Tíminn - 20.02.1951, Blaðsíða 1
--------------..... I
Ritstjóri:
Pórarirm Þórarinsson
Fréttaritstjóri:
Jón Helgason
Útgefandi:
Framsóknarflokkurinn
Skrifstofur i Edduhusinu
Fréttasimar:
81302 og 81303
AfgreiOsUisimi 2323
Auglýsingasimi 81300
PrentsmiÖjan Edda
i!
35. árgangur.
Reykjavík. þriSjudaginn 20. febrúar 1951.
42. blar,
Vélbáturinn Björn
Úlafsvík sekkur -
Jörundsson frá
mannbjörg varð
250 fjölskyldum sagt
upp húsnæði 14. mai
Sennilegt að 'ippsagnir séu fleirir |iá htesa >
Tveir bátar misstn öll veiðas*fa»ri sín —
tilfinnanlegt áfall fyrir Ólafsvík
Frá fréttaritara Tímans í Ólafsvík.
Um klukkan hálf-fjögur í gær sökk vélbáturinn Björn
Jörundsson frá Ólafsvík við Öndverðarnes. Hafði komið að
honum mikill og bráður leki, svo að tvær skfpshafnir höfðu
ekki undan að ausa, svo að þær yfirgáfu bátinn, og sökk
hann skyndilega skammri stundu síðar.
Misstu ölli veiðarfærin.
Á sunnudaginn var lögðu
Ólafsvíkurbátarnir Björn Jör
undsson og Egill lóðir sínar
suður af Snæfellsnesi. Voru
þeir með 32 bjóð hvor. Er þeir
ætluðu að fara að draga lín-
una, voru lóð'rnar horfnar,
ásamt öllu tilheyrandi, og
mun annaðhvort straumur
hafa dregið þær niður í ál-
inn eða togarar dregið þær
burt í gærmorgun. — Fóru
bátarnir að leita að lóðunum,
en fundu ekkert.
Kemur leki að
Birni Jörundssyni.
Um klukkan hálf-þrjú í
gær voru báðir bátarnir á
heimleið, og var Björn Jör-
undsson þá um eina mílu
út af Öndverðarnesi, á hægri
ferð. Urðu skipverjar þess þá
skyndilega varir, að sjór foss
aði inn í bát'nn að framan.
Var planki sprunginn frá
stefni undir sjó. Fyrir snar-
ræði vélamanns tókst að
keyra bát'nn upp undir nes-
ið í lygnari sjó, en þar stöðv
aðist vélin, vegna þess, hve
mikill sjór var kominn í bát-
inn.
Tvær skipshafnir höfðu
ekki undan að ausa.
Egill var dálítið á eftir Birni
Jörundssyni, og tókst skip-
verjum strax að ná sambandi
við hann gegnum talstöð báts
ins. Kom Egill á vettvang eft-
ir tíu mínútur, og reyndu nú
báðar skipshafnirnar að ausa
Björn Jörundsson, en höfðu
ekki undan. — Vélbáturinn
Víkingur frá Ólafsvík kom
einnig á vettvang.
Björn Jörundsson sekkur.
Það v|ir þeear ljóst, að_ekki
Notið ekki heima-
ræktað kartöflu-
útsæði
Garðyrkj uráðunautur
Reykjavíkur hefir beðið blað
ið að minna garðeigendur i
Reykjavík á það, að nota ekki
eigið heimaræktað kartöflu-
útsæðl vegna sýkingarhættu.
Ræktunarráðunauturinn mun
eins og að undanförnu út-
vega útsæði úr Norðurlandi,
sem reynzt hefir mjög vel,
eða annað ósýkt útsæði.
var annars kostur en yfirgefa
Björn Jörundsson, og fóru
skipverjar all r yfir í Egil.
Ætluðu þeir að freista þess
að draga Bjfrn Jörundsson til
hafnar, ef hann kynni að
fljóta svo lengi. En eftir ör-
skamma stund sökk hann
skynd lega. Þá var klukkan
um hálf-fjögur. Var það sér-
stakt lán, að hér skyldi ekki
verða stórslys, því að báturhin
hefði farizt með allri áhöfn,
ef Egill hefð; ekki komið svo
skjótt á vettvang sem raun
varð, þar sem landtakan
framundan var ekki annað
en klettar.
Mikið áfall fyrlr Ólafsvfk.
Björn Jörundsson var 27
smálestir, smíðaður á Akur-
eyri 1940. Eigandi bátsins var
Víglundur Jónsson í Ólafsvík,
en skipstjóri á bátmrni í fjar-
veru eigandans, sem ætlaöi til
Noregs á vegum Fiskifélags
íslands á fimmtudaginn kem
ur, var Guðlaugur Guðmunds
son í Ólafsvík.
Skipstjóri á Agli, einnig 27
lesta bát, er Guðmundur Jens '
son í Ólafsvík.
Hér hefir orðið stórkostlegt
tjón, bæði fyrir eigendur og;
Ólafsvík í heild, og munu1
margir menn missa atvinnu
af þessum sökum, en fram-
leiðsla dragast saman, þótt
allir þakki hamingjunni, að
ekki fór ver.
Forsetinn all-
þungt haldinn
Forseti íslands, herra Sveinn
Björnsson, dvelst enn i Lands
spítalanum. Hann er með in-
flúenzu, þungt kvef og allhá-
an hita. Mun sjúkrahúsvist
hans því lengjast nokkuð frá
því, sem búizt var við í fyrstu.
Stoliö úr
skipum
í síðastliðinni viku var stol
ið tveimur rafgeymum úr vél
skipinu Eyfirðing, er lá við
Ægisgarð. Um helgina var
karlmannsfötum og yfirsæng
stolið úr vélskipinu Fell, sem
einnig lá við Ægisgarð.
Kynbótakáífur
í flugferð
Það bar. ti! fyrir nokkr-
um döyum, að Björn Páls-
son, flugmaður, var stadd-
ur í flugvél sinni vestur á
Reykhólum. Tilraunastöð-
in á Rcykhóiuzn átti þá ný-
keyptan kynbótanautkálf
tveggja eða þriggja daga
gamlan yfir á Tindum í
Geiradal, og þar sem ill-
fært var þan«að sökum
snjóa, spurði tilraunastjór
inn Björn, hvort hann v’ldi
ekki skjóíast eftir kálfin-
um fyrir sig. Gerði Björn
hað, flaug yfir að Tindum
og lenti á melbarði skammt
frá bænum. Var kálfurinn
síðan settur í poka og lát-
inn í sætið við hlið Björns,
sem síðan flaug með hann
til Reykhóla.
Ieigíinefiiil hafi ekki verið tilkynnt |ia«'
Blaðamaður frá Tímanum átti í gær viðtal við Ragna
Bjarkan formann húsaieigunefndar og spurðist fyrir um á
rangur af skrán ngu þeirri, sem fram hefir farið í skrifsto)
unni á húsaleiguuppsögnum á laugardag og sunnudag.
Eindæma harðindi
í N.-Þingey j ar sý slu
Frá fréttaritara Tímans
á Kópaskeri.
Eindæma harðindi hafa
gengið hér i sýslu undanfarn-
ar vikur og mánuði, svo að
jarðlaust er um alla sýslu og
hefir verið lengjfi. Snjóalög
eru mjög mikil og ill, þar sem
harðfenni er mikið.
Undanfarna daga hefir veð
ur verið sæmilegt og lítið snjó
að og var þá reynt að ryðja
vegi fram i Axarfjörð og
Kelduhverfi til að koma fóð-
urbæti til bænda, sem beðið
hefir flutnings á Kópaskeri.
Tókst að flytja nokkuð af
fóðurbætinum en ekki allt og
í gær tók að snjóa aftur, svo
að búast má við áð taki fyrir
færið á ný áður en þessum
flutningum er lokið. Kemur
það sér mjög illa fyrir bænd-
ur. —
250 t lkynningar.
Þessa tvo daga bárust húsa-
: leigunefnd um 250 tilkynnlng-
ar um uppsagnir á íbúðum í
1 bænum, miöað við 14. maí.
, Var fólk beðið að tilkynna
skr.fstofunni uppsagnir, og
eins áttu leigusalar að til-
kynna uppsagnir fyrir sina
hönd.
| Ekk; er þó enn fyllilega búið
að sannprófa. hversu mörg-
um að lum hefir verið sagt
upp húsnæði 14. maí en þá
falla úr gildi bindingar þær,
sem gilt hafa um leigukjör
I íbúðarhúsnæðis í bænum.
Ekki öll kurl til grafar.
Vitað er, að ekki hafa öll
kurl komið til grafar viö þessa
skrán’ngu, og munu margir
hafa látið und’r höfuð leggj-
ast að láta vita um uppsagnir
og ef til vill litið svo á, að það
myndi ekki hafa neina þýð-
ingu gagnvart útvegun á nýju
húsnæði. En til þess að gera
sér sem gleggsta grein fyrir
ástandinu í húsnæðismálum
er afar áríðandi, að fólk til-
kynni húsnæðisuppsagnir.
Aðallega eru það íbúðir í
gömlum húsum, þar sem fólki
er sagt upp húsnæði. En einn-
ig er talsvert sagt upp í hús-
um, sem byggð eru á fyrstu
styrjaldarárunum. Hins vegar
eru sama og engar uppsagnir
í nýbyggðum húsum.
Jarðbönn í Árnes-
hreppi í 3 mánuði
Frá fréttaritara Tímam
í Trékyllisvík.
Algert jarðbann hefir ver-
ið hér fyrir allar skepnur síð-
r.n fénaður var tekinn á hús
um 20. nóvember. Snjór er ali.
mikill á jörðu og börkugadd-
ur yfir allt. Stöku sinnum hei
ir gert spilliblota, sem hafa
staðið aðeins hluta úr degi :
hvert sinn og orðið til þes.‘:
eins að gera gaddinn meiri.
Víða hjálpar fjörubeitin
nokkuð, en mjög er það stop-
ult og misjáfnt, sem notast
að því. Á mörgum bæjum ei
fjörubeit lítil eða engin.
Menn halda almennt spart
á heyjum og gefa mikinn fóð
urbæti. Hvað heyin endast er
ekki gott að segja. Þó mur.u
þau almennt treinast til sum
armála og hjá ýmsum lengur.
Verði engin breyting á til
batnaðar, má búast við, að þá
íari að verða innansópað hjá
ýmsum. Kemur mjög hart nið
ur á bændum að fá þungan
og gjafafrekan vetur eftir
eitt hið versta sumar, sem
komið getur. Reynir það á þol
rifin og veikir afkomuhorf-
ur, hvernig sem fer að öðru
leyti.
Þungar horfur á ís-
fiskmarkaðnum brezka
Vorðift fallið, fisknr ónýtist vegna sölu-
tregðn, tugarar komast ckki að
Tvö Snnbrot
um helgina
Tvö innbrot voru framin í
Reykjavík um helgina. í fyrri
nótt var brotizt inn i tóbaks-
og sælgætisbúð að Laugavegi
72, og stolið þar peningakassa
með 1500 krónum í og 42 pökk
um af sígarettum, auk iltils
náttar af vindlum.
Einnig var brotizt inn í sæl-
gætisgerðina Nóa og stolið
þar um fjörutíu krónum í
smámynt, tveimur kartonum
af sígarettum og nokkrum
pókkum og pokum af kon-
fekti.
Mjög þunglega horfir nú
um aflasölur i Bretlandi, en
margir islenzkir togarar ætl-
uðU að selja þar í þessari
viku. Orsökin er mikið fram-
boð á fiski af brezkum veiði-
skipum.
Harðbakur náði sæmilegri
sölu í Grimsby á laugardag-
inn, seldi 3629 kitt fyrir 9771
pund. En Jón Þorláksson, sem
átti að selja sarna dag í Hull,
kom ekki út öllum fisknum,og
munu um 400 kitt hafa orðið
ónýt. Fyrir það af aflanum,
sem seldist, fengust aðeins
5954 pund.
Tveir íslenzkir togarar.sem
selja áttu í gær i Grimsby,
Marz og Fylkir, komust ekki
að sökum mikils fiskfram-
boðs.
Fundur í F.U.F.
á fimmtudag
Félag ungra Framsóknai
manna í Reykjavík heldui
fund í fundarsal Edduhúss-
ins á fimmtudaginn kemui
kl. 8,30 síðd. Fundarefni er:
Samvinnumál og framtiðar
verkefni Framsóknarflokks-
ins og eru frummæl-
endur Stefán Jónsson frétta
maður og Þráinn Valdimars-
son, erindreki. Þingmenn og
miðstjórnarmenn Framsókr
arílokksins munu mæta ?.
fundinum.