Tíminn - 17.03.1951, Blaðsíða 3

Tíminn - 17.03.1951, Blaðsíða 3
64. blaff. TÍMINN, laugardaginn 17. marz 1951. 3. Bikarkeppni í Bretlandi S. 1. laugardag fóru fram undanúrslit í ensku bikar- keppninni milli Blackpool og Birmingham, sem kepptu á velli Manch. City, Maine Road, og Newcastle og Wolv- erhamton, sem kepptu á leik velli Sheffield W. Hills- borough. Báðir leikirnir enduðu 0—0. Það var fyrst og fremst þá sérstaklega markvarð- anna, sem orsakaði að liðun- Um, sem e'ga ágætum skot- mönnum á að skipa, tókst ekki að skora — þrátt fyrir tæklfæri. Blackpool og Birmingham sýndu bæði sérlegan góðan leik. Blackpoöl lék betur, en Birmingham fékk betri tæki- færi 11 að skora. Það voru bseði skot og skallar i mark- st&ngirnar. Mortensen, mið- framhorji Blackpool, meiddist í leiknum illa í hægri hendi, en fór þó ekki útaf. Matthews var bezti maðurinn á vellin- um. Leikur Newcastle og Wolves var skemmtilegur og jafn nema síðustu 20 mín,. en þá hafði Newcastle m kla yfir- burði. Bæði liðin skoruðu sitt markið hvort,*— en þau voru dæmd ógild Vegna rangstöðu. Vörn'n var sterkari hjá New- castle, sérstaklega var mið- framvörður, Brennan, óvið- janfnanlegur. Hjá „Úlfunum" var markmaðurinn Williams beztur, og sex mín. fyrir leiks lok bjargaði hann „kanon- skoti“ frá Milburn og er það álitið mesta afrek mark- manns í Englandi í vetur. Á miðvikudaginn kepptu liðin saman aftur og urðu úr- slitin, eins og búizt hafði ver ið við eftir leikjunum á laug ardaginn, að Blackpool vann Birmingham með 2—1 og New castle vann Wolves með sömu markatölu. Lenda því Black- POQÍ og Newcastle saman i úrslitale.'knum, sem fer fram á Wembley 28. apríl. í sam- bandi við þann leik má geta þess, að Blackpool hefir ekki unnið Newcastle síðan 1937. Síðan Newcastle komst aftur í 1. deild 1948 hefir liðið unn ið Blackpool fjórum sinnum, en gert eitt jafntefli. í haust, þegar liðin mættust í New- castle, bar heimal ðið. sigur úr býtum með 4—2. í dag, 17. marz, lendir liðunum saman í Blackpool í lígunni cg verð ur- áreiðanlega fylgzt með þeim leik af miklum áhuga. H. S. Samvinnufræði . . . (Framhald af 4. síðu.) almenningsfé og einkum bænda. Aðrir þeir, er stofna til stórra fyrirtækja og glæsilegra hallarbygginga, nota aðeins til þess eigið fé, þ.e.a.s. fé, sem ekki er feng- ið að á einn eður neinn hátt, heldur er til orðið bara svona hinsegin. Við 2. sp.: í vasa „foikólf- anna.“ (Sbr. 44. tbl.). Við 3. sp.: Engu. Þau hafa þvert á móti féflett sveit- irnar (sbr. 44. tbl.) með ó- hagstæðri einokunarverzlun og beinu betli (sbr. 48. og 51. tbl.). Svari svo aðrir betur! XII. Hér að framan hafa verið tekin, af handahófi, nokkur sýnishorn, orðrétt, af sam- vinnuskrifum ísafoldar nú í vetur. En blaðið er, eins og menn vita, viku-útgáfa af höfuðmálgagni Sjálfstæðis- Oddur Magnússon í Skaftafelli Föstudaginn 2. þ. m. fórst Oddur Magnússon, bóndi í Skaftafelli, á sv plegan hátt. Hann var fæddur þar í Skafta felli 9. marz 1894, og skorti því viku á 57 ára aldur, er er hann andaðist. Foreldrar hans voru Guðný Þorsteins- dóttir, bónda í Skaftafelli, og Magnús Sigurðsson frá Hofi i Öræfum. Var þeim hjónum átta barna auð ð, tveggja dætra og sex sona, en áður en þessi barnahópur komst1 úr ómegð, féll Magnús frá. | Tóku þá elztu systkinin við | búsforráðum með móður. sinni, en er elztu bræðurnir j fluttust brott frá Skaftafelli,' kom umsjá bús ns í hlut Odds,1 og gerðist hann brátt mikill bóndi. Árið 1938 kvæntist Odd ur Ingigerði Þorste nsdóttur frá Berustöðum í Holtum, á- ( gætri konu er efldi allt, sem betur mátti fara, í búi Odds. Oddur í Skaftafelli var meðalmaður á hæð, þéttvax- inn og þreklegur. Hann var hverjum manni hvatari á fæti, snarráður og þó hygg- inn, en hvar sem hann fór, var sem fjör og snerpa staf aði frá honum. Snemma hóf Oddur ferðir um Skeiðarársand, og má kalla, að Skeiðará væri leik- systir hans, enda var það að- dáunarvert, hversu honum lét að velja vöð á viðsjálum álum hinnar illvígu ár. Þeir Oddur heitinn og Hannes á Núpsstað áttu margar ferðir yfir Ske’ðarársand, og veit ég ekki til, að þeim hlekktist á nokkru sinni. Hitt tel ég víst, að marg'r eigi þeim líf að launa. Oddur Magnússon var upp- alinn í Skaftafelli og átti þar heima alla stund. í dag verður hann borinn þar til moldar, og þykir mér fara vel á því, að hann hljóti þar legstað. Þar velt ég stórbrotn asta útsýn á byggðu bóli á íslandi og andstæður mestar í náttúrunni, Skeiðarársand- ur blasir við, blá auðn, og áin hið næsta, en t'l annarra átta jöklar, hamrafjöll og Hvannadalshnjúkur sjálfur. Margir munu hugsa til Skafta fells í dag, þeir er þaðan eiga að minnast gestsrisni hús- bænda og öruggrar leiðsagn ar Odds Magnússonar. í þeirra hópi er ég einn og sendi ekkju hans og aðstand endum öðrum innilegar sam- úðarkveðjur. Pálmi Hannesson. Sjötugur í dag: Guðmundur Hannesson fyrrum bæjarfógeti í dag 17. marz er Guðmund ur Hannesson fyrv. bæjar- fógeti í Siglufirði 70 ára. Hann er fæddur að Stað í Aðalvík 17. marz 1881, sonur hjónanna Hannesar bónda Sigurðssonar og konu hans Jórunnar Einarsdóttur prests að Stað í Aðalvík Sivertsen. Guðmundur Hannesson varð stúdent 1903 og lögfræð- ingur 1909. Málaflutnings- maður á ísafirði og settur sýslumaður í Barðastrandar- sýslu þar til hann varð bæj- arfógeti í Siglufirði 1919. Odd viti bæjarstjórnar Siglufjarð ar var hann frá 1919 til 1938 að sérstakur bæjarstjóri var ráðinn. Fyrir störf sín í þágu Siglu- fjarðar og þjóðarinnar hefir, hann hlotið margs konar þakklæti og viðurkenningu auk þeess verið sæmdur Sct. Olavsorðunni og kgl. Vasa- orðunni. Guðmundur Hann- esson er kvæntur Friðgerði Guðmundsdóttur, Bjarnason-| ar bónda á Ögurnesi, þau | eignuðust fjögur börn, eru þrjú þeirra á lífi, en yngsta son sinn, Hallgrím lækni, misstu þau fyrir rúmu ári síðan. Guðmundur Hannesson hef ir mikið starfað í Framsókn- arflokknum og verið formað ur fulltrúaráðs flokksins um langt skeið í Siglufirði. Tímnn óskar afmælisbarn inu alls góðs á komandi tím- um og þakkar starfsömum og stefnuföstum manni unnið dagsverk í þágu lands og þjóð ar. Jón Kjartansson bæjar- stjóri skrifar um Guðmund Hannesson í blaðið i dag og fer grein hans hér á eftir: flokksins, Morgunblaðinu. í 11 tölubl., er út komu á tíma- bilinu 19.9—3.12 s.l. taldi ég einar 14 greinar og greina- kafla, samtals um 30 dálka, sem að efni til eru meira og minna rammar árásir á kaup félögin og Sambandið, og jafn framt lævísar tilraunir, gerð- ar undir yfirskini almenn- ings-ástar, til að vekja tor- tryggni í garð þessara stofn- ana og forráðamanna þeirra. Af nógu miklu var þvi að taka. Og að sjálfsögðu voru þessi tölubl. ekkert sérstök um þetta, heldur tók ég þau til yfirlits af því einu, að svo vildi til, að þau voru vís. Maður gæti freistast til að varpa fram þeirri spurningu, hverjar hvatir muni standa að baki þessari miklu rit- mennsku. Eru það hagsmunir almenn ings eða heildsalanna sem höf undarnir bera svona fyrir brjósti? Svari því hver fyrir sig. — Gísli Magnússon. Þegar Siglufjörður var við urkenndur sem sérstakt lög- sagnarumdæmi með kaup- staðarréttindum árið 1918 rættist langþráður draumur Siglfirðinga og ný öld hófst 1 Siglufirði. Lögin um bæjarstjórn Siglu fjarðar frá þessum tíma brutu blað í sögu Siglufjarðar. Lög þessi buðu það m. a. að sérstakur lögreglustjóri skyldi skipaður í Siglufirði og skyldi hann jafnframt vera sjálfkjörinn oddviti hinnar nýju bæjarstjórnar. Þegar eftir setningu þessara laga hófust í Siglufirði umræður og tilgátur um það, hver myndi verða hinn nýi lög- reglustjóri. Allir voru á einu máli um það, að svo mikill ráðamaður yrði hinn nýi lögreglustjóri og bæjarstjórnaroddviti, að framtíð Siglufjarðar væri mikið undir því komin, að vel tækist til um veitingu þessa embættis. Fjórir lögfræðing- ar sóttu um þessa stöðu. Að vanda hreppti aðeins einn stöðuna, hét sá Guðmundur Hannesson, þá málafl.maður og ræðismaður á ísafirði. í gömlum blöðum getur, að Siglfirðingar hafi tekið þess- ari embættaveitingu vel, þav sem spurzt hafði, að maður þessi væri „góður maður og gegn“. Þessi ungi lögfræðingur, sem kom til Siglufjarðar fyrir rúmlega 30 árum, er sjötugur í dag. Kvikur á fæti og beinn í baki lítur hann nú yfir far- inn veg. Á þessum minningardegi manna S glufjarðar, en hitt er rétt að láta hér koma fram, að á þessum þróunartíma Siglufjarðar var hann oddvit- lll j inn, og á herðum þeirra hvílir jafnan mestur vandinn, þyngsta ábyrgðin og afdrif samþykkta, og lok mála eru oft undir því komin, að odd- vitinn sé vandanum vaxinn — og það var Guðmundur Hannesson. Þegar litið er yfir það starf, sem unn ð var í þágu Siglu- fjarðar af ráðamönnum þar, fyrsta aldarfjórðunginn eftir fengin kaupstaðarréttindi, þá held ég að við, sem nú byggj- um Siglufjcrð, megum vel við una og vissulega stöndum v.ð í þakklætisskuld við braut- ryðjendurna og þá ekki sízt Guðmund Hannesson. Þeir, sem til þekkja, vita að það er jafnan storma- samt í kringum þá menn, sem vinna að sveitastjórnarmál- um og þjóðmálum. Guðmund ur Hannesson fór ekki var- hluta af því fremur ,en hver annar. Slikt fékk lítið á hann, hvorttveggja var, að hann vann eins og samvizka hans bauð honum og hann átti ó- venjulega gott vígi, þar sem var heimili hans. Kona hans frú Friðgerður bjó þeim glæsi legt heimil:, sem var griða- staður og hvíldarstaður hús- bóndans, en þó gestkvæmt. Hver, sem þar kom, var vél- kominn. Innlenda og erlenda tignargesti bar oft þar að garði ,— móttökur þar voru jafnan á einn veg, sem var bæ og þjóð til sóma. Það varð hlutsk pti Guð- mundar Hannessonar að vinna ævistarf sitt i miðstöð síldveiða og síldariðnaðar, engu að síður var bóndinn ofarlega í honum. Eftir fárra ára setu i S glufirði fékk hann sér hrjóstrugt landsvæði, sem á skömmum tíma breyttist í höndum hans í graslendi og góðan töðuvöll. Mitt i ný- ræktinn' reisti hann sér íbúð arhús, er það enn eitt af glæsilegustu húsum i Siglu- firði. Jafnframt ræktuninni var kom'ð upp fögrum garði við hús þeirra hjóna. — Trjá- gróðrinum þar, var af hús- móðurinni sýnd einstök umhirða. Árangurinn í bæj- arfógetagarð num sannaði að Siglufjörð er hægt að klæða skógi, ekki síður en aðra staði, sé því starfi gaumur gefinn eins og vera ber. Guðmundur Hannesson er sendir fjöldi vina og kunn- ingja árnaðaróskir og af- mæliskveðjur á heimili G. H. Því margir hafa fyrir margt að þakka. í apríl 1919 flutti Guðmund ur Hannesson til Siglufjarðar ásamt konu sinni, frú Frið- gerði Guðmundsdóttur og elzta syni þeirra. Ekki veit ég, hvort Siglu- fjörður hefir heilsað þessum væntanlegum borgurum* sin- um með sói og sunnan vindi eoa kafaldi og kaldregni. Hitt veit ég, að ungu hjón in tóku strax til starfa, hann við að undirbúa fyrstu bæj- arstjórnarkosningar í bæn- um, og frúin við að skapa hið nýja heimili. — Dugnaðurinn, sem þessi hjón sýndu fyrstu dagana, var ekkert stundar- fyrirbrigði — alla sína tíð hafa þau verið að verki — dugnaður, vinnuþrek og vinnu gleði hefir einkennt líí þeirra. Þau störf, sem Guðmundur Hannesson tók við í Siglufirði 1919, voru tviþætt. Annars vegar varð hann að sinna lög reglu- og dómsmálúm auk innheimtustarfa og hins veg- ar var umfangsmikil bæjar- málaforusta í bæ, sem var að vakna til nýs lífs, bæ, sem átti eftir að verða ein athafna mesta útgerðar- og fram- leiðslustöð landsins. Verkefnin á sviði bæjarmál anna biðu óleyst i tugatali. Hreppsnefndin, undir yfir- stjórn sýslunefndar Eyja- fjarðarsýslu, kom litlu til leið ar, sem von var, þar sem sam- eiginleg fjármál við sýsl- una heftu framfara- mál Siglufjarðar. — Nú hafði verið losað um þá hlekki. Nú var fyrst þörf sam eiginlegra átaka og öruggrar forustu. Engin hafnarmann-1 dýravinur og góður virki til, götulagning skammt hestamaður og átti hann á veg komin, engin holræsi, ekkert sjúkrahús, léleg raf- stöð, ekkert íshús, ekkert mjólkurbú, ónóg vatnsveita, og dýrmætustu lóðir og lend ur í höndum erlendra manna. Hin nýkjörna bæjarstjórn undir forustu Guðmundar Hannessonar hófst þegar handa og siðan var haldið áfram. Hrundið var af stað stórmerkum framkvæmdum. — Vegir voru lagðir, hafnar- mannvirki gerð, sjúkrahús reist, mjólkurbú stofnsett, Skeiðsfoss keyptur, ný kirkja byggð, lóð r og lendur keyptar af útlendingum, síldarverk- smiðja byggð, og svo mætti lengi telja. Ekki ætla ég mér að telja framkvæmdir þessar allar verk Guðmundar Hann- essonar. — Þar voru að verki ýmsir hinna nýtustu ráða- (Framhald á 6. siðu.) ~ ~— Hús og garður Guðmundar Hannessonar á Siglufirði.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.