störfum að gegna að fylgjast með nýjungum.e hver á sínu svið.i og koma þeim á framfæri og í framkvæmd, landsmönnum til heilla. Hvað á að segja um búnaðarfélögin og fiskifélögin og starfsmenn þeirra, atvinnudeild háskólans, tilrauna- stöðvar í öllum landsfjórðungum í grasrækt og öðru er að búnaði lýtur, laxaklakstöðvar, friðanir fiskimiða, tilraunir rikisins með ný veiðarfæp, o. s. frv., o. s. frv. Það er ógerlegt að ætlast til þess, að sýslumenn, lækn- ar, prestar eða stjórnarráðsfulltrúar, svo einhverjir séu nefndir, gangi sérstaklega fram fyrir skjöldu til þess að ryðja einhverri verklegri nýjung braut. Það er af sú/tíðin, er þessir menn höfðu einir menntunina og útsýnið til ailra hliða, en þjóðin sjálf sat hnípin 1 vanda og fékk ekki að gert fyrir sakir fátæktar og umkomu- leysis. En vafalaust iga liðnir embættismenn sinn heið- ur af því, hvernig þróunin hefir orðið, og þeirra verk eru það, margra hverra, að nú eru starfandi þúsundir handa, sem sérstaklega eru tilkvaddir að vinna að þroska atvinnuveganna. — Og sannleikurinn er sá, að nú á þessari stundu ganga meðal vor merkilegir fröm- uðir, sem aldrei munu gleymast í landssögu, fremur en menn þeir á 18. öld, sem taldir voru upp í grein þinni. Þessir menn eru beint og óbeint embættismenn, þótt ég nenni ekki nú að telja þá upp með nafni og skilja þar sundur sauði og hafra og sanna þannig betur, það sem ég á við,“ ★ ★ ★ Svo segir „Igor.“ Raunar held ég, að hann hafi mis- skilið mig ofurlítið, en það er þó fremur mín sök en hans, því að það var ekki skýrt fram sett. Það, sem ég var að sveigja að, er þetta: Mér finnst óeðlilega margir embættismanna okkar orðnir um of að skrif- stofuvélum, ef svo má segja. Þeir vinna sjálfsagt vel og sumir ágætlega skyldustörf i strangasta skilningi. En skortir þá ekki þann eld áhugans, sem hefir auga á hverjum fingri fyrir almennum framfaramálum og berst fyrir þeim á opnum vettvangi? Þjóðfélagði hef- ir þó meira á sig lagt til þess að mennta þá og undir- búa en annað fólk í landinu og skapað þeim öruggari lífsafkomu. — ★ ★ ★ Hitt er ég „Igor“ fyllilega sammála um, að meðal okkar eru nú merkilegir frömuðir og brautryðjendur, sem geymast munu í sögu þjóðarinnar. Kannske höf- um við „Igor“ einmitt sömu mennina í huga, þótt við nefnum engin nöfn. En þeir koma flestir úr annarri átt, ef svo má segja, en Magnús Ketilsson og séra Björn i Sauðlauksdal. J. H. Eldfastur steinn Getum útvegað eldfastan stein frá einn þekktustu H verksmiðju Bretlands Afgreiðslutími 14—16 vikur. LANDSSMIÐJAN Bújörð óskast til leigu eða ef til vill til kaups, ef um semst. Jörð- in þarf að hafa skilyrði til sauðfjárræktunar. Tilboð sendist blaðinu merkt „Jarðnæði“ fyrir 15. apríl. : SK1PAUTG6KO RIKISINS Ármann fer til Vestmannaeyja í kvöld. — Vörumóttaka í dag. — Vorbær kýr til sölu nú þegar. — Upplýs- ingar hjá Ólafi Nikulássyni, Grímsstöðum, Álftaneshreppi, Mýrum. — Sími um Arnar- stapa. — Forðizt eldinn og eignatjón Framleiðum og seljum fiestar tegundir handslökkvi tækja. Önnumst endurhleðslu á slökkvitækjum. Leitið upp- lýsinga. Kolsýruhleðslan s.f. Simi 3381 Tryggvagötu 10 Útbrefðlð Tímann. v-iff®¥mAVktsi/ „Marmari” eftir Guðmund Kamban. Leikstjóri: Gunnar Hansen Sýning í Iðnó á sunnudag kl. 3. — Aðgöngumiðar seldir frá kl. 2. — Elsku Rut” Leikstjóri: Gunnar Hansen Sýning annað kvöld kl. 8. — Aðgöngumiðar seldir kl. 4. Sími 3191. — Leikkvöld Menntaskólans 1951 ,Viö kertaljós’ eftir Sigfried Gayer Leikstj.: Baldvin Halldórsson Sýning í Iðnó í dag kl. 4,30. — Aðgöngumiðar seldir eftir kl. U — Sími 3191.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.