Tíminn - 07.04.1951, Side 1
Rttstjórl:
Þórarinn Þórarinsson
Fréttarltstjórl:
Jón Helgason
Útgefandi:
Framsóknarflokkurinn
Skrifstofur í Edduhúei |
Fréttasímar:
81302 og 81303
Aígreiðslusími 2323 ;>
Auglýsingasími 81300 J
Prentsmiðjan Edda |
35. árgangur.
Reykjavík, laugardaginn 7. apríl 1951.
78. blaö.
Verkfallsástand á götum Parísar
4. ágúst síðastliðinn var
gefinn út listi um vörur, sem
heimilt var að flytja inn án
innflutningsleyfis. Þessi listi
var aukinn í haust, og í gær
ákvað ríkisstjórnin að aúka
frílistann enn verulega, svo
að nú er frjáls innflutningur
á flestum aðalrekstrarvörum
atvinnuveganna og helztu
neyzluvörum almennings.
Stuðlað að fjölþætt-
ara atvinnulífi
Núverandi bæjaryfirvöld í
Siglufirði stuðla mjög að fjöl-
þættari atvinnurekstri í
kaupstaðnum, undir forustu
Jóns Kjartanssonar, hins
duglega og ötula bæjarstjóra.
Þannig hefir nú verið á-
kveðið að auka verulega strax
á þessu ári ræktun á kúabúi
bæjarins að Hóli, til að
minnka hin miklu heykaup,
sem undanfarið hafa átt sér
stað til búsins á hverju
hausti.
Er mikil og aðkallandi þörf
fyrir kaupstaðinn, að aukin
verði framleiðsla neyzlu-
mjólkur, svo sem frekast er
kostur, þar sem samgöngu-
erfiðleikar á vetrum valda oft
alvarlegum mjólkurskorti í
bænum.
Stútmíðar frá Áfengis-
verzluninni leikfang
Friimbnrðnr bílstjórans, cr seldi spirltus«
Itlttnduna á flöskum frá Á. R.
Fulltrfti sakadómara hefir haft til rannsóknar áfengis-
sölumál bílstjóra eins, sem hafði til sölu spíritusblöndu á
flöskum með miðum frá Áfengisverzlun ríkisins. Málið ei
ekki full-upplýst enn, og þykir framburður bílstjórans tor-
íryggilegur. Fulltrúi sakadómara skýrði Tímanum svo frá
þessu máli í gær:
Margskonar óþægindi og erfiðleikar hliuust af verkfalli bíl-
stjóra og starfsmanna neðanjarðarbrauta í París á dögun-
um. Þessi mynd sýnir ástandið á einni brautarstöðinni, þar
scm fólk býður og ætlar að veifa stórum flutningabílum,
sem stundum taka fólk upp.
Alvarlegt fisklleysi á
miðum Austf jarðabáta
Aðeins fjjárðungur miðlungsafla kominn á
land á Djúpavogi. — Fiskilaust á miðum
Frá fréttaritara Tímans á Djúpavogi.
Vertíðin hefir brugðizt hrapallega það sem af er. Afli
Djúpavogsbátanna er ekki nema fjórði hluti aflans, sem
kominn var á land um þetta leyti í fyrra. Er hvort tveggja,
að gæftir hafa verið stirðar og aflaleysi. Virðist svo, sem
fiskur sé áberandi minni á miðunum núna, bæði djúpt og
inn á firði.
haglaust og mikil harðindi.
Suður á Djúpavogi og sunnar
er hins vegar mikiu snjólétt-
ara. Þar hefir verið þíðviðri
undanfarna daga og nú víða
komnir hinir sæmilegustu
hagar.
Á sama tíma hefir enn snjó
að og harðnað á norðan Beru-
fjarðar.
Róið í tvo daga.
í gær var búið að róa tvo
daga frá Djúpavogi eftir lang
varandi gæftaleysi. Aflinn var
sáralítill, eða 6—7 skippund
á bát í róðri.
Reynt hefir verið með
þorskanet í firðinum, en ekki
hefir aflazt heldur með þeirri
veiðiaðferð. í fyrra var hins
vegar kominn sæmilegur afli
í þorskanet innfjarðar um
þetta leyti, enda er það venja
að þær veiðar hefjist og gefi
góða raun snemma vors.
Snögg umskipti.
Einkennilegt er það hversu
snögglega skiptir um veðráttu
við Berufjörð. Norðanmeginn
á Berunesi er allt í kafi i snjó,
Dularfullur yestur:
Skiiríkjalaus stúlka
kom með Karlsefni
Segist vera íslen/k. cn talar ekki íslenzka
né þekkir íslenzka staðhætti
Iir togarinn Karlsefni kom til Reykjavíkur á miðviku-
daginn var með skipinu sérkennilegur farþegi — stúlka, sem
Þórarinn Olgeirsson, umboðsmaður í Grimsby, hafðj beðið
fyrir flutning á. Var hún skilrikjalaus með öllu, sagðist vera
íslenzk, en kann þó ekki íslenzku og þekkir ckki stað-
liætti hér. .
--------------------- María Sigurðsson —
Helena Magnússon? I
Útlendingaeftirlitið hér hef
ir yfirheyrt stúlku þessa, en
lítið er á framburði hennar að
græða, og'stenzt fátt af því,
sem hún segir. Yfirheyrslurn
ar hafa farið fram á ensku.
Hún segist hafa verið nefnd
Marías Sigurðsson í Englandi,
en allt er í vafa um skírnar-
nafn hennar. Föður sinn seg-
ir hún heita Valdimar Sig-
urðsson, og hafi hún fæðzt í
Reykjavík 1928. Til Englands
þótt:st hún fyrst hafa farið í
nðvembermánuði síðastliðn-
um, brevtti framburði sínum
s’ðar á þá leið, að hún hefði
farið þangað í hitteðfyrra og
síðast, að hún hefði flutzt
þangað tveggja ára barn. —
Á skipinu sagðist hún hins veg
ar heita Helena Magnússon.
Töldu skipverjar, að hún hefði
ver ð send með Karlsefni til
fslands að tilhlutan sendiráðs
ins í London, en við yfirheyrsl
ur hefir stúlkan sagt, að hún
hafi aldrei séð íslenzka sendi-
ráðið í London, hvað þá meira.
Varla íslenzk.
Stúlkan er rauðhærð, föl í
andrtk meðalhá og feitlag!n.
í gær gaf sig fram í Reykja-
vík fólk, sem taldi stúlku
þessa líkjast mjög íslenzkri
hjúkrunarkonu, sem dvalið
hefir langdvölum erlendis.
Lögreglan telur með öilu ó-
(Framhald á 2. siðu.)
Leikfang handa
börnunum!
— Bílstjóri þessi segir, að
hann hafi fyrir jólin i vet-
ur farið með tómar flöskur
til þess að selja í Nýborg. —
Hafi hann þá séð hrúgu af
stútmiðum af flöskum Á-
fengisverzlunarinnar liggja
við dyraþrepin utan við Ný-
borg. Hafi hann þá gripið
niður í hrúguna, tekið þarna
rösklega fjörutíu miða og
stungið þeim í skúffu í mæla-
borði bifreiðar sinnar. Gefur
hann þá skýringu á þessu, að
hann hafi ætlað að gefa börn
um sínum miðana til þess að
leika sér að. Samt sem áður
gerði hann það ekki og lágu
miðarnir um hríð í skúffunni.
Keypti spíritus, bland-
aði og límdi yfir.
Seinna segist hann hafa
hitt mann, sem hann viti
engin deili á. Bauð hann hon
um fimmtán flöskur af ó-
blönduðum spíritus, og tókust
kaup með þeim. Síðan bland-
aði hann spíritusinn með
(Framhald á 7. síðu.)
Alþýðnf lokku r inn
tapar í Siglu-
firði
A síðasta bæjarstjórnar-
fundi í Siglufirði, urðu all-
miklar breytingar á nefnda-
skipunum bæjarins. Tapaði
Alþýðuflokkurinn fulltrúum.
úr nokkrum nefndum, en
Framsóknarmenn voru kjörn-
ir í trúnaðarstörf þessi í stað
inn.
Þannig var Bjarni Jóhanns
son kosinn í stjórn síldar-
verksmiðjunnar Rauöku í
stað Alþýðuílokksmanns og
einnig var hann koiinn i
stjórn bæjarbúsins að Hóli,
og er formaður hennar. Alls
unnu Framsóknarmenn sex
ný sæti í nefndum frá Alþýðu
flokknum, og hefir Framsókn
arflokkurinn ekki átt menn í
þessum nefndum áður.
Dauð loðna flýtur í
breiðum við Eyjar
Ðeyr aft loklnni farygniiigunni
Á sjónum umhverfis Vestmannaeyjar fljóta nú víða mikl-
ar breiður af dauöri loðnu, og það, sem enn er lifandi af
loðnunni virðist orðið mjög máttfarið, svo að hún drepst
jafnvel við öldusláttinn frá skipum, sem leið eiga um loðnu-
svæðin, og flýtur upp í kjölfarið.
Sólbráð hefir verið í Skaga-
firði síðustu daga, og er of-
urlítið farið að batna á hög-
um, þar sem vel liggur við
sól. Næturfrost hafa hins
vegar verið til þessa.
Loðnan mun koma upp að
landinu til þess að hrygna,
og er hrygningartíminn tal-
inn um miðjan marzmánuð.
Það er álit sjómanna, að loðn
an drepizt svo, að hrygningu
lokinni.
Álit fiskifræðinga.
Hermann Einarsson fiski-
fræðingur tjáði Tímanum, að
það væri einnig álit fræði-
manna, að hún dræpist yfir-
leitt að lokinni hrygningu. —
Kæmi oft mikil mergð af
henni upp að landi, og væri
hún þá svo máttfarin, aö
hún reyndi ekki að bjarga
sér, þótt undan henni fjaraði.
Þá væru þess einnig dæmi,
að mikiö af dauðri og iild-
inni loðnu hefði komið í
botnvörpu úti í Faxaflóa að
vorlagi.
Þjóðminjasafnið
verður varla
opnað í ár
Það á enn langt í land, að
þjóðminjasafnið verði opn-
að, sagði Kristján Eldjárn
þjóðminjavörður í gær við
tíðindamann frá Tímanum.
Það er verið að koma safn
inu fyrir í hinni nýju bygg-
ingu, en það er mikið verk
og seinunnið og mun taka
langan tíma. í ahnenna
safninu eru þrettán til fjór-
tán þúsund munir, sem raða
þarf niður og búa sem bezt
um, en auk þess eru svo sér-
deildir ýmsar. ,