Tíminn - 10.06.1951, Blaðsíða 1
F m rnrnm *■ <» a<v»
Rltstjórl:
Þórarlnn Þórarinsson
Fréttaritstjóri:
Jón Helgason
Útgefandi:
Framsóknarflokkurinn
r
Skrifstofur í Edduhúsi
Fréttasímar:
81302 og 81303
Afgreiðslusími 2323
Auglýsingasími 81300
Prentsmiðjan Edda
[----------------------
1
35. árgangur. Feykjavík, sunnudaginn 10. júní 1951. 127. blað.
Ný, auðug karfamið átta stunda
siglingu frá Faxaflóahöfnum
Rigndi 10,4 mm. á
einni klukkustund
Um hádegisbilið í gær
gerði óvenjulega mikla
rigningardembu á vestur-
landi og við sunnanverðan
Faxaflóa. í Reykjavík
mátti heita skýfali, og
mældist úrkoman á einum
klukkutíma, frá hálf-tólf
til hálf-eitt, hvorki meira
né minna en 10,4 miili-
metrar. Er harla langt síð-
an slík úrkoma hefir kom-
ið hér, og mun þetta vera
fast að því met á svo
skömmum tíma. Nálgast
þetta hinar mestu rigning
ardembur, er koma í sumar
hita erlendis.
Tíminn hafði ekki fregn
ir af l>ví í gær, hvort úr-
koman hafði verið svona
stórfelld víða.
Rákust saman á
fullri ferð
Á miðnætti í fyrrinótt varð
harkalegur árekstur milli
tveggja bifreiða á Laugavegin
um rétt við Tungu. MættuSt
þar tveir bílar á fullri ferð
og rákust saman. Skemmdust
bílarnir mjög mikið, en tiltölu
lega lítil meiðsl urðu á fólki.
Þegar lögreglan kom á stað
inn, voru báðir bílstjórarnir
horfnir af staðnum en lög-
reglan náði þó í annan og
kom I ljós að hann hafði ver
ið ölvaður við aksturinn. Ligg
ur sterkur grunur á því að
hinn hafi einnig verið ölvað-
ur.
Lögreglan biður því bílstjóra
þá er óku mönnunum burt af
slysstaðnum að koma til að
gefa upplýsingar og eins þá
aðra er þarna komu að, sem
upplýsingar geta gefið. En
fjöldi manns safnaðist þarna
saman eftir áreksturinn.
Mokafli, en liotn vefðafærairekHr
Ný og veiðisæl karfamið virðast nú vera fundin vestur I
hafi, am átta stunda siglingu á togara frá Reykjavík og
Hafnarfirði, en um 120 mílur út af Reykjanesi.
Fuli varpa'af karfa á
20 mínútum.
Selnustu daga munu togar-
ar hafa aflað mjög vel á
þessum veiðislóðum, og dæmi
er um það, að varpan hafi
verið orðin full eftir að tog-
að hafði verið í tuttugu mín-
útur. Nær allir íslenzku tog-
ararnir munu komnir á þessi
nýju karfamið.
Erfiður botn.
Botn er þó erfiður þarna,
og er mikið slit á veiðarfærum
en þó er hann þegar tekinn
að jafnast nokkuð, þar sem
mest hefir verið togað. Mun
hann smátt og smátt jafnast,
er farið verður að toga þar
langtímum saman af fjölda
skipa.
Aflatregða á gömlu
miðunum.
Gömlu karfamiðin voru
norðar og dýpra, út af Breiða
firði. Þegar afli fór að tregð-
ast þar, tóku togararnir að
leita suður með kantinum, er
gengur út frá landgrunninu,
unz þeir eru nú komnir á þess
ar fengsælu slóðir.
Leit að karfamiðum.
í fyrra fékk fiksimálanefnd
Benedikt Ögmundsson, skip-
stjóra á togaranum Júní frá
Hafnarfirði, til þess að leita
nýrra karfamiða. Reyndi
hann þá meðfram þessum
kanti, og fékk þar nokkurn
afla. En síðan féll karfaleitin
niður. Nú nýlega fór Júní aft
ur á karfaveiðar, og þá á þess
ar sömu slóðir, og í veiðiför
þeirri, sem hann er nú nýkom
inn úr, setti hann út dufl til
þess að merkja með mið, sem
hann fann. En nú hafa ís-
lenzku togararnir, sem á
karfaveiðum eru, flykkzt á
þessar slóðir hina síðustu
daga.
Halamið.
Á Halamiðum er nú nokk-
ur ýsuafli, en þar er aðeins
einn íslenzkur togari, Hval-
fell. Hins vegar er þar fjöldi
þýzkra togara að veiðum.
*
Islendingar við flug-
þjónustu þjálfaðir
Sigurður Þorseinsson lög-
regluþjónn úr Reykjavík hef
ir undanfarna daga verið á
Keflavíkurflugvelli og vinn-
ur þar að því að þjálfa þá
íslendinga, sem þar vinna við
flugþjónustuna.
Mun þjálfunin vera fólgin
i því að venja þá við skipu-
leg viðbrögð, ef til óvæntra
atburða kemur í eldsvoða,
styrjöld eða ef slys ber að
höndum.
Handavinnusýning
í húsmæðraskóla
Reykjavíkur
í gær var opnuð í húsmæðra
skóla Reykjavíkur sýning á
munum þeim, er unnir hafa
verið af námsmeyjum skólans
í vetur. Verður sýning þessi
ekki opin nema tvo daga, og
lýkur henni því i kvöld.
Þarna getur að lita margt
fagurra muna, sem bera vott
um gott handbragð og mikla
kunnáttu, og ættu bæjarbúar
að nota tækifærið til þess að
kynnast því starfi, sem unn-
ið er í húsmæðraskólanum.
Skólastjóri húsmæðraskól-
ans er Hulda Stefánsdóttir.
Togbátar afla vef
fyrir Norðurlandi
Miklar hafnarbætur á
Breiðdalsvík í sumar
Brygjíjan longjd um 30—40 metra
Frá fréttaritara Tímans í Breiðdalsvík
Flokkur manna hefir nú hafði vinnu við hafnarbætur í
Breiðdaisvík, og verður bryggjan breikkuð og lengd til mik-
illa muna, svo að allt að þúsund lesta skip geti lagzt þar að.
Verið er nú að steypa tvö
ker, sem sett verða fram af
bryggjunni, en fremst mun
koma timburhaus. Lengist
bryggjan þannig um 30—40
metra. Á að ljúka þessu verki
í sumar.
Hingað til hafa Herðubreið
og Skjaldbreið getað lagzt að
bryggju í góðu veðri, en eftir
hafnarbæturnar mun Hekla
og Esja komast þar upp að.
Frá fréttaritara Tímans
á Norðfirði.
Togbátar hafa komið með
ágætan afla til Norðfjarðar
að undanförnu. Þannig kom
einn þeirra fjögurra báta, er
þaðan eru gerðir út á tog-
veiðar með um 48 smálestir
af fiski í fyrradag. Eru bát-
arnir að veiðum aðallega út
af Þistilfirði.
Togarinn Egill Rauði kom í
vikunni með talsvert á fjórða
hundrað lestir af karfa. Var
um það bil helmingurinn sett
ur á land til vinnslu í frysti
húsunum á Norðfirði, en
hinu komið í vinnslu á Seyð-
isfirði.
Bandariskir skriðdrekar streyma yfir á í Kóreu gegn liði
kommúnista, sem tekiff hefir sér varnarstöðu ál | ium«
bakkanum
Með 17 manna áhöfn
á Grænland í sumar
«1
Hafborg'in úr Borganesi. annað íslenzka
skipið. sem fer til veiða við Grsenland
Hafborgin frá Borgarnesi er í þann veginn að leggja í fisk-
veiðaleiðangur til Grænlandsstranda og er það annað ís-
lenzkra skipa, sem leitar á þau mið á þessu sumri. Rifsnes-
ið frá Re.vkjavík er búið að vera um skeið að veiðum við
Grænland og afli þess sagður góður.
Jón Magnússon fram-
kvæmdastjóri útgerarfélags-
ins Gríms h.f. í Borgarnesi
gaf Tímanum þær upplýsing-
ar I gær, að þessi ferð skips-
ins sem staðið hefir til nú að
undanförnu væri nú ráðin.
Átti skipið að fara frá Borg-
arnesi i gærkvöldi áleiðis til
Reykjavíkur, en þaðan fer
það svo í næstu viku til Græn-
lands.
í Borgarnesi hefir verið
unnið að því að búa skipið til
þesarar ferðar, það málað og
byggt beituskýli og bætt að-
staða til söltunar um borð.
Hafborg er ágætis skip um
100 smálestir að stærð og tal-
in heppileg til þessara veiða.
Skipstjóri verður Jón Frankl-
ínsson, sem er kunnugur á
miðunum við Grænland. Var
hann þar með skipið Elsu
sama sumarið og Súðin var
þar.
Hafborgin mun fiska í salt
og er 17 manna áhöfn á skip
inu í þessari ferð. Gert er ráð
fyrir að skipið verði 9 daga
á leiðinni vestur fyrir Græn-
land á miðin. Fiskurinn vprð-
ur sennlega seldur í erlend
fisktökuskip á. miðunum, og
hjá þeim keyptar vistir, olía
og salt eftir hendinni eins og
þarf.
Ingimar Eydal heið-
ursfélagi KEA
Á aðalfundi Kaufélags Ey-
firðinga, sem haldinn var á
Akureyri í vikunni, var Ingi-
mar Eydal fyrrverandi rit-
stjóri á Akureyri, gerður að
heiðursfélaga. Hefir Ingimar
átt sæti i stjórn félagsins í
34 ár og gegnt fyrir það mar-
víslegum trúnaðarstörfum.
Ingimar baðst að þessu sinni
undan endurkosningu, sök-
um heilsubrests.
skeri í Eyjafiröi
Um þessar mundir er verið að undirbúa byggingu vita á
I Hrólfsskeri í miðju mynni Eyjafjarðar, milli Ólafsf jarðar-
múla að vestan og Einbúa að austan.
Vitaskipið Hermður hefir
flutt efni í vitabygginguna
norður, og flokkur verka-
manna er komin út í skerið,
sem aðeins er sex metra yfir
sjávarmál. Eiga þeir að haf
ast þar við, ef unnt verður
vegna sjógangs, unz vitabygg
ingunni er lokið. En við því
er búizt, að það taki um tvo
mánuði.
Viti þessi mun verða all-
mikil bygging, og verða sjó-
farendum við mynni Eyja-
fjarðar góður leiðarvísir.