Tíminn - 27.01.1951, Síða 8
„ERLEJVT YFIRL1T“ í DAG:
Colombo-áœtlunin
85. árgangur.
Reykjavík,
„A FÖRmJM VEGI“ Í DAG:
Orð í helfi
27 janúar 1951.
22. blað
DagKbríinarko$niii£ðrnar :
Verkamenn, styöjiö lista iýö-
ræðissinna, kjósið B-listann
í dag klukkan 1. e. h. hefjast kosn:ngar í verkamannafé-
laginu Dagsbrún bæði í stjórn og fulltrúaráð. Fer kosningin
fram í skr fstofu félagsins. Kommúnistar óttast nú mjög um
svo mikið fylgistap í félaginu að þeir missi þetta höf.vlvígi
s.tt i verkalýðshreyfngunni. _____________
Lýðræðissinnuðu flokkarn-
ir í félaginu hafa stillt sam-
eiginlega upp l'.sta til stjórn-
ar og fulltrúaráðs og er það
B-listinn. Er þetta í fyrsta
sinn, sem þessir flokkar stilla
allir upp saman og með þeim
hætti eru miklir möguleikar
á, að ná félaginu úr höndum
kommúnista, og að því er nú
keppt. Auðséð er á skrifum
Þjóðviljans þessa dagana, að
honum er þessi hætta ljós.
Lýðræðissinnar, herðið því
sóknina og veitið B-listanum
aiit það fulltingi, sem þið meg
ið. Á honum eru valdir og
traustir menn, sem munu
reynast félaginu góðir for-
ystumenn.
B-listinn er þannig skipað-
ur: Magnús Hákonarson, for-
maður, Guðmundur Erlends-
son, varaformaður, Jóhann
Sigurðsson, ritari, Sigurður
Guðmundsson, gjaldkeri,
Valdimar Ketilsson, fjármála-
ritari, Gunnlaugur Bjarnason
og Bjarni Björnsson, með-
stjórnendur.
Varastjórn: Guðmundur
Sigtryggsson, Guðmundur
Konráðsson, og Ólafur Skafta
son.
Stefmiskrá B-listann er birt
á 7. síðu blaðsins í dag. Kynn
ið ykkur hana áður en þið
gangið að kjörborði.
„Pabbi” sýndur
í 31. sinn
Leikritið „Pabbi" verður
sýnt í Þjóðleikhúsinu i kvöld
kl. 20. Er þetta 31. sýning
leiksins hér og hefir ætíð
verið mikil aðsókn. Eru vin-
sældir þessa leiks því með af-
burðum miklar.
Her S.Þ. aðeins
16 km. frá Seoul
Hersveitir S.Þ. sóttu tölu-
vert fram í Kóreu einkum á
* vesturströndinni við Suwon.
Hafa þær nú tekið flugvöll
borgarinnar í notkun og sótt
fram norður fyrir hana og í
gærkvöldi voru fremstu sveit
irnar sagðar aðeins 16 km.
sunnan Seoul, en Suwon er 27
km. suður af höfuðborginni.
Þá hafa tvær hersveitir sótt
nokkuð fram á miðvígstöðv-
unum og eins halda hersveit
irnar . á austurströndinni
hægt norður á bóginn án þess
að komast I kast við óvinina
svo teljandi sé. Flugvélar S. Þ.
beindu í gær stórárásum að
Seoul.
Beinamjölsverksm.
og þurrkhús í
Ólafsvík
Frá fréttaritara Tímans
i Ólafsfirði.
Hér er nú unnið að upp-
setningu véla í beinamjöls-
vcrksmiðjuna, og mun hún
væntanlega taka til starfa í
febrúarmánuði.
Einnig er unnið að bygg-
ingu þurrkhúss til saltfisk-
verkunar.
Ný tillaga í Kóreu-
málinu frá Kanada
Fun«lum frestað I stjjórnmálanefnd í gær
Stjórnmálanefnd S. Þ. kom saman á fund í gær og ræddi
Kóreu-málið laust eftir hádegi. Fyrstur ræðumanna var Pear-
son, utanríkisráðherrin^Kanada.
1 hafnar umræður um helztu á-
j greiningsmálin í Austur-Asíu
brottflutning erlendra
Ferðaskrifstofan
sér um skíða-
kennslu
Um næstu helgi verður sú
nýbreytni upp tekin, í sam-
bandi við skíðaferðir F'erða-
skrifstofunnar, að byrjendum
verður gefinn kostur á ó-
keypis skíðakennslu á vegum
skrifstofunnar.
Skíðakennari að þessu
sinni er Guðmundur Hall-
grímsson frá ísafirði og gefst
farþegum Ferðaskrifstofunn-
ar kostur á kennslu hans ef
þátttaka gefur tilefni til.
Skiðaferðir, í þessu skyni,
verða farnar kl. 13,30 á laug-
ardögunr og kl. 9,30 til 10 á
sunnudögum.
Magnús Hákonarson, for-
mannsefni B-listans í Dags-
brún.
Sýndur hand-
brúðuleikur
Nemendur teiknikennara-
deildar Handíðaskólans sýna
handbrúðuleik í teiknisal
skólans að Laugaveg 118 á
morgun kl. 3 og kl. 4,30 síðd.
Aðgangur er ókeypis fyrir öll
börn, sem- njóta kennslu í
skólanum. Aðgöngumiðar
verða afhentir að Grundar-
stíg 2 A í dag kl. 4—5 síðd. og
kl. 1—2 á sunnudaginn.
Lýsti hann þVí ýfir, að
Kanada mundi greiðá tillögu
Bandaríkjanna um að stimpla
Kína, sem árásaraðila, at-
kvæði, ef hún kæml 'til at-
kvæða i nefndinni, jkanada
gæti ekki annað en viður-
kennt að Kína hefði hafið á-
rás í Kóreu, eins og- tillagan
kvæði á, en hins vegár væri
stjórn Kanada þeirraT skoð-
unar, að tillagan ætti ekki
að koma til atkvæða að svo
stöddu eða ekki fyrr en á eftir
öðrum tillögum.
Þá kvaðst Pearson vilja
leggja fram nýja tillögu í
Kóreudeilunni. Er hún þess
efnis, að efnt verði innan viku
til sjöveldaráðstefnu í Lake
Success eða New Dehly um
Kóreumálið og eigi þessi riki
þar fulltrúa: Kína, Rússland,
Bretland, Bandaríkin, Ind-
land, Egyptaland og Frakk-
land.
Fyrsta verkefni þessarar
ráðstefnu verði að koma á
vopnahléi. Takist það verði
Inflúenzunni í Bretlandi
líkt við „spönsku veikina”
Dánartalan í síóusfu vikn var oins há og I
verstu vikunni í infliienzunni 1919
Enn virðist ekkert benda tii þess, að inflúenzan í Bretlandi
sé í rénun, að því er segir í fréttum í gær. í héruðunum við
Tyne og Mersey hefir veikin geisað með auknum krafti síð-
ustu daga. —
og
herja frá Kóreu. Að því loknu
verði tekið til umræðu full-
trúaréttur Pekingstjórnarinn-
ar hjá S. Þ.
Fundi þeim, sem halda átti
í nefndinni í gærkveldi, var
skot ð á frest, og verður næsti
fundur í dag. Er þá búizt við,
að tillögur þær, er fyrir nefnd
inni liggja komi til atkvæða,
en ekk: er enn úr því skorið, í
hvaða röð þær verða bornar
upp.
Attlee ræðir
landvarnamál •
Attlee forsætisráðherra
flutti ræðu um landvarnar-
mál í neðri deild brezka þings
ins í gær. Sagði hann, að
hann væri sannfærður um, að
hægt væri að komast hjá
heimsstyrjöld, en vígbúnaður
og yfirgangur Rússa sýndi þó,
að það væri því aðeins hægt,
að hinar vestrænu þjóðir
efldu landvarnir sínar svo,
að Rússar treystust ekki til
að ráðast á þæR Hann sagði,
að fastaher Rússa væri nú
2,8 millj. og mundi tvöfaldastj
á næstu tveim árum. Þessi,
her væri vel búinn og flug- j
herinn meiri en í nokkru öðru!
landi. Attlee hefir nú tekið
að sér að gegna um sinn em-
bætti utanríkisráðherra í veik
indafjarveru Bevins. Bevin
var þungt haldinn i gær og
varð lítið úr bata þeim, sem
læknar töldu votta fyrir í
fyrrakvöld. —
Um síðustu helgi sendu
heilbrigðisyfirvöldin i Liver-
pool heílbrigðisráðuneytinu
hjálparbeiðni á þessa leið:
Sendið fleiri hjúkrunar-
konur hingað eða sjúkrabif-
reiðar, svo hægt sé að flytja
fólk, sem þarf tafarlaust að
komast í sjúkrahús, til ann-
arra héraða, þar sem sjúkra-
húsin eru ekki yfirfull.
Dánartalan heldur áfram
að vaxa, en þeir, sem látast
úr sýkinni eru langflestir
yfir fimmtugt, 85% eru 55
ára eða eldri.
Dánartalan eins og í
„spönsku veikinni."
í Englandi og Wales, sem
hafa um 20 millj. íbúa, varð
dánartalan af völdum inflú-
enzu í vikunni sem leið 850,
og hafði vaxið nálega um
helming frá næstu viku á und
an. Það er ískyggileg aukn-
ing, og þessi dánartala er
fyllilega eins há og dánartal-
an í hæstu vikunni árið 1919,
þegar „spánska veikin" geis-
aði. —
Skortur á serumi.
í London hefir veikin og
mjög breiðzt út síðustu dag-
ana. Þar eru öll sjúkrahús
yfirfull. Farsóttin hefir líka
komið hart við stofnanir þær,
sem sjá um blóðgjafir í neyð'
artilfellum á skurðarborði
eða slysatilfellum, eða vinna'
serum til varnar inflúenzu1
og öðrum farsóttum.
t spönsku veikinni dó
unga fólkið.
Sá er helztur munur tal-
inn á inflúenzunni í Bret-
landi núna og 1919, að þá var
það nær eingöngu ungt fólk,
sem dó, en nú er langmestur
hluti þess gamalt fólk, sem
bilast á hjarta eða fær lungna
bólgu. —
Ókeypis skólavist
á Norðurlöndum
Undanfarin ár hafa þing
Noregs, Finnlands og Svíþjóð
ar, veitt Norrænu félögunum
í þessum löndum nokkurn
fjárstyrk til þess að geta boð
ið ungu fólki frá hinum Norð-
urlöndunum ókeypis skólavist
í lýðháskólum í einn vetur.
í ár hefir verið gert ráð
fyrir að félögin fái þennan
styrk einnig, og verður ungl-
ingum frá íslandi, einnig eins
og áður, gefinn kostur á þess-
ari skólavist.
Næsta vetur mun ókeypis
skólavist verða veitt 7 ís-
lenzkum nemendum i Sviþjóð,
2 í Noregi og 1 í Finnlandi.
Nemendur eiga að hafa ver
ið minnst einn vetur í fram-
haldsskóla og vera orðnir 18
ára. Skólarnir byrja flesttr
fyrri hluta október og standa
í 6 mánuði.
Þeir nemendur, sem sa:kja
vilja nm þessa lýðliáskólavist
fyrir næsta vetur, sendi um-
sóknir sinar til framkv.stj.
Norræna félagsins, Ásvalla-
götu 58, Reykjavík, fyrir 15.
maí n.k. — Umsóknunum
fylgi aldursvottorð, afrit af
prófskírteini, frá framhalds-
skóla, meðmæli frá skóla-
stjóra eða kennara og mynd
af umsækianda.
EISENHOWER
í OTTAWA
Fcr þaðan tll Níew
Vork n ínorgun
Eisenhower hershöfðingi
kom síðdegis í gær til Ottawa
höfuðborgar Kanada. Hann
kvað fast að orði um þær á-
gætu undirtektir, sem hann
hefði hlotið í heimsókn sinni
í höfuðborgir Evrópu.
Ðregið í happdrætti
B.Æ.R. 22. febrúar
Á ársþingi B.Æ.R. í nóv. s.l.,
voru lagðir fram tillöguupp-
drættir að fyrirhúgaðri æsku
lýðshöll í Reykjavík, er Gísli
Halldórsson arkitekt hefir
gert á grundvelli sameigin-
legt álits húsanefndar, sem
ársþing skipaði, og bær og
ríki eiga fulltóúa i. Þýkir rétt
að taka fram um tillögur
þessar, að þær hafa mótazt
mjög af því sjónarmiði, að
forðast beri að seilast yfir á
hinn þrengri vettvang félags
heimilanna, og miða fyrir-
huguð mannvirki við það, að
með þeim sé fyrst og fremst
hrundið fram sameigínleg-
(Framhald á 7. síou.)