Tíminn - 08.03.1951, Qupperneq 4
4.
TÍMINN, fimmtudaginn 8. marz 1951.
56. blað.
Hvað er
Umræður þær, sem fram
hafa farið lim v.ínveitinga-
leyfin frægu, hafa að veru-
legu leyti snvfzt um það,
hvort afsakanlegt sé eða ekki,
að félög, sem telja sig vinna
uppeldislegt menningarstarf
eins og íþróttafélögin, reki
skemmtanir með áfengísveit-
ingum.
í því sambandi hefir því
óspart veriö hampað, að fé-
lögin væru fátæk og byrftu
mikið fé við rekstur sinn og
ef þau rækju ekki skemmtan
ir með vínveitingum myndu
aðrir gera það og hafa þá af
því allan ábata.
Svo langt hefir verið geng
ið í þessu sambandi að segja
að þeir, sem'ekki vildu slíkan
ábata fyrir menningarstarf-
semi fél. síns, ættuekkiheldur
að þiggja opinber framlög til
starfspmi þess, svö mjög sem
ríkið aflaði sinna tekna með
áfengissölu.
Hér skal nú ekki fjölyrt um
þetta, en hugleiða skyldu
menn þó, hvar við erum
staddir, þegar það þvkir rétt
læta vafasamt verk eða illt,
að ætla megi, að annar hefði
unnið það hvort eð var? Þjóf
jt og stigamenn allra alda
hafa kunnað þær málsbætur,
að þeir væru ýmist góðir
menn eða sérstaklega þurf-
andi og því væri miklu betra
að þeir stælu og rændu en
einhverjir aðrir. Þéir eru að
forða verðmætunum frá því
að lenda í höndum sér verri
manna.
Kjarni þessarar siðfræði er
svona:
Vitir þú um illt verk,
sem verða muni ábatasamt
er rétt að þú vinnir það,
verið i
Effiir IfalUlór
svo að gróðinn af því falli
ekki öðrum verri mönnum
í skaut.
Svo bætir rödd freistarans
við:
Þetta er svo sem ekki verra
en sitthvað annaö, sem þú
hefir orðið að þola. Þú ert
nú enginn dýrlingur. Hér er
ekki hvítt að velkja.
Menn skulu muna það, að
áfengisverzlun ríkisins er
neyðarráðstöfun, sem byggist
á því, að meiri hluti þjóðar-
innar vildi hafa áfengisverzl-
un í landinu. Þá vaf talið að
sú verzlun væri bezt komin
hjá ríkinu enda yrði að skatt
leggja áfengishautnina
drjúgum, þar sem hún væri
vesta og óþarfasta eyðsla þjóð
arinnar. Þeim tekjustofni
ríkisins var aldrei ætlað neitt
sérstakt misindishlutverk, en
sízt af öllu var þó gert ráð
fyrir þvi, að þessir blóðpen-
ingar andbanninga yrðu rök-
semdir til að verja alls kon-
ar óvandaðar fjáröflunarleið
ir, þar sem þeir segðu:
Þetta er ekki verra en á-
fengisgróði ríkisins!
íþróttabandalag Reykjavík
ur hefir nú gert ályktun um
að félög félög þess vinni að
bindindi hér eftir sem hing-
að til og afli sér framvegis
fjár til þeirrar starfsemi með
drykk j usamkomum!
Ef menn kynna sér bindindis
starfsemi annarra þjóða, sjá
þeir fljótt að hún snýst mjög
gegn drykkj utízku. Þess
vegna er þess krafizt annars-
staðar á Norðurlöndum, að
opinberir aðilar, svo sem ríki
ið feia?
Krisljáiissoi!
og bæjarfélög hætti að hafa
áfengi í veizlum. í Noregi til
dæmis hafa staðið yfir hörð
átök síðustu vikurnar um það,
hvort bindindismenn fengju
leyfi til að reka eitt fínasta
veitingahús höíuðborgarinn-
ar. Þar í landi reyna bindind
ismenn að gera sem flest veit
ingahús að bindindishúsum.
Jafnframt reyna þar að út-
breiða óáfenga ávaxtadrykki
til neyzlu í heimahúsum.
Bindindissamtökin í Nor-
egi vinna að því, að fækka
útsölustöðum áfengis, fækka
vínveitingahúsum og brj óta
drykkjusiðina á bak aftur á
þennan hátt. — Hitt hefi ég
^ekki séð í norskum blöðum,
að nokkur þáttur bindindis-
samtakanna ræki áfengissölu
beint eða óbeint til að afla sér
fjár til bindindisstarfsemi.
íþróttafélögin nafa fengið
minnstan hluta þeirra vín-
veitingaleyfa, sem veitt hafa
verið hér í Reykjavík undan
farið. Því spyr margur-hvar
þau hafi lent. Enn er mér
ekki kunnugt, að birt hafi
verið nein skýrsla um sundur
liðun þessara leyfa. Því er
það ekki gert? Er hér nokkuð,
sem þarf að fela? Og fyrir
hvern þarf þá að fela, ef svo
er?
Hver sá, sem vita vill hið
sanna í þessu máli og byggja
skoðun sína á réttu.m rökum,
hlýtur að krefjast þess að
gögnin séu lögð á borðið.
Það er talið, að Sjálfstæðis
húsið muni hafa selt áfengi
síðasta ár, sem svarar fimm
kvöldum í hverri viku, og mun
það þó sjaldan eða aldrei
hafa verið gert út á leyfi í-
þróttafélaganna. Þess vegna
halda ýmsir, að Sjálfstæðis-
flokkurinn sé mesti áfengis-
sali þessa lands, þeirra sem
lögreglustjóri hefir löggilt.
Það er ástæða til að láta
menn vita sannleikann í þess
um efnum, svo að Sjálfstæðis
flokkurinn sé ekki hafður fyr
ir rangri sök fremur en aðrir.
Það er sagt, að stundum
hafi verið búið til félag veit-
ingafólks í sérstöku veitinga-
húsi til þess að sækja um vín
veitingaleyfi fyrir opna sam-
komu, og leyfið hafa fengizt.
Slíkar sögur ganga nú um
bæinn. Það er því ástæða til
að láta menn vita sannleik-
ann.
Dómsmálastjórnin á tafar-
laust að birta sundurliðaða
skýrslu um öll vínveitinga-
leyfi 1945 til 1950. Hve mörg
leyfi fékk hver aðili á hverju
ári og hvar voru þau notuð?
Hér á ekki að fela neitt.
Ef menn finna til þess, að
hér sé vandamál, sem þurfi
að endurskoða, þá sæmir þeim
ekki að halda heimildum
leyndum.
Það er svo alvarlegur skuggi
yfir þessum málum, að veru-
legur hluti veitingaleyfa er
algjörlega ólöglegur. Mest öll
áfengissalan í Sjálfstæðishús
inu er lagalaust verk. Að tala
um hefð vegna þess, hve oft
sé búið að brjóta, er fleipur
eitt, eins og ef togaraskip-
stjóra væri látið haldast uppi
landhelgisbrot ef hann hefði
einskisvirt landhelgislögin í
20 ár, eða skattsvikari þætti í
fullum rétti, þar sem það væri
gróin hefð að falsa skatta-
framtal. Vonandi gerast þau
endemi aldrei framar í sögu ís
lenzkra réttarfarsmála, að
nokkur ábyrgur maður geri
sig að undri með slíku kjaft-
æði.
Það kemur ekki þessu máli
við, þó að einhverjir kunni að
telja að það væri gæíulegast
til góðra siða í meðferð á-
fengis, að sem víðast væri
frjálst að fá það. Þeirra skoð
un er ekkert nær því að vera
lög en skoðun hinna, sem
trúa á takmarkanir og höml-
ur. Hvorugir hafa neitt lög-
gjafarvald bak við Alþingi,
og vonandi kemur aldrei til
þess, að það fordæmi, sem hér
hefir verið skapað, verði talið
til„ hefðar“, svo að einstakir
embættismenn leyfi sér að
fara slíku fram á fleiri syið-
um.
Fari nú enn svo undarlega,
að engar fyllri skýrslur fáist
um þessi leyfi frá opinberum
aðilum, verður að freista ann
arra leiða til að upplýsa mál-
ið.
Uppgjöf einkaút-
gerðar á íslaadi?
(Framhald af 3. síðu.)
löggjafarinnar hvað sam-
vinnuútgerðarfélög snertir,
þannig að lokuð samvinnufé-
lög áhafna og starfsmanna
bátanna njóti þeirra s.iálf-
sögðu réttinda og stuðnings,
sem löggjöfin veitir.
Ég er ekki þeirrar skoðun-
ar, að það muni standa á sjó
mönnum að taka að sér sam
vinnurekstur á bátunum eft-
ir að löggjöfinni hefir verið
breytt á þá lund að gera hana
framkvæmanlega með góðu
móti. Og ríkisvaldinu ætti
sízt að vera það óljúfara, að
styrkja sjómenn almennt til
þeirar tilraunar, hvort held-
ur sem væri með því að leigja
þeim bátana, eða selja með
aðgengilegum kjörum, heldur
en halda áfram óeðlilegum
stuðningi við einkstklings-
rekstur, sem hrakar .ár frá
ári.
Getum nii íiívogað Isinn.r þobkn Allis<CkaImors Model
og ölírn lilhovrandi viiiiisliiliokjiiiti frá Allls-Clialuicrs
linmnton, Engiamll.
9.B“ Iijóladrátíarvélar ásamt sláttnvélum
Manufacturing Compaity, Totton, Soat-
Miðandi við núgildandi innkaupsverð yrði útsöluverð dráttarvélarinnar með tilheyrandi útbúnaði, þ. e. vökvalyftu, aflúrtal
ljósaútbúnaði og reimskífu, um kr. 20.200.00 og útsöluverð slátturvélarinnar, sem sérstaklega er smíðuð fyrir íslenzka staðhættí.
3.900.00. Dráttarhestafl Model „B“ vélarinnar er 20,6 og beltishestafl 22,87.
Eldsneytiseyðsla Allis-Chalmers Model „B“ vélarinnar er minni en nokkurar annarar sambærilegrar bensín-dráttarvélar, eða um 2,1
á klukkustund í öllum léttari akstri, þar með töldum slætti.
Samkvæmt nýútgefnum lögum geta bændur nú sjálfir ráðið kaupum á
dráttarvélum. Þar eð Fjárhagsráð hefir nú ákveðið úthlutun á hjóladrátt-
arvélum til innflutnings frá Evrópulöndum, þá teljum vér ráðlegt, að bænd-
ur athugi nákvæmlega hina mörgu kosti Allis-Chalmers dráttarvélanna og
að þeirri athugun lokinni sendi Uthlutunarnefnd jeppabifreiða beiðni um út
hlutun á greindri dráttarvél. Samtímis því, sem þér sendið nefndinni beiðni
yðar, þá gerið svo vel að gera oss aðvart þar um. Biöjið oss um lýsingu á
Allis-Chalmers Model „B“ vélinni, sem send verður yður um hæl.
Allar nánari upplvsiiigar or aö ffá Iijá
Skálagötn 59, Rcykjavík
Aðalumboð :
H. Benediktsson
Reykjavík.
Söluuinboð
Reykjavík