Tíminn - 17.02.1951, Side 2
2
TÍMINN, laugardaglnn 17. febrúar 1951.
40. blað.
Útvarpið
hafi til
Búnaðarþingsfulltrúarnir
hafa verið að koma til bæjar-
ins undanfarna daga.
Útvarpið í dag:
8.30 Morgunútvarp. — 910 Veð
urfregnir. 12.10—13.15 Hádegis-
útvarp. 15.30—16.30 Miðdegis-
útvarp.— (15.55 Fréttir og veð-
urfregnir). 18.25 Veðurfregnir.
18.30 Dönskukennsla; I. fl. —
19.00 Enskukennsla; II. fl. 19.25
Tónleikar: Samsöngur (plötur).
19.45 Auglýsingar. 20.00 Fréttir.
20.30 Tónleikar (plötur). 20.50
Upplestur: „Undursamleg hjólp
í lífsháska“ (Jón Norðfjörð les).
21.05 Tónleikar (plötur):
Straussvalsar. 21.25 „Mosi“_ út-
varpsleikrit eftir Gunnar Árna
son frá Skútustöðum. Leikstióri
Þorsteinn Ö. Stephensen. 22.00
Fréttir og veðurfregnir. — 22.10
Passsíusálmur nr. 24. 22.20 Dans
lög (plötur).
lok.
24.00 Dagskrár-
Hvar eru skipin? s
Sambandsskip:
M.s. Arnarfell kom við í Mal-,
aga 16.2. á leið frá Valencia
til Reykjavíkur. M.s. Hvassa-
fell er i Cadiz.
Eimskip:
Brúarfoss fer frá Reykjavík
17.2. til Araness. Dettifoss fór
frá Isafirði 16.2. til Kópaskers;
og Akureyrar. Fjallfoss er í
Kristiansand, fer þaðan til Rott
erdam, Antwerpen, Hull .ogj
Reykjavíkur. Goðafoss er í j
Reykjavík. Lagarfoss kom til
Hamborgar 15.2. fer þaðan 17.2.
til Rotterdam, Leith og Reykja-
víkur. Selfoss fór frá Antwerp-
en 14.2. til Djúpavogs. Trölla-
foss fór frá New York 11.2. til
Reykjavíkur. Auðumbla fór frá
Hull 13.2. til Reykjavikur. Fold-
in fór frá Rotterdam 14.2. til
Reykjavíkur.
Ríkisskip:
Hekla fer á hádegi í dag aust
ur um land til Siglufjarðar.
Esja er væntanleg til Reykja-
víkur í dag. Herðubreið er í
Reykjavík. Skjaldbreið er í
Reykjavík. Oddur er væntap-
legur til Reykjavíkur í dag. Ár-
mann fer til Vestmannaeyja í
kvöld. Þyrill er í Reykjavík.
Messur á morgun
Reynivallaprestakall.
Messa að Reynivöllum kl 2
e.h. á morgun. Séra Sigurgy^
M. Pétursson prédikar. Sóknar-
prestur.
Laugarneskirkja.
Messa klukkan 2, séra Garðar
Svavarsson, barnaguðsþjón-
usta kl. 10,15.
Nesprestakall.
Messa í kapellu háskólans kl.
2, séra Jón Thorarensen.
Árnað heilla
Iljúskapur.
Sunnudaginn 11. febr. voru
gefin saman í hjónaband ung-
frú Rósfríður Kristín Vilhjálms
dóttir, Akureyri, og Hörður
Garðarsson, Halldórssonar odd
vita á Rifkelsstöðum. Vígslu-
biskup séra Friðrik J. Rafnar,
gaf brúðhjónin saman.
Úr ýmsum áttnm
Gestir í bænum.
Meðal gesta í bænum eru:
Sigurður Jakobsson oddviti
Varmalæk, Haukur Jörundsson,
kennari, Hvanneyri, Snorri
Arnfinnsson gestgjafi Blöndu-
ósi, Bjarni Bjarnason bóndi
Skáney, Bjarni Jóhannsson,
forstjóri, Siglufirði.
Aðalufundur
Aðalfundur Félags húsgagna-
smiða- og bólstraranema, var
haldinn 6. febrúar s. 1.
1 stjórn voru kjörnir:
Formaður: Þorkell G. Björg-
vinsson, varaformaður: Stefán
J. Richter, ritari: Óli Þorbergs-
son, gjaldkeri: Ottó Malm'oerg,
meðstjórnandi: Hafsteinn Sölva
son.
Félagið efnir til skemmtifund
ar í kvöld kl. 9.00, í V.R. Eru
iðnnemar beðnir að fjölmenna
á skemmtifund þennan.
La Traviata.
Kvikmyndin La Traviata, sem
sýnir óperuna frægu við efni
Kamelíufrúarinnar, hefir nú
verið sýnd við fádæma aðsókn
í Stjörnubíó fullar þrjáv vikur.
Er það sízt að furða því aö par
sameinast snilli ágætra leikara
og söngvara ódauðlegum verk-
um á sviði tónlista og skáid-
skapar. La Traviata verður
sýnd í dag í Stjörnubíó fjórum
sinnum, kl. 3, 5, 7 og 9, og er
það í allra síðasta sinn fiert
vegna fjölmargra beiðna, sem
borizt hafa um þetta.
Skíðaferðir.
Laugardag kl. 2 og 6. Sunnu-
dag kl. 9 til 10,30 og 1,30. Sótt
í úthverfin fyrir kl. 10 ferð.
Afgreiðsla Hafnarstræti 21.
Sími 1517.
Skíðadeild K. R.
Skíðafélag Reykjavíkur.
Áheit á Strandakirkju.
Frá G.S. 50, G.J. 40, H.í. 40,
G.Þ. Garði 30, A.G.Þ. 10, Þor-
kelínu S. Þorkelsdóttur 50.
Áætlunarferðir á
snjóbíium um
Finnmörk
Norðmenn hafa nýlega
keypt tvo snjcbíla frá Kan-
! ada af sömu gerð og snjó-
bíllinn sem h ngað kom í
fyrradag. Voru bílar þessir
settir á land í Hamerfest og
haf nú verið teknir í notkun
sem áætlunarbílar að vetr-
inum í Finnmörk. Ætlun'n er
að koma á föctum áætlunar-
ferðum næsta haust milli
Alta og Karesuando ef leyfi
, Finna fæst til að fara yfir
finnsku landamær.'n sem á
leiðinni eru. Á þann hátt ^get
j ur ferð norðan frá Finnmörk
til Oslóar stytzt svo að ménn
, verða hálfum þriðja sólar-
i hring skemur á leiðinni.
Farast enn í snj«»-
flóðnm.
Snjóflóð falla enn í suður-
hlíðum Alpafjalla. í gær fór-
ust tveir menn Ítalíumegin
af snjóflóðum, og hafa þá
farizt 15 ítalir í snjóflóðum
þessa viku. E.'gnatjón af völd
um snjóflóða i Ítalíu á þess-
um vetri er talið að nemi
134 millj. líra. Miklir vatna-
vextir eru nú einnig í nyrztu
héruðum Ítalíu og valda
miklu tjóni.
A frrhum tteyi:
Óvænt niðurstaða
Danskir læknar hafa nýlega framkvæmt rannsókn á
því, hversu títt það sé, að fólk verði líkamlega veikt
vegna einhvers, er það í rauninni gerir sér I hugar-
lund. Niðurstaðan af þessum ránnsóknum hlýtur að
vekja athygli — og kannske líka tortryggni, því að hún
er sú, að allt upp í helmingur sjúklinga í lyfjadeildum
sjúkrahúsanna hafi upphaflega veikzt vegna sálrænna
orsaka eða andlegrar vanliðunar.
★ ★ ★ ■^t***'-
Einn læknanna hefir opinberlega skýrt frá rann-
sóknunum í dönsku blöðunum. Hann segir, að sjúk-
dómar af þessu tagi komi oft til sögunnar skömmu eftir
að fólk hefir komizt í mikla geðshræringu. Þegar farið
er að spyrjast fyrir um líf þessara sjúklinga, gætir þess
oft, að þeir kveinka sér við að tala um atvikið, sem er
hin raunverulega orsök og upphaf sjúkdómsins, og þeg-
ar það ber loks á góma, og ékki verður umflúið að tala
um það, komist sjúklingurinn oft úr jafnvægi og jafn-
vel setji að honum grát. Þannig hefir saga fjölda sjúkl-
inga verið könnuð og sannað, að talið er, að sjúkdóm-
urinn hefir oft byrjað eftir slík atvik, oftast fáum dög-
um eftir þau.
★ ★ ★
Það er ennfremur álit þessara lækna, að um fimmti
karlmaðurinn, sem rannsakaður var, hafi veikzt af and-
legum orsökum, hversu glögg sem líkamlegu sjúkdóms-
einkennin voru orðin, en þriðja hver kona. Sjúkdómar
þessa fólks séu bókstaflega því að kenna, að það hefir
lifað atvik, sem taugar þess þoldu ekki. Þeir staðhæfa,
að þriðji hver karlmaður í lyfjadeildum og helmingur
kvenfólksins þar, sé sjúkt af þessum orsökum. Þeir
telja og, að ófarir og vonbrigði á vinnumarkaðnum sé
algengasta orsök sjúkdóma karlmannanna, en von-
brigði i hjónabandi sjúkdóma kvenna. Ótti við sjúk-
dóma, svo sem krabbamein, eigi líka þátt í að gera fólk
veikt, og svo og misskilin orð af vörum lækna eða ann-
ar órökstuddur grunur.
★ ★ ★
Það er varla á færi leikmanna að dæma um réttmæti
þessara ályktana, en það er fróðlegt, að þetta komi
fram. J. H.
Gjafalesíin til
Stalíns eyðilögð
Á síðasta afmælisdegi Stal-
in gaf leppstjórn Rússa í
Austur-Þýzkalandi honum for
kunnar vandaða járnbrautar
lest er skyldi verða einkalest
hans í ferðalögum. í lestinni
voru auk eimvagns sjö vagn-
ar búir dýrasta búnaði og
þægindum. Hélt lest þessi
austur yfir Pólland en 20. km.
frá Varsjá var henni gefið
falskt stöðvunarmerki og 25
vopnaðir þjóðernissinnar
stukku inn í lestina, tóku að
'eyðileggja hinn dýra búnað,
! skera setur, brjóta húsgögn
og glugga og skildu við lest-
ina sem flak. Síðan leyfðu
þeir henni að halda áfram.
En nokkru austar sneru
rússnesk yfirvöld henni við er
þau sáu, hvernig hún var leik
in og sendu aftur heim
til gefendanna. Fregnir þess-
ar berast frá flóttamanni
sem nýkominn er til Vestur-
Þýzkalands og segist hafa séð
þetta.
Hirðulausir
stúdeníar
Við rannsókn á því, hvern-
ig mætt hefir verið til berkla
rannsókna í Danmörku árin
1940—1950, kom í ljós, að að-
eins 40% af stúdentunum
I við Kaupmannahafnarhá-
'skóla hefir hirt um að virða
þau fyrirmæli að láta berkla-
1 prófa sig. Jafnframt hefir
| komið í ljós, að berklaveiki er
j nær tvöfalt algengari meðal
háskólastúdentanna en hjá
öðru fólki í þjóðfélaginu á
sama aldri.
Þetta hefir vakið mikla at-
hygli í Danmörku, og er það
sérstaklega haft á orði, að að-
eins helmingur læknanem-
anna hirti um berklaskoðun-
Rómeo hinn krít-
eyski fyrir rétti
yopiiaburöns* bnnnað
ur í b«>rginni til að
koma í veg fyrir
uppþot
Undanfarna daga hafa stað
:'ð yfir réttarhöld í höfuðstað
Krítar yfir h'num kríteyska
Rómeó, eða Constantín Kefa-
loyanis, sem nam á brott ást-
mey sína í haust, Tassoulu
Petrakagnirorgis, dóttur auð-
ugs og voldugs höfðingja af
fjandsamlegri ætt. Mál þetta
le ddi nær því til borgara-
styrjaldar í haust, þegar Con-
stantín hvarf með meyna upp
í fjöll og kvæntist henni í
afskekktu ,klaustri i forboði,
og 2000 hermenn leituðu
þe'rra dögum saman.
Nú verður brúðguminn
leiddur fyrir rétt og sakaður
um myndun vopnaðs óaldar-
flokks, sem haft hafi að engu
boð yfirvaldanna. Brottnáms
sök'n verður hins vegar látin
falla niður, þar sem Tassoula
hefir eftir brúðkaupið lýst
yfir, að hún hafi farið með
honum af frjálsum vilja, gifzt
honum fús og vilji dvelja hjá
honum framvegis.
Á mánudaginn var, er málið
skyldi tek ð fyrir, þyrptust
fylgjendur beggja þessara
miklu ætta til höfuðstaðar-
ins, og lögreglan sá ekki ann-
að fært en banna allan vopna
burð almenn ngs. Herlið hefir
og verið aukið í borginni til
örygg's meðan málið stendur
yfir.
ina. Lögfræðinemarnir voru
þó enn hirðulausari, og munu
engir hafa mætt ver til skoð-
unar en þeir.
Stúdentaráð háskólans hef
ir tekið þetta mál í sínar hend
ur. —
Hangikjöt
i- Þaö bezta
selur
/
Samband ísl.samvinnufélaga
I Sýning í skemmuglugga
| Austurstrætis
••
Til 21. þ. m. má sjá þar ryðfría eldhúsvaska o. fl. jl
frá okkur, og erlendan stálvask frá innflytjanda. Ber- ||
ið saman verð, gæði og gjaldeyriseyðslu.
H.f. OFNASMIÐJAN