Tíminn - 20.02.1951, Blaðsíða 6

Tíminn - 20.02.1951, Blaðsíða 6
6 TÍMINN, þriðjudaginn 20. febrúar 1951. 42. blað. Giftur allri f jölskyldunni Afarfyndin þýzk gaman- ] mýnd. Aðalhlutverk: Ileinz Ruhmann, q sem lék aðalhlutverkið í | Grænu lyftunni. Sænskar skýringar. ; Sýnd kl. 5, 7 og 9. | TRfiPOLI-BÍÓ OFURHUGAR (Brave Men) Gullfalleg ný, rússnesk lit- kvikmynd, sem stendur ekki = að baki „Óð Síberíu". Fékk j 1. verðlaun fyrir árið 1950. | Enskur texti. Aðalhlutverk: Gurzo Tshernova Sýnd kl. 5, 7 og 9. NÝJA BIO ROBERTO. (Prélude á la Glorie) Stórfengleg tónlistarmynd, með hinum fræga 10 ára gamla tónsnillingi Roberto Benzi Tónlist: Liszt, Weber. Ross-| ini, Mozart, Bach. Sýnd kl. 5, 7 og 9. BÆJARBÍÓ! HAFNARFIRÐI Viö kertalj«»s j Leikkvöld Menntaskólans: | Sýning í kvöld kl. 8,30. Að-I göngumiðar seldir í dag kl. 2.j Sími 9184. j JniuAsLLngSoéÍLÖOuzl etu áejtaA: MírO-. ■. 4’ <5 \ * '* | Austurbæjarbíó | Jj»rui:<lur sinilíDr. Sýnd kl. 7 og 9. ! Gö«' og Gokke i fangelsi Sýnd kl. 5, 7 og 9. TJARNARBÍÓ Ljúfi g'ef inér litinn koss. ] Bráðskemmtileg rússnesk söngva- og músikmynd. Ensk I ur texti. A. Karlyev S. Klicheva Sýnd kl. 5, 7 og 9. GAIVILA BÍÓ Ég' var fangi á Grini. Aðalhlutverk: Harald Heidesteen, Oscar Egede-Nissen, Kari Frisell. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Bönnuð innan 16 ára. HAFNARBÍO Fallin fyrirniynd (Silence Dust) jHin fræga enska stórmynd, [sem farið hefir sigurför um ! allan heim. Aðalhlutverk: Stephan Murry, Sally Gray. Sýnd kl. 5, 7 og 9. | ELDURINN {f erir ekki boS & undan sér. { Þeir, sem eru hyggnir, { tryggja strax hjá j SamvinnutryggrAngum | MUNIÐ: j Auglýsingasíml TlMANS er 81300 Bergur Jónsson \ klálaflutningsskrifstofa Laugaveg 65. Slml 5833. Helma: Vltastíg 14. Askriftarsímis X I M I N IV £311 Gerkt áskrifenáor. VIÐSKIFTI HÚS • ÍBÚDIR LÓÐIR • JARÐIR SKIP • BIFREIÐAR EINNIG: Vcrðbrcf Vátry^ingar Auglýsingastaríscmi FASTEIGNA SÖLU MIDSTÖi)IN Lœkjargölu 10 B SÍMI 6530 Fnska knattspyrnan (Framhaid af 3. síðu.) inni og sigraði nú Sunder- land með yfirburðum. í 2. deild fór fram mjög þýðingar mikill leikur 'milli Coventry og Manch. City. Leikurinn var ekki vel leikinn en mjög skemmtilegur. Þegar 30 mín. voru af seinni hálfleik skor- aði Manch. fyrsta markið, en spenningurinn náði hámarki, þegar rúm mín. var eftir. Þá fékk Manch. hornspyrnu á Coventry. Spyrnan var tek- in, en það var Coventry, sem náði mjög hættulegri sókn. Einn leikmaður þeirra lék upp með knöttinn og spyrnti á markið. Knötturinn fór fram hjá markmanninum, en á marklínunni stóðu þrír varn arleikmenn og tókst að hreinsa frá, og nú var það Manch. sem tók við og áð- ur en nokkur gat áttað sig lá knötturinn í markinu hjá Coventry. Einhver hefir nú hraðinn verið. Preston sigr- aði Brentford og er það sjö- undi sigur liðsins í röð. Lið- ið er talið gefa beztu 1. deild- ar liðum ekkert eftir. Enska bikarkeppnin. Sjötta umferð fer fram næstkomandi laugardag, 24. febrúar og leika þá þessi lið saman: Newcastle—Bristol Rovers. Birmingham—Manch. Utd. Sunderland—Wolves. Fulham—Blackpool. Ennþá lendir þeim liðum ekki saman, sem álitið er ei5 séu líklegust í undanúrslit og úrsl’t. Fulham og Chelsea gerðu jafntefli í fimmmtu umferð og þegar liðin mætt- ust aftur sigraði Fulham með 3:0. H.S. Cjina JC miS: Leikfélag _ & Hafnarf jarðar Kinnarhvolssystur Sýning annað kvöld kl. 8,30. Aðgöngumiðar eftir kl. 4. — Sími 9184. — MARMARI Eftir Guðmund Kamban. Leikstjóri: Gunnar Hansen. sýning í Iðnó annað kvöld, kl. 8. Aðgöngumiðar seldir kl. 4—7 í dag. Sími 3191. Næst síðasta sinn WÓDLEIKHÚSIÐ Miðvikudag kl. 20. Flekkaðar hendur Aðgöngumiðar seldir frá kl. 13,15—20 daginn fyrir sýn- ingardag og sýningardag. Tekið á móti pöntunum. Sími 80 000. SKIPS- LÆKNIRINN 37 — Verið hér, sagði hún, þótt Tómas gerði sig alls ekki lík- legan til þess aö rísi á fætur. Verið hérna hjá mér dálitla stund. Það lá einmitt svo illa á mér, þegar þér komuð. Ég kvaddi góðan vin, er ég fór frá Þýzkalandi — og fæ aldrei að sjá hann framar. Tómas skildi ekkert af því, sem hún sagði. Hann heyrði bara þægilega rödd hennar. — Eigum við ekki að gleyma því, sem kvelur okkur? sagði hún. Hjálpa hvort öðru? Hún var oröin sannfærð um, að hún væri ástfangin af þessum mann, sem tilviljunin hafði fært henni upp í hend- urnar. — Ég skal segja yður alla mína ævisögu, sagði hún. Ég er þrjátíu ára gömul, og það hefir margt drifið á daga mína. Hann heyrði mas hennar eins og í fjarlægð, og hann sá glóðina í augum hennar og rakar varirnar í fölu andlitinu. Hann vissi ekki, hvernig það gerðist, en allt í einu hvíldi munnur við munn. og hann hélt lófanum utan um þrýstið brjóst hennar. En þetta varð skammvinnur sigur fyrir Júlíu Kaposí. Skyndilega spratt Tómas á fætur, og var horfinn út úr klef- anum. Hégómagirnd hennar hafði hlotið mikið sár. Tómas hafði flúið, án þess að segja svo mikið sem aukatekið orð við hana. Þegar hann kom upp á þilljur, mundi hann ekki lengur, hvernig hún leit út. Ég hefi verið að ganga af vitinu, hugsaði hann, og í sömu andrá skildi hann, að einmtt þetta atvik hafði sefað skap hans. Hann skammaðist sín fyrir þetta ævintýri með alókunnugri konu, en það var honum fróun að geta skammazt sín fyrir eitthvað. Hann stóð ekki lengur svo alveg vammlaus andspænis hinni syndugu Sybil! Það var hér um bil ein stund til hádegisverðar, og Tómas hafði ekkert að gera. Honum var ömun að hlátrum fólks- ins, og hann var líka hræddur við einveruna í híbýlum sín- um. Hann fór þess vegna upp í loftskeytastöðihá og barði að dyrum hjá Köhler og spurði hann frétta. Köhler starði út í bláinn og svaraði: Briand á að vera búinn að mynda nýtt ráðuneyti fyrir kvöldið. Það var gert banatilræði við spánska ríkiserfingjann í gær. Hann slapp heill á húfi — tilræðismaðurinn.... ... Tómas lagði höndina á handlegg honum. — Nei, sagði hann — ég meinti, hvort þú hefðir fengið fréttir af dóttur þinni. Köhler hristi höfuðið. — Læknarnir eru ekki annað en kuklarar, sagðí hann gremjulega og af ásettu ráði, þvi að hann langaði til að særa Tómas í hefndarskyni við stéttina. Tómas skundaði niður stigann aftur og reikaði um gang- ana. Hann vissi ekki, hvað hann átti að gera af sjálfum sér. Loks ranglaði hann inn í tónlistarsalinn. Þar sátu þá Lovísa og Wladimir. Þau urðu þess ekki vör, að hann kom inn. Tómas læddist að hægindastól og settist þar. Hljóðfæra- slátturinn hafði þægileg áhrif á hann. — Það virðist ætla að ganga prýðilega, sagði Lovísa, þeg- ar aríunni var lokið. Hún stóð fyrir aftan Wladimir. Tómas sá það á vangasvipnum, að hún ljómaði bókstaflega. — Er það ekki einkennileg tilviljun, að við skyldum hitt- ast hér og fara svona vel á með okkur? hélt hún áfram. Við stígum ekki einmana á land í Vesturheimi, og þurfum ekki að vera ein á kvöldin. Wladimir þagði og sló vandræðaiega fáeinar aukanótur. — Við verðum sannarlega góðir vinir, sagði hún. Hann hallaði sér aftur á bak, svo að höfuð hans nam við brjóst Lovísu. En þá tók hún utan um hálsinn á honum aftan frá og laut yfir hann. Tómas reist á fætur og gekk hljóðlega út. Systir Marta var í lækningastofunni, er hann kom þang- að. Hún hafði skorið sig í fingur og var að bera joð á skein- una. Hún ætlaði að flýta sér út, er hún varð hans vör. Hann furðaði sig á þessum viðbragðsflýti og spurði hana, hvað, að henni amaði. Hún sagði, að ekkert amaöi að sér — sagðist bara halda, að honum væri leiðindi að návist sinni. Hann mótmælti þessu harðlega. Hvernig gat nokkrum verið ógeðfelld návist hennar? Hún, sem var svo kyrrlát og fáskiptin og fórnfús. En þegar hann hafði orð á því, hve fórnfús hún væri, fann hann samt sjálfur, að hún hafði að nokkru leyti rétt fyrir sér. Hann var miður sín í návist henn- ar. Hún var fjarlæg öllum jarðneskum ástríðum, svo heilög. Hvað myndi hún hugsa, ef hún þekkti eigingirni hans og

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.