Tíminn - 27.01.1951, Page 5

Tíminn - 27.01.1951, Page 5
22. blað TÍMINN, laugardaginn 27. janúar 1951. 5 imimt Lttugard. 27. jan. Aðstoðin við út- gerðina Um nokkra vikna skeið hafa staðið yfir viðræður milli ríkisstjórnarinnar og sam- taka útvegsmanna um ráð-, stafanir til að tryggia rekst-' ur bátaútvegsins. Þótt gengis lækkunin hafi styrkt veru- j lega rekstrargrundvöll útvegs ins, hefir óhagstæð verðlags- | þróun erlendis gert það að ( verkum að hún nægir hon- j um ekki. Verðlag á rekstrar- j vörum hans hefir hækkað meira en útflutningsafurðirn ar og auk þess hefir kaup- gjald hækkað innanlands. Jafnvel þótt þetta hefði ekki komið eftir óstjórn fyrri ára, gengislækkunin hefði nægt honum. Svo illa var hag hans komið eftir óstjórn fimm ára, en vegna neytenda var ekki talið fært að -ganga lengra i gengislækuninni. Það er ekki síst ástæða til að hafa þetta í huga. Gengis lækkunin var óhjákvæmileg afleiðing þess, hvernig fyrrij stjórnir höfðu búið að þess- um einum helstu undirstöðu- atvinnuvegi landsmanna. Hann þurfti meira að segja á öllu meiri gengislækkun að halda en fært var talið að ráð ast ír Gengislækkunin var þannig raunverulega verk fyrri ríkisstjórna, sem núver- andi stjórn var nauðbeygð til að annast um framkvæmd á. Fyrir Alþýðuflokksmenn og kommúnista er því vonlaust að reyna að komast undan á- byrgð á gengislækkuninni, enda bentu þeir á síðastliðn um vetri ekki á neina aðra leið, sem hefði bjargað út- gerðinni og var minni kjara- skerðing fyrir almenning. Þegar þetta er ritað, virðist áðurnefndum samningum ríkisstj órnarinnar og útvegs- manna svo langt komið að sjáanlegt sé, að hvaða lausn verður horfið að þessu sinni. Ýmsar leiðir gátu komið til greina, eins og t. d. að taka upp fiskábyrgðarleiðina aft,- ur með tilheyrandi nýjum á- lögum eða að lækka gengið á ný. Mikla athugun þurfti þó ekki til að hafna báðum þessu leiðum. Eftir það var ekki nema um tvær aðalleið- ir að velja. Önnur var sú að greiða takmarkaðar útflutn- ingsuppbætur á vissar afurð ir sjávarútvegsins og leggja á nýja tolla til að mæta þeim. Hin var sú að gefa útvegs- mönnum eftir að ráðstafa nokkrum hluta þess gjald- eyris, er þeir afla, til vissra vörukaupa, og láta aukna hlut deild útvegsins í verzlunar- gróðanum styrkja þannig rekstrargrundvöll hans. Það er um þessa síðari leið, sem samkomulag virðist nú hafa náðst um milli rikisstjórnar- innar og útvegsmanna. Ráðstöfun útvegsmanna á hinum frjálsa gjaldeyri verð ur vitanlega bundin við vissa vöruflokka og þá einkum þá, sem ekki teljast til brýn- ustu lifsnauðsynja. Því skal þó síður en svo haldið fram, að þessu fylgi ekki meiri eða minni byrðar fyrir almenn- ing, En slíkar byrðar eru óhjákvæmilegar í einu eða öðru formi, ef ekki átti að ERLENT YFIRLIT: Golombo-áætlunin : Samhjálp brezka Nainveldisins til að greiða fyrir efnalegri viðreisn samvaldis- landanna í Asíu Stjórnmálamönnum lýðræðis þjóðanna kemur saman um það, að vígbúnaður og landvarnir séu ekki nema einn þáttur þess að vinna gegn yfirgangi komm únisma og annara öfgastefna. Það, sem skipti jafnvel enn meiru tii frambúðar, sé að vinna að bættum lífskjörum al mennings ög þó sérstaklega í þeim löndum, þar sem þau eru nú lökust. í samræmi við þetta flutti Tr.uman forseti þá til- lögu sína, sem gengur undir nafninu fjórða stefnuatriðið, vegna þéss, að hún var fyrst liður í héildartillögum, er hann setti frám. Aðalatriði hennar var það, að Bandaríkin létu það vera sem framhald af Mar-1 shallhjálpinni að styðja að at- vinnulegri viðreisn hjá þeim þjóðum, , sem skemmst væru komnar Jj,- því sviði, bæði með tæknilegri og fjárhagslegri að- stoð. Bandaríkjastjórn hefir þegar hafið nokkurn undirbún- ing í þessá átt. Þá hafa Sam- einuðu þjóðirnar slíkar ráða- gerðir méð höndum og loks er! svo að nefna Colombo-áætlun- | ina á vegum brezka samveldis- 1 ins. Verður nánar sagt frá því í eftirfarandi grein eftir Jan-' ette Burs&as, en hún birtist ný- 1 lega í „Arbeiderbladet“ í Osló: Það snertir okkur alla. — Það ér ástæða til að veita nokkrar upplýsingar um Col- ombo-áaétiunina vegna þeirra. sem ekki* hafa veitt málinu neina athygli fyrr en lausn þess er hafin. Hér er ekki um nein pappírsákvæði að ræða, heldur framkvæmdin þegar haf- in. .... Hér er úm svo stórkostlegar ráðstafanir að ræða, að það snertir ókkur alla hvort þær heppnast " eða ekki. Það eru 570 milljónir manna í Indlandi, Pakistan,--^ Ceylon, Malaya, brezku Borneo og Singapore, og þetta fótk er fjórði hluti mann kynsins. Arið 1970 eru líkur til, að þessum þjóðum hafi fjölgað svo, að þær telji 720 milljónir, og samsvarar sú fjölgun allri Bandaríkjáþjóðinni. Áætlunin nær þó 'ýfir enn meira svæði, því að Cambodsja, Laos, Viet Nam, Thailand, Burma og Indo nesia eiga þess kost að vera með í þessu samstarfi. Auðug lönd og fátækar þjóðir. Þetta svæði er auðugt að hrá efnum, svo að hvergi eru meiri náttúrugæði í heimi. Fyrir styrj öldina lögðu brezku samveldis- löndin í Asíu fram svo að segja alla bastframleiðsluna, % af tei, z/3 af tini, ya af olíu og feiti auk margs annars. Þessar vör- ur voru fluttar um allan heim og fyrir þær fengu Bretar doll ara til að fullnægja þörfum sínum. Fjármagn frá Bret- landi og öðrum löndum Vestur- Evrópu nytjaði auðlindir þess- ara austrænu landa. Nú hefir orðið breyting í efnahagslegri þróun þessarra ríkja eftir stríðið. Hernám Jap- ana og eyðing landa hefir vald- ið gífurlegu tjóni. Frjósamar gúmmíekrur og teekrur höfðu farið i órækt og vaxið frum- skógum. Járnbrautir og eim- vagnar höfðu horfið. Aflstöðv- um hafði ekki verið haldið við. Fjárhagslegt öngþveiti og verð bólga var í löndunum. Vefn- aðarverksmiðjur Indlands voru látnar fata herliðið austan Súez skurðarins og vantaði efni til að vinna úr fyrir þjóðina. Mat- arframleiðslan varð að aukast á kostnað annarar framleiðslu, svo að svalað yrði frumstæðustu þörfum manna. En árið 1945. voru ónotaðir og eyddir hrís- grjónaakrar í Suð-austur- Asíu 60 þúsund ferkílómetrar. Smátt skammtað. Þetta varð til þess, að doll- aratekjur Evrópu minnkuðu. t öðru lagi tók fyrir það, að fjár- magn frá Evrópu bærist til þess arra Asíulanda gegnum rekstur þar. Og jafnframt þessu áttu sér stað austur þar í stjórn- málalífi þessarra þjóða átök þau, sem eiga sér engar hlið- stæður. Innlendar og óháðar stjórnir hafa risið upp. Þjóð- irnar hafa vaknað til þjóðernis legrar meðvitundar og sjálf- stæðiskenndar, en lifnaðarhætt ir þeirra eru engu betri en áð- ur, nema siður sé. Indverjar nærast nálega eingöngu á hrís- gjónum. Skammturinn er 320 grömm á dag í borgunum. 1 öllum löndum Suðaustur-Asíu er matvælaástandið verra, en 1940. í Pakistan fær fullorð- inn maður 8 metra af baðmull- arefnum til klæðnaðar árlega og annað ekki, og veðurfarið í Pakistan er breytilegt. Meðal tekjur manna í þessum lönd- um í heild eru tíu sinnum minni en í Bretlandi en tutt- ugu sinnum minni en í Banda- BEVIN í samræðum við einn aðstoð ____ armann sinn. ríkjunum ef reiknað er í pen- ingum. Það eina, sem hér má verða til hjálpar, er að hraða efna- hagslegri viðreisn, svo að mat- vælaástandið batni og meðal- tekjur manna aukizt. Það er ekki ástæða til að eyða orðum að því, hve mikils virði það er, að slík þróun gerist fljótt. Jafn vægi í stjórnmálalífi þessara landa allra, er algjörlega háð því, að þau bjargráð heppnist. Það, er mál, sem snerfir allar þjóðir og þess vegna er Colombo áætlunin raunverulega al- heimsmál. Sérhvert þessara landa hefir sína eigin viðreisnaráætlun. Það er sameiginlegt með þeim flestum, að stefnt er að því (Framhald á 6. síðu.) Raddir nábúanna Hann sér allt öfugt Asmundur Sigurðsson hef- ir skrifað meira en heilsíðu grein í Þjóðviljann um Olíu- félagið og Tímann. Aðalefnið í þessari löngu grein er það, að Tíminn hafi hótað að heimta fulla rannsókn í máli S. í. F., ef mál Olíufélagsins væri ekki látið niður falla. Hér er staðreyndunum al- veg snúið við hjá Ásmundi. Tíminn einmitt fagnaði því, hve skeleggt Mbl. væri nú orðið í því að vilja upplýsa meint verðlagsbrot. Hann lofið Mbl. fullum stuðningi i því að fá mál Olíufélagsins upplýst, en kvaðst vænta þess að Mbl. launaði þá liðveizlu með því að fylgja þeirri kröfu Tímans, að mál S. í. F. yrði ekki svæft. Tíminn fór hér öðru vísi en Þjóðviljinn, I er þagið um „faktúrurnar í , tunnunni“ gegn þvi að Mbl. þegði um ýms stjórnar- hneyksli Brynjólfs og Áka. | Tíminn getur hinsvegar fyr irgefið Ásmundi þessa fölsun. Honum er ekki sjálfrátt. Hann er að upplagi meiniaus sak- leysingi, en hefir látið æsast I af áróðri kommúnista. Undir þeim áhrifum vann hann það ógæfuverk að snúa brjóstlík- ani af Jóni Sigurðssyni og taka mynd af því öfugu í þeirri von að geta stutt með því iandráðastefnu kommún ista. Þetta hefir hefnt sín. Síðan sér Ásmundur flest öf- ugt. Undir þeim álögum hef- ir hann skrifað greinina um Tímann og Oliufélagið. láta útgerðina stöðvast og leggja þannig hina þyngstu byrði á þjóðina, þ. e. gjald- eyrisskort og atvinnuleysi. Um það má deila, hvaða leið hefði verið léttbærust fyrir almennifíg og komið að best- um notum. Enn liggja ekki fyrir ítar- legar upplýsingar um það, hvernig framkvæmd um- ræddrar ráðstöfunar er hugs uð, og verður því ekki rætt frekar um það að sinni. En vitanlega gildir það hér sem oftar, að framkvæmdin getur skipt mestu máli. Það hefir t. d. ekki lítið að segja í þess um efnum, hver áhrif þetta ,hefir á fiskverðið til sjó- ‘manna. Það er eitt höfuðat- J riðið í þessu sambandi, að ; þær byrðar, sem hér verða lagðar á almenning, komi rétt um aðilum að tilætluðum not um, en renni ekki að meira eða minna leyti i vasa milli- liðanna. Að lokum skal þetta tekið fram: Útgerðin hefir hér verið veitt aðstoð, sem henni að sönnu bar að meira eða minna leyti. Nú er það hennar að koma til móts við þessa fram réttu hönd og gera sitt til þess að henni skapist heilbrigð ur rekstrargrundvöllur. Það er vitanlegt, að í rekstri út- gerðarinnar er ýmsu ábóta- vant, t. d. ýms eyðsla meiri en þyrfti að vera. Útggrðin verður að gera sitt til að bæta úr þessum ágöllum. Hún verð ur jafnframt að kappkosta miklu meiri vöruvöndun, því að án þess eru öll framlög til hennar eins og látin í botn- lausa hít. Seinast, en ekki sist, verður hún að vinna að því að losa sig úr klóm ýmsra ónauðsynlegra milliliða. Verði þetta ekki gert, getur útgerð in ekki vænst þess, að þjóðin taki á sig möglunarlaust nýj- ar og nýjar byrðar, sem eiga að koma henni til hjálpar, en ná ekki nema takmörkuðum árangri vegna þess, að útgerð in sjálf hefir ekki sín eigin mál í lagi. ttm fic Mbl. vitnar í forustugrein i gær í þau ummæli ýmsra kommúnistaforingja, að þeir myndu hjálpa Rauða hern- um, ef hann réðist inn í ætt- lönd þeirra. Mbl. segir: „Engum getur dulizt, að þess ar fimmtuherdeildir hvar- vetna um lönd eru ógnun við heimsfriðinn og þá ekki síður innra öryggi þjóðanna. Það er árásaraðilja að sjálfsögðu mik il örvun að geta treyst því að í þeim löndum, sem hann hyggst ráðast á, skuli vera stór hópur manna, sem gengur erinda hans og er þess reiðu- búinn að greiða götu hans á alla lund, draga lokur frá hurðum og fremja hvers kon ar svikræði gegn þjóð sinni. Það er athyglisvert, að flest- ar lýðræðisþjóðir hafa gert ráðstafanir til þess að mæta þessari innri hættu, sem staf- ar af starfsemi fimmtuher- deildanna, þar á meðal frænd- þjóðir okkar á Norðurlöndum. Gunnar Thorodsen varpaði þeirri spurningu fram í ræðu sinni á stúdentafundinum, hvort ekki væri tími til þess kominn að við íslendingar hygðum að okkar innra ör- yggi. Sú spurning er vissulega tímabær. — Fimtaherdeild kommúnista í okkar landi er hlutfallslega fjölmennari en í flestum öðrum lýðræðis- löndum. Þeir menn, sem stjórna henni eru nákvæm- lega sama sinnis og aðrir kommúnistaforingjar Vestur- Evrópu, sem hafa lýst þvi yfir að flokkar þeirra myndu styðja Rússa með öllum ráð- um, ef þeir gerðu innrás í lönd þeirra." Hér skal ekki dregið úr þess ari hættu, en vissulega er nú hljóðið annað, en þegar Áki og Brynjólfur sátu í stjórn með Sjálfstæðismönnum og Einar Olgeirsson gat tæpast gert upp á milli ,,félaga“ Stal íns og „herra“ Ólafs Thors, vegna þess hve dyggilega flokkur þess síðarnefnda hafði hjálpað til að styðja kommúnista. Ólán Alþýðublaðsins Ritstjóra Alþýðublaðsins hefir orðið meira en lítið hvert við, er hann las í Tím- anum forustugrein úr norska „Arbeiderbladet“, þar sem gerð var grein fyrir því, að verðhækkanirnar á heims- markaðinum hafi að undan- förnu hækkað mjög verðlag- ið í Noregi. Á tímabilinu okt. 1949—okt. 1950 hafði verðlag innflutningsvara í Noregi hækkað um ekki minnan en 20% og sumar þeirra (ný- lenduvara) um 50%. Verð- hækkanir þessar stöfuðu ein göngu af verðhækkunum er- lendis. Síðan í október hafa enn stórfeldari verðhækkanir þó ekki átt sér stað. Svipaðar verðhækkanir hafa vitanlega orðið hér af völdum verðhækkana erlend is. Forustugrein „Arbeider- bladets“ kollvarpaði þannig þeirir kenningu, sem Alþýðu blaðið hafði étið upp eftri Þjóðviljanum, að allar verð- hækkanir, sem hér hafa orð- ið, stöfuðuð af gengislækkun inni. Ritstjóri Alþýðublaðsins sá, að hann hafði hér metið meira að taka undir áróður kommúnista en að fylgja for dæmi jafnaðarmannablaða á Norðurlöndum, er greina rétt frá staðreyndum. Ristjóri Alþýðublaðsins veit líka meira. Hann veit, að norskir verkamenn hafa enn ekki fengið að neinu leyti bættar þær verðhækkanri, er stafa af hækkun verðlags er- lendis. Átján aura tímakaups hækkunin, sem þeir fengu i haust, svarar rétt til verðhækk unar þeirrar, sem hlaust af því að stjórnin dró úr niður- greiðslunum á verðlagi. Norskir verkalýðsleiðtogar sögðu, að það væri betra fyr ir verkamenn að sætta sig; við þessa kjaraskerðingu, en (Framhald á 7. síðu.)!

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.