Tíminn - 12.07.1951, Side 3
157. blað.
TÍMINN, fimníitudaginn 12 júlí 1951.
3.
/ slendingalDættir
Dánarminning: Gunnar Bjarnason
Enn er einn öó'Iingurinn og
sæmöarmaðurinn fallinn í val
inn, eítir langvarandi van-
heilsu og þrot á lífskröítum.
þótt allt væri gert sem hugs-
anlegt var til að létta hinurn
þjáða byrði krankleika hans,
með aðstoð lækna og hinnar
dásömu umhyggju konu hans
og uppeldisbarna.
Þau vinir hins látna sáu
hvaö að fór, og tjáði ekki um
að tala, enda andaðist hann
15. júní s. 1. að heimili sínu
Rauðarárstíg 3 í Reykjavik
og var jarðsunginn' frá Foss-
vogskapellu 25. s .m., að við-
stöddu fjolmenni, af fyrrv.
sóknarpresti hans, séra Sveini
Víking, hinum vellátna og
elskulega fyrrverandi sóknar
presti Seyðfirðinga.
Gunnar Bjarnason var
fæddur 22 maí 1873, að Upp-
sölum í Suðursvelt. og var þvi
rúmlega 78 ára, er hann lézt.
Faðir Gunnars var Bjarni
Gíslason, bóndi að Uppsölum,
Þorsteinssonar, Vigfússonar
frá Felli í Suðursveit. Bjarni
var vel gefinn gæðamaður,
eftirsóttur að hjúkra mönn-
um og málleysingjum, sem
honum heppnaðist prýðilega,
var hann þvi öllum harmdauðj
er hann féll frá á sviplegan
hátt við Hálsós (lendingar-
stað Suðursveitunga).
Þau hjónin eignuðust fjóra
syni alla mannvænlega. Þrír
þeirra komust upp, og var
þeirra elztur, Jón, nú í hárri
elli heima að Uppsölum, ann-
ar var Gísli, sem lézt 5. des.
1940, að Uppsölum, Gunnar,
er lézt nú þ. 15. júní s.l. Þor-
steinn dó fjögra ára
Mcðir Gunnars var Þóra
Jónsdóttir, fríðleikskona, virt
og vellátin og elskuð af öll-
um, sem umgengust hana.
Sambúð þeirra var ástúðleg og
fór vel á með þeim í alla
staði.
Gunnar ólzt upp að Uppsöl-
um, og dvaldist þar hjá móð-
ur sinýri, ásamt bræðrum sín
um eftir föðurmissirinn, þar
til hann var 26 ára að akV'i að
hann fluttist austur á Mjóa
fjörð um haustið 1899, til
Kristjáns Guðmundssonar
skósmiðs, sem nemi.
Dvaldi Gunnar við námið
þann vetur til vors, en þá
flutti Kristján alfarinn frá
Mjóafirði til Vopnafjarðar,
fór Gunnar þá í landvinnu
hjá Viglundi Þorgrímssyni að
S1-4ttu um su’uarið.
Ég, sem Þetta rita, kynntist
Cunnari fytst hjá Kristjáni
um veturirm, báðir við skó-
stníði, og um sumarið hjá
Víglundi.
Þarm 24 sept 1900, tók ég
Gunnar á mit/t skóverkstæði
og unnum v:ð saman fjóra
vetur samfleytt, en á sumr-
um- stundaði Gunnar j'msa
vinnu, var á hvalveiðastöð-
inni og viðar og hélt vel sam
an því, er hann inn vann.
Gunnar lauk prófsmíði um
vorið 1903 og þótti vel vand-
virkur og ve) vinna
Veturinn 1904 og 5 var
Gunnar fyrir verkstæðinu hjá
mér í Hafnarfirði við fimmta
xnann í húsi Ólafs Sigurðsson
ar. Var þá unnið vel, því auk
allra viðgerða voru smiðuð
540 pör af hnéháum sjóstig-
vélum fyrir verzlun eina þar í
firSinum. Stýrði Gunar því
prýðilega í fjarveru minni, því
að ég var hér og þar mikið við
ox-gelnám hjá Brynjólfi Þor-
lákssyni i Reykjavík.
Um vorið 1905 skildu leiðir
okkar Gunnars. Ég fór til
Morðfjarðar, en Gunnar til
Seyðisfjarðai'. Var hann fyrst
víð útgerð og síðan skósmíði.
Á næstu árum reisti hanr. sér
íbúðarhús, er hann kallaði
Skuld. Mun hann hafa kall-
að það svo vegna þess að eitt
hvað lán mun hann hafa
þurít að taka til að geta lok-
ið við hina prýðilegu bygg-
:ngu sína.
Árið 1911 gekk Gunnar að
ciga Valgerði Ingimundardótt
ur, hina ágætustu konu, ætt-
IFramhald á 5. siðu.)
Ef þið haldið aö Sambandiö hafi veriö, eða sé, óvinur
! Eimskipafélagsins, þá æítuð þið að kynna ykkur hjá
vinum ykkar á Eimskip, bvort nokkur viðskipti hafa
verið þar á milli á undanförnum árum. Spyrjið þiö t. d.
hvort það sé satt, að SJ.S. haíi verið stærsti viðskipta-
i maður hjá Eimskip. Spyrjið þið hvort þau viðskipti hafi
hrapað niður úr öllu valdi síðan SJ.S. fór að gera út
: skip. Spyrjið þið jafnvel hve mikið S.Í.S. og kaupfélögin
; hafj greitt Eimskip í farmgjöld seinustu 10—20 árin og
hve stór hundraðshluti það hafi verið af farmgjalda-
i tekjum félagsins, sem komið hafi frá S.Í.S. og kaup-
félögunum.
Það værj gaman fyrir ykkur að vita þetta og fróölegt
gætj verið að sjá það i blaðinu ykkar. R. S.
Utan úr haimi
Stjórnkænska.
Robert Schuman, utanríkis-
ráðherra Frakka, var nýlega
spurður að því, hvort stjórn-
kænska (diplomacy) hefði
nokkuð að segja á þessum
tímum, þegar hatrið og vopn-
in réðu ríkjum.
Schuman svaraði með því að
segja eftirfarandi sögu:
Persneskan kóng dreymdi
eitt sinn, að hann hefði misst
allar tennurnar. Hann kallaði
einn ráðgjafa sinn á fund
sinn og bað hann að ráða
drauminn. Ráðgjafinn, sem
var enginn diplomat, svaraði
óðara: Yðar hátign, draumur-
inn boðar óhamingju. Tenn-
urnar merkja börn þín og þú
munt missa þau öll og syrgja
þau sárlega. Konungurinn
reiddist þessari ráðningu svo
mikið, að hann lét drepa ráð-
gjafann. Síðan gerði hann boð
eftir öðrum ráðgjafa, er var
sannur diplomat, og bað hann
að ráða drauminn. Hann
svaraði óðara: Yðar hátign,
draumurinn boðar óvenjulega
hamingju. Tennurnar merkja
börn þín. Guðuixum líkar svo
vel stjórn þín, að þeir munu
gera þig óvenjulega Ianglíf-
an og láta þig lifa öll börn
þín. Konungurinn gladdist
svo yfir þessari ráðningu, að
hann gaf ráðgjafanum stóran
sekk fullan af gullpeningum.
Á þessu getið þið séð, sagði
Schuman að lokum, hvað það
þýðir að vera diplomat og hvað
gagn getur hlotizt af stjórn-
kænskuixni.
*
Fjórburar.
Tæplega þrítug kona i Aust
urbotni í Finniandi, Hilkka
Joupila, eignaðist fjórbura í
siðastl. mánuði. Fyrst átti hún
stúlku, er vóg 1800 grömm, en
síðan komu þrír drengir, sem
vógu 1800, 1700 og 1450 grömm.
Öll börnin fæddust á sama
klukkutímanum. Þau voru hin
hraustustu.
Hins vegar var óttast um frú
Joupila meðan hún gekk með
þau, þar eð hún þjáðist af ill
kynjaðri nýrnaveiki. Eftir fæð
inguna leið henni þó vel eftir
atvikum.
Nokkrar ályktanir þings
Stórstúku íslands
Hér fara á eftir nokkrar
samþykktir hins nýafstaðna
þings Stórstúku íslands, sem
haldið var á Akureyri dagana
27. til 30. júní s. 1.:
1. Stórstúkuþingið skorar á
framkvæmdanefndina að
hlutast til um að komið verði
upp lækningastofum í helztu
kaupstöðum landsins fyrir
drykkjusjúkt fólk, og að séð
verði um, að þar verði að
starfi sérfróðir læknar í bess-
um efnum, og að notuð verði
öll þau helztu lyf, sem ætlað
er að gagni megi koma.
2. Stórstúkuþingið skorar á
rikisstjórn og bæjarstjórn
Reykjavíkur að hrinda nú
þegar í framkvæmd:
a) Að koma upp lækninga-
stöð í Reykjavík fyrir drykkju
sjúkt fólk.
b) Að koma upp hressingar
hæli fyrir þá drykkjusjúk-
linga, sem þurfa á langri hæl-
isvist að halda.
c) Að ráöa konu til þess að
annast um þær konur, sem
dæmdar hafa verið til fanga-
vistar í Reykjavík.
d) Að ráðin sé lærður hjúkr
unarmaður er sé jafnan til
aðstoðar á lögreglustöðinni í
Reykjavík til þess að annast
ölvaða menn, sem þar eru í
vörzlu. Felur þingið fram-
kvæmdanefnd sinixi að koma
þessum áskorunixm þegar á
framfærj við ríkisstjórn og
bæjarstjórn Reykjavíkur og
fylgja þeim fast eftir.
3. Stórstúkuþingið flytur
menntamálaráðherra þakkir
fyrir bréf með fyrirmælum um
bindindissemi í skólum lands
ins. Jafnframt skorar þingið
á menntamálaráðuneytið að
herða á skólum landsins að
auka þindindisfræðslu samkv.
gildandi reglugerð.
veitingar áfengra drykkja og
skorar á framkvæmdanefnd
sína og alla bindindissinnaða.
menix í landinu að vera vel á
verði gegn öllurn tilraunxun i
þá átt.
6. Stórstúkuþingið felur
framkvæmdanefnd sinni að'
, koma því til leiðar, að lögin
um héraðabönn korni þegar
til framkvæmdar.
7. Jafnframt Því, sem Stór-
stúkuþingið mótmælir öllum
undanþágum frá gildandi
reglugerð um vínveitingaleyíi,
skorar það á framkvæmda-
nefnd sína að beita sér fyrir'
afnánxi allra vínveitingaleyfa..
8. Stórstúkuþingið þakkax
Alfreð Gíslasyni lækni mikið
og gott starf til hjálpar
drykkjusjúkum mönnum.
9. Stórstúkuþingiö lætur i
ljós ánægju sína út af góðri
samvinnu milli kirkjunnar og,
Reglunnar og beinir jafn-
framt þeirri ósk til fram-
kvæmdanefndarinnar að hún
leiti samstarfs við alla þjón-
andj presta í landinu.
10. Stórstúkuþingið 1951
beinir þeim tilmælum til skip-
stjóra á siglingaflota lands-
manna, að Þeir beiti sér, svo
sem verða má, gegn vínkaup-
um skipshafna sinna utan-
lands og innan með hliðsjón
af sorglegri reynslu undan-
farinna ára.
11. Stórstúkuþingið mót-
mæfir bruggun sterkari öl-
tegunda en þegar eru frarn-
leiddar i landinu, hvort sem er
til sölu utanlands eða innan.
Telur þingið, að sala á áfengu
öli myndi auka drykkjuskap i
landinu, sérstaklega meðai
æskulýðsins.
Gifti sig sjö sinnum á
sex vikuni.
Fadl Abdel Kermin, soldán
í Lahej, sem er smáríki í Suð-
vestur-Arabiu, setti nýlega það
met að gifta sig sjö sinnum á
sex vikum. Hamx hefir hafixaö
þeim sið að ciga fleiri konur
samtíxxxis, en skiptir þeim muix
oftar um. Eitt af umræddum
hjónaböndum stóð ekki nema
í tvær nætur og eiixn dag, en
þá hafði soldáninn kyixnzt
amxari konu, er hugur hans
girntist enn meira. Það hjóna
baixd, sem þá tók við, stóð þó
ekki nema i tæpa viku.
*
Hótel neðanjarðar.
Neðanjaröarbyrgi, sem var
útbúið hjá Clapham Common
í London á striðsárunum. hef-
ir íxú verið breytt í bráðabirgða
hótel vegixa himxar miklu
gestakomu til London í tilefni
af Bretlandshátíðinni. í byrg-
inu hefir verið komið fyrir 4000
rúmum og eru þau leigð fyrir
3 shillinga á sólarhring.
*
Óþægilegar spurningar.
Erindrekar tékkneska al-
þýðusambandsins hafa fengið
fyrirskipun um að leyfa ekki
fyrirspurnir á verkamanna-
fundum, er þeir halda. Það hef
ir nefnilega komið fyrir, að
á fundum, sem þeir hafa hald-
ið um Stokkhólmsávarpið og
friðarbaráttu Rússa, að áheyr
endur hafi lagt fyrir þá óvið-
komandi spurningar, eins og
t. d. hvar væri hægt að fá
vinnuskó eða regnfrakka, og
hefir ræðumönnum þá ott orð
ið erfitt um svör. Slíkar spurn-
ingar hafa oft eyðilagt friðar-
fundina, segir í fyrirmæ!um
sambandsins, og verða því að
baixna þær með öllu.
4. Stórstúkuþingið lætur í
Ijós þakklæti sitt til ÍÞrótta-
sambands íslands og forseta
þess, fyrir það hve traustum
tökum var tekið á því hixeyksli
er uppvíst varð að sum íþrótta
félög höfðu áfexxgissölu sér til
fjáröflunar.
5. Stói'stúkuþingið varar
við allri rýmkun um sölu og
Keppni íslenáinga
í Noregi
Eftir landskeppixina í Osló
kepptu íslenzku frjálsíþrótta-
mennirnir á nokkrum stöðum
í Noregi. Á móti, sem haldiö
var í Tönsbei'g 3. júlí sigr-
aði Ásmundur Bjarnason í
100 og 200 nx. hlaupum, hljóp
á 10,9 sek. og 22,4 sek., sem er
ágætur árangur, því aðstæð-
ur voru ekki sem beztar. Alex-
ander Sigurðsson sigraði í
drengjaflokkum, hljóp á 11,1
sek. Ágúst Ásgrímsson sigraði
i kúluvarpi og náði bezta á-
rangri sinum hingað til, varp
aði 14,58 m. Ingi Þorsteinsson
varð fyrstur í 110 m. grinda-
hlaupi á 15,3 sek. Þorsteinn
Löve sigraði í kringlukasti
með 43,51 m. Kolbeinn Krist-
insson keppti á hástökki og
varð fyrstur, stökk 1,80 m. —
Íslendiixgarnir kepptu einnig
í nokkrum öðrum greiixunx og
stóðu sig .vel. Sigurður Guðna
son var þriðji í 1500 m. á
4:09,4 nxín. og Ingi Þorsteins-
son var fjórði í 200 m. á 23,2
sek.
Áskorun
Ég undirritaður vil hér með'
gera smávegis athugasenxd
við skrjf Mánudagsblaðsins 9.
þessa mánaðar, þar sem ráðizt;
er svo lxarkalega á Guixnar
Guðmundsson, að ég get varla.
hugsað mér, aö lánadrottnar
þeir, sem blaðið telur lxann.
hafa svikið, telji aðra leið
eðlilegri en úrskurð dómstóla.
Það mun þó nýtilkomið, að
upphæðir, sem skipta tugum.
þúsunda, séu lánaðar eigna-
lausum manni tryggiixgar-
laust. Þykir mér það furðu
sæta, ef menn haga þamxig
útlánum á pexxingum sínum,
því að alltaf getur sá, sem
lánið tekur, dáið er hann hef
ir tekið við því. Ég skil þvi
ekki, hvers konar leiksvið'
þessj lánastarfsemi hefir ver
ið færð yfir á.
Nú vildi ég gjarna sem aðili
mákominn Gunnari mælast
til þess, að ,ég fengi að sjá
plögg öll viðvíkjandi þessum
lánum, svo að ég geti komizt
að raun um, hvort hér er um
þrjú hundruð þúsund kronur
að ræða, eins og Mánudags-
blaöið segjr. Sjálfur er Gunn
ar erlendis og getur þvi ekki
svarað árásunx á sig.
Veröi ekki orðið við þessum
tilmælum, hlýt ég að líta á
skrif Mánudagsblaðsiixs sem
svívirðilega árás á fjarver-
andi mann.
Guöniundur Vigfússon.