Tíminn - 12.05.1951, Blaðsíða 1
Ritstjóri:
Þórarinn Þórarinsson
Fréttaritstjóri:
Jón Helgason
Útgefandi:
Framsóknarflokkurinn
r——~ --------——---------»—• 4
1 . ;• . ■
Skrifstofur í Edduhási
Fréttasímar:
81302 og 81303
Afgreiðslusími 2323
Auglýsingasími 81300
Prentsmiðjan Edda \
35. árgangur.
Reykjavík, laugardaginn 12. maí 1951.
104. bla«.
Borgarstjóri í New York, Vincent Impellitteri, fagnaði Auriol
Frakklandsforseta af mikilli bliðu, er hann kom í heimsókn
vestur um haf á dögunum. Þeir kysstu hvor annan á báðan
kinnai, og sýnir mvndin höfðingjana, er sú athöfn fór fram.
Sæbjörg í förum inn
í Viðeyjarsund í dag
Cóð skemmtisigliiig til styrktar S.V.F.f.
í dag gefur Slysavarnarfélag íslands Reykvíkingum kost
á því aff fara skemmtiferff með Sæbjörgu inn á sund og í
kringum eyjarnar. Hefir þessi háttur áður verið hafffur á, og
slík skemmtisigling veriff eftirsótt.
Aðeins sölubörn
I fyrstu ferffinni.
Ferðir þessar hefjast klukk
an eitt, en fyrstu ferðina fara
einvörðungu börn, sem sýndu
dugnað við sölu merkja og ár
bókar Slysavarnafélagsins.
Verði veður gott, verður þetta
góð og hressandi skemmti-
ferð.
Á tveggja tíma fresti.
Þegar Sæbjörg kemur úr
þessari siglingu með hina
ungu borgara Reykjavíkur,
verður almenningi gefinn
kostur á skemmtisiglingu
inn á sund. Verður farið úr
Reykjavíkurhöfn á tveggja
tíma fresti, og haldið áfram
eftir kvöldi, eins og aðsókn
og veður gefur tilefni til.
Á annan í hvítasunnu?
Verði mun fleiri en kom-
ast með skipinu í dag, er vilia
fara slíka siglingu, verður
skipið sennilega einnig haft
Tíminn kemur næst
út á miðvikudag
Vegna þess, að prentar-
ar vinna ekki nema til há-
degis í dag, laugardag fyrir
hvitasunnu, getur Tíminn
ekki komið út á morgun.
Næsta blaff kemur þess
vegna út á miffvikudaginn.
í förum á annan í hvíta-
sunnu, ef veður leyfir þá. En
um það verður fullnaðará-
kvörðun tekin síðar. En Tím-
inn væntir þess, að margir
taki fegins hendi góðu boði
Slysavarnafélagsins, og eigi
ánægjulega stund um borð í
SæbjOTgu og styrki Slysa-
varnafélagið til þjóðþrifa-
starfsemi.
Búið að sleppa fé
undir Eyjaf jöllum
Nokkur gróður er nú kom-
inn undir Ryjafjöllum, og er
klaki orðinn þar lítill í jörðu.
Er gróðurnál orðin svo mikil,
að búið er að sleppa sauðfé.
Flestir Sandgerðis-
bátar róa áfram
Sex Sandgerðisbátar voru
hættir veiðum á lokadaginn,
í gær, en 14 halda áfram, fram
yfir hvítasunnu, og sjá til
hvernig aflaðist. í gær var
afli bátanna þar flestra í
kringum 12 skippund.
Einn bátur stundar síld-
veiðar í reknet frá Sandgerði
og hefir hann aflað um 100
tunnur í sjóferð siðustu dag-
ana. Sildin virðist vera bæði
sunnan og norðan Reykja-
ness.
Margar fjölskyldur í Reykjavík
húsnæðislausar eftir 14. maí
Nanðalítið framlioð á letguíbúðum
Fyrr á árum var 14. maí mikili flutningadagur í Reykja-
víkur, og nú er sennilegt, aff aftur hverfi í það horf. Mörg-
ipn ieigjendum í Reykjavík hefir verið sagt upp húsnæði
sínu þá, en hýá sumum er sá hængur á, aff þeir munu ekki
Yfirlýsing frá ráð-
herrum Framsókn-
eiga í neitt annaff hús að venda.
10. hver fjöiskylda fékk
úriausn.
Samtals 29G fjölskyld-
ur hafa að undanförnu leitað
til leigumiðlunarskrifstofu
Fasteignaeigendafélagsins i
von um húsnæði, en í gær
höfðu aðeins verið»gerðar fyr-
ir milligöngu hennar leigu-
samningar um þrjátíu íbúðir.
Það hefir því ekki nema ná-
lega 10. hver maður fengið
úrlausn þar. Þess ber þó að
geta, að þetta fólk var ekki
allt húsnæðislaust 14. maí,
heldur var sumt af því að
leita fyrir sér um skárra hús-
næði en það hafði.
Barnafjölskyldur verffa
harðast úti.
Eins og gefur að skilja
hafa ekki nándarnærri allir,
sem í húsnæðishraki eru eða
verða 14. maí, leitað til leigu-
miðlunarskrifstofunnar, en á
hinn bóginn hafa auðvitað
margir, sem ekki gátu fengið
húsnæði með aðstoð hennar,
fengið von um eitthvert skjól
yfir höfuðið.
Líklegt er, að harðast verði
liti stórar barnafjölskyldur,
og aðrar fjölskyldur, sem sízt
mega við að vera í húsnæðis-
hraki.
Margir á götunni.
til ráða yrði þangað til, ef mik
il brogð yrðu að útburði hús-
næðislauss fólks, lá hins veg-
ar ekki ljóst fyrir í gær.
Tunnuverksmiðjan
starfar aftur
Frá fréttaritara Tímans
i Siglufirði.
Tunnuverksmiðjan í Siglu-
firði er fyrir nokkru tekin til
starfa eftir að gert hafði ver-
ið við skemmdir þær, sem
urðu af völdum brunans þar.
Verksmiðjan smíðar um
400 tunnur á dag og er enn
sem komið er aðeins unnið i
átta stundir á sólarhring í
verksmiðjunni, þó ástæða
virðist til að ætla að full þörf
sé fyrir 24 klukkustunda af-
köst verksmiðjunnar við
tunnusmiðina. Verkstjóri í
tunnuverksmiðjunni er Ást-
valdur Kristjánsson, sem unn
ið hefir að tunnusmíði í mörg
ár.
arflokksins
Aff gefnu tilefni viljum
við taka það fram, aff þeg-
ar samningsgerffin vtð
Bandaríkjastjórn um varn
ir íslands var til meðferð-
ar í þingflokki Framsóknar
manna, hlaut málið þá af-
greiðslu, að það var „sam-
þykkt með samhljóða at-
kvæðum allra þingmanna
að gera samninginn", eins
og lokaniðurstaðan er bók
uð í fundargerðinni. Allir
þingmenn flokksins voru á
fundinum. .Þessi niður-
staða var tilkynnt ríkis-
"ktjórninni og á henni byggð
skýrsla ríkistjórnarinnar
um afstöðu þingmanna.
Yfirlýsing ríkisstjórn-
arinnar um afstöðu þing-
manna til samningsins er
því rétt.
Hitt er annað mál og
þessu óviðkomandi, hver
afstaða einstakra manna
var til þess, hvenær máliff
skyldi lagt fyrir Alþingi.
Blóðskiptabarnið heim
Þótt enn sé ekki nema ó-
nógt yfirlit yfir það, hvernig
þessi mál standa, þá er full-
víst, að margir verða að fara
út á götuna 14. maí. Það kem-
ur þó ekki fyllilega í ljós,
fyrr en eftir nokkra daga, að
farið verður að bera út fjöl-
skyldur, sem hvergi hafa get
að fundið sér húsaskjól. Eng
ar slíkar kröfur voru að vísu
komnar til borgarfógeta í gær
en talið er víst, að þær ber-
ist eftir’helgina, er uppsagn-
arfresturinn er liðinn og
flutningsdagurinn um garð
genginn.
Engar sérstakar ráðstafanir..
Tíðindamaður frá Tíman-
um talaði í gær við Ólaf
Sveinbjörnsson lögfræðing,
starfsmann hjá Reykjavíkur-
bæ. Sagði hann, að enn hefðu
engar sérstakar ráðstafanir
verið gerðar til þess að hjálpa
fólki, er kynni að standa ráða
laust á götunni, en fylgzt
með því, er í þessu gerðist.
Gaf hann í skyn, að senni-
legt væri, að skölar bæjarins
yrðu notaðir handa húsnæðis
lausu fólki, ef til þyrfti að
taka, þegar þeir losna upp úr
næstu mánaðamótum. Hvað
nú um hvítasunnuna
Hoimkomu þess boðið með mikilli eftir-
vsentingii á heimili foreldra þess
Litla barnið, sem skipt var um blóð í í fæðingardeild Land-
spitalans í vor, mun geta farið heim til móður sinnar um
hvítasunnuna. Hefði það fengið að fara nú fyrir helgina, ef
það hefði ekki kvefazt.
Fjögurra vikna.
Barnið er nú orðið rösk-
lega fjögurra vikna gamalt,
og virðist hin nýstárlega að-
gerð, sem Elías Eyvindsson.
sem nú er orðinn svæfingar-
læknir í Landspitalanum,
framkvæmdi, nýkominn heim
frá útlöndum að loknu fram-
haldsnámi þar, hafa heppn-
azt prýðilega.
Beðið með eftirvæntingu.
Foreldrar barnsins bíða
heimkomu þess með hinni
mestu eftirvæntingu, og það
því fremur sem svo tvisýnt
var um afdrif þess. Verður
því fagnað af þeirri djúpu
gleði hjartans, sem ekki verð
ur minni en þegar týndi son
urinn kom heim, að sögn
hinnar helgu bókar.
Góður afli dragnóta
báta nyrðra
Frá fréttaritara Timans
í Siglufirði.
Sjór er nú sf.undaður á
nokkrum bátum frá Siglufirði
og hefir aflazt all vel að und
anförnu. Einkum hafa drag-
nótarbátar aflað vel út af
Siglufirði og á Grímseyjar-
grunni. Nokkrir aðkomubát-
ar hafa lagt upp afla sinn til
vinnslu í Siglufirði, og er
hann ýmist saltaður eða
frystur.
Hrognkelsaveiði er mikil í
Siglufirði á þessu vori og
margir sem hana hafa stund-
að.