Tíminn - 09.08.1951, Page 1
Ritstjóri:
Þórarinn Þórarinsson
Fréttaritstjóri:
Jón Helgason
Útgefandi:
Framsóknarflokkurinn
Skrifstofur í Eddubúsl
Préttasimar:
81302 og 81303
Afgreiðslusími 2323
Augiýsingasími 81300
Prentsmiðjan Edda
35. árgangur.
Reykjavík, fimmtudaginn 9. ágúst 1951.
177 biað.
Unnið að brunni á
Jökulsá í Lóni
í sumar hefir verið uhnið
að brúargerð á Jökulsá í Lóni,
og hefir aðstaða verið góð, því
að þurrviðrasamt hefir verið
og vatn í ánni með m'nnsta
móti.
Brúin á Jökulsá verður 247
metrar og því geysifnikið
mannvirki. Gert er ráð fyrir,
að brúarsmíðinni verði lok ð
haustið 1952.
Engin síldveiði
nyrðra í gær
Síldarskip þau, sem verið
höfðu í höfn á Raufarhöfn
eða leitað í var undir landi,
fóru út í gær. Var þá tekiö að
iygna, en sjór enn rismikill
og varla bátaveður austur frá.
Voru skipin einkum á Tjör-
nesbanka og austan Langa-
ness, en urðu ekkj sildar vör,
svo að frétt r bærust af í gær-
kvöldi.
Þrátt fyrir þetta eru menn
ekki úrkula vonar um, að stld
sé enn fyrir Norðausturlandi,
og komi upp, þegar sjó lægir.
Aðrir óttast þó, að síldin sé
gengin austur um og komin
á haf út.
Um allt vestursvæðið var
ágætt veður í gær og lítil
kvika, en síldarleitarflugvél-
ar urðu hvergi síldar varir,
þótt þær færu víða.
Nokkur skip eru einnig á
vestursvæðinu, og höfðu þau
ekki orðið vör við neina síld
1 gærkvöldi, svo að kunnugt
væri.
Minningartafia
um þjóðfundinn
í dag verður afhjúpuð i
menntaskólanum i Reykja-
vík minningartafla um þjóð-
ifundinn 1851, að forgöngu
Reykvíkingafélagsins.
Taflan er úr kopar, og verð
ur fest upp við aðaldyr skól-
ans. Athöfnin fer fram klukk-
an hálf-þrjú.
Hlaðafli af þorski
við Norð-austurland
Undanfarna daga hefir afli
mjög glæðzt hjá línubátum í
verstöðvum norðaustan lands,
aðallega frá Húsavík til Norð
fjarðar. Hafa bátarnir kom-
ið drekkhlaðnir úr róðrum, og
stundum orðið að tvíhlaða,
eða fá aðra báta til hjálpar
til að flytja aflann að landi.
Virðist þorskaflinn hafa kom-
ið í kjölfar síldargöngunnar
fyr:'r Nörðausturlandi.
Jón Sigurðsson mótmælir atferli Trampe greifa
Þcssa »uynd hefir Gunnlaugur Blöndal listmálari gert cftir gamalli mynd af þjóðfundin-
um, er Trampe greifi sleit honum 9. ágúst 1851. Trampe greifi er að ganga fram gólf ð í
einkcnnisbúningi ogmeð hönd á sverði sánu. Farseti fundaríns, Pál! Melsteð, stendur við for-
setaborðíð, albúinn að yfirgefa salinn. Jón Sigurðsson stendur við borðið hægra megin,
styður á það annarri hönd, en kreppir hinn hnefann og ber fram mótmæli sin. Við borð-
cndann situr Jón Guðmundsson og réttir fra n krepptan hnefa, en bak v:ð hann er Pélur
Pétuisson, siðar biskup, með gleraugu. og séra Björn llahdórsson með dökkt skegg, en
fremst og yzt til hægri Eggcrt Briem. ótrauður fylgisniaður Jóns Sigurðssonar. Næstur að
bakj Jóns Sigurðssonar stendur séra Hannes Stephensen og við hlið hans séra Ilalldór
Jónsson á Hofi, háðir meðal skeleggustu þjóðfundarmanna. Vinstra megin við Pál Melsteð
amtmann, standandi, er Jósep Skaptason læ’inir, sem var meðal harðskeyttustu fylgis-
manna Jóns S'gurðssonar.
V öruskipta jöf nuð-
urinn óhagstæður
um 200 milj. kr.
Samkvæmt yíirliti Hag-
stofunnar um verðmæti inn-
og útflutnings í júlímánuöi
voru alls fluttar út vörur fyr-
ir 21,01 millj. kr., en inn fyrir
52,75 millj. í þeim mánuði.
Vöruskiptajöfnuðurinn varð
bví óhagstæður um 41,73 millj..
[ júlí. Fyrstu sjö mánuði árs-
ins eða til júliioka voru alls
iluttar út vörur fyrir 302,7
.nillj. kr. en inn fyrir 504,2
nillj. kr. Þar af var andvirði
skipa 71,7 millj. Vöruskipta-
jöfnuðurinn var því óhagstæð
ur á þessu tímabili um 201,5
millj. kr. í júli í fyrra var
vöruskiptajöfnuðurinn óhag-
stæður um 39,1 millj. en á
fyrstu sjö mánuöum áx-sins þá
óhagstæður um 142,4 millj. kr.
en þá nam andvirði skipa að-
eins 27,8 millj. kr. allt miðað
við sama gengi og nú.
í boðí AEberts Guð-
mundssonar tiE Parísar
Eins og lesendum Tímans er í fersku minni voru meðal
þeirn, scm syntu tvö hundruð metrana í simdkeppninni íj
sumar, Skúli Jensson Iögfrxeðingur, máttvana maéur, sem
ekki getur risið úr sæti og auk þess nokkuð lamaður í hand-
Icggjnm.
Þegar Albert Guðmundsson
knattspyrnumaður og Bryn-
dís Jóhannsdóttir, kona hans,
kömu hingað til lands í sum-
ar, ljlttu þau Skúla, en Albert
vann fyrr á árum um tíma í
sundhöllinni í Reykjavík, og
kynntist; þá Skúla, er kom
þangað til sundæfinga. Bauð
Albert íikúla nú að koma í
heimsókn til sín i París á sinn
kostnað.
Heimboðið ítrekað.
Er þau Albert og Bryndjs
voi'u afcur farin til Frakk-
lands, barst Skúla bréf frá
þeim, þar sem boðið var itrek
að. Varð það úr, að Skúli fór
flugleiðis til London á þriðju-
dag i síðastliðinni viku, og
kom Albert þangað til móts
við hann og fór með hann til
Parísar. Dvaldi Skúli þar lxjá
þeim hjónum í eina viku. Síð
an fékk Albert honum aftur
íslend'ng til fylgdar til Lond-
on, en þaðan kom Skúli heim
til Reykjavíkur flugleiðis á
þriðjudaginn.
Ógleymanleg för.
Meðan Skúli dvaldi i París
bjó hann heima hjá þeirn Al-
bert og Bryndxsi, sem báru
hann bókstaflega á höndum
sér og sýndu honum allt það,
sem tími vannst til að skoða
i borginni þennan tíma.
— Þessi íör hefir verið mér
ógieymanieg, sagði Skúli við
tíðindamann frá Tímanum í
gær, og ég er þeim hjónunum
ákaflega þakklátur fyrir alla
elskusemi þeirra.
Lvar Guðmundsson
farinn til starfa
hjá S.Þ.
Þerrir um allt
land í gær
•
í gær var þurrkur um allt
land, en mjög kalt víða norð
an lands.
Víða norðan lands hafa
verið óþurrkar upp á síðkast
ið, svo að hey hafa ekki
náðzt inn, en nú var hvar-
vet.na heyþerrir, þótt mis-
jafnlega góður væri. Er víða
mikið hey úti, svo að sæmi-
legan þerri þarf i nokkra
daga, ef að haldi á að koma.
Sunnan lands hefir hins
vegar verið hið fegursta veð
ur undanfarna daga, þótt
sums staðar hafi gert skúra
dembur suma daga, og yfir-
leitt hefir verið ágæt hey-
skapartið á Suðurlandi og
Vesturlandi.
Næturfrost í
Mosfellsdal
í fyrxinótt var frost á slétt
lendinu í Mosfellsdal, svo að
kartöflugrös héngu slöpp og
dauðaleg um morguninn, þar
sem ekki er velgja í jörðu.
Mosfellsdal mun vera nokk
uð hætt við næturfrostum,
því að dalurinn lokast að
framan, svo að kalda loftiö
safnast fyrir og nær ekki að
streyma fram. Mun frostsins
því ekki hafa gætt í brekk-
um eða þar sem hærra bar,
heldur aðeins niðri á jafnlend
inu.
Ekjki hefir Timinn heldur
haft fregnir af næturfrosti
annars staðar hér í nágrenn-
inu. —
Þrýstiloftsflugvélar
flugu yfir Reykjavík í gær-
morgyn. Komu flugvélar þess-
ar til Keflavikur i fyrrakvöld
á leið til meginlands frá Vestur
heimi.
J.var Guðmundsson. sem nú
hc£ir Iátið af fréttaritstjórn
Morgunblaðsins, fór vestur
um haf, ásamt Þórhildi konu
sinn:, í gær. Vestra tckur
hann við starfi hjá S.Þ.
ívari fylgja að heiman árn-
aðaróskir islcnzkra blaða-
inánna, sem eiga honum að
þakka góða samvinnu og
Órengskap í hvivetna, svo að
þar hefir cngan skugga á bor
ið, frá því bíaðamannsferill
hans háfst fyrir me'ra en
hálfum öðrum áratug.
Blaðamannafélag íslands
hélt honum samsæti síðastlið-
inn laugardag, þar sem hann
var kvaddur af þeim blaða-
mönnuni. scm kost áttu að
sækja héfið, en lluttar kvcðj-
ur hinna, scm íjaivcrandi
voru.
Vörubifreið fellur
af Víðidalsárbrú
ESItfreiðarsíjórimi .slapp émeiddnr
Frá fréttaritara Tímans á Blönduósi.
í gærdag rakst stór vörubifreið úr Mosfellssveit, G-202, á
haudriðsstélpa á brúnnj á Víðidalsá. Braut hún hálft riðið
af briinni öðru megin og fcll í ána, en bílstjórinn, sem var
e'nn í biíreiðinni, komst heill á húfi úr biíreiðinni í ánni.
Margra mannhæða fall.
Bífreið þessi var að flytja
átta smálestir af olium til
Saúðárkróks, og var olían í
tunnum á palli þifreiðarinn-
ar. Brúin á Viðidalsá er há, og
mun fallið hafa verið um
fjórar mannhæðir. Tvistruð-
ust oliutunnurnar af bifreið-
inni í ána og flutu burt með
straumnum.
Komst hjálparlaust út.
Áætlunarbifreið frá I^oróur
leiðum, ejr Ásgeir GísJason
(Fraxnhald á 2. slðu.)